Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2023

Bandaríkin: 73 bóluefni fram til 18 ára aldurs - 54% með langvinnan sjúkdóm

Grein þessi er byggð á skrifum SASHA LATYPOVA á substack síðu hennar. Sasha mun koma hingað til lands og halda fyrirlestur á málþingi samtakanna FRELSI OG ÁBYRGÐ á Grand Hótel þann 4. október nk. Sá fyrirlestur fjallar þó ekki um bóluefni almennt heldur Covid sprautuefni.
 
Bandarískum börnum eru gefin 73 bóluefni fram til 18 ára aldurs. Þetta var áður en hinum eitruðu mRNA sprautum var bætt við fjöldann. Einstaklingur á fertugsaldri hefur í dag fengið 24. Foreldrar þeirra fengu 6. Afar og ömmur 3.
 
Frá því árið 2015 eru 54% bandarískra barna með ævilangan, langvinnan sjúkdóm. Ég (Sasha) hræðist þá hugsun hver þessi tala er í dag eftir að börn voru sprautuð með Covid mRNA erfðabrotstækninni. Fyrir 30 árum var þessi tala þegar komin í 20%. Fyrir sextíu árum í 12%. Fyrir áttatíu árum var hún aðeins 1,8%.
 
Undir lok 19. aldar var það þegar orðið ljóst að bólusetningar voru sannaðar sem miðalda fals og svindl.
 
mynd1
Þessi niðurstaða frá 19. öld hefur verið staðfest með könnun frá 2019/2020 á landsvísu í Bandaríkjunum það sem skoðað var mjög stórt gagnasafn um sjálfsgreint heilsuástand.
Könnunin útskýrir hvernig hægt sé að komast aftur í 1,8% hlutfall langvinnra sjúkdóma, ekki aðeins fyrir börn heldur alla einstaklinga. 
 
Í könnuninni eru færð rök fyrir því að næstum ALLIR langvinnir sjúkdómar í nútímanum tengist bólusetningaskaða. Vitandi það sem ég veit núna, þá álít ég líka að offitufaraldurinn, sérstaklega offita barna, sé ekki algjörlega matar-/lífsstílstengdur heldur sé að miklu leyti knúin áfram af bóluefnum sem eyðileggur örverur í bæði mönnum og dýrum.
 
Hér má lesa þessa könnun: Health versus Disorder, Disease, and Death: Unvaccinated Persons Are Incommensurably Healthier than Vaccinated .
 
Í útdrætti könnunarinnar er því haldið fram að bólusetningar séu EKKI að færa íbúa í átt að betri heilsu, eins og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin og bandaríska heilbrigðisráðuneytið hafa haldið fram, heldur í átt að faröldrum ævilangra lamandi langvinnra sjúkdóma.
 
Þá er hér önnur nýleg grein um barnabóluefni, því meira sem þau eru gefin, því meiri ungbarnadauði.
 
Að lokum eru hér upplýsingar um nýlegt grimmdarverk sem lýst er í þessari færslu af Dr. Nass en HHS (Health and Human Services í Bandaríkjunum) ætlar að þvinga hættulegar sprautur í alla nýbura undir yfirskininu „vernd gegn RSV“ (eitthvað sem að sögn drepur 25 (0,125%) nýbura á ári í Bandaríkjunum), en er langt frá því að vera ein helsta dánarorsök nýbura. Í klínískri rannsókn á þessum hættulegu sprautum dóu fleiri tilraunasprautuð börn en börn sem voru ekki sprautuð í tilraunaskyni.
 
 
Við þessa grein Söshu má bæta við að helstu bóluefni komu til sögunnar þegar hinir ýmsu faraldrar voru þá þegar á undanhanhaldi. En takið eftir að ekkert bóluefni kom fyrir skarlatsótt en samt dó faraldurinn út. Eru lyfjafyrirtækin að taka kredit fyrir eitthvað sem ekki er þeirra, að þau hafi útrýmt sjúkdómum sem voru við það að deyja út vegna ýmissa annarra þátta, t.d. hreins vatns? Sjá mynd.

bóluefni

 


Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband