Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2021

Aðskilnaðarstefnan hefst á Grund - óbólusettum meinaður aðgangur að ættingjum!

GrundÞað fer nasistahrollur um mann þessa dagana. Fyrir nokkrum dögum mætti Kári Stefánsson í viðtal á rúv og þar mátti heyra hrollvekjandi tal í forstjóra erlenda fyrirtækisins ÍE/Amgen, karli sem fær að vaða hér um eins og ... já ókjörinn nasistaforingi. Nota þessa samlíkingu sjaldan enda er hún ofnotuð en núna er hún fullkomlega viðeigandi.

Hér er hlekkur á viðtalið og þetta var það sem hann sagði:
 
„Ég held að verkefnið sem bíði okkar sé að auka við bólusetninguna, ganga fram af miklum krafti, finna það fólk sem ekki er búið að bólusetja og bólusetja það, sannfæra það um að láta bólusetja sig. Og síðan held ég að það væri ekkert vitlaust þegar kemur fram á haust að  byrja að gefa þriðja skammtinn, þ.e. að hvetja ónæmiskerfið enn þá meira.“

Og seinna:

„Það eru engu að síður eftir þessi 10-20% þjóðarinnar sem eru óbólusettir og óvarðir. Við þurfum að leita allra ráða til þess að verja þetta fólk annað hvort með því að sannfæra það um að það þurfi að bólusetja sig eða koma því fyrir einhversstaðar þar sem það er ekki í mikilli hættu." 

Nokkrum dögum síðar kemur tilkynning frá elliheimilinu Grund sem er hér ofar á myndinni: Óbólusettir" mega ekki koma í heimsókn (þ.e.a.s þeir sem eru ekki svo vitlausir að láta sprauta í sig lyfjum á tilraunastigi, létu ekki plata sig með ferðafrelsi og öðru frelsi sem var svo ekki neitt og lyfjum sem gera ekki neitt annað en að valda skaða, nokkuð sem er þagað í hel.) Forstjóri Grundar ber auðvitað ábyrgð á þessum reglum sem honum hefur verið skipað að setja (kannski af Kára?).

Forstjóri Grundar hvatti líka í vetur starfsfólk sitt til að taka lyfin, hjálpa til við að útrýma veirunni." Óbólusett starfsfólk var látið vera með grímu, sjá mynd neðar (smella til að sjá skýrar). Síðan náðist ekki að útrýma veirunni (enda bara blöff), þá eru þeir óbólusettu bara vinsamlegast beðnir að halda sér frá ættingjum. 

Það sem er hægt að nota gamla fólkið endalaust í þessari svikamyllu. Síðan hvenær er ríkisstjórnum heims svo annt um gamla fólkið og öryrkja (viðkvæmu hópana svonefndu), að þær eru tilbúnar að loka öllu og setja efnahagskerfið á hvolf?

grund2


Magga Stína söngkona: ,,bóluefnið er árás á hormónakerfi kvenna“ - vill rannsókn!

Í facebook hópnum Góða Systir stendur yfir mikil umræða tengd breytingum á blæðingum kvenna eftir C19 bóluefnin. Sú sem hóf umræðuna í þetta sinn er Rebbekka Ósk sem hefur verið með stanslausar blæðingar í um 50 daga eftir síðari sprautuna. Rebekka vill svör frá heilbrigðisráðherra og segir augljóslega verið að þagga niður þessar alvarlegu aukaverkanir, jafnt sem aðrar. Umræðan sýnir að konur eru ýmist að fá ofsablæðingar, milliblæðingar, blæðingar eftir tíðarhvörf, engar blæðingar og túrverki sem jafnast á við fæðingarhríðir, bólgur í brjóstin, mikinn höfuðverk o.fl. 

maggastina2

Magga Stína söngkona sem gaf mér leyfi til að setja hér inn hennar orð hefur þetta um málið að segja:

Það er fullkomlega óábyrgt að hundsa aukaverkanir eins og þessar. Ég legg til að allar konur sem eru tengdar hér inn og fundið hafa fyrir aukaverkunum af bólusetningu tilkynni það strax til Lyfjastofnunar. Það er mjög mikilvægt. Einnig fyndist mér rétt að þær konur sem nú þegar hafa tjáð sig um þetta á þessum þræði og eru mögulega tilbúnar að tjá sig annarsstaðar taki saman höndum og láti fjölmiðla vita eins og þú gerðir, Rebekka. Þú átt þakkir skildar fyrir það. Það er nauðsynlegt að vekja athygli á þessu. Ég held því fram að þetta sé meðvitað þaggað niður. Það er mín persónulega skoðun. Ég hef nú ekki verið hingað til sérlega viljug að deila með öðrum taktinum í mínum tíðahring en vil nú segja að blæðingarnar sem hófust eftir seinni Moderna sprautuna (en það er eitt og hálft ár síðan tíðahvörf urðu og ég hætti algerlega á blæðingum) ofan í bólusetningar-veikindin voru hreint út sagt brjálæðislegar, stóðu yfir í nærri þrjár vikur með óbærilegum túrverkjum og einkennum eins og verkjum í brjóstum, einkenni sem enn eru ekki alveg farin. Hvernig má það vera að konur sem hafa fyrir löngu farið í gegnum tíðahvörf verði fyrir hvílíkum hormónabreytingum við bóluefni? Ég gef satt að segja ekki mikið fyrir útskýringar sér­­­náms­­læknis í lyf­­lækningum (innsk. sem segir hita geta valdið þessum breytingum) en það eru sjálfsagt mínir eiginn fordómar."

Það á mjög augljóslega að þagga þetta í hel og ég spyr, af hverju? Nú er líka að koma á daginn að bólusetningin hefur ekki þá virkni sem haldið var fram í fyrstu. Á þá að bólusetja aftur? Nógu hefur fólk nú kostað til við að gleypa við öllu þegjandi og hljóðalaust og maður hljóp jú algerlega sjálfviljugur og með fullri meðvitund inn í Laugardalshöll til að láta sprauta sig með einhverju sem enginn hefur hugmynd um hvað er, allt í krafti þess að þjóna heildinni. AF HVERJU eru eftirköstin ekki rannsökuð? Það hefðu verið hæg heimatökin við að biðja þjóðina (sem hafði hlýtt tilmælum í nánast einu og öllu um að sýna skynsemi og vera heima hjá sér marga mánuði) um að hripa niður líðan sína eftir bólusetninguna og þá værum við hugsanlega einhverju nær, eða hvað? Sóttvarnarlæknir sem hefur verið nánast í guðatölu hjá þjóðinni (mér líka) gerir, í hvert einasta skipti lítið úr eftirköstum bólusetningarinnar og ENGINN úr hópi hans, hvorki hann né landlæknir hefur minnst orði á þessa árás á hormónakerfi kvenna, sem ótrúlega margar konur hafa orðið fyrir. Hér kemur fram að áttatíu tilkynningar hafi borist Lyfjastofnun Vitið þið hvað þær eru margar konur sem hafa sagt frá þessu hér á "Góða systir"? Er hægt að komast að því?"

Viðbót:
Samkvæmt frétt frá Lyfjastofnun 15. júlí höfðu yfir 250 tilkynningar borist og ég bíð enn eftir svari frá þeim hver talan er nú eftir að umræðan varð meiri.

Hér er hópurinn sem Rebekka stofnaði, aðeins er hægt að komast í hópinn ef þú glímir við breytingar sem þessar eftir bólusetningu og því er hópurinn um leið einskonar talningarvél. Hægt verður að bera saman fjölda í hópnum við tölur Lyfjastofnunar sem sendir aðeins frá sér ef spurt er, ekki er hægt að sjá neitt á síðunni um þessar aukaverkanir frekar en aðrar. 

Hér eru fleiri frásagnir af veikindum eftir bólusetningar:


„Læknar vilja ekki gefa mér seinni sprautuna."

„Er eins og níræð kona eftir AstraZeneca."

„Fárveikur eftir Janssen og fékk Covid."

Stanslaust taugastríð eftir AstraZeneca."

Ef ég sé eftir einhveru í þessu lífi..."

„Var sjaldan veik en nú fæ ég allar pestir"

 


Tíðarhringur kvenna eftir bólusetningar - nýr hópur

jónmagnúsblæðingarÞögnin í kringum tilkynningar kvenna yfir röskun á tíðarhring eftir bólusetningu er undarleg og enn furðulegra er að Kári StefánssonIngileif Jónsdóttir hjá erlenda fyrirtækinu Íslensk Erfðagreining (100% í eigu Amgen sem einnig er með útibú í Kína) séu að tala fyrir því að bólusetja eigi 12-15 ára börn og unglinga með efnunum sem fyrst. Jón Magnús Kristinsson (ekki kvensjúkdómalæknir) segir það sama en hann neitaði því í upphafi (sjá mynd - smella til að sjá skýrar) að breytingar á blæðingum hefðu nokkuð með bóluefnin að gera, og síðar sagði hann að hiti gæti haft áhrif á blæðingar sem ég hef aldrei heyrt áður, en hann karlinn veit það kannski betur. 

Rebekka Ósk Sváfnisdóttir 38 ára, sem sagt var frá á vísi fyrir nokkrum dögum, hefur stofnað facebook hópinn, Tíðarhringur bólusettra kvenna gegn C19." Rebekka hefur verið með stanslausar blæðingar frá því að hún fékk síðari sprautuna með Pfizer, nú í um 50 daga. Hvers vegna er ekki talað við hana í Kastljósi eða hún á forsíðu blaðanna? Hvar eru kvensjúkdómalæknar þessa lands? Munið: Fyrst ekki skaða!

15. júlí var frétt á mbl.is um að yfir 250 tilkynningar hefðu borist Lyfjastofnun um röskun á tíðarhring kvenna. Ég fékk líka þetta svar frá stofnuninni við fyrirspurn um hvort tilkynnt hefði verið um einhvers konar truflanir á meðgöngu. Lyfjastofnun hafa borist þrjár tilkynningar tengdar meðgöngu; ein fyrir hvert bóluefnanna Comirnaty (BioNTech/Pfizer), Spikevax (Moderna) og Vaxzevria (AstraZeneca). Orsakasamband var talið ólíklegt í öllum tilfellum."

Vildi fá svör við þessu frá Lyfjastofnun þar sem samkvæmt rannsókn sem birt var í New England Journal of Medicine sýndi að rúmlega 80% kvenna sem bólusettar voru á fyrri hluta meðgöngunnar, misstu fóstrið.

Hvernig skyldu svona aukaverkanir vera skráðar hjá Lyfjastofnun, sem alvarlegar eða ekki alvarlegar? Það er ekki hægt að sjá neitt um það á síðu stofnunarinnar.

Mér sýnist á umfjöllun um þetta mál sem var á hópnum Góða systir" að Rebekka sé í baráttuhug og vilji að þessar „aukaverkanir" sem aldrei var minnst á að gætu fylgt þessum lyfjum, verði rannsakaðar.

Þess má geta að það verður farið fram á lögbann á bólusetningu með þessu lyfi á 12-15 ára. Aldrei að vita hvað gerist...þeir fiska sem róa" sagði gamall sjómaður einu sinni.


Tvær milljónir mótmæltu í London í dag

London19juliMótmælt var í Frakklandi í marga dag í röð og fjölmennustu mótmæli frá upphafi sóttvarnarreglna" voru í London í dag, eða um tvær milljónir manna samkvæmt Íslendingi sem tók þátt. Í báðum ríkjunum var verið að mótmæla heilsupössum." Hér er myndband og hér. Ekki bara friðsamlegt. Og eitt enn.

Sú sem tók þátt í mótmælunum í dag heitir Soffía (með grænan fána) og er á þessari mynd í New York Times sem tekin var á mótmælum í maí sl.

nytimes


,,Var sjaldan veik, en eftir sprautuna fæ ég allar pestir " - svimi, þrýstingur, mæði og milliblæðingar

evakarenmyndEva Karen Ómarsdóttir er 28 ára Hafnfirðingur, móðir tveggja drengja og deildarstjóri á leikskóla. Hún ásamt öllu starfsfólki leikskólans var bólusett með Janssen í apríl. Eva kveið fyrir bólusetningunni þar sem hún hafði lesið sig til um efnið og vissi meðal annars að Norðmenn og Danir hefðu hætt að nota það.


Hér kemur hennar frásögn:


Um leið og ég var sprautuð fannst mér eins og það væri að líða yfir mig, nokkuð sem ég hef ekki upplifað með flensusprautur. Á sama tíma leið yfir sex manns í minni röð. Ég reyndi að einbeita mér að því að detta ekki út í þessar 12 mínútur sem ég sat þarna. Ég var enn með yfirliðstilfinningu þegar við gengum út en það leið hjá eftir því sem við gengum lengra. Fór beint aftur í vinnuna og fann bara eymsli í handleggnum, ekkert annað. Sumir starfsmenn voru byrjaðir að fá höfuðverk en ekki ég." 

En stuttu eftir að ég kom heim og var að setja upp trampólínið fyrir strákana mína fann ég fyrir örlitlum hausverk og þegar ég fæ hausverk veit ég að ég er að verða veik. Dreif mig inn og reyndi að koma strákunum snemma í háttinn, kallinn minn var á strákakvöldi og ég því ein með strákunum okkar."

Síðan varð ég veikari og veikari, komin með 40 stiga hita og rétt svo náði að drösla strákunum í háttinn. Um níu leytið var ég orðin mjög veik, lá í sófanum og gat ekki haft augun opin eða verið kyrr í neinni stellingu. Ég gat ekki gengið mikið án þess að missa fæturna undan mér, klessti einu sinni á vegg því augun voru svo slöpp, en samt gat ég ekki sofið."

Um tíu leytið sendi ég skilaboð til mömmu og pabba sem höfðu áhyggjur af mér. Þau komu til mín en ég gat ekki mikið talað eða gert og leið eins og ég væri uppdópuð.  Stóð upp til að fylgja þeim til dyra og þá var sviminn orðinn miklu meiri og settist ég því niður aftur, það var þarna sem ég klessti á vegginn og datt næstum því út. Mér hefur aldrei liðið jafn illa á ævinni og verkjatöflur gerðu ekkert. Um tíma var ég rosalega hrædd og var að hugsa um að hringja á sjúkrabíl."

Ég svaf nánast ekkert um nóttina þó ég væri alveg búin á því, var alltaf að vakna út af verkjum og hita. Þegar ég vaknaði daginn eftir leið mér eins og ég hefði lent í lestarslysi, lá í rúminu allan daginn, mjög slöpp með dúndrandi hausverk og mikinn svima og var frá vinnu í þrjá daga." 

Ég var kvíðin fyrir að fá Janssen, hafði googlað" það og við mér blasti að Norðmenn voru búnir að bannað lyfið. Ég hefði því viljað fá aðra tegund en ákvað samt að fara, þar sem allir í vinnunni voru líka að fara og ég reiknaði ekki með því að verða veik því ég verð nánast aldrei veik. Ég hef unnið á leikskóla í 11 ár og komin með gott ónæmiskerfi."

„Í dag aftur á móti er ég fljót að verða móð og fæ allar pestir sem krakkarnir fá, en vægar samt. Er betri í dag en fæ
oftar hausverk og tíðahringurinn er í rugli, það koma oft milliblæðingar sem ég var ekki vön að fá. Síðan finn ég fyrir þrýstingi þegar ég beygi mig niður og fyrir svima þegar stend aftur upp. Þannig var ég aldrei áður, gat staðið á haus án þess að finna fyrir nokkrum óþægindum."

„Ef ég hefði vitað af þessum aukaverkunum hefði ég aldrei farið í bólusetninguna og hvað þá að leggja allt þetta á mína heilsu, vitandi að ég gæti enn smitast eins og er að koma í ljós núna með bóluefnin. Ég varð líka fyrir vonbrigðum þegar ég sá að þeir sem fengu Janssen þurfa líklega að fara í aðra sprautu, en ég er mjög efins. En eitt er ég viss um, ég mun aldrei láta sprauta börnin mín með þessum bóluefnum."

Ég er ekki búin að tilkynna aukaverkanirnar til Lyfjastofnunar en mun gera á næstunni."

Ef fleiri vilja segja sögur sínar af bólusetningum, er velkomið að birta þær hér, því ekki hafa fjölmiðlar áhuga, ólíkt Covid veikindum. Að læknar og hjúkrunarfólk segi að yfirliðin eftir þessar sprautur séu bara eðlilegar er mjög dularfullt, svo ekki sé meira sagt. Það er bara ekkert eðlilegt við að svo margir falli í yfirlið eftir bólusetningu, svimi og klessi á veggi. Allt saman eðlilegt," sagði sóttvarnarlæknir.

Hér eru fleiri svipaðar sögur sem ég hef tekið saman:

Læknar vilja ekki gefa mér seinni sprautuna."

Er eins og níræð kona eftir AstraZeneca."

Fárveikur eftir Janssen og fékk Covid."

Stanslaust taugastríð eftir AstraZeneca."

Ef ég sé eftir einhveru í þessu lífi..."

 

 

 
 
 
 
 
 
 
 

Bólusettur starfsmaður Nexus og ert þú með bólusetningarstíflu í heila?


mbl.is Nexus lokað vegna smita
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Foo Fighters tónleikum aflýst - bólusettur hljómsveitarmeðlimur með Covid

fooHljómsveitn Foo Fighters átti að vera með tónleika í Los Angeles í gær en tónleikunum var aflýst þar sem einn meðlimur sveitarinnar var kominn með Covid. Hann og allt bandið var þó búið að bólusetja. Það kaldhæðnislega í þessu sambandi er að allir sem vildu komast á tónleikana þurftu að kaupa miðann í eigin persónu og framvísa vottorði um bólusetningu. Óbólusettir máttu ekki fara á tónleikana með sveitinni. Sjá nánar hér. Rokksveitin spilaði á Íslandi árið 2003.

Pínu vandræðalegt ekki satt? Er það ekki örugglega óbólusetta fólkið sem er hættulegt og í mestri hættu? Miðað við tilkynninguna frá bandinu virðast menn telja að sá bólusetti hefði getað smitað alla hina bólusettu sem máttu vera á tónleikum! Hér er eitt lag með hinni bólusettu en óheppnu rokksveit, "There goes my hero!"

foo2


Franskur prestur: ,,Hafið kjark til að vernda frelsið" - enn er mótmælt í Frakklandi

franskurpresturÁ miðvikudaginn voru Frakkarnir mættir út á götu til að  mótmæla fyrstu fréttum af yfirvofandi lagabreytingum: skyldubólusetningu heilbrigðisstarfsfólks og bólusetningarpössum sem þarf til að komast inn á veitingastaði, verslanir, kvikmyndahús o.fl., gangi þau áform eftir.

Fyrsta laugardaginn eftir þessa tilkynningu Macron´s eru Frakkarnir komnir aftur út á götu. Prestur tekur til máls og segir: Hafið kjark til að vernda frelsið!" Takið eftir skiltinu: Stöðvið aðskilnaðarstefnuna" (Stop Apartheid). Hér er upptakan og hér er önnur. Bein útsending og lögreglan tekur undir með almenningi, sjá hér.

Mæli með að þið fylgið skosku fjölmiðlakonunni Gillian McKeith á twitter, hún er með bestu fréttirnar í þessu sambandi.

Uppfært: Mótmælin héldu áfram í dag, sunnudag. 

Vonandi sjáum við þennan viðsnúning sem fyrst: "There goes my people I must follow them for I am the leader."
gandhi


,,Læknar vildu ekki gefa mér seinni sprautuna - féll í yfirlið og upplifði mikla köfnunartilfinningu"

arnyÁrný Ósk er 42 ára sjúkraliði frá Akureyri. Hún var bólusett með Pfizer 17. maí í íþróttahöllinni á Húsavík þar sem hún er búsett.

Hér er hennar frásögn:

Um það bil 20 sekúndum eftir að ég fékk sprautuna fann ég að mér var farið að líða illa og fékk mikla yfirliðstilfinningu. Þá kom sjúkraflutningamaður og ég færði mig yfir á sjúkrabörur og þar slokknaði á mér í um 15 - 25 sekúndur. Þegar ég rankaði við mér í litla salnum" var ég með mjög öran hjartslátt og köfnunartilfinningu, eins og einhver sæti ofan á bringunni á mér. Ég lá með hátt undir fótum í um 30 mínútur og var þá sótt en þeir sáu ekki ástæðu til að fara með mig upp á sjúkrahús. Fór síðan til vinar míns því ég treysti mér ekki til að vera ein heima með þessa yfirliðstilfinningu."

Ég var komin heim klukkan tíu um kvöldið (fór í sprautuna 16:30) og fór þá að sofa en vaknaði um miðnætti með óþægilegan hjartslátt og köfnunartilfinningu og svitnaði alveg gífurlega. Daginn eftir var ég frekar slöpp og tveimur dögum síðar fékk ég útbrot á fæturna, það mikið að ég gat ekki verið í buxum, húðin sprakk þar sem útbrotin voru mest. Ég var orðin nokkuð góð fjórum dögum eftir sprautuna og talaði við lækni sem sagði að  þetta hefðu verið ofnæmisviðbrögð við sprautunni og var að hugsa um að leggja mig inn fyrir síðari sprautuna, ef ég skyldi bregðast eins við henni. En síðan treystu þeir sér ekki til að gefa mér aðra sprautu, þannig að ég er bara hálf-bólusett. Í dag upplifi ég enn pirring/verk á þeim stöðum sem ég fékk útbrotin sem eru á gömlu brunasári á lærinu. Eins svitna ég nú mikið á nóttunni og sérstaklega á fótunum sem ég hef aldrei gert áður."

Töluvert hefur verið um yfirlið í kringum þessar bólusetningar og hafa læknar og hjúkrunarfólk tjáð sig um það í fjölmiðlum og sagt að það væri frekar algengt þegar um inngrip væri að ræða og að yngra fólkið félli frekar í yfirlið. 

Það hefur aldrei liðið yfir mig áður" sagði Árný ég var ekkert stressuð og er alls ekki hrædd við nálar og fann ekkert fyrir stungunni."

Ég spurði Árnýju hvort hún hefði tilkynnt aukaverkanirnar til Lyfjastofnunar.

Nei, ég hélt að læknirinn hefði gert það en frétti síðan að það væri ekki svo, ég ætla því að gera það sjálf við fyrsta tækifæri."

Samkvæmt þessari grein í Læknablaðinu ber heilbrigðisstarfsfólki skylda tiil að tilkynna aukaverkanir nýrra lyfja. Hvað skyldi vanta margar tilkynningar í gagnagrunn Lyfjastofnunar fyrst að sjúkraliði taldi að heilbrigðisstarfsfólkið myndi sinna því? Árný sagði að þegar hún hafi verið að vinna á sjúkradeild tíðkaðist það að starfsfólk sendi inn upplýsingar sem þessar.

Uppfært: í desember sl. kom í fréttum að þeir sem væru með sögu um alvarlegt ofnæmi ættu ekki að taka Pfizer. Síðan heyrði maður aldrei meir um þær viðvaranir. Árný er með ofnæmi fyrir hnetum og bráðaofnæmi fyrir kókós en var aldrei spurð um þetta (enda er enginn spurður). Þessi viðvörun kemur frá framleiðandanum sjálfum, sjá mynd: (Læknirinn sagði við hana að þetta hafi verið ofnæmisviðbrögð sbr. ofar).
pfizerallgergy

 


Fárveikur eftir Janssen bólusetningu og fékk Covid mánuði síðar

þórólfurjulianÞórólfur Júlían var bólusettur með Janssen 28. apríl sl. Hann var fárveikur í þrjá daga á eftir og því mætti ætla að hann hafi þróað með sér sterkt og gott mótefni. Var því ekki annars haldið fram? Meiri veikindi, meira mótefni. Nafni hans Guðnason vonaðist a.m.k. eftir að fá aukaverkanir, því ef hann fengi engar væri hann viss um að bóluefnið virkaði ekki."
 
En svona segir Þórólfur Júlían sína sögu:

Mánuði eftir að ég var bólusettur veiktist kærastan mín af Covid og ég settur í sóttkví. Ég ákvað að vera hjá henni og hugsa um hana þar sem ég var fullbólusettur, en viku síðar var ég sjálfur kominn með Covid. Ég þurfti að fara einu sinni upp á spítala til að fá vökva í æð og samkvæmt samtali við lækni þá var ég einn af þeim sem veiktist hvað mest í bylgjunni sem þá reið yfir, þrátt fyrir að vera fullbólusettur. Það voru mikil vonbrigði að bóluefnið hafi ekki haldið betur en þetta."
 
„Það sem kom á óvart var þegar ég spurði lækninn hvort ég væri sá eini fullbólusetti sem hefði veikst af Covid. Svarið var nei. Mér finnst eins og það sé verið að fela fyrir fólki að bólusettir hafi líka smitast og veikst.  Þessa dagana er þetta sett fram eins og um nýjar fréttir sé að ræða en þetta var samkvæmt lækninum að gerast líka fyrir tveimur til þremur mánuðum, jafnvel fyrr. Mér finnst mikilvægt að almenningur fái svona upplýsingar svo hann geti hagað sér eftir því."
 
„Maður heyrir það að lyfjafyrirtækin halda því nú fram að bóluefnin séu í raun ekki full vörn heldur eigi að slá á veikindin sem það gerði nú varla í mínu tilfelli. Þarna er verið að fara með staðhæfingar sem ekki hafa verið almennilega rannsakaðar eða staðfestar. Allavega hef ég ekki séð neitt sem staðfestir þetta."

Þannig var sú saga og hér er önnur frá því fyrr í dag um 24 ára konu sem var lögð inn á spítala í vikunni með Covid. Hún hafði líka verið bólusett með Janssen.
 
Ef fleiri vilja koma frásögnum sem þessum á framfæri, þá er velkomið að birta þær hér, því fjölmiðlar hafa engan áhuga nema þú sért óbólusettur og með Covid.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband