Leita í fréttum mbl.is

Elbaz var fullbólusettur - lést af Covid?

alber„Tísku­hönnuður­inn Al­ber El­baz er lát­inn, 59 ára gam­all, eft­ir bar­áttu við Covid-19."

Hér kemur fram í frétt The times of Israel, að tískuhönnuðurinn hafi verið fullbólusettur.
"According to Israel’s Channel 12 news, Elbaz was infected with the South African COVID variant despite being fully vaccinated."

Sem sagt, hann smitaðist af suður-afríska afbriðginu, eftir að hafa veirð fullbólusettur og lést.


mbl.is Alber Elbaz látinn af völdum Covid-19
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En sú sem var 72 ára og lést strax á eftir Astra?

Sóttvarnarlæknir segir AstraZeneca vera öruggt fyrir eldri konur. En þetta kallar maður annars alvöru tilraun, fyrst yngri konur, ekki eldri. Síðan eldri konur, ekki yngri. Svo karlmenn...

Hér er svar frá Lyfajstofnun um aukaverkanir. Sú sem Lyfjastofnun kallar eldri manneskju var 72 ára og lést nánast strax eftir bóluestningun með Astra Zeneca. Hver er ástæðan talin vera? Síðan er ein 48 ára látin sem ekki hefur verið sagt frá:

Sæl Þórdís

 

Fyrst ber að nefna að þær tölur sem birtast á vefnum snúa að tilkynningum um grun um aukaverkun og ekki er víst að tilkynningarnar endurspegli raunverulegar aukaverkanir af bóluefnunum en það er metið í hverju tilfelli fyrir sig. Nánar í þeim fyrirvörum sem fram koma á vefnum um notkun tölulegu upplýsinganna sem þar birtast.

 

Comirnaty (BioNTech/Pfizer):

28 alvarlegar tilkynningar hafa borist.

  • 15 þeirra varða andlát. 14 andlát vörðuðu aldraða einstaklinga, 12 þeirra með staðfesta undirliggjandi sjúkdóma. Eitt andlátið varðaði einstakling sem ekki var aldraður en með marga undirliggjandi sjúkdóma.
  • Af hinum 13 þá varða 9 sjúkrahúsvist (þar af 2 lífshættulegt ástand).
  • Fjórar tilkynningar teljast klínískt mikilvægar og þar með flokkaðar sem alvarlegar*.

 

COVID-19 Vaccine Moderna:

5 alvarlegar tilkynningar hafa borist.

  • 4 tilkynningar varða sjúkrahúsvist.
  • Ein tilkynning telst klínískt mikilvæg og þar með flokkuð sem alvarleg*.

 

Vaxzevria (AstraZeneca):

15 alvarlegar tilkynningar hafa borist.

  • Ein tilkynning varðar andlát eldri einstaklings.
  • 11 tilkynningar varða sjúkrahúsvist (þar af 1 lífshættulegt ástand).
  • Þrjár tilkynningar teljast klínískt mikilvægar og þar með flokkaðar sem alvarlegar*.

 

*Tilkynningar sem metnar eru sem klínískt mikilvægar geta varðað ýmis einkenni, t.d. blóðtappa þar sem ekki kom til innlagnar á sjúkrahús.

 

Af öllum alvarlegu tilkynningunum vegna gruns um aukaverkun hafa alls borist 9 tilkynningar um blóðtappa í kjölfar bólusetningar gegn COVID-19; fimm fyrir Vaxzevria (AstraZeneca), þrjár fyrir Comirnaty (BioNTech/Pfizer) og ein fyrir bóluefni Moderna.

 

Í allri umfjöllun um tilkynningar vegna gruns um aukaverkun er mjög mikilvægt að fram komi að þegar tilkynningar berast Lyfjastofnun er ekki vitað hvort um orsakasamhengi milli bólusetningar og tilkynntra tilvika sé að ræða. Slíkt er metið í hverju tilfelli fyrir sig.

 

Kveðja,

 

 


mbl.is Möguleiki á að smitast stuttu eftir bólusetningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísetning áhalds undir húð - er það örflaga?

dailymailchipÞessa furðulegu grein er að finna í nýlega samþykktum sóttarvarnarlögum:

Inngrip: Götun eða skurður í húð eða ísetning áhalds eða framandi efnis í líkamann eða rannsókn á líkamsholi. Með inngripi er ekki átt við læknisrannsókn á eyra, nefi og munni, hitamælingu með eyrna-, munn- eða hörundshitamæli, eða hitamyndatöku, heilbrigðisskoðun, hlustun, ytri þreifingu, sjónuspeglun, töku þvag-, saur- eða munnvatnssýnis utan frá, mælingu blóðþrýstings utan frá eða hjartalínurit.

Einhverjir klóruðu sér í hausnum yfir þessu ákvæði. Hvaða áhald ætti mögulega að setja undir húðina? Sumir vildu meina að þetta gæti verið örflaga, eða microhip. Fór einhver umræða fram um þetta á Alþingi?

Hér ofar er mynd af tveimur fréttum með árs millibili. Sú fyrri er frá því í maí 2020 og segir að 44% repúblikana og 25% Bandaríkjamanna trúa þeirri samsæriskenningu að Bill Gates sé að notfæra sér Covid bólusetningar til að "chippa" mannskapinn, þ.e.s.a að koma fyrir örflögu í líkama fólks.

En eins og margir vita er milljarðamæringurinn Bill Gates einn aðalfjárfestir í Covid19 bóluefnaframleiðslsunni
 og jafnframt einn stærsti styrktaraðili WHO eða Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar sem er aðalráðgjafi Íslands og annarra ríkja heims í Covid faraldrinum. 

Seinni fréttin er frá því 12. apríl 2021 og segir frá því að vísindamenn í varnarmálastofnun Bandaríkjanna, Pentagon, hafi upplýst um örflögu sem sett er undir húðina og nemi Covid19 sýkingu í líkamanum áður en einkenni koma í ljós og fjarlægi veiruna með e.k.filteri úr blóðinu! Ég googlaði síðari fréttina og þá má sjá að fyrirsögninni hefur verið breytt (| .)

Í stað microchip, eða örflögu stendur nú gel sensor, eða e.k. gel-nemi.

Hér er mynd af fréttinni eftir uppfærslu. Því er næst að spyrja; hafa alþingismenn samþykkt lög sem heimila ísetningu örflögu í líkama Íslendinga? 


dailymailnyrri

 

 

 

 

 

 

 

p.s. setti fyrirspurn um þetta á Pírataspjallið, en Píratar státuðu sig af því að hafa náð að taka útgöngubann úr lögunum.

En þeir vildu ekki ræða þetta:
pírata


mbl.is 85 börn send í sóttkví vegna smitsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Herferð í banvænum heimsfaraldri - og mótmæli á Ítalíu!

auglysing,,Bresk stjórn­völd fara af stað með nýja her­ferð á morg­un þar sem fólk und­ir fimm­tugu er hvatt til að fara í bólu­setn­ingu gegn kór­ónu­veirunni.

Her­ferðin mun ná til sjón­varps, út­varps, sam­fé­lags­miðla og aug­lýs­inga­skilta þar sem fram kem­ur að „hver ein­asta bólu­setn­ing gef­ur okk­ur von."

Það gengur erfiðlega að fá Bretana til að taka erfðabreytta bóluefnið þrátt fyrir að þeir hafi átt að hafa farið illa út úr faraldrinum. Og þarf herferð til að fá þá í sprautu.

Dánartölur á Bretlandi voru reyndar ýktar, eflaust til að hræða fólk til hlýðni eins og þríeykið og stjórnvöld gera líka sbr. til dæmis falsfréttirnar með breska afbrigðið sem átti að senda börn á spítala.

Fréttin um röngu dánartölurnar kom ekki í miðlum hér heima sem segir okkur ýmislegt. Hér er önnur frétt frá því í nóvember sl. sem sagði frá því hvernig rangar tölur um spá hafi verið notaðar til að hræða fólk til hlýðni.

Í dag er svo frétt um að Boris Johnson hafi frestað notkun bóluefnapassa fyrir aðgang að börum o.fl. Þetta gerist daginn eftir stærstu mótmæli í London frá því Covid byrjaði. Ekki var sagt frá þessum merkisviðburði í íslenskum fjölmiðlum. 

Fjölmenn mótmæli voru einnig á Ítalíu í dag, heldur ekki í helstu fréttum. Sjá myndband. Og mótmæli í Ontario, Kanada þar sem tveir þingmenn voru sektaðir fyrir að taka þátt.


mbl.is Bretar undir fimmtugu fari í bólusetningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lygin um bóluefnin - ekki fyrir viðkvæma!

HelgiHelgi Örn Viggósson vinur minn sem er efni í frábæran blaðamann, birti þessa fínu samantekt á facebook, Lygin um bóluefnin, og er hér neðar.

Þess má geta að Guðrún Bergmann var í löngu viðtali um bóluefnin fyrir þó nokkru á sjónvarpsstöðinni Hringbraut. Hún hefur kynnt sér  efnin mjög vel. Þátturinn átti að vera á dagskrá ca. 11. apríl. Augljóslega hefur hann verið stoppaður af eða settur í geymslu til betri tíma eða þar til flestir hafa látið sprauta sig með erfðabreyttu lyftæknilyfi sem þeir hafa ekki hugmynd um hver langtímaáhrifin verða á. Þátturinn hefði eflaust fengið einhverja til að hugsa sig um og dregið eitthvað úr straumnum í Laugardagshöllina.bergmann

En gefum Helga orðið sem er á efri  myndinni. Myndin hér til vinstri er tekin í upptökunni með Guðrúnu.


„Rakst á áhugaverða ritrýnda grein sem kom út í mars sl. í Medicina (læknisfræðirit stofnað 1920), eftir Dr. Ronald B Brown, hjá Waterloo háskóla í Kanada, þar sem hann fer yfir hvernig lyfjafyrirtækin með aðstoð fjölmiðla hagræddu sannleikanum hvað vernd "bóluefnanna" varðar með því að gefa upp hlutfallslega áhættuminnkun í stað raunáhættuminnkunar, eins og leiðbeiningar FDA segja til um:

“Provide absolute risks, not just relative risks. Patients are unduly influenced when risk information is presented using a relative risk approach; this can result in suboptimal decisions. Thus, an absolute risk format should be used.”
Hlutfallslega áhættuminnkunin segir okkur einfaldlega ekkert um hversu mikla vernd efnin gefa okkur og ætti því ekki að gefa upp þegar verið er að kynna niðurstöður fyrir notendur. Það sem verra var er að FDA gerði engar athugasemdir við þessa blekkjandi kynningu, hvorki eftir að fréttatilkynningarnar komu út né í eigin skjölum og fór þannig á svig við eigin leiðbeiningar, sem vekur spurningu um í hverra þágu FDA starfar.

Varla þarf að minnast á Facebook, Google, Twitter o.fl., sem aldrei ritskoða (eyða eða fakt-tékka) rangar upplýsingar frá lyfjafyrirtækjunum og þeirra tindátum, en gera það hins vegar miskunnarlaust þegar heiðarlegir vísindamenn reyna að afhjúpa ósannindin.

Ég minntist aðeins á þetta í pistli í lok janúar sl., þar sem ég gerði það að leik mínum að fakt-tékka Kára Stefánsson, eftir að vera búinn að fá nóg af því að hlusta á bullið í honum um bóluefnin, sem hann m.a.s. hefur líkt við nammi. Þar sagði ég um þetta eftirfarandi:
"Þetta var of auðvelt, skoðum þetta því aðeins nánar, sérstaklega prósentutöluna en hún er nýstárleg þar sem þarna er um að ræða hlutfallslega áhættuminnkun, sem segir í raun ekki neitt. Tökum sem dæmi ef nýtt lyf lækkar tíðni hjartaáfalla í þýði úr 2% m.v. lyfleysu í 1%, þá er raun áhættuminnkun (absolute risk reduction) 2% - 1% = 1%, en hlutfallsleg lækkun 50% (100*(1 - (1/2))). Það væri lygi að segja að lyfið lækkaði áhættu mína um 50%, sama máli gegnir um áróðurinn sem dynur á okkur í meginstraumsmiðlunum um bóluefnin.

Pfizer sendi reyndar frá sér uppfærslu 9 dögum síðar og þá var þessi hlutfallstala komin upp í 95% (100(1 – (0.044/0.88)), Vandamálið við þessa tölu er að þýðið sem þessi tala byggir á er aðeins 0,4% (170, 8 í bóluefnahóp, 162 í lyfleysu) af öllum þátttakendum (44.000 - en 36.629 i virknis tölfræðinni) rannsóknarinnar, sem er svo lágt hlutfall að öll tölfræði verður lítt eða ekkert marktæk. Byggt á þessum tölum, er raun (absolute) áhættu minnkunin aðeins 0,84% ((0.88-0.044)%), sem náttúrulega er ekki spennandi tala og hefði ekki haft góð áhrif á hlutabréfaverðið..." [1]

Grein Dr. Brown, sem er mjög auðlesin og fræðandi, ætti að opna augu flestra fyrir því hvernig röngum upplýsingum er dælt yfir okkur, hvort sem það er til að halda okkur hræddum við veiruna og öllum nýju afbrigðunum eða dásama tilraunaefnin sem á að reyna að sprauta alla heimsbyggðina með. M.v. gögnin úr fasa 3 tilraunum Pfizer og Moderna, er raun áhættuminnkunin annars vegar 0,7% og hins vegar 1,1%. Í niðurlagi greinarinnar segir:
A critical appraisal of phase III clinical trial data for the Pfizer/BioNTech vaccine BNT162b2 and Moderna vaccine mRNA-1273 shows that absolute risk reduction measures are very much lower than the reported relative risk reduction measures. Yet, the manufacturers failed to report absolute risk reduction measures in publicly released documents. As well, the U.S FDA Advisory Committee (VRBPAC) did not follow FDA published guidelines for communicating risks and benefits to the public, and the committee failed to report absolute risk reduction measures in authorizing the BNT162b2 and mRNA-1273 vaccines for emergency use. Such examples of outcome reporting bias mislead and distort the public’s interpretation of COVID-19 mRNA vaccine efficacy and violate the ethical and legal obligations of informed consent.

Greinina, sem núna er sú mest lesna hjá Medicina, má finna hér:
TrialSite News tók nýlega viðtal við Dr. Brown um efni greinarinnar, mæli eindregið með áhorfi:
Heimildaskrá:
[2] Outcome Reporting Bias in COVID-19 mRNA Vaccine Clinical Trials - https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC7996517/...
[3] Viðtal við Dr. Ron Brown um blekkingarnar - https://youtu.be/Jkwn5I8tLmE"

Fjölmenn mótmæli í London - fjölmiðlar þegja!

mómtæliÞað eru fjölmenn mótmæli í London - as we speak - þó að fjölmiðlar hér þegi. Við munum ekki þegja, hættið að ljúga að okkur og loka okkur inni!" Sjá myndband frá London og hér er fréttin í Daily Mail sem  segir líka frá því að fjölmiðlakonan Beverly Turner hafi slegist í hóp mótmælenda.

Mikið hlýtur að vera leiðinlegt að vera blaðamaður í dag og mega ekki segja allar fréttir, búnir að lofa að styðja lygasöguþráðinn frá Big Pharma, Big Tech, World Economic Forum, John Hopkins Center o.fl. En þið getið alltaf kíkt á Moggabloggið mitt, reyni að setja hér inn daglega eitthvað sem fjölmiðlar mega ekki birta.

Hér segir Telegraph líka frá. Og hér er flott samantekt með fjölda myndbanda.

Ef faraldurinn væri eins hættulegur og yfirvöld heims segja, haldið þið að fólk myndi þá fjölmenna og mótmæla? Nei, það stemmir ekki. Þá heldur maður sig heima af hræðslu við að veikjast eða deyja!

Hér er annað myndband frá London, Bob Marley mættur!


mbl.is Langflest tengd hópsmiti í Jörfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ákall til Breta að fara í sprautu!

auglýsingBretland var það land í Evrópu sem sagt var að ætti í mestum vanda með farsóttina. Önnur ríki notuðu Bretland oft sem dæmi til réttlætingar á hörðum reglum og útgöngubanni. Við sáum fjölda þannig frétta í íslenskum fjölmiðlum. Við sáum aftur á móti ekki frétt þar sem sagt var frá því að dánartölurnar hafi verið ýktar, sjá hér. Hvers vegna ekki?

Það hlýtur því að skjóta skökku við að reka þurfi Bretana í sprautu gegn þessum stórhættulega heimsfaraldri. Ekki vilja þeir deyja eða drepa aðra! Hvers vegna fara ekki fleiri viljugir í sprautuna? Er skýringin kannski sú að Bretar upplifa annan raunveruleika heldur en fjölmiðlar og yfirvöld sýna? Svona eins og hér heima, þar sem verið er að stinga fólki í sóttvarnarfangelsi, en ekki nokkur hræða hefur látist af covid í marga mánuði og varla nokkur maður á spítala í marga mánuði. Og börnin lítið eða ekkert lasin af breska afbrigðinu! Hverjir eru að flytja okkur falsfréttir og hverjir ekki?

Og sjáið þessi nýju gervivísindi frá NHS á Bretlandi; miklu öruggara að æfa ónæmiskerfið í að verja sig með bóluefnum heldur en að sýkjast náttúrulega. Það er nefnilega þannig í dag, að þeir sem segjast treysta eigin ónæmiskerfi eiga það á hættu að vera kallað samsærisfólk. Fólk sem efast um að ungt og hraust fólk, hvað þá börn eigi að fá bóluefni á tilraunastigi, er ráðlagt að leita sér hjálpar, já bara tékka sig inn á geðveikraspítala og sturta í sig valíum! Dómarar sem fara að lögum, eru einmanna vesalingar skv. forstjóra erlends fyrirtækis, samstarfsaðila AstraZeneca.

Spáið í þennan nýja raunveruleika, þvílík þvæla og úrkynjun og brenglun á vísindum. WHO hefur nýlega breytt skilgreiningu sinni á hjarðónæmi. Fyrir ekki löngu var hægt að ná fram hjarðónæmi bæði með bólusetningu og náttúrulegri sýkingu. En núna, aðeins með bóluefnum (og það bóluefnum sem þarf stöðugt að endurnýja fyrir nýjum afbrigðum),sjá mynd neðar. 
Og ef maður fylgist með Bretunum á twitter sér maður alls konar svona fréttir, já allir veikir eða nei ananrs Covid deildin tóm.
NHSherdimmunitywho


mbl.is Noregur staðfestir bóluefnalánið til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt þrefalt afbrigði á Indlandi fundið!

triplemutantFrelsið er ekki alveg handan við hornið og Laugardagshöllin verður líklega bóluefnamiðstöð næstu árin og hótel landsins nýtt sem fangageymslur. Fyrir ca. þremur vikum var sagt frá tvöföldu afbrigði sem fannst á Indlandi sem nýlega hefur líka fundist á Bretlandi. Nú er komið nýtt þrefalt indverskt afbrigði, hvorki meira né minna, sem bóluefnið sem verið er að sprauta í landsmenn þessa dagana virkar líklega ekki gegn og því þarf nýtt fyrir þetta þrefalda í einhverjar vikur þar til fjórfalda afbrigðið finnst....

Þúsundir landsmanna bíða með öðrum orðum í röðum eftir að fá bóluefni sem er þegar möguelga gagnslaust! 

Á sama tíma og tvöföld og þreföld afbrigði spretta fram og smittölur í hæstu hæðum, fjölmenna Indverjar enn til að baða sig o.fl. Bara eins og enginn heimsfaraldur sé í gangi! Og þrátt fyrir fáa túrista á Goa ströndinni, þá eru Indverjar þar í fríum, skv. vinum mínum sem þar starfa.
 

mbl.is „Þeir geta hæglega borið veiruna áfram“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég sakna inflúensunnar!

sameEkki er vitað til þess að hin árlega inflúensa hafi áður horfið, og það um allan heim nema kannski í Kína þar sem Covid-19 er horfið. Við tók farsótt sem er með sömu einkenni og forveri hennar, fyrir utan kannski þetta með lyktar-og bragðskynið (nánar um það neðar). Það kom alltaf í fréttum þegar flensan kom til landsins. Maður las fréttina og fletti svo í rólegheitum yfir á næstu blaðsíðu eða skrollaði niður, eftir að internetið kom. Þessi frétt um flensu kom til dæmis í Vikublaðinu árið 2007: 

Nokkrar fjölskyldur á Akureyri greindust með inflúensu um helgina. Þar með er þessi árvissi faraldur staðfestur og búast má við einhverjum veikindum á næstu vikum....Fólk verður almennt mun veikara af inflúensu en kvefpestum og veikindin taka lengri tíma. Heilu fjölskyldurnar eða bekkjardeildirnar leggjast í einu...Ekki er nauðsynlegt að leita til læknis til staðfestingar á inflúensusmiti...

flucovid

Maður tók stundum eftir því í vinnunni að Magga á næsta borði eða Guðmundur væru hálfræfilsleg, kannski að fá sér heitt te inni á kaffistofu. Svo mættu þau jafnvel ekki til vinnu næstu daga. Komu svo aftur, hálfdrusluleg ennþá, með trefil um hálsinn eða eitthvað. Mæður voru líka oft frá vinnu vegna barnanna. Síðan hurfu aðrir starfsmenn í einhverja daga og svona gekk þetta fyrir sig. Þegar fólkið mætti aftur til vinnu spurðu samstarfsmenn stundum: Ertu búinn að jafna þig?" Og svo var farið að ræða eitthvað annað. 

Inflúensan er hættulegur sjúkdómur og getur dregið þá gömlu og veiku til dauða og sumir glíma við langvarandi eftirköst.

En þetta var aldrei þannig að maður hrykki í kút við fréttir af komu flensunnar eða við að sjá samstarfsmenn sína eitthvað slappa eða hóstandi. Ekki krafðist maður þess heldur að þeir hypjuðu sig heim eða í sýnatöku. Og aldrei var það þannig að allir á vinnustaðnum væru sendir heim eða látnir leita til heilsugæslunnar í rannsókn til að kanna hvort þeir væru kannski með inflúensuna án þess að vita af því, og þá hvaða afbrigði. (Spáið í það, maður hefur stundum fengið flensu en ekki haft hugmynd um hvers lenskt afbrigðið væri). Og aldrei reyndi maður að rekja sína inflúensu til ákveðins aðila. Fólk var einfaldlega ekki hrætt við þennan árlega faraldur, hann var bara hluti af lífinu. Enginn var með grímu fyrir andliti eða spritt á borðum. Og fólk sat þétt saman á kaffistofunni, líka þeir sem voru eitthvað slappir. Þeir voru ekki einu sinni sendir yfir á næsta borð. Það voru heldur ekki daglegar fréttir af fjölda smita eða viðtöl við veikt fólk. Landið var opið og fólk ferðaðist á milli staða, þeir sem voru veikir héldu sig heima, hinir voru í vinnu eða skólanum.

En þetta eru breyttir tíma, komin ný pest og flensan horfin, eða a.m.k. hefur ekkert flensutilfelli greinst frá því í apríl 2020 skv. landlæknisembættinu. Einkennin af Covid-19 eru þó hin sömu (hiti, beinverkir, hósti, slappleiki, stundum kvef o.s.frv.) og læknar eiga oft í erfiðleikum með að greina á milli þeirra. En það er þetta með lyktar-og bragðskynið sem virðist öðruvísi. En þekkist þó samt sem áður með inflúensuna.

Ég fann aftur á móti frétt um rannsókn eða könnun í National Geographic þar sem fram kemur að 60% þeirra sem höfðu greinst Covid jákvæðir hefðu misst lyktar-og bragðskyn en jafnframt voru 18% þeirra sem höfðu reynst Covid neikvæðir sem geindu frá því sama. Þetta er eitthvað sem er áhugavert að skoða og fylgjast með frekar.

En ég sakna flensunnar, það var eitthvað svo normalt að vera veikur og hressast svo, sjá aðra veikjast og hressast. Enginn forstjóri erlends fyrirtækis að hræða líftóruna úr fólki, krefjast þess að láta loka landinu og loka fólk inni, annars gæti maður drepist. Engar dánartilkynningar eða sjúkraflutningar vegna inflúensu þrátt fyrir að 10-20 manns deyi árlega af völdum hennar. Fólk dó úr elli. Og aldrei heyrði maður að flensutölur hefðu verið ýktar, það var frekar að læknar reyndu að róa mannskapinn.

 

mbl.is 21 smit innanlands – þrjú utan sóttkvíar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fær Ísland greitt per sjúkling eins og t.d. Spánn?

spánnHvaða ríkisstjórn er tilbúin að setja efnahagskerfi sitt á hliðina vegna sjúkdóms sem aðallega dregur til dauða þá gömlu og veiku, sjúkdóms sem hefur leyst hina árlegu inflúensu af hólmi? Síðan hvenær er ríkisstjórnum svo annt um gamla fólkið! Það hlýtur að vera einhver fjárhagslegur hvati. Annað getur bara ekki verið. Erum við að fá sambærilegar greiðslur frá ESB sbr. myndina?  Við erum a.m.k. bundin bandalaginu með bóluefnakaup. Það verður áhugavert að sjá leynilegu bóluefnasamningana þegar þeir verða gerðir opinberir.

Mikið hefur verið deilt um þetta t.d. í Bandaríkjunum í byrjun faraldurs, þar sem spítalar fengu margfalt greitt fyrir C19 sjúklinga (ekki skrítið því að flensan sé horfin), minna höfum við heyrt um þetta hvað Evrópu varðar. Ef við förum á vef stjórnarráðsins á Spáni má sjá skjalið hér ofar sem útlistar greiðslum til spítala fyrir C19 sjúklinga, €43.400 ef þeim tókst að koma þeim á gjörgæslu, €5000 fyrir >72 klst, €93 fyrir hvert PCR próf o.s.frv.
 
Hér er komið rannsóknarverkefni fyrir blaðamenn og þá á ég ekki við þá sem starfa á helstu fjölmiðlum enda fá þeir fjölmiðlar ríkisstyrki og segja ekki einu sinn frá nýlegri frétt í Telgraph sem sýnir að C19 dánartölur á Bretlandi voru ýktar um fjórðung. Það sama er að segja um CDC í Bandaríkjunum. Kannski var eitthvað til í því sem forseti Belarus hélt fram, að honum hafi verið boðin vegleg fjárhæð til að koma á hörðum sóttvarnaraðgerðum. Hér er líka grein Guðrúnar Bergmann sem segir frá falsi og mútugreiðslum tengdum C19.
CDC

 


mbl.is Yfir 20 smit í gær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband