Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2023

Faðir fer í mál við Pfizer, 17 ára sonur hans lést af völdum C-19 "bóluefnisins"

Að morgni 27. september 2021, 33 dögum eftir að  hinn 17 ára gamli Sean Hartmann, var bólusettur með COVID-19 mRNA "bóluefninu" frá Pfizer, fann móðir hans hann látinn í svefnherbergi sínu.
 
Í dómsmálinu, sem Western Standard segir frá, er byggt á því að C-19 "bóluefnið" frá Pfizer hafi valdið dauða Sean Hartman.
 
Sean Hartman lést aðeins 33 dögum eftir að hafa fengið fyrstu sprautuna af Pfizer og fyrir var hann fullkomlega heilbrigður drengur án undirliggjandi sjúkdóma. Sean fékk COVID-19 sprautu til að fá að spila áfram íshokkí, en til þess varð hann að vera "bólusettur".
 
Faðir Sean fór með hann á bráðamóttöku fjórum dögum eftir fyrsta skammtinn þar sem hann var með brúna hringi í kringum augun, útbrot í andliti og verk í hægri öxl.
 
Í mars sl. neituðu stjórnvöld í Kanada foreldrum drengsins um bætur þrátt fyrir þá staðreynd að hinn áður heilbrigði Sean dó eftir að hafa fengið COVID-19 bóluefnið frá Pfizer.
 
Bandaríski meinafræðingurinn Dr. Ryan Cole úrskurðaði hins vegar í júlí sl. að Sean hafi látist af völdum COVID-19 bóluefnisins. Cole skoðaði vefi hans og fann gaddaprótein í nýrnahettum.
 
Í málinu er m.a. krafist 35,6 milljóna dala í skaðabætur frá Pfizer auk alls kostnaðar. Eru málaferlin m.a. byggð á því að Pfizer hafi ekki upplýst um áhættuna er tengdist öryggi og notkun "bóluefnisins", niðurstöður prófana hafi verið falsaðar og áhætta af notkun "bóluefnisins" takmarkist ekki bara við hjartavöðvabólgu og gollurhússbólgu, eins og Pfizer hafi nú loks viðurkennt.
 
Hér má sjá nánar um niðurstöðu Dr. Rayn Cole
 
 

 


Kanada: 74% þrísprautaðra með ónæmisbrestsheilkenni (VAIDS)

Nýjustu opinberu Covid-19 tölurnar frá ríkisstjórn Kanada eru sannarlega skelfilegar. Þær sýna að tví-og þrísprautaðir íbúar í Kanada hafa nú tapað að meðaltali rúmlega 70% af getu ónæmiskerfis síns samanborið við náttúrulegt ónæmiskerfi ósprautaðs fólks.
 
Svo mikill er skaðinn að tölurnar sýna að tvísprautaðir eru að meðaltali 3,8 sinnum líklegri til að smitast af Covid-19 og 3,3 sinnum líklegri til að deyja af Covid-19 en ósprautaðir.
 
En staðan er enn verri fyrir hinn þrísprautaða hvað varðar hættu á dauða. Opinberar tölurnar sýna að þeir eru að meðaltali 3,7 sinnum líklegri til að smitast af Covid-19 og 5,1 sinnum líklegri til að deyja af völdum Covid-19 en ósprautaðir.
 
Þessar tölur, sem hægt er að hlaða niður hér benda því til þess að bæði tví- og þrísprautaðir íbúar Kanada hafi nú orðið fyrir svo miklum skaða á ónæmiskerfnu vegna Covid-19 sprautunnar að þeir hafi nú þróað með sér áunnið ónæmisbrestsheilkenni (VAIDS- Vaccine Acquired Immunodeficiency Syndrome).

Nóbelsverðlaun fyrir Covid sprautur - enn ein verðlaunin í Covid bransanum

Vísindamenn frá Ungverjalandi og Bandaríkjunum með grímur fyrir andlitum hlutu Nóbelsverðlaunin í ár í læknisfræði fyrir þróun á mRNA-tækni sem nýtt var við þróun á bóluefnum gegn covid.

 

Þó svo að þetta meinta bóluefni hafi verið það skaðlegasta í sögu bóluefna síðustu áratugi fær það nóbelsverðlaun(aldrei borist fleiri tilkynningar um aukaverkanir af neinu öðru bóluefni). Yfir 6000 tilkynningar til Lyfjastofnunar Íslands, rúmlega 300 alvarlegar þar á meðal hjá börnum sem voru í núll áhættu af Covid (og talið er að lítil prósenta sé tilkynnt). Næstum 8000 ALVARLEGAR aukaverkanir höfðu verið tilkynntar til yfirvalda í Noregi í apríl sl. 

Tilkynningum um aukaverkanir lyfja fjölgaði verulega í Svíþjóð á síðasta ári, í rúmlega 99.000 samkvæmt tölfræði sænsku Lyfjastofnunar, segir í frétt frá stofnuninni. Það er tíföldun frá því sem eðlilegt er. Meirihlutinn, eða 90.732 tilkynningar, varðaði grunaðar aukaverkanir af Covid-19 bóluefni. Aðeins 8.479 voru fyrir önnur lyf.

Covid tíminn var vel verðlaunaður iðnaður, hér er nokkur dæmi um "hæpið":

1. Forstjóri Astra Zeneca riddarakross 2022
2. Þríeykið fálkaorða 2020 
3. Kári Stefánsson/Decode úflutngingsverðlaun forseta Íslands des. 2020, þrátt yfir að Decode sé alútlenskt fyrirtæki í eigu Amgen.
4. Davíð O. Arnar yfirlæknir hjartalækninga riddarakross 2023(er að rannsaka leynda hjartagalla með Decode eftir sprautuherferðirnar).
5. Ragnheiður Ósk yfirhjúkka fálkaorða 2022
6. Fyrsta hjúkkan til að fá Covid sprautu í Bandaríkjunum fékk viðurkenningu frá Biden forseta og nafnspjald hennar og sjúkrahúsfatnaður fer á Smithsonian safnið í Washington DC, einnig valin kona ársins 2022.
8. Tilkynning á vef Stjórnarráðs Íslands um fyrsta Íslendinginn sem fékk Covid sprautu. Honum færður blómvöndur.
7. Forstjóri Pfizer Albert Bourla hlaut ísraelsku vísindaverðlaunin The Genesis Prize árið 2022 og þar með 1 millón bandaríkjadala.
 
Þúsundir fleiri dæma má finna um allan heim um Covid verðlaun og viðurkenningar, t.d. í Singapore, yfir 100 þúsund.
 
En nóbelsverðlaunalyfið Ivermectin sem snemma var sýnt að virkaði vel gegn Covid, var uppnefnt hestalyf af FDA (hestar fá það líka eins og t.d. pensilín) og forstjóri Lyfjastofnunar kærði Kalla Snæ lækni fyrir dreifingu á lyfinu. Og forstjóri Lyfjastofnunar fékk hve margar sprautur sjálf-einhver sem sá hana fara í "bólusetningu"? 
 
Annað kvöld,4.okt. verður málþing á Grand Hótel þar sem meðal fyrirlesara verður bandaríski læknirinn Pierre Korry og höfundur bókarinnar The War on Ivermectin. Um er að ræða einn allra fremsta sérfræðing heims í meðferð Covid sjúklinga og sprautuskaðaðra. Pierre er meðstofnandi FLCCC (flccc.net) og án efa einn þeirra lækna sem bjargað hefur hvað flestum mannslífum í faraldrinum.

Þarna verður hægt að sjá að heilbrigðismál geta verið rótpólitísk. Ráða vísindi för eða peningar? Og afhverju eru þessir nóbelsverðlaunahafar með grímur á sér, fengu þau ekki uppfinninguna beint í skrokkinn?

nóbel

mbl.is Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir bólefni gegn Covid-19
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband