Leita í fréttum mbl.is

Eins og níræð kona eftir eina sprautu af AstraZeneca - líkaminn og ónæmiskerfið hrundi!

margretoskMargrét Ósk Guðbergsdóttir er 36 ára þriggja barna móðir, búsett í Sandgerði og starfar sem þroskaþjálfi. Hún fékk AstraZeneca bóluefnið 17. febrúar sl. Það mætti segja að hún hafi fengið alla heimsins kvilla sem mögulega er hægt að fá eftir eina sprautu! Hún var áður í toppformi, fór reglulega í líkamsrækt og hugsaði vel um mataræðið. Í dag segist hún vera eins og níræð kona sem getur ekki gengið langt án þess að verða lafmóð.

Ég fann um leið og ég var sprautuð fyrir stirðleika upp í háls og höfuð og varð strax fárveik um kvöldið, fékk 40 stiga hita og lá í móki í tvo sólarhringa. Ég þurfti að skríða fram úr rúminu til að sækja verkjatöflur. Þetta kom mér svo á óvart, ég hef oft fengið flensusprautur, aðallega út af vinnunni, en hef aldrei orðið veik af þeim og er manneskja sem verð aldrei veik, fyrr en nú."

„Eftir tvo sólarhringa fór hitinn að lækka og þá kom óbærilegur höfuðverkur, versti höfuðverkur sem ég á ævinni fengið. Þessu fylgdi skert sjón, svimi, ógleði, magakrampi og ótrúlega vondir tauga-og vöðvaverkir. Mér var illt alls staðar í líkamanum og þannig er ég enn, eins og líkaminn sé stútfullur af bólgum og það má helst ekki koma við mig. Eins fékk ég mikil útbrot í andliti sem eru nýlega farin, hrikalegan hósta og missti allt þol. Í dag er ég um það bil 30% betri í skrokknum en glími nú líka við minnisleysi og skapið hefur versnað. Dæmi um hversu lasin ég var í byrjun: ég átti í erfiðleikum með að ganga upp tröppurnar til dagmömmunnar, náði varla andanum og hélt bara að ég væri að deyja."

„En hugsaði alltaf, þetta hlýtur að lagast enda er ég mjög bjartsýn að eðlisfari, og fór ekki til læknis fyrr en 6-7 vikum eftir sprautuna. Ég var hlustuð og látin hafa astmapúst. Læknirinn lét mig fylla út lista með einkennunum og áður en ég gat lokið því spurði hann: „og hefurðu verið með svima og ógleði?" ... þannig að það hafa greinilega fleiri komið og lýst sömu einkennunum eftir sprauturnar, sagði Margrét.

„Læknirinn gat ekkert sagt til um útbrotin en ráðlagði mér að taka bólgueyðandi lyf og koffín við höfuðverknum. Ég varð ekkert betri og fór aftur til læknis skömmu síðar. Var aftur hlustuð og mér sagt að þetta myndi lagast og fékk annað astmapúst. Læknirinn sagði að ég væri líklega komin með astma og sjálfsónæmi."

„Í 14 vikur lá ég í rúminu með regluleg kuldaköst og gat ekkert unnið. Um það bil þremur mánuðum síðar fékk ég boð um að koma í seinni sprautuna. Ég gat ekki hugsað mér að fara og fór í þriðja sinn til læknis sem ráðlagði mér að fara ekki. Ég var aldrei send í rannsókn en óskaði eftir röntgenmynd af lungunum sem ég fékk. Þá voru mér gefin mjög sterk lyf við svokallaðri kaldri lungnabólgu."

„Þessu til viðbótar urðu breytingar á tíðarhringnum, ég er núna aðeins með blæðingar í tvo daga í senn með miklum verkjum rétt áður en þær byrja og í kringum egglos. Þannig var ég ekki áður, aldrei með verki og blæðingarnar stóðu yfir í 4-5 daga. Og mér líður eins og ég sé með miklar hormónabreytingar, er ýmist kalt eða funheitt og þarf þá að opna alla glugga. Ég þekki nokkrar konur sem segja frá samskonar breytingum með tíðarhringinn eftir bólusetningar og eins veit ég um tvo karlmenn (þekki þó ekki persónulega) sem fengu fyrir hjartað eftir AstraZeneca bólusetningu." (Sjá fleiri dæmi um breytingar tengdum blæðingum hér sem konur um allan heim hafa kvartað undan). 

Þannig var sú saga. Læknarnir höfðu augljóslega séð fleiri svona dæmi eins og Margrét segir frá, en þeir segja ekkert opinberlega. Hvað með læknaeiðinn - fyrst ekki skaða!? Enginn af þessum þremur læknum sagði henni að tilkynna aukaverkanirnar til Lyfjastofnunar og enginn vildi rannsaka neitt nánar.

Nú er ég ekki læknir, en þeir sem hafa lýst blóðtöppum eftir sprautunar, lýsa einmitt óbærilegum höfuðverk og stundum skertri sjón. En samt var engin rannsókn gerð á Margréti, vitandi það að þessu bóluefni fylgdi hætta á blóðtappa meðal yngri kvenna. 

Margrét sagðist hafa tilkynnt veikindin sjálf til Lyfjastofnunar eftir að hafa lesið um það á netinu, en er ekki búin að ákveða hvort hún ætli að sækja skaðabætur frá ríkinu (sem ég hvatti hana til að gera). 

p.s. ef fleiri vilja deila sögum af veikindum eftir bólusetningar sem fjölmiðlar hafa ekki áhuga á ólíkt Covid veikindum, þá er bloggið mitt bloggið þitt!" 




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þröstur Jónsson

Nú er vel vitað, en þaggað að gaddaprótenið sem hin svonefndu bóluefni mynda valda eyðileggingu háræða þmt. í heila sem passar við einkennin sem er lýst. Fyrstu rannsóknir sýna yfir 60% bolusettra verða fyrir slíkri eyðileggingu háræða-kerfisins sem er varanleg eyðilegging. Það fer svo eftir hvar og hve mikil eyðileggingin er, hversu fólk tekur eftir henni sem "aukaverkunum"... sem miklu frekar ætti að kalla eyðileggingar.

https://www.bitchute.com/video/4FSnKYyvRQim

Þröstur Jónsson, 13.7.2021 kl. 22:00

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Þakka þér Þórdís fyrir öll þín skrif og blogg færslur, það skiptir máli að koma öllum þessum upplýsingum á framfæri. Því miður eru fjölmiðlar á bandi elítunnar sem kappkostar að fækka fólki á jörðinni og eru þessar aðgerðir bara einn liður í því ferli.

Að fjölmiðlar vilji ekki flytja svona fréttir, eins og þú gerir hér til að upplýsa almenning um þann skaða sem þessi svo kölluðu bóluefni eru að valda fjölda fólks, er fjölmiðlum til háborinnar skammar. Fjölmiðlar sem þannig starfa eru ekki að hugsa um sannleikann að koma réttum fréttum á framfæri eða hafa þjóðarhag að leiðarljósi.

Því miður eru allt of fáir sem lesa bloggin en það er einmitt þar sem hinar sönnu upplýsingar eru birtar og það eru nokkrir hér á mbl.is blogginu sem þora að segja það sem þarf að segja. Þakka þér fyrir þitt framlag.

Tómas Ibsen Halldórsson, 13.7.2021 kl. 22:24

3 Smámynd: Geir Ágústsson

Það þarf að básúna með öllum mögulegum leiðum, bæði fórnarlömb sprautanna og þeir sem hafa vettvang sem fólk sækir fyrir upplýsingar.

En það er ekki nóg því yfirvöld hafa skilgreint þessar aukaverkanir sem nokkuð sem má nú bara búast við og gengur yfir - engin ástæða til að tilkynna neitt! Og fólk hefur látið blekkjast. Það er hið stóra vandamál. 

Geir Ágústsson, 14.7.2021 kl. 09:27

4 identicon

Margir blaðamenn, læknar, og fræðingar af ýmsu tagi hafa fundið á sér að eithvað er bogið og órökrétt við rétttrúnaðinn að Covid19 sé svo alvarlegt mál að það verði að fara í meiriháttar aðgerðir eins og að bólusetja heilu þjóðirnar með efni sem er meira að segja á tilraunastigi. Hvernig stendur á því að þessir menn sem hafa góða menntun skoða ekki málið gaumgæfilega og koma fram með gagnrýni (þó ekki nema væri til þess að fara varlega)? Svarið held ég að sé menn eru svo fastir í einhverri vegferð í sínu lífi að þeir geta ekki að vilja ekki stoppa aðeins og hugsa, eða að menn þora því ekki. Það er fyrir hendi rétttrúnaðar-lína sem er allsstaðar á Vesturlöndum, ef þú gengur ekki í takt við hann þá muntu fá að finna fyrir því með hugsanlegum atvinnumissi eða verra. Einstrengingslegur fréttaflutningur hefur verið í gangi og menn eru fljótt kallaðir samsæriskennningar-smiðir ef þeir hafa einhverjar athugasemdir. Ritskoðun á netinu er mjög algeng og hræðsluáróðurinn hefur dunið yfir okkur. Það nýjasta er svo Covid skilríkin til þess að getað ferðast milli landa - engin sprauta, ekkert ferðafrelsi. Hvar endar þetta alltsaman? Það endar sennilega þannig að þú missir allt frelsi nema þú gerir það sem þér er sagt af einhverjum valda-öflum sem engin veit hverjir eru.  

Bragi Sigurdsson (IP-tala skráð) 14.7.2021 kl. 12:48

5 identicon

First they came for the communists, and I did not speak out because I was not a communist.
Then they came for the socialists, and I did not speak out because I was not a socialist.
Then they came for the labor leaders, but I did not speak out because I was not a unionist.
Then they came for the Jews, and I did not speak out because I was not a Jew.
As one day became another and others disappeared, gypsies, mentally retarded, homosexuals, Jehovah's Witnesses, criminals, anti-socials and emigrants, I remained silent because I was not one of them.
Then it was they came for me, but no one spoke for me because by then there was no one left to speak.
Martin Niemoller,1945.

Bragi Sigurdsson (IP-tala skráð) 14.7.2021 kl. 12:50

6 identicon

Það er ljótt að sletta en "Follow the money".  Og varðandi ferðskilríkin til að ferðast milli landa bara leyfa flugfélögunum að fara á hausinn.  Stjórnendur þeirra sjá þá um að pressa á yfirvöld að hætta með þessi bólusetningarvegabréf.

Rögnvaldur Cook (IP-tala skráð) 30.7.2021 kl. 00:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband