19.5.2021 | 13:32
Grunur um hjartamein hjá ungu fólki eftir Pfizer - rannsókn í Ísrael
Ísraelsstjórn gerði samning við Pfizer um að taka þátt í rannsókn á þjóð sinni með Covid-19 bóluefni, eða réttara sagt mRNA líftæknilyfi.
Þess konar samning höfðu íslensk yfirvöld áhuga á, en ekkert varð úr. Nýlega kom út skýrsla í Ísrael sem sýnir ógnvænlegar aukaverkanir, meðal annars bólgna hjartavöðva í ungu fólki. Danska blaðið Politiken segir frá að rannsókn sé nú hafin hjá EMA (European Medicine Agency) á þessum mögulegu tengslum.
Ef niðurstöður skýrslunnar frá IPC (Israeli People Committee) eiga við rök að styðjast er Pfizer lyfið tengt fleiri dauðsföllum í Ísrael en AstraZeneca í allri Evrópu. Niðurstöðurnar eru hörmulegar á öllum mögulegum stigum, segir í skýrslunni.
Þar er líka tekið fram að ef tölfræði skýrslunnar er rétt, þá hafa heilbrigðisyfirvöld í Ísrael ekki sent frá sér réttar tölur um dauðsföll vegna Pfizer rannsóknarinnar.
Þess má geta að þó nokkuð er síðan að bólusett var í Ísrael niður í 16 ára aldur og nú stendur til að byrja á 12 - 15 ára.
Töluvert hefur verið um mótmæli í Ísrael og er myndin hér ofar tekin á einum þeirra fyrir u.þ.b. þremur vikum. Hér eru fleiri myndir.
![]() |
Smit utan sóttkvíar á vinnustað í borginni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 20.5.2021 kl. 21:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.5.2021 | 18:51
Rangt hjá Ragnheiði hjúkku - yngri en 55 hafa fengið AstraZeneca
,,Ragnheiður segir að bólusetning hafi gengið mjög vel síðustu daga og að tími hafi verið kominn á að jafna kynjahlutföllin. Um 37 þúsund skammtar af bóluefni AstraZeneca hafa verið gefnir hérlendis síðustu þrjár vikur. Enginn þeirra hefur farið til kvenna undir 55 ára aldri í samræmi við tilmæli sóttvarnalæknis." Visir.is 18.5.2021
Það fer að verða fullt starf að halda utan um lygi yfirvalda sem er áskrifandi af ríkislaunum sínum. Þessi frétt er frá því í dag 18. maí.
Konur undir 55 hafa vissulega fengið boð um að fara í AstraZeneca. Þær sem fengu fyrri skammt af Astra máttu velja um að hafa síðari skammt Astra eða fá Moderna eða Pfizer í seinna skiptið.
Á hópnum Kórónaveiran Covid-19 er mikið rætt um bóluefnin, aukaverkanir og fleira því tengt.
Var ekki lengi að finna þar dæmi um konur yngri en 55 sem höfðu fengið AZ síðustu daga (sem sagt innan síðustu þriggja eða 7.maí.) Smella á myndir til að sjá skýrar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.5.2021 | 11:17
Læknir úti að aka í sambandi við aukaverkanir bóluefna
Auglýsingin sem birtist í Mogganum fyrir nokkrum dögum þar sem bóluefnaþegum er bent á að tilkynna aukaverkanir til Lyfjastofnunar vakti bæði lukku og reiði. Einn þeirra reiðu var Jón Magnús Jóhannesson læknir, en hann hefur stígið nokkrum sinnum fram og skammað fjölmiðla fyrir að birta fréttir sem ekki passa við söguþráð C-19 svikamyllunnar.
Til dæmis skammaði hann Hringbraut fyrir að birta frétt um blogg mitt þar sem ég afþakkaði apa-kvefveiru bóluefnið AstraZeneca (nokkrum dögum síðar var gert hlé á notkun þess vegna alvarlegra aukaverkana). Læknirinn sagði Hringbraut vera að dreifa falsfréttum (sjá mynd neðar).
Jón læknir skammaðist líka út í Moggann fyrir auglýsinguna og segir engin dæmi vera um suma af þessum fylgikvillum, þar á meðal breytingar á blæðingum kvenna og sjóntruflanir. Eins sagði hann að einungis væru dæmi um blóðtappa eftir Janssen og AstraZeneca, ekki hin (sjá mynd neðar).
Hann fylgist ekki með eða kýs að líta undan. Lyfjastofnun gaf út um daginn, (í þau fáu skipti sem hún hefur sent eitthvað frá sér) að dæmi væru um blóðtappa í tengslum við öll efnin. Í lok apríl birtist frétt sem sagði að níu tilkynningar hefðu borist um blóðtappa í tengslum við öll efnin þrjú, Janssen var þá ekki komið.
Læknirinn hélt því líka fram að engin dæmi væru um tilkynningar um áhrif lyfjanna á blæðingar kvenna. Þá var þegar byrjað að fjalla um málið í erlendum miðlum og fyrir löngu komin dæmi um þetta í erlendum gagnarunnum eins og VAERS.
Í gær kom síðan frétt um að Lyfjastofnun hefðu borist tilkynningar um hið sama, áhrif á blæðingar kvenna. Hvað ætti læknirinn svo sem að vita, því að upplýsingar Lyfjastofnunar sem eiga að vera opinberar, eru eins og hjá þriðja heims ríki. Allt ofan í skúffu og stofnunin svarar ekki fyrirspurnum um hverslags aukaverkanir er um að ræða. Hún sýnir aðeins súlur, eitt fyrir hvert bóluefni.
Í dag eru skráðar 1217 aukaverkanir á síðu Lyfjastofnunar, þar af 75 alvarlegar en alvarleg aukaverkun telst skv. Lyfjastofnun vera lífshættulegt tilvik, fötlun, andlát o.fl. Fleiri dæmi um veikindi eftir bólusetningar meðal Íslending má sjá í þessari færslu. Og takið eftir þessari með Astra. Ath. þetta eru allt færslur sem hafa birst á opinberum síðum og því ætti að vera í lagi að endurbirta. Þetta þarf fólk að sjá, þar á meðal Lyfjastofnun sem óhætt er að segja að sé sek um þöggun í þessu máli!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.5.2021 | 16:24
Hvar eru íslensku Covid - kynlífsreglurnar?
Hvenær fáum við Íslendingar Covid- kynfræðslu og kynlífsreglur frá þríeykinu? Bretar og Skotar eru búnir að fá sínar. Forsætisráðherrar landanna tveggja hvetja til varkárni í þessu sambandi. Í kynlífsreglunum kemur meðal annars fram að besti kynlífsfélaginn sé maður sjálfur! Veiran getur auðveldlega smitast með slefi og því er ráðlagt að kyssast ekki á meðan á kynlífinu stendur, vera með grímur og velja stellingar þar sem andlitin snúa ekki hvort að öðru (þ.e.a.s. ef þú endilega þarft að vera með einhverjum öðrum en sjálfum þér!). Passa að þvo sér vel og spritta fyrir og eftir í a.m.k. 20 sekúndur.
Efri myndin fylgir BBC fréttinni og eins og sjá má er þetta sama grafíkin og Almannavarnir nota.Kanadamenn hafa líka gefið út leiðbeiningar sem eru svipaðar. Þar er líka lagt til kynlífs í gegnum netið og einnig með sjálfum sér eins og hjá Bretum og Skotum. Kanadamenn vilja líka að maður spyrji alltaf makann eða félagann áður hvort hann sé með einkenni. Ef hann/hún finna fyrir slappleika, eða er t.d. með nefrennsli, þá skal sleppa kynlífinu! Yfirvöld í Kanada ráðleggja líka skilrúm á milli hjóna eða para með götum (e. glory holes). Eins benda þeir á að hröð og þung öndun geti frekar leitt til smits milli aðila.
Heilbrigðisyfirvöld í Ástralíu vilja að 1,5 metri sé hafður á milli aðila á meðan á kynlífinu stendur en ef fólk vill endilega vera nær hvort öðru, skal nota þrefalda grímu! Annað er svipað og hjá hinum.
Yfirvöld í New York eru líka með svipaðar leiðbeiningar en bæta því við að ónæmi gegn veirunni komi ekki í veg fyrir smit. Í reglum annarra landa er heldur ekki tekið fram að þeir sem eru bólusettir eða með ónæmi séu undanskildir þessum reglum.
Kamilla Harris og maðurinn hennar sem bæði eru bólusett vita þetta og kyssast með grímur fyrir andlitum.
Skilst að flest ríki séu komin með svona reglur. En hvar eru okkar? Enginn veitt neitt um þetta hér heima og kannski fullt af fólki að gera margt vitlaust!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.5.2021 | 11:53
Nýjustu covid fréttir frá Texas - faraldurinn yfirstaðinn!
Sjáið íþróttaleikvanginn í Texas. Pakkfullt og engar grímur enda hefur grímuskylda verið afnumin í ríkinu, einnig í fjölmenni sbr. hjá Texas Rangers.
Samkvæmt þessari frétt höfðu um 7 milljónir Texasbúa verið bólusettir og spurn eftir bóluefni minnkað mikið. Íbúafjöldi ríkisins er um 29 milljónir.
Bólusettir eru því um fjórðungur. Öllum höftum var aflétt fyrir 10 vikum, þar á meðal grímuskyldu. Hér má sjá þróun smita o.fl. Allt á niðurleið.
Ályktun: Covid-19 og reglur í kringum það er pólitískt mál! Aðalhræðsluáróðursmeistarinn Kári Stefánsson sagði líka (kannski óvart) að grímur væru táknrænar.
![]() |
Tvö ný smit í gær |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.5.2021 | 18:29
Ræða frá Austurvelli - Freedom Rally Reykjavík, Iceland!
Í gær fóru fram fjölmenn mótmæli í mörgum borgum heims (World Freedom Rally) gegn sóttvarnaraðgerðum."
Þau stærstu voru í London eins og RÚV og Stöð 2 sögðu frá í gær. Nei, auðvitað gerðu þau það ekki. Stranglega bannað að sýna að fólk sé að fjölmenna gegn valdníðslunni.
Í gærmorgun voru nokkrar ræður fluttar á Austurvelli í tilefni dagsins. Hér er ein þeirra og er eftir Þránd Arnþórsson (tók þessa mynd af facebookinni hans, hann var ekki að biðja mig um að sýna að hann hefði unnið bikara!):
Ræðan:
Nürnberg 2.0 réttarhöld eru í undirbúningi með hópmálsókn þúsunda lögfræðinga og heilbrigðisstarfsmanna um allan heim, undir forystu þýska lögfræðingsins Reiner Fuellmich. Þar eru sóttir til saka þeir sem bera ábyrgð á Covid-19 hneykslinu sem Davos ráðstefnan stjórnaði.
Rétt er að rifja upp að Reiner Fuellmich er lögfræðingurinn sem tókst að fá Volkswagen dæmt fyrir svindl í mengunarmælingum, auk þess sem honum tókst að fá Deutsche Bank dæmdan glæpsamlegan.
Svik þessara þýsku fyrirtækja eru smávægileg miðað við það tjón sem Covid-19 kreppan hefur valdið og heldur áfram að valda.
Covid-19 kreppuna ætti að endurnefna Covid-19 hneykslið og allir þeir sem eru ábyrgir ættu að vera sóttir til saka vegna skaðlegra aðgerða og falsaðra PCR prófana.
Á næstunni mun því alþjóðlegur hópur lögfræðinga leggja fram stærsta skaðabótamál allra tíma, Covid-19 svikahneykslið - sem er stærsti glæpur gegn mannkyni sem framinn hefur verið.
Rannsóknarnefnd Covid-19 var sett á laggirnar í júlí 2020 að frumkvæði hóps þýskra lögfræðinga með það að markmiði að höfða alþjóðlega hópmálsókn eftir engilsaxneskum lögum.
Hér er það sem Reiner Fuellmich hafði að segja um niðurstöður rannsóknarinnar og spurninganna sem svara ætti í væntanlegum réttarhöldum gegn WHO og leiðtogum heims fyrir glæpi gegn mannkyninu:
Yfirheyrslur um 100 alþjóðlega þekktra vísindamanna, lækna, hagfræðinga og lögfræðinga, sem rannsóknarnefnd Berlínar hefur staðið fyrir vegna Covid-19 málsins frá 10. júlí 2020, hafa í millitíðinni sýnt með nærri fullri vissu að Covid- 19 hneykslið snerist aldrei nokkurn tíma um heilsu.
Þess í stað snerist það um að treysta ólögmætt vald spilltrar Davos-klíku með því að færa auð almennings til meðlima Davos-klíkunnar og leggja meðal annars lítil og meðalstór fyrirtæki í rúst.
Stórfyrirtæki eins og Amazon, Google, Uber o.fl. gætu þannig aukið markaðshlutdeild sína og auð.
Þrjár stærstu spurningarnar sem svara þarf fyrir dómstólum vegna Corona hneykslisins eru:
1) Er til kórónafaraldur eða er aðeins PCR-prófa faraldur?
Nánar tiltekið þýðir jákvæð niðurstaða úr PCR prófi að sá sem prófaður var sé smitaður af Covid-19, eða þýðir það nákvæmlega ekki neitt?
2) Þjóna aðgerðir stjórnvalda gegn pestinni, svo sem lokanir, grímuskylda, fjarlægðarmörk og sóttkvíar, tilgangi um að vernda íbúa heims?
Eða þjóna þessar aðgerðir eingöngu þeim tilgangi að fá fólk til að óttast og örvænta svo að það trúi, án vafa, að líf þeirra sé í hættu - þannig að lokum geti lyfja- og tækniiðnaður skilað miklum hagnaði með sölu PCR prófa og bóluefna ásamt söfnun erfðaupplýsinga okkar?
3) Er það svo að þýsk stjórnvöld voru, frekar en nokkurt annað land, beitt þrýstingi af helstu leikurum þessa svokallaða kórónafaraldurs
(Drosten, veirufræðingur við Charité sjúkrahúsið í Berlín; Wieler, dýralæknir og yfirmaður RKI; og Tedros, yfirmaður WHO) vegna þess að Þýskaland er þekkt sem sérstaklega agað land og átti því að verða fyrirmynd fyrir umheiminn fyrir sína ströngu og auðvitað árangursríku beitingu sóttvarnaaðgerða?
Svör við þessum þremur spurningum eru brýn vegna þess að hin nýja og stórhættulega kórónaveira hefur ekki valdið neinum umframdauða neins staðar í heiminum og örugglega ekki hér á Íslandi.
En sóttvarnaaðgerðirnar, sem eru eingöngu byggðar á niðurstöðum PCR-prófana, hafa á þessum tíma orsakað mannfall og eyðilagt efnahagslegan grunn óteljandi fyrirtækja og einstaklinga um allan heim.
Þetta voru niðurstöður nefndarinnar:
Kórónufaraldurinn verður að endurnefna Kórónuhneykslið
Þetta er:
Stærsta skaðabótamál sögunnar
Stærsti glæpur gegn mannkyni sem framinn hefur verið
Þeir sem bera ábyrgð verða að vera:
Sóttir til saka fyrir glæpi gegn mannkyni
Látnir greiða skaðabætur
Dauðsföll:
Það er engin umfram dánartíðni í neinu landi
Dánartíðni Corona-vírusins er sambærileg við árstíðabundna flensu
94% dauðsfalla í Bergamo í Ítalíu voru vegna þess að veikt fólk var flutt inn á hjúkrunarheimili þar sem það smitaði gamalt fólk með veikt ónæmiskerfi
Læknar og sjúkrahús um allan heim fengu greitt fyrir að setja Covid-19 sem orsök á dánarvottorð
Bandarísk ríki hvort sem voru með eða án sóttvarnaaðgerða hafa sambærilegar tölur um sjúkdóma og dánartíðni
Krufningar sýna:
Dánarorsök var næstum öll af völdum annarra alvarlegra orsaka
Nánast öll andlát voru mjög gamalt fólk
Svíþjóð (engin lokun) og Bretland (ströng lokun) eru með sambærilegar tölur um veikindi og dánartíðni
Heilsa:
Sjúkrahús standa auð og sum verða gjaldþrota
Íbúar landa mynda T-frumu ónæmi fyrir fyrri inflúensubylgjum
Hjarðónæmi þarf aðeins 15-25% sýkingu og er þegar náð
Aðeins þegar einstaklingur hefur einkenni getur sýking smitast
PCR prófanir:
Margir vísindamenn kalla þetta heimsfaraldur PCR-prófa en ekki kórónafaraldur
Fullkomlega heilbrigt og ekki smitandi fólk getur samt mælst jákvætt
Líkur á fölskum jákvæðum mælingum eru 89-94% eða nærri öruggt
Prófessor Drosten þróaði PCR próf sitt úr gömlum SARS vírus án þess að hafa nokkurn tíma séð hinn raunverulega Wuhan vírus frá Kína
PCR prófið er ekki byggt á vísindalegum staðreyndum varðandi sýkingar
PCR próf eru gagnslaus til að greina smit
Jákvætt PCR próf þýðir hvorki að sýking sé til staðar né að raunverulegur vírus hafi fundist
Mögnun sýna með fleiri en 35 ítrunum er óáreiðanleg en WHO mælti með 45 ítrunum
Lögbrotin:
Stjórnvöld hafa lokað starfsemi, sett á fjarlægðarmörk, sóttkvíar og grímuskyldu á grundvelli einnar skoðunar
Lokanirnar voru settar á þegar vírusinn var þegar á undanhaldi
Lokanirnar voru byggðar á sýkingum sem voru ekki til
Málsmetandi lögmenn hafa lýst efasemdum um stjórnskipun sóttvarnaaðgerða
Fyrrum hæstaréttardómari í Bretlandi, Lord Sumption, komst að þeirri niðurstöðu að enginn raunverulegur grundvöllur væri fyrir örvæntingu og enginn lagagrundvöllur fyrir sóttvarnaaðgerðum
RKI í Þýskalandi mælti með að engar krufningar yrðu gerðar
Sóttvarnaaðgerðir hafa ekki nægjanlega stoð í staðreyndum eða lögum, þær standast ekki stjórnarskrá og verður að fella úr gildi strax!
Enginn alvöru vísindamaður samþykkir fölsk tölvulíkön Neil Ferguson sem spáði fyrir um milljónir dauðsfalla
Meginstraums fjölmiðlar brugðust gersamlega skyldu sinni að upplýsa um raunverulegar staðreyndir svonefnds heimsfaraldurs
Lýðræði er í hættu á að vera skipt út fyrir fasískt alræði
Drosten (vegna PCR prófanna), Tedros frá WHO og fleiri hafa framið glæpi gegn mannkyninu eins og það er skilgreint í alþjóðlegum hegningarlögum
Stjórnmálamenn geta forðast að falla með þessum svikurum og glæpamönnum með því að opna fyrir löngu tímabæra opinbera vísindalega umræðu
Samsæri:
Stjórnmálamenn og meginstraums fjölmiðlar ollu vísvitandi skelfingu hjá almenningi
Börn voru markvisst látin telja sig ábyrg fyrir kvalarfullum dauðdaga foreldra þeirra og ömmu ef þau færu ekki eftir sóttvarnarreglum
Hið óáreiðanlega PCR próf er notað til að skapa ótta en ekki til að greina
Aðgerðir gegn pestinni hafa:
Valdið risavöxnu tjóni á heilsu og efnahag almennings
Dregið ótalmarga til bana
Lítil og meðalstór fyrirtæki lögð í rúst og gerð gjaldþrota
Málshöfðun:
Hópmálsókn í Bandaríkjunum eða Kanada og hér á landi
Skaðabætur þarf að greiða fyrirtækjum og einstaklingum
Verður þetta stóri dómurinn yfir Bill Gates, Fauci, Þórólfi, Kára og vinum þeirra? Við sjáum hvað gerist en málin hafa verið lögð fyrir og afrekaskrá Reiner Fuellmich bendir sannarlega til þess að þeir eigi ekki möguleika.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.5.2021 | 15:11
16 - 18 ára næstir - ,,keyptir" gegn afnámi grímuskyldu?
Unglingar 16-18 ára eru ekki næstir í röðinni skv. bólusetningadagatalinu síbreytilega en þessi boð hér neðar voru að berast mér. (Næst eru það 12 -15 ára og stefnan hjá lyfjafyrirtækjunum og mörgum yfirvöldum heims er að bólusetja allt niður í ungabörn.)
Skilaboðin:
Þarf að skjóta á þig smá. Heyrði frá íslenskum unglingapabba um daginn. Það er verið að boða 16-18 ára í bólusetningar þessar vikurnar og svo síðari sprauta seinna í sumar gegn loforði um grímulaust haust. Stráksi er í Borgarholtsskóla. Sé ekki að unglingar séu á dagatali yfirvalda nema þá sem hópur 10, "Allir aðrir sem óska bólusetningar."
Nokkrar staðreyndir:
1. Börn, unglingar og hraust fólk er ekki í hættu vegna C19 skv. WHO eða Alþjóðaheilbrigðisstofnunni. Flest ungt fólk fær væg eða jafnvel engin einkenni. Meðalaldur látinna af C19 er ca. 85 ára.
2. Ónæmi í samfélögum er töluvert meira heldur en mótefnamælingar segja til um. Sjá til dæmis umræðu lækna í þinginu í Texas.
3. Þetta eru EKKI bóluefni eins og landlæknir, Lyfjastofnum og fleiri kalla það. Þetta eru líftæknilyf (mRNA), þ.e.a.s Moderna og Pfizer sem ekki hafa verið notuð á mannfólki fyrr og eru enn í tilraunafasa. Tilraunum lýkur 2023.
4. Bóluefnin" eru EKKI með markaðsleyfi, heldur skilyrt markaðsleyfi sem jafngildir undanþágu eða neyðarleyfi. Enda eru þau á rannsóknarstigi. Íslendingar og fleiri þjóðir eru tilraunadýrin (sjá svar frá Lyfjastofnun neðar).
5. Ekkert er vitað um langtímaáhrif líftæknilyfjanna. Ekki neitt! Þeir sem segja þau örugg hafa ekki hugmynd um hvað þau eru að tala, þar á meðal læknar! Yfirvöld vissu heldur ekkert um skammtímaaukaverkanir sem voru miklu algengari og verri en þau sögðu.
6. Landlæknisembættið kallar þetta ranglega heilbrigðisþjónustu og heldur því fram að ekki þurfi samþykki foreldra fyrir 16 og 17 ára unglinga sem ekki hafa náð sjálfræði. Þetta er ekki heilbrigðisþjónusta heldur boð/kvaðning um að mæta í bólusetningu. Passið unglingana! Þau eru ekki tilraunarottur margdæmdra lyfjafyrirtækja. Þau eru ekki veik og eru ekki að sækja sér læknaþjónstu eins og segir í lögum um heilbrgiðisþjónustu!
7. Skoðið dæmi um veikindi meðal Íslendinga eftir sprauturnar. Eru þetta flensueinkenni eða skuggalegar lýsingar á einhverju meira? Sjá hér, (skjáskot undir texta).
8. Bóluefnasamningar ríkisins við lyfjafyrirtækin eru undanskildir upplýsingaskyldu. Almenningur og þingmenn mega ekki sjá þá. Hvers vegna ekki?
p.s. efri myndin er tekin í fjöldamótmælum í London í gær sem helstu fjölmiðlar heims sögðu ekki frá frekar en fyrri daginn. Og þessi neðri er tekin í Ísrael fyrir tveimur vikum.
Svar frá Lyfjastofnun:
Sæl Þórdís
Öllum fjórum bóluefnunum sem notuð eru hérlendis hefur verið veitt skilyrt markaðsleyfi.
Kveðja,
Samskiptadeild / Communications Department
Lyfjastofnun / Icelandic Medicines Agency
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2021 | 18:36
Fjölmenn mótmæli í dag - "World Freedom Rally" - partý við BBC!
Fjölmenn mótmæli voru í London í dag þar sem grímuskyldu var mótmælt, höftum og lokunum, "human vaccine trials" (tilraun bóluefna á mönnum), lygum bresku ríkisstjórnarinnar bóluefnavegabréfum, o.fl. Hér má sjá útsendinguna og hér. Einnig var mótmælt i Manchester.
Fjöldinn í London arkaði að BBC fréttastöðinni sem endaði með partýi.
Þetta hafði einn mótmælandinn að segja:
Mike Yeadon hélt einnig ræðu en hann er fyrrum yfirmaður Pfizer, vísindamaður með meiru.
Mótmæli voru í mörgum örðum borgum heims. Hér er til dæmis frá Amsterdam, Sviss, Toronto, Leef, Vancouver og Reykjavík (mynd neðar).
Og tengd frétt. Hafnarboltaliðið Texas Rangers hefur fellt niður grímuskyldu hjá öllum áhorfendum, óháð bólusetningu. Ekki er krafist bóluefnapassa. Ánægjuleg frétt og sýnir vonandi að dagar grímuskyldunnar eru taldir.
Frá London. Látið krakkana vera! Og ein frá Austurvelli, hófst kl. 11.30.
Bloggar | Breytt 16.5.2021 kl. 21:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.5.2021 | 10:25
Þáttastjórnandinn Bill Maher smitaður þrátt fyrir fulla bólusetningu
Hér kemur fram að þáttastjórnandinn Bill Maher hafi greinst með kórónuveiruna þrátt fyrir að vera fullbólusettur.
Eins og komið hefur fram eru bóluefnin ekki hefðbundin og koma ekki í veg fyrir smit. Rannsóknir lyfjafyrirtækjanna gengu heldur ekki út á að rannsaka hvort fólk smitaði heldur hvort lyfin hefðu áhrif á veikindi þess smitaða.
Í Daily Mail í gær segir að heilbrigðisráðherra Bretlands hafi áhyggjur af því að þeir bólusettu muni veikjast illa af nýju afbrigði og því þyrfti mögulega að hætta við fyrirhugaðar afléttingar.
Ragnar Freyr læknir var spurður að því hvort rétt væri að þetta væru ekki bóluefni (heldur líftæknilyf), en hrokafulla lækninum fannst það ekki svaravert. Spurning hvort hann gæti útskýrt þetta. Er þetta kannski það sem kallast indverska afbrigðið?
Meira af þekktu fólki. Eric Clapton veiktist mikið eftir bólusetningu og dauðsér eftir að hafa farið. Hann hefði átti að tala við mig áður! En lærði af reynslunni og varar umheiminn nú við bóluefninu.
Viðbrögðin voru skelfileg. Hendur mínar og fætur voru frosnar, dofnar eða logandi heitar í tvær vikur. Ég var hræddur um að ég gæti aldrei framar spilað. En áróðurinn var; bóluefnin eru örugg...
Bólusettur Íslendingur smitaðist innanlands.
Takið eftir myndinni að ofan. Fín samlíking - ekki satt?
![]() |
Norðmenn hætta alfarið með AstraZeneca |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 15.5.2021 kl. 01:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
13.5.2021 | 21:29
16 ríki hafa fyrir löngu fellt niður grímuskyldu!
,,Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna (CDC) tilkynnti í dag að fullbólusettir Bandaríkjamenn geti hætt að nota grímur og gæta að fjarlægðarmörkum við flest tilefni."
Grímuskylda var afnumin í 16 ríkjum USA fyrir þó nokkru.
Grímuskylda(og allt covid) er augljóslega pólitískt mál. Sjá hér.
Og sjá samanburð milli Californiu (mjög harðar reglur) og Florida (mjög frjálst).
![]() |
Bólusettir sleppi við grímuskyldu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
-
aslaugas
-
agny
-
annaeinars
-
danna
-
agustkara
-
bookiceland
-
contact
-
einarborgari
-
rlingr
-
sagamli
-
helga-eldsto-art-cafe
-
bofs
-
sade
-
gusg
-
noldrarinn
-
hafthorb
-
hhbe
-
hlf
-
diva73
-
snjolfur
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
kreppan
-
jaj
-
islandsfengur
-
nonniblogg
-
nyja-testamentid
-
thjodarskutan
-
kristinnp
-
loncexter
-
marinogn
-
sighar
-
sigurduringi
-
sushanta
-
viggojorgens
-
vilhjalmurarnason
-
thorsteinnhelgi
-
valli57
-
tbs