Leita í fréttum mbl.is

Áríðandi skilaboð frá Sjálfstæðisflokknum!

xdÞessi auglýsing er u.þ.b. þriggja mánaða gömul og birtist á facebook síðu okkar Sjálfstæðismanna (sjá pínulitla D-ið í neðra horni, vorum smá feimin að setja það inn). Flokkurinn vill þakka öllum þeim Íslendingum sem trúðu þessu og þakkar þeim hinum sömu fyrir að taka þátt í stærstu lyfjatilraun allra tíma. Sjáumst í Laugardalshöllinni þegar Delta afbrigðisskammturinn kemur, og þegar þið hafið tekið hann fáið þið aftur frelsi í nokkrar vikur o.s.frv., þar til búið er að sprauta þessum 1,4 milljónum skömmtum í ykkur, sem við erum búin að semja um kaup á og verðum að greiða fyrir þrátt fyrir "so and so" virkni gegn Covid, X-D.

Félagi Sigurður Ingi skilar kveðju, hér er hans auglýsing (smella á myndina til að sjá betur). Hann setti hann inn á svipuðum tíma. Munið þegar við gátum öskrað okkur hás á fótboltaleikjum og dansað jafnvel...nokkrar vikur, nokkrar vikur, nokkrar vikur, nokkrar vikur....."

sigingibolus


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Geir Ágústsson

Stjórnmálamenn ættu að lofa minna og kvitta í staðinn undir eftirfarandi yfirlýsingu,

"Ég, XXXXX, kjörinn þingmaður, lýsi því hér með yfir að ókjörinn embættismaður fari með ákvarðanatöku landsins í stórum málum eins og hverjir mega hittast og í hvaða fjölda, hvaða starfsgreinar njóta atvinnufrelsisákvæðis stjórnarskrár og hverjar ekki, hvernig tekið er á móti fólki á leið til landins, þar á meðan íslenskum ríkisborgurum, hvaða áætlanir fólks og fyrirtækja fá að standast og hverjar ekki, og undir hvaða skjöl - minnisblöð og annað - ég undirrita og geri að lögum og reglum í landinu sem lögreglan sér um að framfylgja með handtökum og sektum."

Geir Ágústsson, 24.7.2021 kl. 12:21

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það eru ansi margir sem þurfa að éta hatt og troða sokk upp í trýnið um þessar mundir.

„Ekki það gagn sem við höfðum vænst“

Már seg­ir að ekki sé hægt að treysta á að sjúk­ling­ar séu bólu­sett­ir. „Nú á það eig­in­lega ekki við leng­ur hvort viðkom­andi sé bólu­sett­ur eða ekki,“ seg­ir Már en hann legg­ur áherslu á að það sé gagn­semi í bólu­setn­ing­unni.

„Það er hins veg­ar ekki það gagn sem við höfðum vænst,“ seg­ir hann og bæt­ir við að þessi gríðarlega fjölg­un smita komi hon­um á óvart. „Maður passaði kannski ekki al­veg vænt­inga­stjórn­un­ina.“

- Væntingastjórnunina???

Guðmundur Ásgeirsson, 24.7.2021 kl. 18:19

3 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Það er svo löngu vitað sbr. fréttir frá Seycelles eyjum og víðar, þetta virkar ekki á delta, eða bara virkar ekki á kórónuveirur. Puntkur. Plat.

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 24.7.2021 kl. 18:47

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Smitsjúkdómalæknirinn hefur reyndar alveg hárrétt fyrir sér, það var væntingastjórnunin sem misheppnaðist. Það var búið að kveikja svo sterka von hjá hjörðinni að ef allir myndu láta sprauta sig að þá yrði aftur hægt að lifa eðlilegu lífi, sem skilaði sér með metaðsókn í Laugardalshöll.

Þess vegna sleppti hjörðin sér eins og beljur að vori þegar markmiðinu um bólusetningar var náð og fór að þjappa sér í mannþröngir til að öskurfrussa á hvort annað og ganga um káfandi og sleikjandi hurðarhúna, af því að það er jú hluti af "eðlilegu lífi" ekki satt?

Væntingastjórnun gagnvart ferðaþjónustunni misheppnaðist líka því það var svo gott sem búið að lofa þeim "góðu ferðasumri" sem þurfti svo að standa við með því að láta undan kröfum um óhindrað aðgengi hinna bólusettu að landinu. Það gerði þeim svo kleift að flytja veirur inn í landið, sem er einmitt það sem kom þessari nýju bylgju af stað.

Ef stjórnvöld hefðu staðið í lappirnar og haldið almennum takmörkunum á landamærunum óbreyttum í sumar er alls ekkert víst að hér væri neinn faraldur núna. Mistökin voru að veita hinum bólusettu undanþágur umfram aðra.

Bann við aðskilnaðarstefnu bólusetjara strax.

Guðmundur Ásgeirsson, 24.7.2021 kl. 20:11

5 identicon

Aðskilnaðarstefnan - Apartheid hét það í Suður Afríku og  racial segregation í USA.ApartheidSignEnglishAfrikaans.jpg

Langt fram á 7. áratuginn í USA var illa séð að umgangast svarta og bannað með lögum að eiga "náin kynni" við slíka. 

Kári Stefanss segir að það verði að ná í þá sem eftir er að sprauta efninu í (gefur í skyn að þeir séu ástæða smitanna) og talar um að það verði að koma þeim fyrir á afvikinn stað ef þeir neita (en tekur það fram að það sé þeim fyrir bestu!!). Semsagt leita þá uppi og kúga ... er hann að tala um fangabúðir?

Fjölmiðlar hafa sagt að óbólusettir séu "verksmiðjur fyrir ný afbrigði" og hljóta að vera að gefa í skyn það það verði að ná utan um það vandamál. Mikið hefur verið talað um það erlendis að það verði að segja fólki upp starfi sem er ósprautað (no jab - no job) og byrjað er að tala um það hérlendis. Og svo eru fleiri en maður gæti haldið sem finnst það í lagi að ósprautaður einstaklingur verði mismunað á þann hátt að hann á ekki hafa neinn aðgang að samfélaginu (gert í gegnum Covid vegabréf á símanum).

Það verður að stöðva þesskonar hugsun að afmennska þá sem vilja ekki eða treysta sér ekki til þess að taka þátt í þessa lyfjatilraun eða hvað sem þetta er.

Bragi Sigurdsson (IP-tala skráð) 24.7.2021 kl. 21:38

6 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að vera.

Þorsteinn Siglaugsson, 24.7.2021 kl. 23:56

7 identicon

May be an image of text that says '@end_your_slavery THE PLAN WAS TO MAKE PEOPLE SO DESPERATE FOR A RETURN TO NORMAL THAT THEY WOULD GO AND GET INJECTED WITH SOMETHING THEY KNOW ABSOLUTELY NOTHING ABOUT. imgflip.com'

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 25.7.2021 kl. 15:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband