6.5.2021 | 14:57
Kamilla veit ekkert en veit samt - og sýktir fá líka bóluefni!
Endanleg virkni sú sama segir Kamilla.
,,Kamilla sagði að margar spurningar hefðu borist í tengslum við þessa breytingu. Hvort að jafngott væri að fá bólusetningu með tveimur mismunandi bóluefnum og að fá tvo skammta af sama bóluefni.
Svarið við því er að við vitum það ekki enn þá. Það er verið að rannsaka þetta en það er ekki búið að birta neinar niðurstöður úr þeim rannsóknum. Þeirra er að vænta í júní.
Kamilla benti á að endanleg virkni bóluefnanna í líkamanum ætti að vera sú sama, þau færu einfaldlega misjafnlega að því að koma örvun ónæmiskerfisins af stað."
Sem sagt, þau vita ekkert því engar rannsóknir eru til staðar, en Kamilla veit samt að endanleg virkni er sú sama. Hvers vegna er ekki landlæknir látinn svara fyrir þetta? Hún hefur ekki mætt á síðustu þrjá fundi Almannavarna. Virðist hafa vit á því að halda sig fjarri og senda ungan lækni fyrir sig til að halda einhverju fram sem ekkert er vitað um.
Kamilla hefði átt að bæta við því sem er rétt, rannsóknin er í gangi núna. Íslendingar eru að taka þátt í alþjóðlegri lyfjarannsókn sem endar 2023. Þá vitum við hvort mix&match aðferðin virkar eins vel eða illa og tveir skammtar af sömu tegund.
Samviskan hlýtur að naga einhverja lækna þessa dagana. Það er verið að gefa fólki sem ekki er í áhættu vegna Covid, lyf á tilraunastigi og já prófa að gefa því tvær mismunandi tegundir.
En það er svona þegar búið er að semja um hlutina fyrirfram með leynilegum bóluefnasamningum og fleiru. Íslensk yfirvöld hafa lofað því að nota fólkið sitt í tilraun, burt séð frá því hvort viðkomandi sé í áhættu fyrir sjúkdómnum eða ekki.
Á Almanvarnarfundinum í dag kom líka fram að til stæði að bólusetja þá sem þegar hefðu fengið Covid. Spáið í þessi nýju gervilæknavísindi! En væntanlega er þetta partur af samningnum við lyfjafyrirtækin líka. Tékka hvernig tilraunabóluefnið fer í mannskapinn sem þegar er kominn með náttúrulegt ónæmi. Þetta er svona svipað eins og bólusetja manneskju sem nýlega hefur fengið hlaupabóluna með hlaupabóluefni.
Lyginni líkast enda er þetta lygi.
![]() |
Munu geta valið á milli bóluefna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.5.2021 | 22:30
Yfirlið eftir bólusetningu - algengt eða alls ekki algengt?
Yfirlið eru algengari hjá yngra fólki segir Ragnheiður eftir yfirlið dagsins í Höllinni í dag.
Jú það var slatti í dag" segir Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, um að nokkrum fjölda fólks hafi verið fylgt afsíðis eða leiðbeint að leggjast á gólfið við vegna viðbragða við bólusetningu í dag."
Þetta sagði Ragnheiður aftur á mótir í gær, en þá leið víst yfir einhverja líka:
Þetta gerist alltaf annað slagið en það er ekki algengt. Mér skilst samt að það hafi verið nokkur tilvik í dag en þetta er alls ekki algengt," segir Ragnheiður.
Hvort er þetta nú algengt eða alls ekki algengt?
Kannast einhver við þetta úr t.d. skólabólusetningum? Ekki ég.
Heyrði frá einum sem fékk Jansen efnið í dag, án þess að vilja það neitt sérstaklega. Hann sagði það nánast vera skyldu frá vinnustað!(lögbrot að skylda fólk til að taka þátt í lyfjatilraunum sem þetta er). Bara meðan hann sat þarna og beið, þá voru 4-5 sem hnigu niður og ekki á meðan verið var að sprauta heldur á eftir þegar þeir voru að bíða í sínar 15 mínútur. Hann sagði líka að þetta hafi verið fullorðnir menn inn á milli og margir félagar hans sem fengu sinn skammt væru mikið veikir núna og þar á meðal hann sjálfur, með 39 stiga hita.
Þarna er verið að hagræða sannleikanum, þetta er ekkert algengt! Enda segir þessi reynslumikla hjúkka það sjálf. Auk þess, ef fólk hefur tilhneigingu til að falla í yfirlið, þá er farið með það inn í sér herbergi, líka t.d. þá sem eru kvíðnir.
En þetta er eins og með aukaverkanirnar, það er allt saman alveg eðlilegt því meiri aukaverkanir þeim mun betra...þá er líkaminn að mynda mótefni"!
En hvað með þá sem finna ekkert, eru þeir ekki að mynda mótefni? Hafið þið heyrt þessi rök í tengslum við t.d. inflúensusprautu?
Hér er m.a.s. fyrrum þingkona að fara með þennan söng (hjá Bubba sem var veikur) og hún er ekki einu sinni vísindamaður!
Einhverjir finna alls ekkert eftir sprautuna, en það eru margar slæmar lýsingar á veikindum að sjá og heyra, meðal annars á facebook.
Í dag 6.maí, hafa verið tilkynnt 883 tilfelli vegna gruns um aukaverkanir af Covid sprautum og þar af 56 alvarleg en skv. skilgreiningu Lyfjastofnunar er alvarleg aukaverkun:
,,Aukaverkun eða óæskileg áhrif lyfs sem leiðir til dauða, lífshættulegs ástands, sjúkrahúsvistar eða lengingar á sjúkrahúsvist, veldur fötlun eða fæðingargalla hjá mönnum og jafnframt aukaverkun eða óæskileg áhrif lyfs sem leiðir til dauða eða veldur ólæknandi eða langvarandi sjúkdómseinkennum hjá dýrum."
En þetta er allt mjög normalt segja þau. Nei, þetta er ekki normalt! Það er ekki algengt, eins og Ragnheiður sagði í gær, að það líði yfir fólk eftir sprautur og það er ekki normalt að verða mjög lasinn eftir bólusetningu. Miklar eða alvarlegar aukaverkanir eru frekar merki um eitrun í líkamanum heldur en að ónæmiskerfið sé bara að mynda mótefni. Berið bara saman við aðrar sprautur í gegnum tíðina, t.d. hjá skólakrökkum. Hafa mörg þeirra legið veik á eftir, jafnvel í einhverja daga, eða liðið yfir þau?
Til samanburðar voru 16 tilkynningar og þar af tvær alvarlegar vegna svínaflensubólusetningar árið 2009 en þá voru 75,000 manns bólusettir.
17 af 20 veikir á leikskóla og augljóselga ekki viðbúið, annars hefðu ekki allir verið sendir á sama tíma. Þetta gerðist líka á hjúkrunarheimilunum, mannekla daginn og dagana á eftir bólusetningu starfsmanna!
![]() |
Yfirlið algengari hjá yngri kynslóðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 6.5.2021 kl. 13:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þessi frétt er á Vísi og segir að óhætt sé að bólusetja ófrískar konur með líftæknilyfinu mRNA (Pfizer og Moderna) gegn Covid.
Mesta reynslan og góð er af notkun mRNA bóluefnanna fyrir barnshafandi konur þar sem þau voru fyrst sett á markað." segir í tilkynningu frá Landlæknisembættinu. Hvar eru þessar upplýsingar eða rannsóknir að finna? Svíar bólusetja ekki þungaðar konur. Veit Anders Tegnell ekki af þessu?
Í tilkynningu landlæknis segir:
Ekki er ráðlagt að bólusetja á fyrsta þriðjungi þegar líffæramyndum á sér stað."
En í lagi seinna? Mynduð þið taka lyf á meðgöngu sem hefði þessar leiðbeiningar? Er sem sagt einhver möguleiki á að lyfið geti haft áhrif á líffæramyndun? Og hvar eru rannsóknir um lyfið og barnshafandi konur? Nei einmitt, ekki til. Rannsóknin er í gangi - as we speak - og stendur yfir til 2023. Ófrískar konur eru hluti af tilraun íslenskra yfirvalda!
Og einhver lönd láta ekki bólusetja þungaðar konur segir líka í tilkynningu frá Landlækni. Hvaða lönd eru það og hver er ástæðan? Styðjast ríki heims ekki við sömu upplýsingar? Er þá líka óhætt að drekka áfengi, reykja og taka önnur lyf á seinni stigum meðgöngu? Þegar líffæramyndun hefur að mestu átt sér stað!
Lyfið Thalidomide sem barnshafandi konum í Þýskalandi var gefið við ógleði, átti líka að vera alveg öruggt. Eða réttara sagt, vissu vísindamenn á þessum tíma ekki að lyfjainntaka móður á meðgöngu gæti haft áhrif á fóstrið. Margir þekkja þessa sögu.
Ég heyrði fyrst um Thalidomide börnin þegar ég var á skíðum í Austurríki árið 1984. Þar mætti ég hópi fólks sem var áberandi vanskapaður, spurðist fyrir og komst að því að þetta voru Thalidomide börn. Þau eru fædd ca. 1958-1961.
Frá konu sem býr í Svíþjóð (þriggja daga gömul færsla):
Langar að segja frá merkilegri upplifun i kvöld og við spiluðum þrisvar orð Anders Tegnell í fréttatíma sænska ríkissjónvarpsins í kvöld "stadsepidemolog" öðrum orðum sóttvarnarlæknir Svíþjóðar. Fréttin var út af kvörtun frá lækni og ekki nóg með það heldur var um að ræða barnshafandi kvenkyns lækni sem var á viku 32, 5 og setti sig í samband við fréttastofu SVT1 vegna þess að henni hafði verið neitað um bólusetningu þar sem að hún var barnshafandi og hafði unnið sem slík óvarin fyrir covid veirunni. Anders Tegnell sem er sóttvarnarlæknir Svía var spurður afhverju yfirvöld væru svona treg við að bólusetja barnshafandi konur Svar: Jú þar sem við vitum EKKERT um bóluefnið þá er það óþarfa áhætta (vi vet inget om vaccinet orðrétt) ... Ég spyr er þetta ekki nokk það sem við erum að ræða ....eða?"
Í desember sl. var Tegnell enn að bíða eftir gögnum um þungaðar konur. Landlæknir virðist vera kominn með eitthvað en ekki Tegnell.
Myndirnar eru af Thalidomide börnum. En áætlað er að þau séu u.þ.b. 10,000. Um 3000 eru enn á lífi. Lyfin áttu að vera alveg örugg en svona eru ráðleggingarnar í dag:
Thalidomide must not be taken by women who are pregnant or who could become pregnant while taking this medication. Even a single dose of thalidomide taken during pregnancy can cause severe birth defects (physical problems present in the baby at birth) or death of the unborn baby.
p.s. sendi fyrirspurn á landlæknisembættið og óskaði eftir upplýsingum sem sýna þessa góðu reynslu með Covid bólusetningar og þungaðar konur.
Bloggar | Breytt 11.5.2021 kl. 00:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.5.2021 | 20:30
Glæpamenn skilja? - Bill & Melinda
Bill og Melinda Gates hafa ákveðið að skilja eftir 27 ára hjónaband.
Í sameiginlegri tilkynningu segja þau: Við trúum því ekki lengur að við getum vaxið saman sem par."
Really? Og senda út svona kjánalega tilkynningu.
Reikna með að flestir ef ekki allir blaðamenn hafi kynnt sér yfirvofandi málaferli þýska lögmannsins Reiner Fuellmich og fjölda annarra lögmanna um allan heim. Hugsanlega ein mikilvægustu málaferli sögunnar eru hér á ferðinni. Lögmennirnir telja sig hafa fullnægjandi sönnunargögn fyrir því að Covid-19 sé skipulögð glæpastarfsemi.
Fuellmich (mynd neðar) er helst þekktur fyrir að hafa unnið mál gegn Deutsche Bank og Volkswagen. Hér er viðtal við hann (á ensku).
Góðgerðarstofnun Bill&Melinda Gates er sökuð um glæp, sjá hér frá ítalska þinginu.
![]() |
Bill og Melinda Gates að skilja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.5.2021 | 13:47
Tilraunarottur sóttvarnarlæknis!
,,Líða fer að annarri bólusetningu fólks sem fékk fyrsta skammtinn af bóluefni AstraZeneca en er nú ekki í þeim hópi sem bóluefnið er ætlað. Þetta fólk mun geta valið að fá aftur AstraZeneca en að öðrum kosti fengið skammt af öðru bóluefni."
Þetta sambland hefur ALDREI VERIÐ RANNSAKAÐ. Augljóst að það á að nota yngra kvenfólk að mestu í þessa tilraun (þetta er helst starfsfólk elliheimila, konur í heimahjúkrun og þess háttar, sem sagt konur). En annars má velja að taka annan skammt af Astra, segir sóttvarnarlæknir, þó það sé ekki fyrir þann aldurshóp, ef ég skil þetta rétt. Það á sem sagt annað hvort að bjóða þessum hópi Astra sem konur yngri en 55 mega ekki fá skv. nýjustu reglunum um aldur, eða lyf af annari tegund sem unnið er með annari tækni (mRNA), í bland við hitt. Spáið í það, bjóða konum lyf sem búið var að finna út að væri áhættusamt fyrir þann hóp! Er einhver á prósentum í þessum bóluefnabransa hér heima?
Fjallaði um þetta um daginn! Sjá hér. Væri ekki nær að landlæknir mætti í sína fyrstu sprautu áður en farið verður í frekari tilraunir á yngri konum!
Og nú hætta Danir að nota Jansen. Ef ég vissi ekki betur myndi ég halda að þetta væri einhverskonar leikur! Prófa smá, hætta, breyta aldurshópum, prófa aftur, banna þennan aldurshóp, nei leyfa hann aftur, prófa aftur hinn sem ekki mátti fá fyrst, prófa þá bara karlana, fór ekki nógu vel í konurnar, blanda saman tveimur ólíkum tegundum eða bjóða þá samt hitt sem búið var að banna.
![]() |
Sennilega ráðist í tilviljanakennda bólusetningu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.5.2021 | 10:46
Hefur landlæknir ekki mætt í bólusetninguna?
18.400 manns fá bóluefnaskammt gegn C19 í Laugardalshöll í vikunni en þar af fá 7.400 sinn annan skammt og öðlast þannig fulla bólusetningu. Ekki er útlit fyrir að bólusett verði eftir aldurshópum í þessari viku."
Í síðustu viku fengu þeir sem fæddir eru árið 1961 kvaðningu um að mæta skv. þessari frétt.
Við boðuðum þá sem fæddir eru 1961 og eldri í dag en við erum búin að boða allan 1962 árganginn og erum að fara að boða 1963 árganginn, segir Jórlaug.
Landlæknir, Alma Möller, er fædd árið 1961. Ekki hefur borið á því að hún hafi mætt. Það hefði nú örugglega komið í fréttum, myndir af bólusetningunni og lófaklapp. Er hún kannski í anti-vax hópnum með tengdó?
Maður heyrði bara af Bubba sem ákvað að stíga út úr óttanum og skella sér, tilkynnti svo að hann væri frekar veikur.
p.s. myndin er ekki beint í tengslum við þennan texta, en góð mynd og táknræn fyrir tímana sem við nú lifum.
Uppfært: Þetta er komið, fékk klapp og kökur. Algjör hetja!
![]() |
18.400 manns fá bóluefni í Höllinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 4.5.2021 kl. 21:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
30.4.2021 | 19:09
Heilbrigðisþjónusta eða ólögmæt lyfjatilraun á börnum!
Bóluefni Pfizer/BionTech er skráð fyrir 16 ára og eldri hjá Lyfjastofnun Evrópu og bandaríska lyfjaefitrlitinu en frá þeim aldri eru börn sjálfstæð varðandi heilbrigðisþjónustu og þurfa ekki samþykki foreldra til að leita hennar né læknar eða aðrir heilbrigðisstarfsmenn til að veita hana. Þetta kemur fram í svari Kamillu Sigríðar Jósefsdóttur smitsjúkdómalæknis fyrir fyrirspurn konu sem undrast að hún þurfi ekki að samþykkja boðun 16 ára sonar síns í bólusetningu við Covid-19."
Ekkert af þessum bóluefnum" er með markaðsleyfi, heldur eru þau með skilyrt leyfi (neyðarleyfi). Látið ekki blekkjast. Um er að ræða tilraun með líftæknilyf (mRNA) sem aldrei hefur verið leyft á mannfólki fyrr. Og enginn veit um langtímaáhrif þeirra. Krakkarnir eru þannig að taka þátt í tilraun með nýtt lyf og þá gilda alls konar reglur um upplýst samþykki o.fl.
Að kalla þessa ólöglegu tilraun heilbrigðisþjónustu er út í hött og sýnir að stjórnvöld eru ekki með öllum mjalla. Foreldrar, verndið krakkana fyrir siðblindingjum sem augljóslega hafa náð tökum á íslenskum stjórnmálamönnum og sóttvarnaryfirvöldum, ekki bara á Íslandi heldur víðsvegar um heiminn. Þetta er ekki heilbrigðisþjónusta!!
Hópurinn Mín leið - mitt val hefur nú formlega stofnað félag. Ýmislegt stendur til í kærumálum o.fl.
Björn Þorri Viktorsson hæstaréttalögmaður með meiru (vann m.a. fyrsta málið fyrir Hæstarétti vegna ólöglegra gengistryggðra lána) er hér í viðtali við Arnþrúði á Útvarpi Sögu og fjallar um leyndina á bóluefnasamningum ríkisins o.fl.
Sláist í hópinn og stöndum saman gegn yfirgangi og frekju stjórnvalda og Kára Stefánssonar bóluefnasala og forstjóra ÍE/Amgen. Látið skilaboðin ganga.
Mæli líka með þessu viðtali við Guðmund Karl lækni sem segir að þessi bóluefni virki illa á ný afbrigði.
Uppfært: Ég flétti upp á reglunum um sjálfstæði.
- Við 16 ára aldur gerist þú sjálfstæður þjónustuþegi heilbrigðiskerfisins. Það þýðir að allir 16 ára og eldri geta leitað læknis án samþykkis eða vitundar foreldra og læknir er skyldugur til að upplýsa þig um ástand, meðferð og horfur þínar.
Með því að fá boð/kvaðningu um að taka þátt í lyfjarannsókn (rannsókn allra C19 bóluefna stendur til 2023) er barnið ekki að LEITA til læknis!
Og þetta myndi ég segja að ætti við:
Foreldrar þínir eiga rétt á og bera þá skyldu að taka ákvarðanir fyrir þína hönd í veigamiklum málum.
Heilsuvera er á ábyrgð Landæknis, Ölmu Möller, sem sjálf virðist ekki hafa mætt í bólusetningu með hennar árgangi 1961 sem boðaður var skv. þessari frétt þann 29. apríl. Það hefði að sjálfsögðu komið í fréttum hefði hún mætt og allir klappað!
Sjá reglur um sjálfræði hér.
![]() |
Þurfa ekki samþykki foreldra vegna bólusetningar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 2.5.2021 kl. 12:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.4.2021 | 15:07
Placebo?
,,Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur ekki fundið fyrir neinum aukaverkunum eftir að hann var bólusettur við kórónuveirunni með bóluefni AstraZeneca í gær.
Ég er hálfpartinn að vonast til þess að ég fái einhverjar aukaverkanir. Þá hef ég svona sönnun fyrir því að bóluefnið er að virka," sagði Þórólfur á upplýsingafundi almannavarna.
Ég hef ekki fundið fyrir neinu, enn sem komið er."
Ég sendi fyrirspurn á Lyfjastofnun fyrir nokkrum dögum til að spyrja hvort verið sé að nota lyfleysu líka þar sem efnin eru enn á rannsóknarstigi og verða til 2023. Hef ekki fengið svar, þeir kannski vita það ekki. Hér er mynd af ummælum sem maður skrifaði undir hjá Kára Stef. Hann mælist ekki með neitt mótefni eftir fyrri sprautuna af AZ. Hefði það ekki átt að vera eitthvað smávegis, í það minnsta?
Athyglisvert þetta með aukaverkannirnar; að það eigi að vera sönnun þess að efnið virki. Hvað með allar inflúensusprautur sem fólk hefur tekið í gegnum tíðina? Einhverjir verða lasnir, en langflestir finna ekki neitt. Virkaði þá efnið ekki ekki á þá sem fengu ekki aukaverkanir? Og hvað ef Þórólfur fær alls engar aukaverkanir, er hann þá kannski ekki að mynda neitt mótefni? Þannig var það með apana í rannsókninni, þeir veiktust allir, bólusettir og óbólusettir.
![]() |
Ég hef ekki fundið fyrir neinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.4.2021 | 17:17
Mix & Match aðferðin - sambland tveggja bóluefna!
Þeir sem eiga ekki að fá bóluefni AstraZeneca miðað við núverandi takmörkun á notkun þess, en fengu fyrri skammtinn áður en núverandi takmörkun var sett á, munu sennilega fá annað bóluefni í seinni skammtinum. Niðurstöður rannsókna á þessu liggja ekki fyrir en sóttvarnalæknir gerir ráð fyrir því að þetta muni gefa góða raun."
BBC segir frá því að þessi tilraun sé í gangi, blanda af tveimur bóluefnum en að fyrstu niðurstöður munu ekki liggja fyrir fyrr en í júlí. Þetta kallast mix&match (bland í poka!)
Varla ætlar sóttvarnarlæknir að fara gera þessa tilraun hér áður en niðustöður liggja fyrir?
Þess má geta að ég sendi erindi til umboðsmanns Alþingis og kvartaði fyrirfram undan þessum áformum.(Sóttvarnarlæknir sem fékk afrit af póstinum var búinn að nefna þetta í fjölmiðlum áður og ég hef fylgst með því sem menn eru að segja um þetta í útlöndum - þeir hafa mikinn áhuga á að gera þessa tilraun!). Sá hópur sem þetta myndi fá, eru þá mestmegnis yngri konur sem vinna á hjúkrunarheimilum, sjúkrahúsum og við heimahjúkrun.
Ef sóttvarnarlæknir ætlar að leyfa þetta og það áður en rannsóknir klárast, þá er augljóst að hann er ekki ekki með réttu ráði! Hann gerir ráð fyrir að þetta myndi gefa góða raun!
Í fyrsta lagi eru þetta lyf á tilraunastigi, öll sömul, og í öðru lagi ætlar hann að leyfa eitthvað algjörlega nýtt, að blanda saman tveimur ólíkum tegundum! Því ljóst er að þessar mix&match rannsóknir munu ekki klárast áður en stór hópur sem fékk AZ í febrúar og mars, ætti skv. fyrri áætlun að fá síðari skammtinn.
Hér kemur fram að þetta sé 13 mánaða rannsókn!
Rakst síðan á spurningu frá konu sem var að spyrja hvort ólettar konur sem fengju boð ætluðu sér í bólusetningu (sjá mynd neðar). Það var aldrei gerð nein tilraun á ófrískum konum með þessi efni. Er ekki allt í lagi?
Sóttvarnarlæknir og íslensk yfirvöld eru sem sagt að gera lyfjatilraun á barnshafandi konum sem t.d. er ráðlagt að drekka ekki áfengi eða neyta tóbaks á meðgöngu. En hey já, leyfum þeim að taka bóluefni á tilraunastigi sem aldrei hefur verið notað á mannfólki fyrr. Munum að þeir sem voru dæmdir í Nuremberg réttarhöldum voru þekktir læknar og vísindamenn. Já, sérfræðingar og fagfólk!
Hvað stendur í þessum leynilegu bóluefnasamningum ríkisins við lyfjaframleiðendur? Er búið að skuldbinda þjóðina í bólusetningu? Ég hef líka óskað eftir afriti af samningunum en fékk neitun og sendi kvörtun vegna þess til umboðsmanns líka.
![]() |
Fá sennilega annað bóluefni í seinni skammti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
27.4.2021 | 12:36
Astra Zeneca verndaði ekki apana sem tóku þátt í rannsókninni!
Astra Zeneca er bóluefni sem margir hafa heyrt um og sumir hálf hræðast þar á meðal ég, nú ætla ég að stíga inní óttann og láta sprauta mig í fyrramálið með opin faðminn (Bubbi)."
Vonandi verður allt í lagi með Bubba eftir að fá í sig simpansaveirubóluefnið! Merkilegt að fólk skuli vera til í að láta sprauta sig með ófullprófuðu efni sem það er hrætt við, gegn sjúkdómi sem flestum er skaðlaus. Skiljanlega er hann aðeins hræddur, þar sem engar langtímarannsóknir eru til og umræðan hefur verið neikvæð. Aftur á móti er líka töluvert mikið af tilkynntum aukaverkunum vegna hinna bóluefnanna. Til samanburðar er hér frétt um tilkynningar vegna svínaflensubólusetninga. Þær tölur eru langtum lægri en vegna Covid bóluefnanna.
Kári Stefánsson forstjóri ÍE/Amgen sem er í nánu samstarfi við Astra Zeneca, var í gær að hvetja mannskapinn til að fara í sprautu. Sá þessi ummæli undir færslunni hans. Ekkert mótefni mælist eftir sprautuna nokkrum vikum síðar. Fyrst að bóluefnin eru enn öll á rannsóknarstigi til ársins 2023, er kannski verið að nota lyfleysu líka?Hér er síðan grein úr tímaritinu Forbes um Oxford Astra
Zeneca og prófun á öpum þar sem vísindamaðurinn og fyrrum Harvard prófessor, William A. Haseltine, útskýrir að rannsóknargögnin styðji ekki þær upplýsingar sem vísindamenn sendu frá sér eftir rannsóknina.
Allir aparnir smituðust þegar þeir komust í snertingu við veiruna og enginn munur var á bólusettum og óbólusettum öpum. Ég má ekki vera að því að þýða yfir á íslensku en hér er hluti textans á ensku:
"Does the data support the claim?
Not really. All of the vaccinated monkeys treated with the Oxford vaccine became infected when challenged, as judged by recovery of virus genomic RNA from nasal secretions. There was no difference in the amount of viral RNA detected from this site in the vaccinated monkeys as compared to the unvaccinated animals. Which is to say, all vaccinated animals were infected. This observation is in marked contrast to the results reported from Sinovac trial. At the highest dose studied, no virus was recovered from vaccinated monkeys from the throat, lung, or rectum of the vaccinated animals."
Hér er öll greinin.
Það verður fróðlegt að sjá hvort bóluefnið sem inniheldur simpansaveiru (chimpanzee adenovirus) virki betur á mannfólkið en apana.
p.s. en mér skilst að það sé ekki rétt hjá Rússunum (sem vilja auðvitað selja sitt Spútnik) að þeir sem fái í sig simpansaveiruna verði (aftur) að öpum. Menn geta a.m.k. huggað sig við það. ;)
![]() |
Bubbi bólusettur á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 5.5.2021 kl. 12:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
-
aslaugas
-
agny
-
annaeinars
-
danna
-
agustkara
-
bookiceland
-
contact
-
einarborgari
-
rlingr
-
sagamli
-
helga-eldsto-art-cafe
-
bofs
-
sade
-
gusg
-
noldrarinn
-
hafthorb
-
hhbe
-
hlf
-
diva73
-
snjolfur
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
kreppan
-
jaj
-
islandsfengur
-
nonniblogg
-
nyja-testamentid
-
thjodarskutan
-
kristinnp
-
loncexter
-
marinogn
-
sighar
-
sigurduringi
-
sushanta
-
viggojorgens
-
vilhjalmurarnason
-
thorsteinnhelgi
-
valli57
-
tbs