Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2022

44% skólbarna, 5-11 ára, búin að fá bólusetningu og smitin aukast bara!

,,Thor Asp­e­lund, pró­fess­or í líf­töl­fræði, seg­ir mögu­lega til­efni til þess að skoða bet­ur það sem hann kall­ar „sér­stak­an far­ald­ur meðal barna.“ Hann tel­ur mik­inn fjölda kór­ónu­veiru­smita meðal grunn­skóla­barna koma á óvart og það geti ekki tal­ist sem eðli­legt frá­vik.

Þessir menn hanga í falsvísindunum. Smit aukast alltaf eftir bólusetningar með þessum ,,bóluefnum, sjáið Ísland (mynd neðar), þvílíkt flopp sem þessi lyf eru. Fylgjast þeir ekki með smittölum Íslands og sjá ákveðið mynstur? Um 44% í hópnum, 5-12 ára, eru skv. Covid.is búin að fá ,,bóluefnið" og 70-80%, 12-15 ára.

Síðan er búið að spritta börnin og halda þeim frá fólki og
öðrum börnum (sum þeirra farið alheilbrigð 6-7 sinnum í stofufangelsi!). Sumir foreldrar hafa gengið svo langt að einangra börn sín, hleypa þeim ekki í skólann.

M.ö.o. það er búið að veikja ónæmiskerfi barnanna með lyfjum og taugaveiklunarþrifnaði. ,,Af misjöfnu þrífast börnin best. Það eru hin einu sönnu vísindi og það vita menn eins og Aspelund en þykist ekkert vita því menn hafa selt sálu sína til geðsjúklinga sem stjórna heiminum.

Sjá má í hinum ýmsu spjallhópum að sprautuðu börnin eru að greinast með Covid stuttu síðar. Já, þvílík vísindi...og að leita eftir smitum eins og þeir eigi lífið að leysa!

cases


mbl.is Skoða þurfi „sérstakan faraldur meðal barna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dómari í Frakklandi dæmdi tilraunabólusetningu með Covdi bóluefni sjálfsmorð!

Sitt sýnist hverjum í þessu máli ,,...hóp­ur fólks sem vill hana (bólusetningu) ekki af öðrum ástæðum sem ekki eiga við vís­inda­leg­an grunn að styðjast."

Þarna virðast Margret og Hanna Katrín vera að tala um bólusetningar almennt en ekki bara Covid ,,bóluefnið" sem er ekki bóluefni. 

Hér er áhugaverð frétt frá Frakklandi sem ekki hefur farið mikið fyrir.

Dómari í Frakklandi dæmdi tryggingafélagi í vil sem hafði neitað að borga andvirði líftryggingar til erfingja manns sem lést eftir Covid bólusetningu.

Málið sem varðar aldraðan kaupsýslumann frá París hefur vakið mikla athygli í Frakklandi. Maðurinn hafði keypt sér líftryggingu upp á margar milljónir evra í þágu barna sinna og barnabarna.

Eftir Covid bólusetningu lést kaupsýslumaðurinn og er óumdeilt í málinu, bæði af læknum og tryggingafélaginu, að hann hafi látist vegna bólusetningarinnar. Tryggingafélagið neitaði aftur a móti að greiða út líftrygginguna og vísaði til þess að hinn látni kaupsýslumaður hefði á eigin ábyrgð ákveðið að fara í bólusetninguna.

Að fara í tilraunabólusetningu sem leiðir til dauða jafngildir sjálfsvígi

Tryggingafélagið neitaði að greiða tryggingaféð til fjölskyldunnar með þeim rökum að inntaka tilraunalyfs og tilraunameðferð (þar á meðal bólusetning við Covid) félli ekki undir líftrygginguna.

Fjölskyldan stefndi tryggingafélaginu til greiðslu en tapaði málinu og í dómnum segir:

„Aukaverkanir tilraunabóluefnisins eru opinberlega kunnar og hinum látna gat ekki verið ókunnugt um þær þegar hann tók bóluefnið af fúsum og frjálsum vilja. Það eru engin lög eða skylda í Frakklandi sem þvinga hann til að láta bólusetja sig. Þess vegna er andlát hans í rauninni talið sjálfsvíg.“

Þetta þýddi að bótaskyldan féll niður vegna tveggja atriða, því sjálfsvíg er einnig undanskilið bótaskyldu samkvæmt skilmálum tryggingarinnar og eins þátttakan í lyfjatilrauninni.

Í útdrætti dómsins segir:

„Dómstóllinn gerir ekki athugasemdir við flokkun vátryggjanda, sem lagalega varðar þátttöku [hins látna] í þriðja áfanga lyfjatilraunar, sem ekki hefur verið sannað að sé skaðlaus, sem frjálst samþykki til að taka lífshættulega áhættu sem tryggingin tekur ekki til, í ljósi þeirra aukaverkana sem tilkynntar hafa verið, þ.m.t. andláta sem að lögum flokkast sem sjálfsvíg. Fjölskyldan hefur áfrýjað. Hins vegar er vörn vátryggjanda viðurkennd sem réttmæt og samningslega réttlætanleg, þar sem þessi opinberlega þekkta andlátshætta telst lagalega sem sjálfsvíg þar sem viðskiptavinur hefur verið látinn vita af og hefur samþykkt sjálfviljugur að taka áhættu á dauða án þess að vera skyldaður eða þvingaður til þess.“

Verða dauðsföll vegna bólusetninga flokkuð sem sjálfsvíg hér eftir?

Með þessum dómi er það staðfest, að minnsta kosti í Frakklandi, að andlát eftir bólusetningu er álitið sjálfsvíg. Gera má því ráð fyrir að tryggingafélög muni vegna þessa hafna greiðslum úr líftryggingum í stórum stíl. Þar sem það fellur ekki undir skilyrði líftrygginga að taka banvæna áhættu með tilraunabólusetningu við veirunni. Líklegt er að þessi niðurstaða muni hafa gríðarlegar afleiðingar fyrir marga.

Franski fjölmiðlar hafa enn sem komið er ekkert fjallað um þetta hneykslismál. Það var lögmaður fjölskyldunnar, Carlo Alberto Brusa sem upplýsti um málið á facebook síðu sinni.

https://frettin.is/2022/01/15/domstoll-i-frakklandi-daemir-daudsfall-af-voldum-bolusetningar-sem-sjalfsmord/


mbl.is Segir skýra lagaheimild fyrir bólusetningarskyldu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers vegna setti Pfizer hjartalyf í bóluefni 5-11 ára?

„Menn eru að tala um eins og bólu­setn­ing­ar í skól­um séu eitt­hvað nýtt fyr­ir­bæri. Það er búið að bólu­setja í skól­um í ára­tugi, margskon­ar bólu­setn­ing­ar og það er mik­il reynsla kom­in á það." segir Þórólfur.

Hafa bóluefni á neyðarleyfi verið notuð í skólum? Held ekki. Og hér kemur fram að Pfizer hafi sett hjartalyf í bóluefni barna.

https://frettin.is/2022/01/04/hvers-vegna-setti-pfizer-hjartalyf-i-boluefni-fyrir-5-11-ara-born/


mbl.is Gagnrýnin ekki með hag barnanna að leiðarljósi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband