Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2021
Fríða Sif Magnúsdóttir er 42 ára og býr á Englandi með manni sínum og börnum. Hún fór aðallega í bólusetningu til að geta ferðast á milli Íslands og Englands. Hún eignaðist nýlega barnabarn á Íslandi sem hún vill geta heimsótt án þess að þurfa að fara í sóttkví
Hér kemur hennar frásögn:
Ég fór í fyrri AstraZeneca sprautuna í lok apríl og varð svakalega veik daginn eftir, fékk háan hita, skjálfta og gat ekki hreyft handlegginn sem var stunginn. Í fjóra daga á eftir var ég með heilaþoku og mjög slöpp. Síðan var ég góð fram að næstu sprautu sem ég og maðurinn minn fórum saman í 4. júlí. Þá var ég slöpp daginn eftir sem ég svo sem bjóst alveg við, fékk aftur heilaþoku, kulda-og hitaköst en ekkert sem ég átti ekki von á. Svona var ég í sex daga eða til 10.júlí."
Mánudaginn 19. júlí vaknaði ég með mikinn svima, heilaþoku, hausverk á ennisstað sem hefur staðið yfir samfleytt í 10 daga og mikið ljósóþol. Ég tengdi þetta ekki við sprautuna þar sem það voru liðnar tvær og hálf vika frá bólusetningu og hélt því að ég væri bara með slæma vöðvabólgu sem var svo ekki."
Eftir tveggja daga svefnleysi sökum svima þar sem ég hrökk reglulega upp úr svefni ákvað ég að gúggla" þessi einkenni í tengslum við covid bóluefnin og fann fjölda frásagna fólks út um allan heim, konur og karlar sem höfðu öll fengið mismunandi bóluefni en voru að upplifa samskonar einkenni, sumir í viku en aðrir í marga mánuði. Hjá sumum virðast einkennin koma og fara og því ekki auðvelt að segja til um hvort eða hvenær mér muni batna. Ég hafði samband við heilsugæslulækni hér úti tvisvar (hér eru læknar helst ekki að hitta sjúklinga sökum Covid) og hann sagði að þetta lýsti sér eins og eftirköst Covid bólusetninga. Ég virðist því ekki vera eini sjúklingurinn sem hann hafði heyrt af með þessi einkenni."
Læknirinn setti mig á lyfið Prochlorperazine fyrir svimanum sem virkar lítið en ég næ allaveganna að sofa. Eins er ég að gera Brandt-Daroff æfingar. Þegar mesti sviminn kemur yfir mig þá þarf að styðja við mig og hjálpa mér að komast á milli herbergja. Ég treysti mér ekki ein út, hvað þá til að keyra bíl. Er sem sagt algjörlega úti".
Önnur einkenni eru stingir í höndum, fótum og höfði, verkur í kringum eyrun og bólgnir eitlar á kjálkasvæðinu. Eins er ég nánast stanslaust með suð fyrir eyrum og verð fljótt móð. Áður var ég alltaf á fullu og stálhraust. Mér líður satt að segja eins og mér hafi verið byrlað eitur."
Mér finnst ekki auðvelt að tjá mig um veikindin þar sem menningin virðist vera þannig að ekki megi segja neitt sem lætur covid bóluefnin líta illa og hef ég séð fólk tekið af lífi" á hinum ýmsu miðlum fyrir að tjá sig, spyrja gagnrýnna spurninga eða koma með önnur sjónamið."
Ég ákvað að fara í bólusetningu þar sem ég eignaðist mitt fyrsta barnabarn í febrúar sl. sem er búsett á Íslandi og vegna faraldursins virðist ekki vera hægt að ferðast neitt án þess að vera bólusettur þ.e.a.s. án þess að fara í langa sóttkví sem var ekki möguleiki fyrir mig þar sem ég á þrjú önnur börn sem öll voru í skóla og eiginmann sem er í vinnu."
Ég hafði mínar efasemdir um bóluefnið þar sem ég er einungis 42 ára og fullhraust en þar sem heilu samfélögin eru lokuð að einhverju leyti þeim sem eru óbólusettir var mikill samfélagslegur þrýstingur á að fara í sprauturnar. Núna er ég óvinnufær og ófær um að framkvæma daglegar athafnir með góðu móti, get lítið sinnt börnunum mínum og er eiginlega bara hálf gagnslaus. Ég er greind með vefjagigt en hef ekki fundið fyrir henni í mörg ár og lét allt heilbrigðisstarfsfólk vita fyrir báðar sprauturnar að ég væri með þessa greiningu. En það virtist engu máli skipta. Ef mér verður boðin þriðja sprautan, mun ég aldrei taka hana.
Svona var sagan hennar Fríðu.
Margrét Ósk Guðbergsdóttir sagði svipaða sögu, hún náði ekki að segja lækninum frá öllum einkennum sínum áður en hann greip fram í fyrir henni og sagði...já og svima og ógleði?" Hér er hennar frásögn.
Læknar virðast því hafa heyrt um öll þessi einkenni, því er þögnin um þessar furðulegu aukaverkanir út um allan heim, mjög undarleg. Eru þetta ekki örugglega sömu bóluefnin og okkur var sagt að myndu kannski leiða til smá flensueinkenna? Ég hef talað við marga og oftast svipaðar lýsingar; svimi, ógleði, mæði, hausverkur, hita-og kuldaköst o.fl. sem vara í lengri tíma. Sem sagt ekki bara einhver flensueinkenni! Ekki má gleyma röskun á tíðarhring kvenna sem hlýtur að teljast stórfurðuleg aukaverkun eftir bólusetningu.
Hér eru fleiri sögur eftir bólusetningar:
Engar blæðingar fjórum mánuðum eftir Pfizer"
Læknar vilja ekki gefa mér seinni sprautuna."
Er eins og níræð kona eftir AstraZeneca."
Fárveikur eftir Janssen og fékk Covid."
Stanslaust taugastríð eftir AstraZeneca."
Ef ég sé eftir einhveru í þessu lífi..."
Var sjaldan veik en nú fæ ég allar pestir"
Magga Stína: bóluefnið er árás á hormónakerfið"
Bloggar | Breytt 30.7.2021 kl. 10:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.7.2021 | 15:58
2442 tilkynntar aukaverkanir - 24 í hópnum 12-17 ára
Lyfjastofnun hefur nú borist 2442 tilkynningar um grunaðar aukaverkanir tengdum C19 bóluefnunum, þar af 151 alvarleg en alvarleg aukaverkun telst skv. stofnuninni vera andlát, lífshættulegt ástand, innlögn á sjúkrahús o.fl.
Lyfjastofnun hafa borist fjórar tilkynningar um hjartavöðvabólgu í kjölfar bólusetningar gegn COVID-19. Ekki kemur fram í hvaða aldursflokki það er en í eldri frétt kemur fram að tvær hafi verið í aldurshópnum 12-17 ára. Gollurhúsabólga er önnur aukaverkun sem tengist þessum lyfjum en þær upplýsingar fylgdu ekki með svarinu þó þessar tvær aukaverkanir séu nátengdar.
Lyfjastofnun hafa borist 24 tilkynningar vegna gruns um aukaverkun hjá einstaklingum á aldrinum 12-17 ára í kjölfar bólusetningar gegn COVID-19. Allar tilkynningarnar nema tvær varða Pfizer. Ein tilkynning varðaði AstraZeneca og ein tilkynning varðaði bóluefnið Janssen. Fimm tilkynninganna eru alvarlegar; tvær þeirra vörðuðu sjúkrahúsvist og þrjár tilkynningar voru metnar sem klínískt mikilvægar.
Öllum einstaklingum er batnað eða eru á batavegi nema einum."
Sem sagt, fimm alvarleg tilfelli hjá börnum 12-17 ára sem er hópur sem ekki er í hættu vegna Covid, tölfræðilega séð og einn hefur ekki náð bata. Sagt er að allir séu á batavegi nema einn. Það sem ég hef lesið um hjarta-og gollurhúsabólgu er að skaðinn sé varanlegur, þó þú jafnir" þig. Þetta segir t.d. kanadíski læknirinn Charles Hoffe.
Ekkert barn eða ungmenni hér á landi hefur þurft að leggjast inn á spítala vegna Covid. En fimm alvarleg tilfelli hafa verið tilkynnt vegna bólusetninga í þessum aldurshóp. Er áhættan ennþá minni en ávinningurinn? Nei, ekki miðað við þessar upplýsingar. Þess vegna á að stöðva þessar bólusetningar á unga fólkinu nú þegar! Þegar lyf eru á skilyrtu leyfi eins og þessi bóluefni eru öll, þá þarf að sýna fram á að ávinningurinn sé meiri en áhættan, annars skal hætta notkun lyfsins. Ath. að frekar lítið hlutfall 12-15 ára hafa fengið bóluefnin og því eru 24 tilfelli og fimm allvarleg, töluvert.
Frekari bólusetningum barna og ungmenna verður mótmælt 5.ágúst nk.
p.s. nýjustu fréttir frá forstjóra Pfizer, ónæmið gegn Covid byrjar að dvína 6 mánuðum eftir sprauturnar, en þriðji skammturinn er á leiðinni. Skyldi hann vita að bara bólusettir einstaklingar liggi inni á spítala hér á Íslandi með Covid?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
29.7.2021 | 11:53
Barnasmitsjúkdómalæknir: Börn virðast ekki smitast í móðurkviði
Kamilla sagði ófrískar konur vera að leitast við því að verja bæði sig og ófædd börnin sín við smiti. Ef kona smitast seint á meðgöngu sé hætt við því að barnið smitist líka." Hvers vegna var landlækir ekki látinn svara þessum spurningum?
Hún veit betur ekki satt? Hvaða fimm tilvik hafa annars verið tilkynnt Lyfjastofnum um vandamál tengd meðgöngu eftir bólusetningar?
Þessi frétt er frá því mars 2020, eru nýjar rannsóknir sem segja annað eða er Kamilla að lesa upp úr handritinu frá WHO?
Valtýr Stefánsson Thors, barnasmitsjúkdómalæknir á Barnaspítala Hringsins, segir að svo virðist sem að börn smitist ekki af kórónuveirunni þegar þau eru í móðurkviði.
Valtýr var einn þeirra sem sat fyrir svörum á upplýsingafundi í samhæfingarstöð almannavarna klukkan 14. Var hann spurður um barnshafandi konur og veiruna.
Hann sagði að búið sé að kalla eftir gögnum varðandi þetta. Barnshafandi konur flokkist að mörgu leyti í áhættuhóp, til dæmis ef um inflúensu er að ræða.
Hann sagði að engin dæmi séu um að barnshafandi konur hafi orðið alvarlega veikar vegna veirunnar. Nokkur dæmi hafi verið um að barnshafandi konur í Kína hafi greinst veikar, fætt barn og hafi barnið reynst ósmitað. Það virðist því sem að barnið smitist ekki í móðurkviði, sagði Valtýr." (Valtýr er á myndinni).
Ófrískar konur haldi sínu striki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.7.2021 | 09:52
Fleiri frásagnir eftir sprauturnar
Sjálf var Rebekka á blæðingum í 53 daga í kjölfar bólusetningar. Hún byrjaði á blæðingum daginn eftir bólusetninguna og samhliða því fékk hún mikla verki í móðurlífið, brjóstaspennu og þreytu. Þrátt fyrir að blæðingarnar hafi stöðvast fyrir um þremur dögum glímir hún enn við mikla túrverki og þreytu."
Ég hef svo sem ekki áhyggjur af þessu til lengri tíma, það er langlíklegast að tíðahringurinn jafni sig hjá flestum konum þegar lengra líður á, segir hann (kvensjúkdómalæknirinn)."
Hann er að giska, veit ekkert um hvað hann er að tala enda eru þetta lyf sem eru á rannsóknarstigi og þessar aukaverkanir voru ekki nefndar þegar almenningur byrjaði að fá lyfin. Aðeins var talað um flensueinkenni og þess háttar.
Hér koma hlekkir á fleiri frásagnir kvenna og eins karlmanns eftir þessar lyfjagjafir. Allar birtar með leyfi.
Engar blæðingar fjórum mánuðum eftir Pfizer"
Læknar vilja ekki gefa mér seinni sprautuna."
Er eins og níræð kona eftir AstraZeneca."
Fárveikur eftir Janssen og fékk Covid."
Stanslaust taugastríð eftir AstraZeneca."
Ef ég sé eftir einhveru í þessu lífi..."
Var sjaldan veik en nú fæ ég allar pestir"
Magga Stína: bóluefnið er árás á hormónakerfið"
Á blæðingum í 53 daga í kjölfar bólusetningar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.7.2021 | 13:21
Sjúklingurinn er sem sagt nýbólusettur á aldrinum 12 - 59 ára?
Einstaklingurinn sem liggur á gjörgæslu er undir sextugu, með undirliggjandi áhættuþætti og hefur verið í aðhlynningu á Covid-19-göngudeild Landspítalans. Þetta staðfestir Runólfur Pálsson, yfirlæknir á smitsjúkdómadeild spítalans.
Sjúklingurinn telst óbólusettur en Runólfur bendir á að einstaklingar sem voru bólusettir fyrir viku teljist einnig óbólusettir enda séu áhrif bólusetningarinnar ekki komin fram fyrr en að tveimur til þremur vikum liðnum." (mbl.is)
Þannig að hann er nýbólusettur, les maður á milli línanna, á aldrinum 12 - 59 ára með undirliggjandi sjúkdóma? Ath. búið er að bólusetja 12-15 ára með undirliggjandi sjúkdóma. Síðasti bólusetningardagur í Höllinni var 14. júlí þannig að það hljóta að vera a.m.k. tvær vikur síðan nema þetta hafi verið sérstök ósk um bólusetningu fyrir þá sem alls ekki gátu beðið.
Uppfært: hér er orðrétt svar frá Runólfi:
Þetta byggir á upplýsingum sem við fengum um að þessi einstaklingur hafi einungis fengið fyrri skammt bóluefnis af tveimur fyrir einni viku síðan. Það tekur 2 vikur að fá fullnægjandi svörun við bóluefninu. Einstaklingar eru taldir fullbólusettir þegar a.m.k. 2 vikur eru liðnar frá gjöf seinni skammtsins af tveimur. Þetta er sem sé flokkað svona þó að gjöf bóluefnis sé auðvitað bólusetning. Það má auðvitað deila um þetta orðaval."
Samt er verið að boða ófrískar konur í þessar sprautur á morgun, margar hverjar sem eiga stutt eftir af meðgöngunni. Er áhættan þess virði í ljósi þess sem nú er að koma fram í helstu fjölmiðlum (lengi búið að vera í umræðunni annars staðar) í sambandi við þann mikla vanda sem konur stríða nú við með blæðingar sínar. Þær hafa stofnað hóp þar sem þær tala margar hverjar í örvæntingu um þessar breytingar og önnur veikindi eftir sprauturnar, þar á meðal blæðingar á meðgöngu!
Ef þetta er rétt mat hjá mér (sem það er eftir uppfærsluna) þá eru allir þeir átta sem nú liggja inni fullbólusettir (nema einn sem er nýlega bólusettur/hálfbólusettur). Meiriháttar gott bóluefni/líftæknilyf sem var verið að prófa á Íslendingum eða þannig! Enda segir í samningi ESB við Pfizer að hættan á því að framleiðsla bóluefnis mislukkist sé mjög mikil. Þeir vissu þetta og hafa þurft að setja þetta skriflega í samning (og rukka fyrirfram) svo þeim yrði ekki stefnt.
Enginn læknir, vísindamaður eða sérfræðingur hefur svarað þessari grein sem unnin er upp úr gögnum læknatímaritsins NEJM (New England Journal of Medicine), þrátt fyrir margar fyrirspurnir, bara pass! Enda vita þeir ekkert hvað var verið að selja þeimm ekki frekar enn menn vissu hvað þeir voru að kaupa með Decode bréfunum hér áður. Trúðu bara bisnesskallinum Kára sem sagði þessi lyf koma í veg fyrir SMIT í 90% tilfella.
Myndin sem fylgir var í Mogganum í gær. Ég hefði líka skrifað infertility drug á sprautuna. Til að vekja enn meiri úlfúð.
p.s. hér er grein eftir Guðrúnu Bergmann sem fjallar um innihaldið í þessum lyfjum, Grafen Oxíð (sbr. myndina í Mogga).
Óbólusettur í áhættuhópi á gjörgæslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 7.8.2021 kl. 15:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
27.7.2021 | 10:39
Börn sem tilraunadýr og mótmæli við heilbrigðisráðuneytið!
Þessi grein birtist í Mogganum í dag (smella á mynd til að sjá betur.) Skilst að greininni hafi verið hafnað af öðrum fjölmiðli með þeirri athugasemd að heimildir væru ekki nógu góðar. Auður er sagnfræðingur og ætli hún kunni nú ekki að finna áreiðanlegar heimildir ólíkt blaðamönnum þessa dagana sem apa allt eftir pólitíkusum. Þetta er nefnilega pólitísk veira. Skoðið reglurnar og ástandið t.d. í Texas!
Það hefur líka verið stofnaður viðburður fyrir mótmæli gegn bólusetningu barna og ungmenna, 5. ágúst nk. Hingað og ekki lengra með þessi skaðlegu efni!
Hópurinn er nýstofnaður og fleiri stjórnendur og upplýsingar koma þar inn bráðlega. Auður vísar í frásagnir mínar um skaða þessara lyfja í greininni og læt ég þær því fylgja með hér.
Læknar vilja ekki gefa mér seinni sprautuna."
Er eins og níræð kona eftir AstraZeneca."
Fárveikur eftir Janssen og fékk Covid."
Stanslaust taugastríð eftir AstraZeneca."
Ef ég sé eftir einhveru í þessu lífi..."
Var sjaldan veik en nú fæ ég allar pestir"
Magga Stína: bóluefnið er árás á hormónakerfið"
Engar blæðingar í fjóra mánuði eftir Pfizer"
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.7.2021 | 11:17
Samningur ESB við Pfizer - líkurnar á misheppnuðu bóluefni mjög miklar!
Þetta er síða úr samningi ESB ríkjanna við Pfizer, blaðsíða #54. Samningurinn er APA (Advance Purchase Agreement eða fyrirfram greiddur kaupsamningur).
3.mgr.
Samningsaðilar skilja að þróun öruggra og virkra bóluefna er afar flókin framkvæmd og líkurnar á að hún misheppnist eru mjög miklar. Þess vegna verða gerðir fyrirframgreiddir kaupsamningar við nokkra leiðandi bóluefnaframleiðendur, til að hámarka líkurnar á að fá a.m.k eitt öruggt bóluefni."
Þessi samningur er gerður 2020, undirritaður 20. nóvember 2020, bls. #28.
Bóluefnin eru enn öll á rannsóknarstigi og á neyðarleyfi/skilyrtu markaðsleyfi, rannsóknum á að ljúka 2023. Þetta er sem sagt rannsóknin sem Íslendingar meðal annars voru að taka þátt í, hjálpa til við að finna út hvort eitthvað af þessum bóluefnum myndu virka. Og þeir voru látnir gera betur, prófa sambland tveggja efna sem aldrei var rannsakað. Og enn betur, ófrískar konur voru látnar taka lyfin og þeir sem höfðu þegar sýkst af Covid og því komnir með ónæmi. Og heilbrigðisyfirvöld og Íslensk Erfðagreining vilja sprauta þessu í krakkana.
Í nóvember 2020 segir Kári Stefánsson eftir stuttar rannsóknir fyrirtækjanna, í Morgunblaðinu:
Vel í stakk búnir til að búa til þetta nammi
Ég spáði því að við myndum fá bóluefni fyrir lok árs," segir Kári. Þetta bóluefni (Pfizer) hefur alltaf þótt feikilega lofandi," segir Kári um fregnir af bóluefni sem framleitt er af lyfjafyrirtækinu Pfizer og líftæknifyrirtækinu BioNTech. Hefur bóluefnið í 90% tilvika komið í veg fyrir Covid-19-smit í þriðja fasa lyfjaþróunarinnar. Það þykir feikilega góður árangur, betri en árangurinn af flestum inflúensubóluefnum. Því er þetta afskaplega góð niðurstaða, segir Kári.
Í samningnum er talað um mjög áhættusamt verk, líkurnar á að þróunin mistakist eru mjög miklar en Kári er mættur í nóvember með falskar fréttir, segir hvað þetta er feikilega lofandi bóluefni og hafi komið í veg fyrir smit í 90% tilfella. Ath. hann segir smit, ekki veikindi eins og verið er að tala um núna.
Ekkert af þessum fyrirtækjum rannsakaði hvort lyfin kæmu í veg fyrir smit, aðeins hvort þau drægju mögulega úr veikindum.
Jóhanna Jakobsdóttir líftölfræðingur segir í febrúar 2021:
Enn á eftir að svara mörgum spurningum um virkni þeirra bóluefna fyrir COVID-19 sem þegar eru komin á markað. Vitað er að þau veita vörn gegn alvarlegum veikindum en svör vantar til dæmis enn við því hvort að bólusettur geti enn borið smit í aðra og hversu góða vörn þau veita gegn nýjum afbrigðum veirunnar."
Jóhanna segir að það sé vitað að þau komi í veg fyrir alvarleg veikindi. Það á eftir að koma í ljós, a.m.k. kom fram í fréttum í gærkvöldi að hlutfall bólusettra sem væru að smitast(veikjast?) væri mun hærra en hjá hinum. Sjá skjáskot neðar (ekki viss hvernig þeir reikna þetta, því bólusettir eru langtum fleiri, hef þann fyrirvara á).
Í ljósi þeirra frétta sem við fáum nú af þessum misheppnuðu bóluefnum er spurning hvort Kári vilji enn leita að þeim óbólusettu (meðal annars þeim sem sáu í gegnum Decode svindl #2), reyna að sannfæra þá til að taka inn þessi misheppnuðu efni með tilheyrandi aukaverkunum/veikindum og jafnvel loka þá inni á öruggum stað." Sjá nánar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Yfir 250 tilkynningar höfðu borist Lyfjastofnun 15. júlí sl. um breytingar tengdum tíðarhring kvenna eftir C19 bólusetningu. Enn er beðið svars um hver fjöldinn er í dag.
Nýlega hefur Rebekka Ósk Sváfnisdóttir stofnað hóp þar sem einungis konur sem hafa upplifað þessar undarlegu aukaverkanir eftir C19 bólusetningu fá inngöngu. Fjöldinn í dag er yfir 450, sem sagt mun fleiri en síðustu tölur Lyfjastofnunar. Ég hef fjallað um nokkur dæmi, hér er til dæmis eitt og hlekkir á fleiri dæmi eru neðar í þeim pistli. Ýmist eru konur að fá ofsablæðingar, engar blæðingar, blæðingar eftir tíðarhvörf o.fl.
Marta Þórudóttir er 27 ára Akureyringur. Hún á einn son og er hársnyrtinemi og sundlaugarvörður í Eyjafjarðarsveit yfir sumartímann.
Marta fékk fyrri skammtinn af Pfizer 4. maí og hefur engar blæðingar fengið síðan.
Ég er búin að tala við hjúkrunarfræðing og lækni og þeirra svör voru að ég ætti að hætta á pillunni og biða og athuga hvort eitthvað myndi gerast á næstu þremur mánuðum. Mínar síðust blæðingar voru í fyrstu vikunni í apríl og átti ég að fá næstu blæðingar fljótlega eftir fyrri sprautuna en ekkert gerðist og hefur enn ekkert gerst. Hef sem sagt ekki fengið blæðingar í næstum fjóra mánuði. Þegar ég hringdi i hjúkrunarfræðing var ákveðið að tilkynna þetta til Lyfjastofnunar. Þetta er hryllilega óþægilegt, ég hef alltaf verið með reglulegar blæðingar og þegar þær koma ekki byrjar hausinn sjálfkrafa að hugsa, ætti ég kannski að taka óléttupróf og ég hef tekið nokkur og öll verið neikvæð. Enda VEIT ég að ég er ekki ófrísk og er ekki með nein óléttueinkenni. Ég hef alltaf fengið verki í kringum egglos og blæðingar og ég fæ enn þessa verki á réttum" tíma en engar blæðingar. Eins upplifi ég svokölluð draugaspörk (nokkuð sem flestar konur finna fyrir á meðgöngu en líka eftir fæðingu barns, mætti líkja við fjörfisk í magavöðvum). Líkaminn virðist vera í algjöri rugli eftir þessar sprautur og ég hef áhyggjur. Ég er bara rétt um 27 ára, mig langar mögulega að eignast fleiri börn síðar, hvað ef þetta getur haft áhrif á möguleika mína til þess! Ég vil fá svör og betra utanumhald um þessi mál frá heilbrigðisyfirvöldum."
Ég spurði Mörtu hvort hún hefði fengið hita eftir sprauturnar, því eini læknirinn (ekki kvensjúkdómalæknir) á Íslandi sem hefur reynt að útskýra þessar tilkynntu aukaverkanir hefur sagt að breytingarnar stafi líklega af hita.
Nei, fékk engan hita" sagði Marta, en var eins og ég væri timbruð" dagana eftir.
Í Mörtu tilfelli er a.m.k. ekki hægt að tengja þetta við neinn hita enda má heyra á umræðu kvenna að þær gefi lítið fyrir þessa kenningu Jóns Magnúsar Jóhannessonar.
Menn ættu kannski að veita rannsókn frá Lyfjastofnun Japans athygli sem sýnir að brodda próteinin í þessum lyfjum dreifa sér og leggjast á hinum ýmsu líffærum og í miklum mæli á eggjastokkana eftir lyfjagjöfina. Í þessari grein er vísað í rannsóknina.
p.s. undirskriftarsöfnun sem beint er til landlæknis er líka hafin. Skilst að allir megi skrifa undir til stuðnings þó þeir glími ekki við þessar aukaverkanir. (Rebekka sem stofnaði listann er að skoða hvort og hvernig er hægt að breyta textanum þannig að hann segi að allir megi skrifa undir.) Það væri frábært ef fjölmiðlar myndu nú standa með konunum í þessu máli og öllum þeim sem glíma við veikindi eftir sprauturnar. Þögnin er vandræðaleg og skaðleg, ykkur fjölmiðlafólki ber skylda til að fjalla um þessi alvarlegu mál!
Fleiri frásagnir af þessu tagi:
Læknar vilja ekki gefa mér seinni sprautuna."
Er eins og níræð kona eftir AstraZeneca."
Fárveikur eftir Janssen og fékk Covid."
Stanslaust taugastríð eftir AstraZeneca."
Ef ég sé eftir einhveru í þessu lífi..."
Var sjaldan veik en nú fæ ég allar pestir"
Magga Stína: bóluefnið er árás á hormónakerfið"
Bloggar | Breytt 27.7.2021 kl. 22:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.7.2021 | 11:19
Áríðandi skilaboð frá Sjálfstæðisflokknum!
Þessi auglýsing er u.þ.b. þriggja mánaða gömul og birtist á facebook síðu okkar Sjálfstæðismanna (sjá pínulitla D-ið í neðra horni, vorum smá feimin að setja það inn). Flokkurinn vill þakka öllum þeim Íslendingum sem trúðu þessu og þakkar þeim hinum sömu fyrir að taka þátt í stærstu lyfjatilraun allra tíma. Sjáumst í Laugardalshöllinni þegar Delta afbrigðisskammturinn kemur, og þegar þið hafið tekið hann fáið þið aftur frelsi í nokkrar vikur o.s.frv., þar til búið er að sprauta þessum 1,4 milljónum skömmtum í ykkur, sem við erum búin að semja um kaup á og verðum að greiða fyrir þrátt fyrir "so and so" virkni gegn Covid, X-D.
Félagi Sigurður Ingi skilar kveðju, hér er hans auglýsing (smella á myndina til að sjá betur). Hann setti hann inn á svipuðum tíma. Munið þegar við gátum öskrað okkur hás á fótboltaleikjum og dansað jafnvel...nokkrar vikur, nokkrar vikur, nokkrar vikur, nokkrar vikur....."
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
23.7.2021 | 15:30
Ítalir mótmæla og Frakkar óstöðvandi í sínum mótmælum
Ítalir voru komnir út á götu í gærkvöldi í borginni Tórínó - enga bóluefnapassa" hrópuðu þeir. Hér er myndband.
Frakkar hafa mótmælt stanslaust í viku. En hjá þeim stendur til að meina fólki aðgang að matvöruverslunum, kvikmyndahúsum, veitingahúsum, lestum o.fl. nema það framvísi bólusetningarvottorði. Sjá mótmælin hér. Þeir sem koma til með að brjóta lögin eiga yfir höfði sér fangelsisdóm. Jamm, við erum komin þangað. Byrjaði allt með því að verja gamla og veika fólkið, en nú eiga Frakkar yfir höfði sér fangelsisdóm, fari þeir í matvöruverslun óbólusettir eða án neikvæðs PCR prófs (aðeins um 30% Frakka hafa látið bólusetja sig).
Frakkar eru samt ljós í myrkrinu. Ef þeir væru hlutabréf á markaði, þá myndi ég fjárfesta í þeim í þessari baráttu. Með öðrum orðum, Macron mun gefast upp. Það glittir líka í bóluefnapassana" hér heima. Óbólusettir mega ekki koma inn á elliheimilið Grund (hin heimilin fylgja eflaust eftir.) Grímurnar duga sem sagt ekki lengur, þessar sem áttu að verja fólkið gegn smitum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
- aslaugas
- agny
- annaeinars
- danna
- agustkara
- bookiceland
- contact
- einarborgari
- rlingr
- sagamli
- helga-eldsto-art-cafe
- bofs
- sade
- gusg
- noldrarinn
- hafthorb
- hhbe
- hlf
- diva73
- snjolfur
- ingaghall
- ingolfursigurdsson
- kreppan
- jaj
- islandsfengur
- nonniblogg
- nyja-testamentid
- thjodarskutan
- kristinnp
- loncexter
- marinogn
- sighar
- sigurduringi
- sushanta
- viggojorgens
- vilhjalmurarnason
- thorsteinnhelgi
- valli57
- tbs