Leita í fréttum mbl.is

,,Læknar vildu ekki gefa mér seinni sprautuna - féll í yfirlið og upplifði mikla köfnunartilfinningu"

arnyÁrný Ósk er 42 ára sjúkraliði frá Akureyri. Hún var bólusett með Pfizer 17. maí í íþróttahöllinni á Húsavík þar sem hún er búsett.

Hér er hennar frásögn:

Um það bil 20 sekúndum eftir að ég fékk sprautuna fann ég að mér var farið að líða illa og fékk mikla yfirliðstilfinningu. Þá kom sjúkraflutningamaður og ég færði mig yfir á sjúkrabörur og þar slokknaði á mér í um 15 - 25 sekúndur. Þegar ég rankaði við mér í litla salnum" var ég með mjög öran hjartslátt og köfnunartilfinningu, eins og einhver sæti ofan á bringunni á mér. Ég lá með hátt undir fótum í um 30 mínútur og var þá sótt en þeir sáu ekki ástæðu til að fara með mig upp á sjúkrahús. Fór síðan til vinar míns því ég treysti mér ekki til að vera ein heima með þessa yfirliðstilfinningu."

Ég var komin heim klukkan tíu um kvöldið (fór í sprautuna 16:30) og fór þá að sofa en vaknaði um miðnætti með óþægilegan hjartslátt og köfnunartilfinningu og svitnaði alveg gífurlega. Daginn eftir var ég frekar slöpp og tveimur dögum síðar fékk ég útbrot á fæturna, það mikið að ég gat ekki verið í buxum, húðin sprakk þar sem útbrotin voru mest. Ég var orðin nokkuð góð fjórum dögum eftir sprautuna og talaði við lækni sem sagði að  þetta hefðu verið ofnæmisviðbrögð við sprautunni og var að hugsa um að leggja mig inn fyrir síðari sprautuna, ef ég skyldi bregðast eins við henni. En síðan treystu þeir sér ekki til að gefa mér aðra sprautu, þannig að ég er bara hálf-bólusett. Í dag upplifi ég enn pirring/verk á þeim stöðum sem ég fékk útbrotin sem eru á gömlu brunasári á lærinu. Eins svitna ég nú mikið á nóttunni og sérstaklega á fótunum sem ég hef aldrei gert áður."

Töluvert hefur verið um yfirlið í kringum þessar bólusetningar og hafa læknar og hjúkrunarfólk tjáð sig um það í fjölmiðlum og sagt að það væri frekar algengt þegar um inngrip væri að ræða og að yngra fólkið félli frekar í yfirlið. 

Það hefur aldrei liðið yfir mig áður" sagði Árný ég var ekkert stressuð og er alls ekki hrædd við nálar og fann ekkert fyrir stungunni."

Ég spurði Árnýju hvort hún hefði tilkynnt aukaverkanirnar til Lyfjastofnunar.

Nei, ég hélt að læknirinn hefði gert það en frétti síðan að það væri ekki svo, ég ætla því að gera það sjálf við fyrsta tækifæri."

Samkvæmt þessari grein í Læknablaðinu ber heilbrigðisstarfsfólki skylda tiil að tilkynna aukaverkanir nýrra lyfja. Hvað skyldi vanta margar tilkynningar í gagnagrunn Lyfjastofnunar fyrst að sjúkraliði taldi að heilbrigðisstarfsfólkið myndi sinna því? Árný sagði að þegar hún hafi verið að vinna á sjúkradeild tíðkaðist það að starfsfólk sendi inn upplýsingar sem þessar.

Uppfært: í desember sl. kom í fréttum að þeir sem væru með sögu um alvarlegt ofnæmi ættu ekki að taka Pfizer. Síðan heyrði maður aldrei meir um þær viðvaranir. Árný er með ofnæmi fyrir hnetum og bráðaofnæmi fyrir kókós en var aldrei spurð um þetta (enda er enginn spurður). Þessi viðvörun kemur frá framleiðandanum sjálfum, sjá mynd: (Læknirinn sagði við hana að þetta hafi verið ofnæmisviðbrögð sbr. ofar).
pfizerallgergy

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

EF að hún ætti kost á því að endurtaka bólusetningardaginn;

hefði hún þá alveg sleppt því að mæta í þessa boðun/bólusetningu?

Hver var lærdómurinn af þessu öllu?

Jón Þórhallsson, 16.7.2021 kl. 16:07

2 identicon

Góða spurning Jón, skulum ath hvað eiginmaður Lisu Shaw sem vann einmitt á BBC hefur um þetta að segja en konan hans dó eftir að hafa tekið inn Astra Zeneca.

https://hugotalks.com/2021/07/15/bbc-vaccine-death-husband-interview-hugo-talks-lockdown/

Þröstur (IP-tala skráð) 16.7.2021 kl. 17:57

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Á 44. degi blæðinga eftir bólu­setningu og fær engin svör - Vísir

Kona á fertugsaldri er á 44. degi blæðinga sem hófust daginn eftir að hún fór í síðari bólusetninguna með bóluefni Pfizer. Hún segist engin svör hafa fengið úr heilbrigðiskerfinu og að það hafi verið verulega lýjandi að ekkert lát sé á.

„Ég er búin að vera með öll einkenni óléttu: verki í brjóstum, alltaf þreytt, sem er svo ólíkt mér því ég er ofvirk, vinn tvær vinnur og er alltaf á fullu. Og svo er ég búin að vera með túrverki. Ég er búin að taka fjögur óléttupróf þannig að það er ekki það,“ segir hún.

Guðmundur Ásgeirsson, 16.7.2021 kl. 18:58

4 Smámynd: Geir Ágústsson

Fólk með aukaverkanir er gjörsamlega hunsað. Þetta er hræðilegt. Konur á öllum aldri og ungir karlmenn sennilega að hrúgast inn á öryrkjaskrá en til vara bara leyft að þjást. Er enginn blaðamaður til í að skrásetja þetta?

Geir Ágústsson, 16.7.2021 kl. 21:01

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þetta tilfelli var a.m.k. skrásett af blaðamanni.

Guðmundur Ásgeirsson, 16.7.2021 kl. 21:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband