Leita í fréttum mbl.is

Herferð í banvænum heimsfaraldri - og mótmæli á Ítalíu!

auglysing,,Bresk stjórn­völd fara af stað með nýja her­ferð á morg­un þar sem fólk und­ir fimm­tugu er hvatt til að fara í bólu­setn­ingu gegn kór­ónu­veirunni.

Her­ferðin mun ná til sjón­varps, út­varps, sam­fé­lags­miðla og aug­lýs­inga­skilta þar sem fram kem­ur að „hver ein­asta bólu­setn­ing gef­ur okk­ur von."

Það gengur erfiðlega að fá Bretana til að taka erfðabreytta bóluefnið þrátt fyrir að þeir hafi átt að hafa farið illa út úr faraldrinum. Og þarf herferð til að fá þá í sprautu.

Dánartölur á Bretlandi voru reyndar ýktar, eflaust til að hræða fólk til hlýðni eins og þríeykið og stjórnvöld gera líka sbr. til dæmis falsfréttirnar með breska afbrigðið sem átti að senda börn á spítala.

Fréttin um röngu dánartölurnar kom ekki í miðlum hér heima sem segir okkur ýmislegt. Hér er önnur frétt frá því í nóvember sl. sem sagði frá því hvernig rangar tölur um spá hafi verið notaðar til að hræða fólk til hlýðni.

Í dag er svo frétt um að Boris Johnson hafi frestað notkun bóluefnapassa fyrir aðgang að börum o.fl. Þetta gerist daginn eftir stærstu mótmæli í London frá því Covid byrjaði. Ekki var sagt frá þessum merkisviðburði í íslenskum fjölmiðlum. 

Fjölmenn mótmæli voru einnig á Ítalíu í dag, heldur ekki í helstu fréttum. Sjá myndband. Og mótmæli í Ontario, Kanada þar sem tveir þingmenn voru sektaðir fyrir að taka þátt.


mbl.is Bretar undir fimmtugu fari í bólusetningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband