Leita í fréttum mbl.is

Bóluefnin eru ekki með markaðsleyfi - hlífið krökkunum!

12-15Bólu­efni Pfizer og Bi­oNTech er fyrsta bólu­efnið gegn Covid-19 til að fá markaðsleyfi fyr­ir börn und­ir 16 ára aldri." 

Fjölmiðlar endurtaka rangfærslur (eða bara lygi) í sambandi við þessi lyf. Ekkert þeirra er með markaðsleyfi, þau eru öll á skilyrtu leyfi /neyðarleyfi næstu árin. Tilraunum lýkur 2023. Blaðamenn sem þessar fréttir skrifa og fleiri, ættu að vita að þessi lyf sem aldrei áður hafa verið samþykkt til notkunar á mönnum fengu neyðarleyfi aðeins vegna þess að því var lýst yfir að Covid19 væri heimsfaraldur. Annars hefðu þau ekki verið samþykkt.

(Svar frá Lyfjastofnun 21. mars: Þau þrjú bóluefni sem sem samþykkt hafa verið hérlendis gegn COVID-19 hefur öllum verið veitt skilyrt markaðsleyfi.")

Hér er frétt á CNN um efnið og segir: The US Food and Drug Administration has expanded the emergency use authorization for Pfizer's Covid-19 vaccine to include people ages 12 to 15.

„Það er ekki í burðarliðnum að hefja bólu­setn­ingu meðal barna hér á landi að sögn Þórólfs Guðna­son­ar sótt­varna­lækn­is. Lyfja­stofn­un Banda­ríkj­anna heim­ilaði í gær notk­un bólu­efn­is Pfizer fyr­ir börn frá 12 ára aldri."

Annað mátti heyra á Almannvarnarfundi 21. apríl þar sem Kamilla barnasmitsjúkdómalæknir hjá landlæknisembættinu segir að þau bíði spennt eftir niðurstöðum úr rannsóknum vegna 12 - 15 ára. Þeim rannsóknum er lokið og aftur það sem blaðamenn, yfirvöld og Lyfjastofnun kalla markaðsleyfi er neyðarleyfi. Ef þau ætla að bíða eftir markaðsleyfi, þá er það ekki á næstunni.

p.s. takið eftir að CNN talar um "people ages 12 to 15." Ætli þeim finnist óþægilegt að kalla þau börn í sömu andrá og talað er um  neyðarleyfi (emergency use) fyrir hóp sem WHO segir ekki vera í áhættu vegna Covid. Hver er neyðin fyrir þá sem ekki eru í hættu? 

Bólusetning 12-15 ára er yfirvofandi í tilraunaríkinu Ísrael þar sem því og fleiru var mótmælt um síðustu helgi. Sjá hér.

Glæpsamleg fyrirætlun íslenskra yfirvalda að ætla að nota íslensk börn sem tilraunadýr fyrir nýtt líftæknilyf (mRNA) gegn sjúkdómi sem þeim stafar ekki hætta af. Réttast væri að fá lögbann á þessa yfirvofandi athöfn. 

Tiltölulega lítill hópur barna tók þátt í Pfizer rannsókninni og 4-5 tilfelli voru skráð sem alvarlegar aukaverkanir en ekki gefið upp hverjar þær voru. Fann þetta og er að bíða eftir heimild til að linka á:

Trial gave it to 1,131 kids....small sample size. Also had 4 or likely 5 kids have a serious adverse side effect....what that was is not reported. Essential 1 in 226 kids according to this, IMO, small sample size.


mbl.is Bólusetning barna ekki í burðarliðnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Þórdís,

Það má vekja athygli á svolitlu atriði en samt mjög mikilvægu. Þú segir " fengu neyðarleyfi aðeins vegna þess að því var lýst yfir að Covid19 væri heimsfaraldur." 

Það er satt að hluta til. Þessi lyf fengu neyðarleyfi eða 

"Emergency Use Authorization" eða svokallaða EUA act að því til tilsettu að engin önnur lyf virka á "vírusinn" í þessu tilfelli.

Tilraunir voru gerðar með Hydroxychloroquine ásamt fleiri lyfum t.d. Remdesivir og Ivermectin svo eitthvað sé nefnt. Ekkert að þeim fengu góða útkomu há WHO eða BMJ. Þess má geta að ef eitthvað af þessum lyfum hefði fengið góða niðurstöðu þá hefðu lyfjaframleiðendur ekki fengið EUA.

Hérna er Dr. John Campbell að fara yfir útkomu rannsókna sem gefið var út á síðasta ári. Fylgist sérstaklega eftir því þegar hann fer yfir rannsóknir sem voru gerðar hjá WHO og BMJ.

https://www.youtube.com/watch?v=2uzXHnUViro

Þröstur (IP-tala skráð) 12.5.2021 kl. 11:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband