Leita í fréttum mbl.is

24 ára bólusett kona á spítala með Covid - ekki sú fyrsta

covid.isAlmannavarnarfundur var haldinn í morgunn vegna fjölgunar smita sem virðast aðallega finnast hjá þeim bólusettu. Þar sagði sóttvarnarlæknir tvisvar að bólusett fólk sem greindist smitað væri ekki að veikjast mikið og ekki að leggjast inn á spítala. 

Er sóttvarnarlæknir sem sagt ekki upplýstur um stöðuna í sínu eigin litla landi? Á vefnum covid.is sem var uppfærður kl. 11 í morgun segir líka að enginn sé inniliggjandi með Covid. Hvernig væri að hafa réttar upplýsingar?

24 ára kona sem greindist með smit eftir síðustu helgi varð mikið veik af Covid og var lögð inn á þriðjudaginn og liggur þar enn. Hún var bólusett með Janssen og því talin fullbólusett! Vonandi nær hún sér sem fyrst. Eitt er líka áhugavert í þessu sambandi, konan býr með móður sinni sem er óbólusett. Móðirin þurfti að fara í PCR próf vegna dótturinnar en er ekki smituð samkvæmt prófinu.

Þetta er ekki sá fyrsti sem hefur þurft að leggjast inn með Covid þrátt fyrir að vera bólusettur. Þessi frétt birtist á mbl 5.júlí sl. og segir að tveir hafi legið inni með Covid. Ekki kom fram hvort þeir hafi verið bólusettir og sendi ég því fyrirspurn til farsóttardeildar LSH og fékk þetta svar:

„Sæl
Annar sjúklingurinn var ekki bólusettur- sá útskrifaðist um helgina. Hinn var fullbólusettur og útskrifaðist í gær.

Fh. Farsóttanefndar Landspítala."

Hér er önnur frásögn manns sem veikist af Covid mánuði eftir sprautu af Janssen,

Erum við að sjá það sem margir læknar erlendis hafa verið að vara við í langan tíma en ekki hefur verið hlustað á? Þessi bóluefni sem eru í raun líftæknilyf veikja ónæmiskerfið og fólk verður veikara fyrir vikið. Meira um það síðar.

Og hér segir samgöngumálaráðherra Bretlands að þeir fullbólusettu dreifi/fái miklu frekar veiruna. Er einhver sem skilur eitthvað í þessu? 

Uppfært: konan er komin af spítala en þarf að vera í eingangrun í sóttvarnarhúsi til júlíloka.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þröstur Jónsson

Það eina sem ég skil ekki er hegðun stjórnvalda í þessum faraldri allt þetta ár. 

Þröstur Jónsson, 15.7.2021 kl. 18:57

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þar sem nánast öll smit að undanförnu hafa verið rakin til bólusettra, hljóta nýju takmarkanirnar að þurfa að ná fyrst og fremst til þeirra fremur en óbólusettra.

Þetta er allt að snúast upp í andhverfu sína.

Guðmundur Ásgeirsson, 15.7.2021 kl. 20:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband