Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2023

Hvers vegna eru bólusettu börnin með "long covid"?

Rann­sak­end­ur hafa skoðað langvar­andi ein­kenni Covid-19 í ís­lensk­um börn­um. Komust þeir að því að langvar­andi ein­kenni vegna sjúk­dóms­ins eru al­geng meðal þeirra og hafa áhrif á lífs­gæði barn­anna. Þetta kemur fram í viðtengdri frétt.

Rannsakendur voru m.a. barnalæknarnir Valtýr Thors og Ásgeir Haraldsson. Báðir mæltu þeir með því að íslensk börn fengju Covid bóluefni þrátt fyrir að hafa lokið eða um það bil verið að ljúka rannsókn þar sem fram kom að smit meðal barna á Íslandi hafi verið skoðuð í þremur smitbylgjum og leitt í ljós að smit í skólum væru fátíð, innlagnir barna voru engar á rannsóknartímabilinu og sjúkdómurinn væri ekki alvarlegur meðal barna.

Samt sem áður mæltu barnalæknarnir tveir (ásamt fleiri læknum), Valtýr og Ásgeir eindregið með því að börnin fengju þetta nýja tilraunalyf sem þó var vitað að hefði alvarlegar aukaverkanir.

Í eftirfylgnihluta rannsóknarinnar hjá þeim félögum kemur síðan fram að íslensku börnin væru að glíma við "long-covid" sem vissulega myndi flokkast sem alvarlegur/ir kvillar, þar á meðal hjartsláttatruflanir. Þegar þessi hluti rannsóknarinnar er gerður hafði meirihluti barna hér á landi fengið bóluefnið sem þeir mæltu með. En í rannsókninni er enginn samanburður milli hópanna eða minnst á sprauturnar. Eins og þær væru ekki til.

„Rann­sak­end­ur telja mik­il­vægt að skoða áhrif langvar­andi ein­kenna vegna Covid-19 á börn frek­ar og skoða fyr­ir­byggj­andi aðgerðir", segir í niðurlagi fréttar mbl.is. Voru bóluefnin sem þeir mæltu með ekki fyrirbyggjandi aðgerð - ef ekki hvað voru þau þá?

Rannsóknarniðurstöður eru í takt við áframhald Covid-narratífsins. Ekki má minnast á skaðann sem sprauturnar hafa valdið, læknar segja að veikindin séu vegna Covid pestarinnar, burt séð frá því hvort viðkomandi hafi verið mikið eða lítið sem ekkert veikur af henni (mælst jákvæður). Og landlæknir telur að umframdauðsföll séu vegna Covid, og það eftir mörg hundruð þúsund gefna sprautuskammta!

Þetta mátti heyra snemma í ferlinu, munið handboltakonuna Ragnheiði Júlíusdóttur? Hún var þrísprautuð en með "long covid"? Það stemmir ekki við áróðurinn, þ.e. að sprauturnar ættu að koma í veg fyrir mikil veikindi. Í hvaða áhættu var ung og hraust íþróttakona með Covid? Hvers vegna þurfti hún að fá svona sprautur?

Samanburðarrannsókn á sprautuðum og ósprautuðum einstaklingum  er eina vitið í þessum efnum. Í október átti ég og Helga Birgisdóttir hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir fund með heilbrigðisráðherra. Hann tók vel í að framkvæmd yrði samanburðarrannsókn á heilsu barna, sprautuðum og ekki sprautuðum. 

Að rannsaka heilbrigði fólks eftir Covid án þess að skoða bólusetningastöðu er einskis virði og í raun fölsun á sögunni. Það er verið að velta veikindum af sprautum (í mörgum tilfellum a.m.k.) yfir á pestina sjálfa og það m.a. hjá fólki sem er margsprautað með lyfinu sem átti að koma í veg fyrir veikindi.



mbl.is Langvarandi einkenni Covid-19 meðal íslenskra barna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endurspegla orð lækna og yfirvalda innihald bóluefnasamninga?

Neðangreinda samhljóðandi klausu er að finna í samningum ESB ríkjanna (bls.48) og Suður-Afríku(bls.21) við Pfizer um Covid-bóluefnakaup. Samninga ríkjanna hefur ekki mátt opinbera, þar á meðal þann íslenska. Sumir samningar hafa þó ratað á internetið, mismikið yfirstrikaðir. Samningar ESB og S-Afríku eru lítið sem ekkert yfirstrikaðir. Útgáfutími er 2021 en ekki sést hverjir undirrita. Ísland var með í bóluefnakaupum ESB í gegnum Svíþjóð. (Samningur S-Afríku er til á pdf. og get ég sent með t-pósti þeim sem óska).

Lesið þessa klausu vel og vandlega og rifjið síðan upp - er þetta það sem heilbrigðisyfirvöld hér og annars staðar sögðu fólkinu sínu?

The Participating Member State acknowledges that the Vaccine and materials related to the Vaccine, and their components and constituent materials are being rapidly developed due to the emergency circumstances of the COVID-19 pandemic and will continue to be studied after provision of the Vaccine to the Participating Member States under the APA (innsk. Advance Purchase Agreement). The Participating Member State further acknowledges that the longterm effects and efficacy of the Vaccine are not currently known and that there may be adverse effects of the Vaccine that are not currently known. Further, to the extent applicable, the Participating Member State acknowledges that the Vaccine shall not be serialized.

Sem sagt, þróuð á miklum hraða, verða áfram rannsökuð eftir afhendingu, ekkert vitað um langtímaáhrif og langtímaaukaverkanir.

Skoðum t.d. hvað Bryndís Sigurðardóttir smitsjúkdómalæknir á LSH sagði í desember 2020:

„Litlar aukaverkanir eru af bóluefni gegn kórónuveirunni... Aukaverkanirnar líði hjá á nokkrum dögum. Þær séu ekki jafn miklar og afleiðingar COVID-19 geti verið. Mikilvægt sé að fólk þiggi bólusetningu því þannig verndi þeir ekki aðeins sjálfan sig heldur einnig þá sem eru veikastir fyrir.“

Bóluefnin voru aldrei rannsökuð með tilliti til þess hvort þau vernduðu gegn smiti manna á milli. Þetta kom fram í yfiheyrslum á Evrópuþinginu í október 2022. Samt sögðu yfirvöld að þau myndu leiða til hjarðónæmis. Fljótt kom í ljós að það gerðu þau ekki, smittíðnin bara jókst eftir að meirhluti landsmanna hafði fengið sprauturnar! Allt tal um hjarðónæmi með nýju líftæknilyfi var því hreinn tilbúningur, og auk þess endurspegluðu hvatningarorð lækna og yfirvalda aldeilis ekki það sem stendur í samningum um milljarða kaup á sprautuefni.

Voru læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk blekkt eða fengu þau að sjá samningana og tóku þátt í að ljúga því að samborgurum sínum, sem flestir treysta, að bóluefnin væru örugg og áhrifarík og betra að fá þau en Covid, líka börn og ófrískar konur?

Hverjir undirrituðu samninga fyrir Íslands hönd? Og hverjir lásu þá? 


Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband