Leita í fréttum mbl.is

Tíðarhringur kvenna eftir bólusetningar - nýr hópur

jónmagnúsblæðingarÞögnin í kringum tilkynningar kvenna yfir röskun á tíðarhring eftir bólusetningu er undarleg og enn furðulegra er að Kári StefánssonIngileif Jónsdóttir hjá erlenda fyrirtækinu Íslensk Erfðagreining (100% í eigu Amgen sem einnig er með útibú í Kína) séu að tala fyrir því að bólusetja eigi 12-15 ára börn og unglinga með efnunum sem fyrst. Jón Magnús Kristinsson (ekki kvensjúkdómalæknir) segir það sama en hann neitaði því í upphafi (sjá mynd - smella til að sjá skýrar) að breytingar á blæðingum hefðu nokkuð með bóluefnin að gera, og síðar sagði hann að hiti gæti haft áhrif á blæðingar sem ég hef aldrei heyrt áður, en hann karlinn veit það kannski betur. 

Rebekka Ósk Sváfnisdóttir 38 ára, sem sagt var frá á vísi fyrir nokkrum dögum, hefur stofnað facebook hópinn, Tíðarhringur bólusettra kvenna gegn C19." Rebekka hefur verið með stanslausar blæðingar frá því að hún fékk síðari sprautuna með Pfizer, nú í um 50 daga. Hvers vegna er ekki talað við hana í Kastljósi eða hún á forsíðu blaðanna? Hvar eru kvensjúkdómalæknar þessa lands? Munið: Fyrst ekki skaða!

15. júlí var frétt á mbl.is um að yfir 250 tilkynningar hefðu borist Lyfjastofnun um röskun á tíðarhring kvenna. Ég fékk líka þetta svar frá stofnuninni við fyrirspurn um hvort tilkynnt hefði verið um einhvers konar truflanir á meðgöngu. Lyfjastofnun hafa borist þrjár tilkynningar tengdar meðgöngu; ein fyrir hvert bóluefnanna Comirnaty (BioNTech/Pfizer), Spikevax (Moderna) og Vaxzevria (AstraZeneca). Orsakasamband var talið ólíklegt í öllum tilfellum."

Vildi fá svör við þessu frá Lyfjastofnun þar sem samkvæmt rannsókn sem birt var í New England Journal of Medicine sýndi að rúmlega 80% kvenna sem bólusettar voru á fyrri hluta meðgöngunnar, misstu fóstrið.

Hvernig skyldu svona aukaverkanir vera skráðar hjá Lyfjastofnun, sem alvarlegar eða ekki alvarlegar? Það er ekki hægt að sjá neitt um það á síðu stofnunarinnar.

Mér sýnist á umfjöllun um þetta mál sem var á hópnum Góða systir" að Rebekka sé í baráttuhug og vilji að þessar „aukaverkanir" sem aldrei var minnst á að gætu fylgt þessum lyfjum, verði rannsakaðar.

Þess má geta að það verður farið fram á lögbann á bólusetningu með þessu lyfi á 12-15 ára. Aldrei að vita hvað gerist...þeir fiska sem róa" sagði gamall sjómaður einu sinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Þórdís Guðmundsdóttir

Núnú hvað var Amgen að undirbúa í Kína frá 2012?

Anna Þórdís Guðmundsdóttir, 21.7.2021 kl. 12:35

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Hvenær ætlar fólk eiginlega að gera sér grein fyrir skaðsemi þessara tilraunaefna?

Tölur um tilkynnar aukaverkanir ættu að tala sínu máli!

Kristín Inga Þormar, 21.7.2021 kl. 12:42

3 identicon

Grímskylda sett aftur á hér á landi á morgun og í þetta sinn til frambúðar: Verður aldrei afnumin.


Eitt sjúkrahús í Elsass-héraði í Austur Frakklandi setti á
grímu- og sprautuskyldu í dag: Hér eftir verður hvorki starfsfólki né sjúklingum hleypt þar inn nema það sé með hvort tveggja.

Björn Jónsson (IP-tala skráð) 21.7.2021 kl. 20:26

4 Smámynd: Agný

NWO er að verða að veruleika sýnist mér..Enda var það agendað/áætlunin á bak við þetta dæmi..

Agný, 22.7.2021 kl. 04:57

5 identicon

May be an image of text that says 'Ok so it's Covid 19 but the vaccines were made a year before

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 22.7.2021 kl. 19:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband