Leita í fréttum mbl.is

2442 tilkynntar aukaverkanir - 24 í hópnum 12-17 ára

lyfjastofnunnyttLyfjastofnun hefur nú borist 2442 tilkynningar um grunaðar aukaverkanir tengdum C19 bóluefnunum, þar af 151 alvarleg en alvarleg aukaverkun telst skv. stofnuninni vera andlát, lífshættulegt ástand, innlögn á sjúkrahús o.fl.

Lyfjastofnun hafa borist fjórar tilkynningar um hjartavöðvabólgu í kjölfar bólusetningar gegn COVID-19. Ekki kemur fram í hvaða aldursflokki það er en í eldri frétt kemur fram að tvær hafi verið í aldurshópnum 12-17 ára. Gollurhúsabólga er önnur aukaverkun sem tengist þessum lyfjum en þær upplýsingar fylgdu ekki með svarinu þó þessar tvær aukaverkanir séu nátengdar.

Lyfjastofnun hafa borist 24 tilkynningar vegna gruns um aukaverkun hjá einstaklingum á aldrinum 12-17 ára í kjölfar bólusetningar gegn COVID-19. Allar tilkynningarnar nema tvær varða Pfizer. Ein tilkynning varðaði AstraZeneca og ein tilkynning varðaði bóluefnið Janssen. Fimm tilkynninganna eru alvarlegar; tvær þeirra vörðuðu sjúkrahúsvist og þrjár tilkynningar voru metnar sem klínískt mikilvægar.
Öllum einstaklingum er batnað eða eru á batavegi nema einum."

Sem sagt, fimm alvarleg tilfelli hjá börnum 12-17 ára sem er hópur sem ekki er í hættu vegna Covid, tölfræðilega séð og einn hefur ekki náð bata. Sagt er að allir séu á batavegi nema einn. Það sem ég hef lesið um hjarta-og gollurhúsabólgu er að skaðinn sé varanlegur, þó þú jafnir" þig. Þetta segir t.d. kanadíski læknirinn Charles Hoffe.

Ekkert barn eða ungmenni hér á landi hefur þurft að leggjast inn á spítala vegna Covid. En fimm alvarleg tilfelli hafa verið tilkynnt vegna bólusetninga í þessum aldurshóp. Er áhættan ennþá minni en ávinningurinn? Nei, ekki miðað við þessar upplýsingar. Þess vegna á að stöðva þessar bólusetningar á unga fólkinu nú þegar! Þegar lyf eru á skilyrtu leyfi eins og þessi bóluefni eru öll, þá þarf að sýna fram á að ávinningurinn sé meiri en áhættan, annars skal hætta notkun lyfsins. Ath. að frekar lítið hlutfall 12-15 ára hafa fengið bóluefnin og því eru 24 tilfelli og fimm allvarleg, töluvert.

Frekari bólusetningum barna og ungmenna verður mótmælt 5.ágúst nk.

p.s. nýjustu fréttir frá forstjóra Pfizer, ónæmið gegn Covid byrjar að dvína 6 mánuðum eftir sprauturnar, en þriðji skammturinn er á leiðinni. Skyldi hann vita að bara bólusettir einstaklingar liggi inni á spítala hér á Íslandi með Covid?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Þórdís Guðmundsdóttir

24 börn og ungmenni! Þvílík sorg

Anna Þórdís Guðmundsdóttir, 29.7.2021 kl. 16:08

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Hvað ætli margir unglingar á þessum aldri hafi verið bólusettir? 2.000? 3.000? Fimm alvarlegar aukaverkanir eru gríðarlega stórt hlutfall. Miklu hærra en alvarleg covidtilfelli í þessum hópi.

Þorsteinn Siglaugsson, 29.7.2021 kl. 21:27

3 identicon

Það er 2 sem liggja á gjörgæslu.

Annar er óbólusettur og hinn er aðeins hálfbólusettur.

Auðbergur Magnússon (IP-tala skráð) 30.7.2021 kl. 01:09

4 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Hvar sástu það Auðbergur? finn ekki í fréttum.

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 30.7.2021 kl. 09:39

5 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Hér segir, ekki fullbólusettir:

https://www.dv.is/frettir/2021/7/29/thetta-er-astaedan-fyrir-thvi-ad-landspitalinn-veitir-ekki-upplysingarnar-hvada-rugl-er-thetta/

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 30.7.2021 kl. 09:40

6 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

sem sagt báðir búnir að fá lyfin í sig.

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 30.7.2021 kl. 09:41

7 identicon

Sæl Þórdís,
Var einhver að segja að Lyfjastofnun Ísland væri með eitthvað eftirlit, neytendavernd og gagnsæi? 

"Stofnunin hefur umsjón með leyfisveitingum sem ná til alls svæðisins, þ.e. miðlægra markaðsleyfa, en einstakar stofnanir EES ríkjanna sjá um mat á umsóknum um landsmarkaðsleyfi og markaðsleyfi veitt með gagnkvæmri viðurkenningu. Rúmlega 70 manns starfa hjá Lyfjastofnun, flestir háskólamenntaðir og/eða með sérþekkingu á lyfjamálum. Stofnunin sér um veitingu markaðsleyfa og eftirlit með framleiðslu, dreifingu og sölu lyfja, en auk þess heldur stofnunin m.a. utan um tilkynningar um aukaverkanir sem berast vegna lyfjanotkunar á Íslandi, veitir leyfi til klínískra lyfjarannsókna, flokkar jurtir / efni / vörur m.t.t. lyfjaskilgreiningar, hefur eftirlit með lyfjaauglýsingum og gefur út sérlyfjaskrá." (
https://www.lyfjastofnun.is/lyfjastofnun/um-stofnunina/)

Nú er það þannig í dag að Lyfjastofnun Íslands birtir EKKI eitt einasta súlurit lengur með þessum tölum, sjá hérna:  

"Fjöldi aukaverkanatilkynninga vegna COVID-19 bóluefna

Tilkynningar vegna gruns um aukaverkun í kjölfar bólusetningar gegn COVID-19

Tölurnar að neðan eru uppfærðar alla virka daga kl. 11:00.

Lyfjastofnun hafa borist None tilkynningar vegna gruns um

aukaverkun í kjölfar bólusetningar gegn COVID-19"

https://www.lyfjastofnun.is/lyf/covid-19/aukaverkanatilkynningar-vegna-covid-19/

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 1.8.2021 kl. 10:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband