Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2011

Að semja sig frá lögum!

Mikið er ég ánægð að sjá þetta frá Ögmundi þó seint sé. Það hefur alltaf verið ljóst að um brot á aðfararlögum var að ræða, lögum sem ekki er hægt að semja sig frá þó að fyrirtæki búi til sína eigin skilamála í samningum sem gefa þeim rétt á að brjóta lögin. Þess má geta að LMFÍ, Lögmannafélag Íslands, tók undir með lögbrjótunum og sagði þá ekki hafa stuðst við lög um aðför heldur skilmála í samningi!  Þetta var makalaust að lesa frá þremur hæstaréttarlögmönnum sem voru augljóslega að hylma yfir með glæpamönnum. Hér má lesa nánar um úrskurð LMFÍ vegn kæru á hendur lögmanns SP fjármögnunar sem lét hirða bíl þrátt fyrir hörð mótmæli og kröfu um dómsúrskurð.  Ríkissaksóknara fannst heldur ekkert athugavert við vörslusviptingar án aðfararbeiðni og taldi ekki ástæðu til að rannsaka mál vegna kæru um brot á aðfararlögum. Staðfesti frávísun lögregustjórans en þar á bæ var fyrst neitað að taka við kærunni!


mbl.is Varar við lögbrotum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orðalag samninga!

„Óvissa ríkir um lögmæti annarra lána þar sem orðalag lánasamningsins og framkvæmd lánveitingarinnar er með öðrum hætti".

Merkilegt að orðalagið skuli skipta svona miklu máli. Var lánað í erlendri mynt eða ekki? Nú vitum við að bankarnir áttu í miklum erfiðleikum með að fjármagna sig erlendis á árunum fyrir hrun og því var Icesave reikningunum m.a. komið á  árið 2006.  M.ö.o. það var hér mikill skortur á erlendum gjaldeyri og því var að sjálfsögðu ekki verið að lána einstaklingum og fyrirtækjum hér heima útlenskan gjaldeyri.

En hér er líka grein um endurútreikninga eftir Gunnlaug Kristinsson endurskoðanda.  


mbl.is Arion banki endurreiknar lán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reikningslaus viðskipti bílalánafyrirtækjanna

Hvernig gengur rannsóknin á Avant, SP fjármögnun og Íslandsbanka fjármögnun sem öll gerðu þau „mistök" að gefa ekki út sölunótur fyrir bílunum sem þau seldu?  Er Jóhann Ásgrímsson eftirlitismaður hjá RSK enn að skoða gögnin sem ég sendi honum?

Nánar hér  og hér.

 

 

 


mbl.is Meira um svarta vinnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Avant lýgur upp á ríkisskattstjóra!

Ég hef áður fjallað um nótulaus viðskipti fjármögnunarfyrirtækjanna og haldið því fram að þau hafi stungið undan milljörðum í virðisaukaskatt.  

Viðskiptavinur Avant sendi nýlega kvörtun til Neytendastofu yfir að hafa ekki fengið sölunótu fyrir bílnum sem átti að fylgja með samningnum (sjá lið lV) en gerði ekki.  Avant svaraði erindinu á þá leið að það hefðu verið mistök að gefa ekki út reikninga  „enda komi allar nauðsynlegar upplýsingar fram í samningnum sjálfum.“  Sjá bréf.  Í bréfi Avant, segir lögfræðingur fyrirtækisins einnig að skoðað hefði verið (þegar „mistökin“ uppgötvuðust) að gefa út reikninga eftir á „í samráði við skattyfirvöld enda höfðu skattskil byggst á lánsamningunum að efni til og reikningurinn einungis leiðrétting á formi.“  Neytendastofa kallaði eftir svari frá ríkisskattstjóra við  þessari staðhæfingu Avant og segir ríkisskattstjóri í  bréfi sínu m.a. :
„Í meðfylgjandi bréfi frá Avant hf. til Neytendastofu, dags. 20.apríl 2010, kemur fram að haft hafi verið samráð við skattyfirvöld í tilefni handvammar sem orðið hafði hjá félaginu við útgáfu sölureikninga. Því er til að svara að ríkisskattstjóri  kannast ekki við nein samskipti við Avant hf. vegna þessa og er ekki að  finna nein formleg samskipti við félagið í málaskráningarkerfi embættisins af þessu tilefni.“   Sem sagt, tóm lygi!  Sá sem sendi  Neytendastofu kvörtunina svaraði útskýringum Avant með því að biðja fyrirtækið um að sýna fram á að skattskil hafi farið fram skv. samningnum eins og lögfræðingur Avant hélt fram í bréfi sínu. Það gat lögfræðingurinn ekki. 

Fyrir skömmu komst ég í samband við fyrrverandi starfsmann Avant sem las yfir samskipti fyrirtækisins við Neytendastofu.  Sagði hann m.a. að það hefðu ekki verið nein mistök að gefa ekki út reikninga og einnig að það væri ekki hægt að standa skil á virðisaukaskatti skv. lánssamningum Avant!  Neytendastofa sem neitaði í fyrstu að taka málið til athugunar ætlar þó ekki  úrskurða í málinu, segist ekki geta aðhafst frekar.  Þó er um að ræða augljóst samningsbrot, það vantar  reikninginn sem sagður var fylgiskjal með samningnum, fylgiskjal sem  neytandinn átti að fá þegar viðskiptin fóru fram.

Ath. viðskiptavinurinn greiðir virðisaukaskattinn  til fjármögnunarfyrirtækisins þegar keyptir eru nýir bílar á kaupleigu. Fjármögnunarfyrirtækið gefur ekki út sölunótu og stendur því ekki skil á skattinum í ríkissjóð. Fyrirtækin innsköttuðu virðisaukann á nýjum bílum sem þau keyptu af bílaumboðunum skv. upplýsingum frá embætti Skattrannsóknarstjóra.  Sem sagt, þau hirða innskattinn en  greiða ekki útskattinn sem þau rukka viðskiptavinina um og það með vöxtum.  En kerfið mun ekkert gera, það má ekki rugga bátnum. Kröfuhafar eiga kröfurnar, þar á meðal stolna skattinn, þess vegna heyrist ekkert frá ríkisskattstjóra og/eða skattrannsóknarstjóra vegna málsins. Þeir reyna ekki einu sinni að mótmæla því sem ég hef birt í fjölmiðlum, um að skattinum hafi líklega verið stungið undan.

Endurskoðandi frá ríkisskattstjóra hafði þó samband og sagðist vera jafn áhugasamur og við um að skoða þessi mál.  Hann fékk fullt af gögnum frá mér en ekkert hefur heyrst frá honum síðan.  Það er dýrt fyrir skattborgara landsins að vera með helling af sérfræðingum á launum hjá ríkinu sem virðast neyðast til að standa vörð um fjármuni kröfuhafa fjármálastofnanna en eru þó ráðnir til að standa vörð um almannafé og hafa eftirlit með að fjármálafyrirtækin fari að lögum. Hafa skal í huga að meðvirkni og aðgerðarleysi sem þetta getur verið efnahagsbrot.

Enginn (nema stjórnendur fjármögnunarfyrirtækjanna) trúir því að skatti hafi verið skilað þegar  „fyrir mistök”  engir reikningar voru gefnir út.  Og a.m.k. þrjú af fjórum bílalánafyrirtækjum (Avant, SP og  Íslandsbanki fjármögnun) voru samtaka í að gera sömu „mistökin.”

Avant er nú hluti af Landsbankanum.


Var til gjaldeyrir?

Úr dómi héraðsdóms Rvk. Þann 30. mars 2007 óskaði Motormax ehf. eftir 150.000.000 krónum í erlendu láni til 5 ára hjá Landsbanka Íslands hf., nú NBI hf.

Landsbankinn heldur því sem sagt fram að hann hafi verið að lána erlendan gjaldeyri hér heima árið 2007 til innlendra aðila á þeim tíma sem bankinn og hinir bankarnir sömuleiðis voru í alvarlegum vandræðum með að fjármagna sig erlendis. Þetta kemur allt fram í rannsóknarskýrslunni.

Fram kom í réttarsal að Landsbankinn hafi selt gjaldeyri og skipt honum yfir í ISK og lánað Mótormax ISK. Það má vel vera að bankinn hafi selt gjaldeyri en hann hefur þess vegna getað keypt hann strax aftur. Erlendur gjaldeyrir fór ekki inn á reikning Mótormax.


mbl.is Segir lánið hafa verið löglegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband