Leita í fréttum mbl.is

Ertu verslunarvara? Já það virðist vera

dvStrikamerki er rétthyrnd mynd af svörtum línum af mismunandi þykkt sem inniheldur upplýsingar um vöru.

Ég er búin að fá fimm boð um að mæta í bólusetningarathöfn; tvö í AstraZeneca, eitt í Moderna og tvö í Pfizer.

Ég kom við í Höllinni í síðustu viku. Í fyrsta lagi langaði mig til að hitta mikið af fólki og Höllin er eini staðurinn sem leyfir ótakmarkaðan fjölda í sama rýminu í miðjum heimsfaraldri. Í öðru lagi mætti ég til að spyrja hvers vegna öll boðin með þremur mismunandi lyfjategundum væru með sama strikamerkið. Er strikamerkið ekki tengt varningnum, lyfinu í þessu tilfelli?

Hjúkrunarfræðingur á upplýsingaborðinu sagði það ekki passa en fékk að skoða strikamerkin og já þau voru öll eins, líka aukaskammtarnir. Sem sagt tengd manneskjunni, en ekki vörunni. Við Íslendingar erum öll með kennitölu, hvers vegna erum við komin með okkar eigið strikamerki í þessi tilfelli? Mitt er BOL423073392767. En þitt?

Hér má sjá myndir af öllum boðunum (smella á myndir til að sjá beturstirkamerkiazaukastrikamerkiauka):
stirkamerkipfizer

strikamerkimoder

smsboð


mbl.is Mæla gegn notkun AstraZeneca og Janssen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

EInkar athyglisvert ... Hvernig virkar þá 

"Tilkynningar vegna gruns um aukaverkun í kjölfar bólusetningar gegn COVID-19"

hjá Lyfjastofnun ef þau vita ekki hvaða lyf þú fékkst? Ég er ekki eins vinsæll og þú hjá Sóttvarnalækni hef bara fengið boð um að koma 3 til þeirra en jú, sama strikamerki en 2 tegundir af lyfjum. Það sem mér fannst líka athyglisvert er að ég fékk boðun á öll símanúmer skráð á mig og öll tölvupóstföng skráð á mig þó svo að ég hef bara 1 númer og 1 póstfang skráð á heilsuveru.is Ég velti því fyrir mér hvaða gagnagrunn þeir eru að nota. Öll fjölskyldan mín fékk sem sagt mína boðun/tilkynningu í lyfjagjöf.

Þröstur (IP-tala skráð) 11.5.2021 kl. 12:10

2 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Góð pæling, hvernig ætla þeir að tengja strikamerkið við aukaverkun, en strikamerkið er væntanlega tengt við kt.
Hvers vegna að nota bara ekki kt.?

En ákveðnir dagar eru með ákveðna tegund í Höllinni, þannig að það er væntanlega tengt saman.

Mitt boð fór líka út um allan bæ.

En við þurfum að stoppa þau núna, það var verið að gefa út neyðarleyfi fyrir 12 til 15 ára börn.

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 11.5.2021 kl. 12:35

3 identicon

 Ætli það það sé ekki þannig að ef kt er notuð þá má ekki deila upplýsingum til 3 aðila. Með því að nota strikamerki er verið að "dulkóða einstaklinginn" aka tilraunadýrið og því hægt að nýta þær upplýsingar í þartilgerðan gagnagrunn. Samningur ríkis og lyfjaframleiðenda er ekki gerður opinber því erfitt að átta sig á innihaldinu. Það er allsekki óhugsandi og eiginlega frekar líklegt að lyfjaframleiðandinn vill halda utan um virkni/endingu/aukaáhrif og fleiri þætti sem til fellur í þessari tilraun. Líklegt er að það sé eitt af skilyrðum þess að lyfjaframleiðandinn sé tilbúin að selja lyfið til Íslands.

Þröstur (IP-tala skráð) 11.5.2021 kl. 13:53

4 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Er búin að senda fyrirspurn á ráðuneytið. 

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 11.5.2021 kl. 14:04

5 identicon

Takk fyrir að vekja athygli okkar á þessu. Mér finnst það hrollvekandi að við séum öll orðin strikamerki, þó að ég hafi vitað að það væri í vændum. En þessi eftirsókn eftir því að ná þér í bólusetningu er líka sérstök, ég held að þú sért hvíti hvalurinn hans Þórólfs... Það verður spennandi að fylgjast með hvernig gengur að skutla/sprauta þig, ég vona svo sannarlega að þú komist undan!

Anna Karen (IP-tala skráð) 11.5.2021 kl. 15:00

6 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

þetta er bara vegna þess að ég mætti ekki upphaflega, þá er verið að senda fleiri held ég. 'Eg tek minnst 100 millur fyrir að taka þátt í lyfjatilraun. Þau verða að bjóða betur.

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 11.5.2021 kl. 17:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband