13.5.2021 | 15:11
Breytingar á blæðingum kvenna eftir bólusetningu!
,,Auglýsing sem birtist í Morgunblaði dagsins þar sem fólk er hvatt til þess að tilkynna aukaverkanir vegna bólusetninga gegn kórónuveirunni er ekki á vegum Lyfjastofnunar. Þetta segir Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, við mbl.is."
Á BBC er sagt frá því í dag að breytingar á blæðingum kvenna teljist vera aukaverkun. Sjá frétt.
Síðan er hér smá samantekt á aukaverkunum / veikindum Íslendinga eftir sprauturnar.
Lyfjastofnun ætti síðan að svara spurningum sem hún fær vegna aukaverkana. Þær eiga að birtast á síðu þeirra og vera öllum aðgengilegar. Endilega kíkið á skjáskot af veikindum eftir bólusetningar hér heima.
![]() |
Lyfjastofnun ekki á bak við auglýsinguna í Mogganum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.5.2021 | 11:58
Munið að tilkynna aukaverkanir - við erum öll almannavarnir!
Í dag höfðu alls 1680 tilkynningar um mögulegar aukaverkanir eftir Covid sprautur borist Lyfjastofnun, þar af 115 alvarlegar en alvarleg aukaverkun telst vera lífshættulegt atvik. Ég sendi Lyfjastofnun reglulega póst og spyr af hvaða toga alvarlegu aukaverkanirnar eru. En undanfarið hef ég ekki fengið nein svör. Þessi auglýsing birtist í Mogganum um daginn.
Við höfum safnað upplýsingum um aukaverkanir af samfélagsmiðlum þar sem fólk ræðir veikindi eftir sprautur. Geri ráð fyrir að í lagi sé að endurbirta, þar sem þetta var allt í opnum hópum. Hér eru nokkur skjáskot (SMELLA á myndir til að sjá betur, eða nota hvítu örina hægra megin á fyrstyu mynd til að fletta). Og frétt hér: hef aldrei séð manninn minn jafn veikan."
Okkur hefur verið sagt að eðlilegt sé að fá flensueinkenni eftir sprautuna. En myndi þetta allt flokkast sem flensueinkenni? Og hér kvarta konur undan verkjum og einkennum tengdum móðurlífinu.
Hvað er verið að gera fólkinu spyrja kannski einhverjir?
Bloggar | Breytt 7.7.2021 kl. 09:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
13.5.2021 | 09:53
Bretland - afbrigði sem gerir þá bólusettu mikið veika!?
Í dag er frétt á Daily Mail sem segir: The Health Secretary said the only thing that would prevent England from scrapping more restrictions on June 21 would be the emergence of a mutant strain that makes vaccinated people severely ill.
Heilbrigðisráðherra (Bretlands) sagði að það eina sem gæti komið i veg fyrir að létt yrði á sóttvarnarhöftum 21. júní nk. væri ef upp kæmi nýtt veiruafbrigði sem myndi gera þá bólusettu alvarlega veika. Hér segir landlæknir Breta að þeir búist við því að indverska afbrigið muni taka yfir.
Athyglisvert að tekið sé fram að það myndi mögulega gera þá bólusettu mikið veika. Hvað með hina óbólusettu? En ca. helmingur Breta hefur ekki fengið lyfin.
Þetta er nákvæmlega það sem gagnrýnendur C19 bóluefna hafa bent á. Þau veikja ónæmiskerfið gagnvart nýjum afbrigðum. En verður víst að koma í ljós fyrst að svo margir treysta þríeykinu, þar á meðal tveimur læknum sem þessa dagana tala eins og lobbýistar og þvert á læknavísindin (Dæmi: bólusetja þá sem þegar hafa fengið Covid og eru þannig með sterkt og gott ónæmi til lengri tíma, bólusetja ófrískar konur og mjólkandi mæður og ungt fólk sem ekki telst vera í áhættu fyrir sjúkdómnum).
Ég sendi þetta blogg mitt til Kára Stefánssonar og benti honum á að hægt væri að nýta þá óbólusettu í einhvers konar samanburðarrannsókn. Hverjir verða það sem veikjast á næstunni, þeir bólusettu eða óbólusettu? Ísland er lítið samfélag og því verður frekar auðvelt að fylgjast með.
Þessi hollenski læknir Louise Lagendijk útskýrir hvers vegna þeir bólusettu eru frekar í hættu. Líkaminn mun ráðast á sig sjálfan," segir hún. Það sama segir ónæmissérfræðingurinn Sukharit Bakti. Og hér lýsa fleiri vísindamenn áhyggjum sínum.
Hér er frétt um Seychelles eyjarnar þar sem hlutfallslega flestir hafa verið bólusettir en búið að skella öllu í lás eftir stökk í smitum.
Þetta eru áhugaverðir tímar. Bill Gates hjónin skilin og Melinda bendir á að að kallinn hafi verið í samskiptum við barnaníðinginn Epstein. Í kringum forsetakosningarnar í Bandaríkjunum voru einhverjir sem vildu meina að Epstein hafi búið yfir upplýsingum tengdum barnaníð meðal fræga fólksins, háttsettra pólitíkusa, dómara o.fl. Einn þeirra var lögfræðingurinn Lin Wood sem búið er að henda út af samfélagsmiðlum, a.m.k. twitter.
En ég verð að segja, að meintar falsfréttir" og samsæriskenningar" eru óðum að verða sannar og eftir sitja hinir ábyrgu" fjölmiðlar með alvöru falsfréttir. Hvar er til dæmis þessi merkilega frétt? Ef tölurnar voru rangar, hvað fleira er rangt? Og hvað er þetta? Breytingar á blæðingum kvenna getur verið ein af aukaverkunum segir BBC í dag. Stórfurðulegt bóluefni!
p.s. hér syngja Bretarnir á síðustu fjöldamótmælum í London...stingið eitrinu þangað sem sólin skín ekki.
Bloggar | Breytt 14.5.2021 kl. 20:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.5.2021 | 18:34
Umræða í þinginu í Texas um skyldubólusetningu og aukaverkanir
Hér er umræða í þinginu í Texas um mögulegar skyldubólusetningar gegn Covid, alvarlegar aukaverkanir af bóluefnunum sem öll eru á neyðarleyfi, hjarðónæmi sem þegar hefur myndast, ónæmiskerfið og fleira.
Læknar segja frá því að aukaverkanir hjá þeim sem þegar hafi sýkst af Covid geti verið mun alvarlegri en hjá hinum. Það stendur til hér á landi að bólusetja einnig þá sem þegar hafa sýkst náttúrulega. Þetta kom fram á Almanavarnarfundi í síðustu viku hjá Kamillu hjá landlæknisembættinu.
Náttúrulegt ónæmi endist í mörg ár, jafnvel til æviloka kemur fram í þinginu. Síðan hvenær er fólk bólusett við sjúkdómi sem það hefur fengið og það nýlega? Þegar maður heyrir lækna fara með svona þvælu, hljóta einhverjir að spyrja sig. Út á hvað ganga þessar bólusetningar?
Við höfum heyrt að margir fái engar aukaverkanir eftir sprautuna en aðrir verði jafnvel fárveikir. Spurning hvort þeir sem verða veikari hafi þegar verið komnir með ónæmi án þess að vita að því sbr. væg eða engin einkenni.
Hér er einnig svíinn Lern Bern, doktor í "chemical reaction engineering" (efnahvarfsverkfræði?) og fjallar um alvarlegar aukaverkanir.
Bloggar | Breytt 13.5.2021 kl. 08:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.5.2021 | 14:04
Þriggja daga bann fyrir mynd af sönnum atburði!
Nú eru menn farnir að ritskoða sjálfa sig. Það er staðreynd að Event 201 átti sér stað í október 2019 þar sem fram fór æfing, "pandemic excercise" fyrir kórónuveirufaraldur! Allar upplýsingar og myndbönd er að finna á heimasíðu John Hopkins Center for Health and Security. Já, aðeins nokkrum vikum áður en faraldurinn braust út í Kína og sagt var að leðurblaka hafi átt sök á smitinu. Leðurblakan, sem er hvorki fugl né fiskur, á að hafa verið á sjávarafurðamarkaði. Ég setti þessa mynd í "story" á facebook en nei "it goes against community standards" og bara beint í steininn! Ætlaði að hætta við að setja hana inn, en það var ekki hægt. Fékk sem sagt ekki tækifæri til að bæta mitt ráð. En þykir það ekki bara fínt í dag? Ritbann, ferðabann, samkomubann, sóttkví, einangrun, sóttvarnarfangelsi o.fl.
Eitt myndbandið frá Event 201 fjallar um það hvernig fjölmiðlar og samskiptamiðlar verði að vinna gegn falsfréttum og fleiru um hinn ókomna faraldur. Hugsið ykkur. Á þessum tíma var enginn faraldur skollinn á og menn eru með fyrirfram áhyggjur af því að það verði að koma í veg fyrir falsfréttir um kórónuveirufaraldur. Höfðu þeir ekki vit á því að birta ekki myndböndin á síðu eins þátttakanda ráðstefnunnar?
Talsmaður Kínverja á ráðstefnunni sagði upplýsingastjórnun mikilvæga því að einhverjir gætu haldið að veiran væri manngerð!
Ekkert á þessari meðfylgjandi mynd hér ofar er rangt. Þeir kannski muna ekki eftir ráðstefnunni og hvað þar kom fram. Talsmaður WHO sagði meðal annars að í komandi faraldri myndi mesta hættan stafa af einkennalausum. Mæli með áhorfi á upptökurnar.
Þetta er í annað sinn sem facebook setur mig í bann. Í fyrra skiptið ætlaði ég að setja inn grínmynd í tengslum við nýjustu tegund kórónaveiruprófa í Kína, en það eru svokölluð "anal test." Notkun þessar prófa í Kína er heilagur sannleikur en ekki mátti gera grín af þeim. Enda háalvarlegt mál sem Japanir báðu Kínverja opinberlega um að stöðva.
Bloggar | Breytt 14.5.2021 kl. 17:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
11.5.2021 | 15:36
Bóluefnin eru ekki með markaðsleyfi - hlífið krökkunum!
Bóluefni Pfizer og BioNTech er fyrsta bóluefnið gegn Covid-19 til að fá markaðsleyfi fyrir börn undir 16 ára aldri."
Fjölmiðlar endurtaka rangfærslur (eða bara lygi) í sambandi við þessi lyf. Ekkert þeirra er með markaðsleyfi, þau eru öll á skilyrtu leyfi /neyðarleyfi næstu árin. Tilraunum lýkur 2023. Blaðamenn sem þessar fréttir skrifa og fleiri, ættu að vita að þessi lyf sem aldrei áður hafa verið samþykkt til notkunar á mönnum fengu neyðarleyfi aðeins vegna þess að því var lýst yfir að Covid19 væri heimsfaraldur. Annars hefðu þau ekki verið samþykkt.
(Svar frá Lyfjastofnun 21. mars: Þau þrjú bóluefni sem sem samþykkt hafa verið hérlendis gegn COVID-19 hefur öllum verið veitt skilyrt markaðsleyfi.")
Hér er frétt á CNN um efnið og segir: The US Food and Drug Administration has expanded the emergency use authorization for Pfizer's Covid-19 vaccine to include people ages 12 to 15.
Það er ekki í burðarliðnum að hefja bólusetningu meðal barna hér á landi að sögn Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis. Lyfjastofnun Bandaríkjanna heimilaði í gær notkun bóluefnis Pfizer fyrir börn frá 12 ára aldri."
Annað mátti heyra á Almannvarnarfundi 21. apríl þar sem Kamilla barnasmitsjúkdómalæknir hjá landlæknisembættinu segir að þau bíði spennt eftir niðurstöðum úr rannsóknum vegna 12 - 15 ára. Þeim rannsóknum er lokið og aftur það sem blaðamenn, yfirvöld og Lyfjastofnun kalla markaðsleyfi er neyðarleyfi. Ef þau ætla að bíða eftir markaðsleyfi, þá er það ekki á næstunni.
p.s. takið eftir að CNN talar um "people ages 12 to 15." Ætli þeim finnist óþægilegt að kalla þau börn í sömu andrá og talað er um neyðarleyfi (emergency use) fyrir hóp sem WHO segir ekki vera í áhættu vegna Covid. Hver er neyðin fyrir þá sem ekki eru í hættu?
Bólusetning 12-15 ára er yfirvofandi í tilraunaríkinu Ísrael þar sem því og fleiru var mótmælt um síðustu helgi. Sjá hér.
Glæpsamleg fyrirætlun íslenskra yfirvalda að ætla að nota íslensk börn sem tilraunadýr fyrir nýtt líftæknilyf (mRNA) gegn sjúkdómi sem þeim stafar ekki hætta af. Réttast væri að fá lögbann á þessa yfirvofandi athöfn.
Tiltölulega lítill hópur barna tók þátt í Pfizer rannsókninni og 4-5 tilfelli voru skráð sem alvarlegar aukaverkanir en ekki gefið upp hverjar þær voru. Fann þetta og er að bíða eftir heimild til að linka á:
Trial gave it to 1,131 kids....small sample size. Also had 4 or likely 5 kids have a serious adverse side effect....what that was is not reported. Essential 1 in 226 kids according to this, IMO, small sample size.
![]() |
Bólusetning barna ekki í burðarliðnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 12.5.2021 kl. 18:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.5.2021 | 11:17
Ertu verslunarvara? Já það virðist vera
Strikamerki er rétthyrnd mynd af svörtum línum af mismunandi þykkt sem inniheldur upplýsingar um vöru.
Ég er búin að fá fimm boð um að mæta í bólusetningarathöfn; tvö í AstraZeneca, eitt í Moderna og tvö í Pfizer.
Ég kom við í Höllinni í síðustu viku. Í fyrsta lagi langaði mig til að hitta mikið af fólki og Höllin er eini staðurinn sem leyfir ótakmarkaðan fjölda í sama rýminu í miðjum heimsfaraldri. Í öðru lagi mætti ég til að spyrja hvers vegna öll boðin með þremur mismunandi lyfjategundum væru með sama strikamerkið. Er strikamerkið ekki tengt varningnum, lyfinu í þessu tilfelli?
Hjúkrunarfræðingur á upplýsingaborðinu sagði það ekki passa en fékk að skoða strikamerkin og já þau voru öll eins, líka aukaskammtarnir. Sem sagt tengd manneskjunni, en ekki vörunni. Við Íslendingar erum öll með kennitölu, hvers vegna erum við komin með okkar eigið strikamerki í þessi tilfelli? Mitt er BOL423073392767. En þitt?
Hér má sjá myndir af öllum boðunum (smella á myndir til að sjá betur):
![]() |
Mæla gegn notkun AstraZeneca og Janssen |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 12.5.2021 kl. 08:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
10.5.2021 | 22:08
Tilraunaríkið Ísrael - hví mótmæla Ísraelar?
Ríkisstjórn Ísraels tókst að sannfæra lyfjafyrirtækið Pfizer um að ganga að samskonar tilboði og forstjóri ÍE og sóttvarnalæknir reyndu að freista fyrirtækisins með. Hér er því lýst að Netanyahu hafi hringt a.m.k 30 sinnum í forstjóra Pfizer til að gera samning um að ríki sitt yrði notað sem tilraun fyrir Pfizer. Þessi heimsókn Pfizer manna til Íslands um daginn var stórfurðuleg. Þeir virðast hafa flogið til landsins og síðan komist að því að of fá smit væru í samfélaginu til að við værum tilraunahæf. Þrátt fyrir að þessi samningur hafi ekki verið gerður er samt sem áður tilraun í gangi hér heima og bóluefnasamninga ríkisins við lyfjafyrirtækin má ekki birta almenningi eða þingmönnum. Líftæknilyfin Pfizer og Moderna og apa-kvefveirubólefnið Astra Zeneca og Janssen eru öll á neyðarleyfi og á rannsóknarstigi til ársins 2023.
Ég sá myndir frá mótmælum í Ísrael um helgina og setti mig í samband við konu þar, Orly Wald, sem tók þátt í skipulagningu þeirra. Hún sagði mér að um fimm milljónir Ísraela (af 8,7) hefðu verið bólusettir, þar af hafi u.þ.b. hálf milljón farið gegn eigin vilja, eftir að hafa verið neydd til þess af vinnuveitenda.
Spurði hana hverju hafi aðallega verið að mótmæla:
We are protesting against everything that is happening here. Loosing our human rights, the "green passport", the ignoring of the side effects and the vaccinating of children soon...(12-15) 100 doctors are saying not to vaccinate the children but nobody listens to them.
Þýðing: Við erum að mótmæla öllu því sem hér er að gerast, að missa mannréttindin, græna passanum", aukaverkunum af bóluefnunum sem (yfirvöld) hunsa og yfirvofandi bólusetningu barna, 12 -15 ára. Um 100 læknar í Ísrael mæla gegn bólusetningu barna, en enginn hlustar á þá.
Hún sendi mér líka þessa skýrslu frá The Israeli People Committee (samtök sérfræðinga á heilbrigðissviðinu), um skráðar aukaverkanir af bóluefnunum. Fjölmiðlar líta ekki við skýrslunni, sagði hún.
Lesturinn er ógnvekjandi og segir meðal annars að aldrei áður hafi nokkuð bóluefni valdið jafnmörgum, jafnmikinn skaða. Hér er skýrslan.
Myndirnar eru frá mótmælunum og fleiri hér. Ljósmyndarinn er Ofir Gafkovich.
Orly vildi líka þakka fyrir að koma skilaboðunum áleiðis:
Thank you so much for this. We need the world to know what is happening here. It is crimes against the people. If you want, I can contact you with Dr. Pinkie Finestein. He is one of the leaders of the People's committee.
Spurði hana líka hvers vegna hún haldi að Ísrael hafi sóst eftir og hafi fengið samninginn við Pfizer:
Israel is the world s lab. What happens here with the vaccines and the green passport will happen all around the world. Bibi (B Netanyaho) is a high rank puppet of the elite.
![]() |
12.000 fá Pfizer í vikunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 12.5.2021 kl. 12:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2021 | 20:41
Fullbólusett en kemst ekki til Bandaríkjanna
Theódóra Sif Ólafsdóttir er ein þeirra sem hefur verið fullbólusett með Pfizer. Hún hélt því að hún væri frjáls sem fuglinn og gæti flogið út til dóttur sinnar, bandarísks eiginmanns hennar og barnabarna í Bandaríkjunum. Eitt barnabarnið er að útskrifast og Theódóra vildi vera viðstödd útskriftina. En nei, þú mátt ekki fara til Bandaríkjanna þrátt fyrir að vera fullbólusettur skv. bandarískum reglum. Það er ferðabann á milli Bandaríkjanna og Evrópu (Schengen ríkja). Svarið fékk hún frá bandaríska sendiráðinu sbr. myndina (smellið á hana til að sjá skýrar). En bandaríkjamenn mega þó koma hingað.
Sóttvarnarreglur snúast ekki um bólusetningu eða vörn gegn heimsfaraldrinum mikla. Annars yrði fólkið frjálst eftir sprauturnar.
Bólusettir eru að reka sig á vegg, frelsið kemur ekki alveg strax. Þeir þurfa enn að bera grímu, eru ekki undanþegnir samkomutakmörkunum, þurfa að framvísa neikvæðum PCR prófum vegna ferðalaga, geta átt það á hættu að veikjast af Covid og eins borið smit á milli manna. Breytingin er því hver?
Svikin við gamla fólkið
Gamla fólkið á hjúkrunarheimilum sem löngu er fullbólusett býr enn við strangar heimsóknarreglur og má t.d. ekki fá 18 ára og yngri börn í heimsókn. Gamla fólkinu og ættingjum þeirra var gefin fölsk von um betra líf eftir bólusetningu. Það mátti ekki fara í jóla-og áramótaboð til ættingja, nema að vera að heiman í fimm daga (sóttkví á heimilum ættingja).
En ljósið blasir við okkur við enda ganganna og það eru einungis nokkrar vikur þar til bólusetning hefst og hafa íbúar hjúkrunarheimilanna verið settir í sérstakan forgang í bólusetningarferlinu." Svona skrifðu stjórnendur hjúkrunarheimila í aðsendri grein á vísi 16.des. sl þegar þeir kynntu hertar reglur fyrir jól-og áramót.
Nei, ekkert ljós bara blekking. Bólusetning snérist augljóslega ekki um vörn gamla fólksins.
![]() |
Bara bólusett á þriðjudag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 10.5.2021 kl. 20:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.5.2021 | 11:31
Astra Zeneca - eitt í dag, annað á morgun og allt annað næsta dag!
Fyrir rúmum mánuði sagði Kári að það væri heimskulegt og fáránlegt að láta 60 ára og eldri fá bóluefnið frá Astra Zeneca (AZ). Hann sagði að rannsóknir sýndu að efnið virkaði illa fyrir þennan aldurshóp.
26. apríl er síðan haft eftir Kára að fólk í áðurnefndum aldurshópi og bara allir eigi hiklaust að láta sprauta sig með AZ, því allt sé eins og blómstrið eina og sjálfur tók hann sprautuna og kenndi sér einskis meins en nennti þó ekki út með ruslið um kvöldið (fann til í handleggnum). Á þessum tíma var AZ ekki gefið yngri konum og því er athyglisvert að hann hvetji alla sem einn til að þiggja efnið þvert á þágildandi aldurstakmörk Landlæknisembættisins.
Eftir sprautuna sagði Kári að EIN sprauta myndi veita 55% vernd.
27. mars segir sóttvarnarlæknir að TVEIR skammtar veiti 85% vernd hjá eldra fólki.
Í gær birtist frétt sem segir misræmis gæta hjá sjálfri Lyfjastofnun um virkni AZ, þar sem fram kemur að TVEIR skammtar veiti um 60% vörn og það stendur enn hjá Lyfjastofnun sbr. myndina ofar sem tekin er í dag.
Í dag kemur síðan frétt um rannsókn frá S-Kóreu sem segir að bara EIN sprauta af AZ veiti 86% vörn hjá eldra fólki en 60 ára (sjá efst frá Kára til samanburðar).
Í apríl, eftir hlé á notkun efnisins, var ákveðið að bjóða það körlum 55 - 60 ára. Þar áður mátti aðeins gefa það körlum eldri en 70 ára. Í lok apríl mátti gefa það körlum yngri en 60 ára ef þeir væru ekki með áhættuþætti. Í dag má gefa körlum á öllum aldri efnið.
Eins og flestir muna þá var AZ aðeins gefið fólki undir 60 ára í byrjun, 18 - 59 ára. Eftir stutta tilraun með efnið á yngri en 60 komust menn að því að blóðtappamyndun fylgdi efninu meðal yngri kvenna. Þá var ákveðið að gefa það aðeins konum eldri en 60 ára. Stuttu síðar var það lækkað niður í 55 ára.
Þrátt fyrri að enn sé miðað við 55 ára hjá konum skv. upplýsingum frá landlækni er nú verið að senda öllum aldursflokkum boð um AZ, þar á meðal konum 18 - 55 ára. Sem sagt þvert á þær reglur sem er að finna á síðu landlæknis. Í gær sagði Kamilla hjá Landlæknisembættinu að þeir sem ekki hefðu fengið aukaverkun af fyrri AZ skammti fengju boð um að koma í seinni skammtinn, en það eru meðal annars konur 18-55 ára. En 27. apríl sagði sóttvarnarlæknir að ekki eigi að nota efnið á konur 18-55 ára.
Nýjustu upplýsingar eru þær að stytta má tímann á milli AZ skammta.
Sá sem getur lært þennan texta orðrétt utan að, eins og ljóð í barnaskóla, fær vegleg verðlaun. Til dæmis sjóveikistöflur.
Hef velt því fyrir mér hvort yfirvöld heims séu að reyna að komast inn í einhvern lokaðan V.I.P. klúbb, en til að fá inngöngu þurfa þau að rugla, hringla og pönkast á þjóðum sínum sbr. opnun, lokun, enduropnun, endalausar breytingar á landamærum, fjölda sýnitaka, reglur í sóttkví, fjöldatakmörkunum, síbreytilegum markmiðum (hjárðónæmi, fletja kúrfuna, veirulaust samfélag, smitstuðul undir 1,5 o.s.frv.) Ef yfirvöld væru foreldrar og samfélögin börn þeirra, væru börnin eflaust orðin sjúk á sál og líkama.
Og hér er mynd úr Laugardalshöllinni en það er veirufrítt svæði. Veirur berast ekki manna á milli í íþróttahöllum heldur frekar í kirkjum, menntastofnunum, o.fl.
![]() |
Einn skammtur veitir mikla vörn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
-
aslaugas
-
agny
-
annaeinars
-
danna
-
agustkara
-
bookiceland
-
contact
-
einarborgari
-
rlingr
-
sagamli
-
helga-eldsto-art-cafe
-
bofs
-
sade
-
gusg
-
noldrarinn
-
hafthorb
-
hhbe
-
hlf
-
diva73
-
snjolfur
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
kreppan
-
jaj
-
islandsfengur
-
nonniblogg
-
nyja-testamentid
-
thjodarskutan
-
kristinnp
-
loncexter
-
marinogn
-
sighar
-
sigurduringi
-
sushanta
-
viggojorgens
-
vilhjalmurarnason
-
thorsteinnhelgi
-
valli57
-
tbs