Leita í fréttum mbl.is

Engar blæðingar fjórum mánuðum eftir Pfizer - ,,veit að ég er ekki ólétt!"

rebekkaYfir 250 tilkynningar höfðu borist Lyfjastofnun 15. júlí sl. um breytingar tengdum tíðarhring kvenna eftir C19 bólusetningu. Enn er beðið svars um hver fjöldinn er í dag.

Nýlega hefur Rebekka Ósk Sváfnisdóttir stofnað hóp þar sem einungis konur sem hafa upplifað þessar undarlegu aukaverkanir eftir C19 bólusetningu fá inngöngu. Fjöldinn í dag er yfir 450, sem sagt mun fleiri en síðustu tölur Lyfjastofnunar. Ég hef fjallað um nokkur dæmi, hér er til dæmis eitt og hlekkir á fleiri dæmi eru neðar í þeim pistli. Ýmist eru konur að fá ofsablæðingar, engar blæðingar, blæðingar eftir tíðarhvörf o.fl.

Marta Þórudóttir er 27 ára Akureyringur. Hún á einn son og er  hársnyrtinemi og sundlaugarvörður í Eyjafjarðarsveit yfir sumartímann.

Marta fékk fyrri skammtinn af Pfizer 4. maí og hefur engar blæðingar fengið síðan.

Ég er búin að tala við hjúkrunarfræðing og lækni og þeirra svör voru að ég ætti að hætta á pillunni og biða og athuga hvort eitthvað myndi gerast á næstu þremur mánuðum. Mínar síðust blæðingar voru í fyrstu vikunni í apríl og átti ég að fá næstu blæðingar fljótlega eftir fyrri sprautuna en ekkert gerðist og hefur enn ekkert gerst. Hef sem sagt ekki fengið blæðingar í næstum fjóra mánuði. Þegar ég hringdi i hjúkrunarfræðing var ákveðið að tilkynna þetta til Lyfjastofnunar. Þetta er hryllilega óþægilegt, ég hef alltaf verið með reglulegar blæðingar og þegar þær koma ekki byrjar hausinn sjálfkrafa að hugsa, ætti ég kannski að taka óléttupróf og ég hef tekið nokkur og öll verið neikvæð. Enda VEIT ég að ég er ekki ófrísk og er ekki með nein óléttueinkenni. Ég hef alltaf fengið verki í kringum egglos og blæðingar og ég fæ enn þessa verki á réttum" tíma en engar blæðingar. Eins upplifi ég svokölluð draugaspörk (nokkuð sem flestar konur finna fyrir á meðgöngu en líka eftir fæðingu barns, mætti líkja við fjörfisk í magavöðvum). Líkaminn virðist vera í algjöri rugli eftir þessar sprautur og ég hef áhyggjur. Ég er bara rétt um 27 ára, mig langar mögulega að eignast fleiri börn síðar, hvað ef þetta getur haft áhrif á möguleika mína til þess! Ég vil fá svör og betra utanumhald um þessi mál frá heilbrigðisyfirvöldum."

Ég spurði Mörtu hvort hún hefði fengið hita eftir sprauturnar, því eini læknirinn (ekki kvensjúkdómalæknir) á Íslandi sem hefur reynt að útskýra þessar tilkynntu aukaverkanir hefur sagt að breytingarnar stafi líklega af hita

Nei, fékk engan hita" sagði Marta, en var eins og ég væri timbruð" dagana eftir.

Í Mörtu tilfelli er a.m.k. ekki hægt að tengja þetta við neinn hita enda má heyra á umræðu kvenna að þær gefi lítið fyrir þessa kenningu Jóns Magnúsar Jóhannessonar

Menn ættu kannski að veita rannsókn frá Lyfjastofnun Japans athygli sem sýnir að brodda próteinin í þessum lyfjum dreifa sér og leggjast á hinum ýmsu líffærum og í miklum mæli á eggjastokkana eftir lyfjagjöfina. Í þessari grein er vísað í rannsóknina. 

p.s. undirskriftarsöfnun sem beint er til landlæknis er líka hafin. Skilst að allir megi skrifa undir til stuðnings þó þeir glími ekki við þessar aukaverkanir. (Rebekka sem stofnaði listann er að skoða hvort og hvernig er hægt að breyta textanum þannig að hann segi að allir megi skrifa undir.) Það væri frábært ef fjölmiðlar myndu nú standa með konunum í þessu máli og öllum þeim sem glíma við veikindi eftir sprauturnar. Þögnin er vandræðaleg og skaðleg, ykkur fjölmiðlafólki ber skylda til að fjalla um þessi alvarlegu mál!

Fleiri frásagnir af þessu tagi:

„Læknar vilja ekki gefa mér seinni sprautuna."

„Er eins og níræð kona eftir AstraZeneca."

„Fárveikur eftir Janssen og fékk Covid."

Stanslaust taugastríð eftir AstraZeneca."

Ef ég sé eftir einhveru í þessu lífi..."

„Var sjaldan veik en nú fæ ég allar pestir"

„Magga Stína: „bóluefnið er árás á hormónakerfið"

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Ásgrímsson

Takk fyrir að vera orðiðnn eini fjölmiðilinn á Íslandi, sem segir frá.

Kristinn Ásgrímsson, 25.7.2021 kl. 16:21

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Það sem Kristinn sagði.

Guðjón E. Hreinberg, 25.7.2021 kl. 18:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband