Leita í fréttum mbl.is

Þarf að sannfæra Bandaríkjamenn - þeir sem fóru svo illa út úr faraldrinum?

cdcrate,,Í frétt frétta­veit­unn­ar AP seg­ir að stjórn­völd­um í Banda­ríkj­un­um bíði nú það verk­efni að sann­færa þann hluta þjóðar­inn­ar sem er síður áfjáður í að láta bólu­setja sig. Nokk­ur mun­ur er á bólu­setn­ing­ar­hlut­föll­um eft­ir ríkj­um."

Þetta er umhugsunarvert. Í landi sem á að hafa farið hræðilega illa í heimsfaraldri þarf að sannfæra fólk að fara í bólusetningu gegn sjúkdómnum. "Let that sink in."

Eða var þessi háa tala kannski lygi? Sjá hér.

Fram kom í seinni fréttatíma rúv sl. þriðjudagskvöld að aðeins 6% Rússa væru bólusettir og að líkleg ástæða væri lítill hvati þar sem lítið hefði verið um lokanir og sóttvarnaraðgerðir. "Let that also sink in." Er verið að loka fólk inni og takmarka frelsi þess og líf til að fá það til að taka bóluefni á tilraunastigi?

Er sjúkdómurinn eitthvað minna hættulegur í Rússlandi en í Bretlandi, Bandaríkjunum og víðar?

Hér heima þarf engan eða fáa að sannfæra. Sóttvarnarlæknir, landlæknir og borgarstjóri segjast ekki vilja, þrátt fyrir boð, fara strax í bólusetningu. Og fólk æpir yfir sig af hrifningu; „þið eruð svo frábært fordæmi." Talandi um sértrúarsöfnuð! Læknar vilja fæstir taka tilraunalyf fyrir sjúkdómi sem yfirgnæfandi líkur eru á að lifa af. Og síðan eru þeir ekkert sérstaklega hræddir við veikina, annars hefði þetta fólk drifið sig í Höllina við fyrsta útkall. Það var nóg til af efni og slatti fór til spillis daginn sem heilbrigðisstarfsfólk átti að mæta.

Look at what they do not what they say...


mbl.is Helmingur Bandaríkjamanna fengið bólusetningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ragga nagli og sóttvarnirnar - ,,af misjöfnu þrífast börnin best?"

maskme„Kórónaveiran fer greinilega ekki í manngreinarálit og tók sér bólfestu í Naglanum sem hefur státað sig gegnum tíðina af að vera annálað hreystimenni sem fær varla hor í nös,“ segir Ragga nagli á Facebook síðu sinni.Ragga segir að þrátt fyrir grímunotkun, óhóflegan handþvott, stöðuga sprittun, tveggja metra reglu, olnbogaskot og félagslega einangrun hafi henni samt tekist að næla sér í Covid. Hún sé nú að takast á við höfuðverk, háan hita, beinverki og slappleika."

Ég þekki ekki þessa konu en fannst áhugavert það sem hún segir um nánast manískar sóttvarnir. Þetta barst í tal meðal félaga minna í gær, þar sem við sátum þétt saman, grímu-og sprittlaus og höfum haft þann háttinn á síðustu ca. 10 eða 15 laugardaga. Um er að ræða hóp fólks sem á einn eða annan hátt tengist viðspyrnu öfgafullra sóttvarnaraðgerða stjórnvalda. Innsti kjarni er ca. 100 manns. Það sem er áhugavert er að ekkert okkar virðist hafa fengið covid, að einum undanskildum sem hafði víst fengið veiruna en ekki komist að því fyrr en síðar þegar hann fór í mótefnamælingu. Hann sagði að einkennin hefðu verið væg. Maður í eldri kantinum sem hresstist fljótt.

Spurning hvort við séum komin með mótefni án þess að vita, því við eigum það flest sameiginlegt að hunsa þessar aðgerðir eftir fremsta megni. Teljum það einfaldlega varasamt að hlýða þessum fíflagangi stjórnvalda sem ganga lengra og lengra því nær sem við komumst upphaflega markmiðinu, að verja gamla fólkið. Sem var augljóslega bara blekking! Það eru komin ný markmið; veirulaust samfélag og hjarðónæmi sem aðeins er hægt að ná með bólusetningum, segir WHO núna. Áður var skilgreiningin sú, að einnig væri hægt að ná hjarðónæmi með náttúrulegri sýkingu. Þau breytast ört vísindin þessa dagana sbr. þetta með Þórólf og grímurnar

Eða, erum við kannski betur varin fyrst við höfum ekki vanið okkur á að blokka öndunarveginn með bréfi eða tuskum, baða okkur upp úr spritti (ónæmiskerfið þarf nefnilega bakteríur og vírusa til að haldast sterkt) og forðast annað fólk eins og heitan eldinn, út af sjúkdómi sem virðist einna helst draga til dauða þá sem eru þegar við grafarbakkann.

Þetta gæti a.m.k. verið áhugavert rannsóknarefni. Væri hægt að mæla hópinn og sjá hvort hann sé kominn með svokallað T-frumu ónæmi eða finna út hvers vegna hann veikist síður af þessum bráðsmitandi sjúkdómi?

Fólkið í hópnum á það líka sameiginlegt að vilja ekki sjá tilraunabóluefnið gegn covid og kannski getur vísindasamfélagið á einhvern hátt nýtt sér þennan hóp til rannsókna í framtíðinni. Því hefur til dæmis verið haldið fram að þeir sem taki inn bóluefnið verði líklegri til að veikjast frekar í næstu pestum. Það væri a.m.k. hægt að nota hópinn í einhverskonar samanburðarrannsókn.  



mbl.is Ragga nagli með Covid: „Krossum fingur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"They didn´t isolate the virus"

nigeria„Veir­an er úti í sam­fé­lag­inu og get­ur skotið upp koll­in­um þegar minnst var­ir (sóttvarnarlæknir)."

Það er mikið talað um að bóluefnin virki kannski ekki á hitt og þetta afbrigði, t.d. þetta indverska sem nú hefur komið til Englands?

Og hér má lesa að bólusettir eru að veikjast eftir sem áður. Síðan þarf líklega að taka þriðju sprautuna...!

Þessi opinberi starfsmaður í Kína segir: "they didn´t isolate the virus" (þeir hafa ekki einangrað veiruna).

Merkilegt, og svo er inflúensan horfin.

Hljómar eins og eitthvað Nígeríusvindl. Er þessi á myndinni nokkuð forstjóri Pfizer? Sá sem seldi hlutabréfin sín í fyrirtækinu á réttum tíma?


mbl.is Áminning fyrir helgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skaðabótamál hafin í Danmörku - 37 umsóknir hafa borist danska ríkinu

governmt37 umsóknir um skaðabætur vegna AstraZeneca og Pfizer hafa borist danska ríkinu skv. þessari frétt.

Lyfjafyrirtækin þurfa engar bætur að greiða, þau eru stikkfrí. Ríki heims taka á sig tjónið sem einnig þurftu að greiða fyrir tilraunalyfin fyrirfram, burt séð frá því hvort þau verði notuð eða fari í ruslið! Hvenær byrjar ballið" hér heima? A.m.k. tveir látnir, sem ekki voru við grafarbakkann, vegna Astra Zeneca, ein rúmlega sjötug, önnur tæplega fimmtug. Nei, ekki komið í fjölmiðlum. (Það má vera að sú síðarnefnda hafi fengið annað bóluefni en AstraZeneca en dauðsfallið tengist a.m.k. Covid bólusetningu).

Einkavæða gróðann, almannavæða tapið...

Hafið þið annars fylgst með lögmanninum þýska Reiner Fuellmich og næstu Nuremberg réttarhöldunum?


mbl.is Mæla gegn AstraZeneca vegna alvarlegra aukaverkana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dauðsföll ranglega skráð 25% hærri í Bretlandi - lygin að koma fram!

borisjEin helsta fréttin á twitter í gærkvöldi og í dag er frétt Telegraph sem segir að 25% skráðra Covid dauðsfalla á Bretlandi voru ekki vegna Covid. Þetta þýðir að dauðatölurnar frá Bretlandi sem meðal annars hafa verið notaðar til að hræða mannskapinn hér á landi hafa verið ýktar um fjórðung, eða einhverja tugi þúsunda! Fjölmiðlakonur og menn hér heima eru örugglega búin að sjá fréttina en verða að halda kjafti því annars gæti fólk farið að spyrja sig hvað annað er hugsanlega rangt í sambandi við fréttaflutning hinna svokölluðu áreiðanlegu fjölmiðla sem hafa einnig fengið það hlutverk að leiðrétta falsfréttir" eins og ég hef til dæmis verið að birta hér á bloggi mínu. Getur verið að þegar allt kemur til alls að hinir áreiðanlegu" meginstraumsfjölmiðlar séu að flytja falsfréttir og taka þátt í að ýkja hættuna af faraldrinum? Hvers vegna kemur þessi merkilega Telegraph frétt ekki hér heima?

Hvað með „breska" afbrigðið og börnin? Sóttvarnarlæknir, fjölmiðlar og forsætisráðherra hafa sagt okkur að það leggist þyngra á börn. Hvar eru veiku börnin?
Barnasmitsjúkdómalæknirinn Valtýr S. Thors hefur reyndar þegar sagt að hættan sé ekki meiri. Og Jón Viðar Einarsson læknir tók að sér að rýna í tölur frá Noregi sem áttu að sýna hættuna af breska afbrigðinu skv. sóttvarnarlækni. Það var tóm lygi, sjá hér. Hvers vegna kemur það ekki í fréttum? Jón Viðar er læknir, sérfræðingur og vísindamaður frá Harvard!

Þetta er reyndar ekki eina lygin sem Telegraph hefur sagt frá. Hér er önnur frá því í nóvember sl. þar sem segir að ríkisstjórn Bretlands hafi notað falskar tölur til að réttlæta hertar reglur og útgöngubann. 

Sambærileg frétt var frá Bandaríkjunum sem sýnir að CDC (Center for Disease Control), sjá mynd neðar, hafi hljóðlátlega lækkað dánartölur vegna Covid.

Hér heima hafa dánarorsakir fyrir 2020 ekki verið birtar, ekki sjálfsvígstölur og ekki heldur inflúensutölur. Einu tölurnar sem eru alltaf up-to-date eru covid tölurnar. Allt sundurgreint, sundurliðað, með myndum og gröfum! En sjáið í samanburði tölur og upplýsingar um aukaverkanir af Covid bólusetningum! Eruð þið einhverju nær? Hverjar eru allar þessar aukaverkanir? cdc2Nei einmitt, það kemur ekki fram. Enda kemur ykkur það ekki við. Haldið áfram að rýna í tölur um smit á landamærum og hversu margir eru í sóttkví vegna faraldurs sem hefur verið stórlega ýktur, allt frá upphafi, sbr. nýjustu fréttir frá Bretlandi.

CDC


Heilbrigðisráðuneyti Þýskalands í vanda - dæmi um góðan blaðamann!

lyingÞetta viðtal er þýtt af Guðrúnu Bergmann og er dæmi um góðan blaðamann. Getið þið ímyndað ykkur ef þríeykið fengi svona spurningar í beinni á almannavarnafundi? En beittustu spurningarnar þar koma auðvitað frá Birni Inga eða þannig!

 

HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTI Í VANDA

Það virðast fleiri heilbrigðisráðuneyti en okkar vera í vanda með að greina frá því á hvaða rökum lokanir og aðrar takmarkanir á ferðafrelsi fólks eru byggðar. Talsmaður þýska heilbrigðisráðuneytisins [i], Oliver Ewald, lenti í klemmu þegar hann fékk spurningu frá blaðamanni sem spurði hann að því á hvaða vísindum lokanirnar væru byggðar.

Um er að ræða sjálfstætt starfandi blaðamann að nafni Boris Reitschuster [ii], sem virðist fylgja starfi sínu vel eftir, en fréttina um þetta mál er aðfinna á vefmiðlinum notrickzone.com [iii] ogþetta þýðing á henni.

Eins og staðan er í dag er þýska stjórnin að skoða hertari lokunaraðgerðir. Frelsi hefur því verið tekið af dagskrá um óákveðinn tíma á meginlandi Evrópu – líkt og hér.

EKKI EIN RANNSÓKN

Á blaðamannafundi sem haldinn var þann 9. apríl síðastliðinn spurði Reitschuster talsmann þýska heilbrigðisráðuneytisins, Oliver Ewald, hvort hann gæti vísað í eina rannsókn sem sýndi fram á að lokanir skili árangri í að hefta úrbreiðslu farsóttar. Hér á eftir fara samskipti þeirra:

Reitschuster: „Herra Ewald, blaðamaður hjá WZ skrifaði í fréttagrein að þýska stjórnin hefði engar sannar fyrir áhrifum lokana. Spurning mín er því: Hvaða vísindalegu rannsóknir hafið þið? Takk fyrir.“    

Ewald reynir að víkja sér undan þessari eldfimu spurningu.

„Herra Reitschuster, þú veist að það er grundvallarregla, að við metum ekki athugasemdir blaðamanna og ég mun því halda mig við hana.“

Reitschuster neitar að taka við þessari skýringu.

„Það er smá misskilningur herra Ewald. Ég kom bara með tilvitnun og fylgdi henni svo eftir með sér spurningu. Sú spurning hefur ekkert að gera með tilvitnun mína. Ég skal með glöðu geði endurtaka spurningu mína; hvaða vísindalegu rannsóknir…“

Myndatexti: „Hvernig gat fólk leyft þessu að ganga svona langt?“

Áður en Reitschuster nær að ljúka máli sínu, grípur Ewald sem greinilega er pirraður fram í fyrir honum:

„Þegar þú lest eina setningu úr þessari tilvitnun hér og biður mig um að meta hana, án þess að setja hana í samhengi við nokkuð, get ég engu svarað.“

Reitschuster neitar að gefast upp og þrýstir á svar við þessari einföldu spurningu:

„Í engu samhengi við setninguna, spyr ég þig í þriðja sinn, hvaða vísindalegu rannsóknir hefur þýska stjórnin? Takk fyrir.“

Við vitum öll að það eru engar rannsóknir til sem styðja við lokanir, svo Ewald talsmaður heilbrigðisráðuneytisins þýska er því komin í klípu. Þögnin sem fylgir í nokkrar sekúndur er svo mikil að það má heyra saumnál detta. Að lokum svarar Ewald, sem lítur nú út eins og hann sé að springa:

„Ég hef sagt það sem ég hef um það að segja.“

Reischuster: „Nákvæmlega ekkert.“

Þessi viðbrögð koma frá þýsku ríkisstjórninni, sem líkt og svo margar þjóðir – þar með talið Ísland – hafa byggt lokanir sínar á – engu!

„Fylgið vísindunum“, er sagt við íbúana. Því miður eru engin vísindi á bak við Covid-19 lokanirnar.

Ef þér fannst þessi grein áhugaverð deildu henni þá endilega með öðrum.

 

AÐRAR GREINAR UM SVIPAÐ MÁLEFNI:

Athugasemdir við bóluefnið frá Pfizer – Athugasemdir við ný sóttvarnarlög – 31 ástæða fyrir því að ég læt ekki sprauta mig – Aukaverkanir bóluefnanna – Þvingunum beitt við bóluefnasamninga – Hvers vegna fækkar smitum – Covid spurningar án svara – Gengið á mannréttindin – Hvað er verið að fela? – Grímur eða ekki grímur

Mynd: Myndin af Ewald er úr fengin úr greininni á notrickzone.com og teiknimyndina fékk ég senda frá vini.

Heimildir:

[i] https://www.bundesgesundheitsministerium.de/en/en.html 

[ii] @reitschuster á Twitter

[iii] https://notrickszone.com/2021/04/11/german-ministry-of-health-spokesman-cant-cite-one-single-scientific-study-showing-lockdowns-are-effective/

 

 


Grímulaust og iðandi mannlíf á Flórída!

yeadon2Ind­verj­ar náðu þeim vafa­sama heiðri í dag að fara fram úr Bras­il­íu þegar kem­ur að fjölda kór­ónu­veiru­smita. Alls voru greind 168 þúsund ný smit á Indlandi í gær. Í Bras­il­íu eru staðfest smit 13,48 millj­ón­ir. Flest staðfest smit eru aft­ur á móti í Banda­ríkj­un­um. Sér­fræðing­ar hafa varað við því að lík­ur séu á að nýj­um smit­um muni fjölga áfram á Indlandi þar sem fjöl­menn­ar grímulausar sam­komur hafa verið tíðar undanfarið.

Hvaða máli skipta smit, einkennalaus eða ekki? Er fókið veikt eða hvað? Munið þegar fjölmiðlar fjölluðu daglega um einkennalaus inflúensusmit? Nei, ekki ég heldur.

Hvert ríkið í Bandaríkjunum á eftir öðru slakar nú á aðgerðum án þess að smitum fjölgi, eða ástandið versni.

Sjáið lífið á Flórida. Iðandi grímulaust mannlíf á ströndinni og fjöldi fólks á götum úti. Flórída er líka eitt af þremur ríkjum sem hefur gefið skít í bóluefnavegabréfin (sem byrjað var að undirbúa áður en Covid hófst, sjá hér). En þessi nýja tegund vegabréfa er eitt af því sem notað hefur verið til að fá fólk til að taka þátt í bóluefnatilraunum, svo það geti ferðast á ný! Við sáum hvað gerðist á Bretlandi þar sem mikill fjöldi hefur verið bólusettur. Landinu var lokað fyrir páska, ferðalög bönnuð, 1.apríl!

Anthony Fauci botnar heldur ekkert í því hvers vegna smitum fækkar eftir að grímuskylda var felld úr gildi í Texas.

Í Montreal, Kanada virðist líka sem unga fólkið vilji endurheimta frelsi sitt, mikill fjöldi hunsar útgöngubann.

Með þessu bloggi fylgja skilaboð frá Mike Yeadon fyrrum vísindamanni hjá Pfizer... hlægið bara að þessum yfirvalda-fíflum."

Og hér neðar eru önnur skilaboð frá honum varðandi bólusetningar:...það þarf ekki að bólusetja fólk sem ekki er í áhættu vegna sjúkdóms...eða ungt og frískt fólk...þvílíkt rugl!"

En eins og fram hefur komið ætla íslensk yfirvöld sér að bólusetja unga fólkið hér á landi. Svokallaðir læknar virðast ætla að taka þátt í glæpnum; að gefa ungu fólki ófullrannsökuð líftæknilyf á tilraunastigi gegn sjúkdómi sem því stafar ekki hætta af! Áhætta versus ávinningur?" Ekki skaða?"

yeadon

 


mbl.is Grímulausar fjöldasamkomur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þórólfur, Þórdís og Þórdís sýna fordæmi - afþakka bólusetningu!

modernaþbenHeilbrigðisstarfsfólk fékk sent boð um að mæta í bólusetningu í Laugardagshöll á föstudaginn síðasta. Boðið var upp á Moderna.

Fram kom í fréttum að sóttvarnarlæknir hefði fengið boð um að mæta en afþakkað. Hann sagðist vilja sýna gott fordæmi og láta aðra sem væru að vinna með sjúklingum, ganga fyrir. Mikið offramboð virðist hafa myndast af efninu sem hlýtur að þýða að töluvert margir heilbrigðisstarfsmenn hafi ekki þegið boðið. Heilsuvera sendi út fjölda sms - skilaboða til þeirra sem eru á skrá sem sjúkraþjálfarar, sálfræðingar, fótasnyrtifræðingar o.fl. „Aukaskammtar - Fyrstur kemur fyrstur fær." Brunaútsala á Moderna sem læknar og hjúkkur vildu ekki.

Skilaboðin sem meðfylgjandi myndir sýna fékk vinkona mín Þórdís H. Benediktsson sem er kennari og skráður sjúkranuddari en hefur ekki starfað sem nuddari í rúman áratug. Eins hafði hún fengið boð um að mæta í Pfizer eftir helgi. Þórdís hefur ekki nokkurn áhuga á að taka þátt í tilraunastarfsemi lyfjafyrirtækjanna vegna veirupestar sem flestir fá væg einkenni af sbr. til dæmis skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Þórdís sem ekki starfar með sjúklingum og hefur ekki starfað sem nuddari í langan tíma fékk sem sagt boð um þiggja ósótta skammta sem Þórólfur sóttvarnarlæknir og augljóslega fleiri heilbrigðisstarfsmenn vildu ekki. Líftæknifyrirtækið Moderna hefur aldrei áður framleitt bóluefni og Moderna er það lyf sem hefur leitt til hlutfallslega flestra alvarlegra aukaverkana hér á landi. Þórdís vildi sýna fordæmi og ekki þiggja bóluefni á tilraunastigi sem ENGINN veit hver langtímaáhrif eru á.

Sjálf hafði ég afþakkað bólusetningu með simpansaveirubóluefninu frá AstraZeneca fyrir nokkrum vikum. Vildi meðal annars sýna gott fordæmi með því að þiggja ekki ófullrannsakað lyf sem aldrei hefur verið notað á mönnum fyrr og er þar að auki ekki hefðbundið bóluefni. Nokkrum dögum síðar var gert hlé á bólusetningu með AstraZeneca vegna fjölda tilkynninga um alvarlegar aukaverkanir, þar á meðal hér á landi. Stuttu síðar var ákveðið að bjóða efnið eldra fólki sem áður hafði ekki mátt fá það. Tilkynning um dauðsfall sem möguleg aukaverkun vegna AstraZeneca er að minnsta kosti ein hér á landi en þeirri frétt virðist hafa verið haldið frá almenningi í nokkurn tíma, eða um það bil tíu daga.

pfizerþbenÞórólfur sagðist vilja bíða þar til röðin kæmi að honum í aldri. Aftur á móti var það algjör óþarfi, nóg var til af Moderna og flestir þeir sem boðaðir voru í afgangana eru yngri en hann. Athyglisvert er að svo mikið afgangsefni hafi verið daginn sem heilbrigðisstarfólk átti að mæta í Laugardagshöllina. Skyldi landlæknir hafa mætt? Varla. Annars hefði það líklega komið í fjölmiðlum eins og með Kára. (ekki komið svar við fyrirspurn til hennar).

Sóttvarnar-og landlæknir stýra sóttvarnaraðgerðum og hvetja almenning til að þiggja boð í bólusetningu þegar það býðst, þar á meðal ungt fólk, allt niður í 18 ára sem starfar á hjúkrunarheimilum. 18 ára eru ekki í áhættu vegna Covid (og búið er að verja gamla fólkið), en Þórólfur og Alma eru komin í þann aldurshóp sem telst áhættumeiri. Hvers vegna mættu þau ekki fyrst nóg var til? Vildu þau ekki Moderna? Á frekar að bjóða það fólki sem ekki einu sinni starfar í heilbrigðisgeiranum? Er þetta ekki annars stórhættuleg drepsótt þó að hér hafi reyndar enginn dáið eða legið á spítala vegna sóttarinnar í marga mánuði (fyrir utan einn skipverja frá Brasilíu sem var á sjúkrahúsi í nokkra daga.)

Í öðrum ríkjum, hafa ráðamenn sýnt fordæmi og tekið bóluefnið. Til dæmis ákvað heilbrigðisráðherra Ástralíu að taka AstraZeneca í hvatningarskyni fyrir aðra. Ráðherrann endaði reyndar á sjúkrahúsi daginn eftir með húðsýkingu (a.m.k. opinbera skýringin)! Hér á landi virðist þurfa minni hvatningu, nema þá helst meðal heilbrigðisstarfsfólks sem margt hefur aðgang að betri upplýsingum en hinn almenni borgari sem hefur hlustað á hræðsluáróður þríeykisins og Kára Stefánssonar í heilt ár og byggir sínar ákvarðanir á því.

Það er því frekar aumingjalegt af sóttvarnarlækni að hafa ekki mætt í höllina til að verja sig sem fyrst gegn veirunni sem hann segir vera alveg stórhættulega og liggja í laumi hér og þar! 


,,Tilviljun ræður öllu í þessu lífi, hún er hinn eini sanni guð.“


godHeiti þessarar greinar, Tilviljun ræður öllu í þessu lífi, hún er hinn eini sanni guð er tilvísun í orð Kára Stefánssonar forstjóra ÍE/Amgen en Amgen hefur fyrir tilviljun verið í nánu samstarfi við Astra Zenca.

  Ég hlusta aðeins á útvarp þegar ég er í bílnum og fyrir tilviljun þurfti ég að fara á bílnum í morgun og renndi í gegnum útvarpsstöðvarnar. Fyrir tilviljun datt ég inn á Pétur á útvarpi Sögu sem var að fjalla um fjögurra stjörnu Foss fangabúðirnar og dóminn um ólögmæti nauðungarvistunnar á þeim bæ. Maður nokkur hringdi inn í þáttinn og var á þeirri skoðun að þessi dómsmál og aðdragandi þeirra væru líklega samsæri gegn heilbrigiðisráðherra eða ríkisstjórninni, svo fljótt gerðist þetta allt saman, sagði hann. Sem sagt, að lögmenn hefðu vitað af ólögmætinu og verið tilbúnir með mál til að fara með fyrir dómstóla. 

  Málið sem Jón Magnússon lögmaður kærði fyrir hönd mæðgnanna  kom að minnsta kosti til vegna tilviljunar. Ég sá fyrir tilviljun frásögn konu sem ég þekki á facebook sem sagði frá því að hún og dóttir hennar hefðu verið fluttar í Foss fangabúðirnar í lögreglufylgd í rútu frá Leifsstöð eftir komu frá Serbíu, þangað sem þær fóru til að vera við jarðaför. Tveimur dögum áður hafði ég fyrir tilviljun lesið að að þeir sem væru skikkaðir í far­sótt­ar­hús eigi rétt á að bera sitt mál und­ir dóm­stóla og vænta úr­sk­urðar líkt og gild­ir um gæslu­v­arðhald. Það leið ekki langur tími þar til að ég var búin að hafa uppi á lögmönnum sem höfðu nýlega auglýst þjónustu sína í þessu sambandi, og ég rekist á fyrir tilviljun, og kom upplýsingum áfram til mæðgnanna. Þar með var málið komið í hendur Jóns Magnússonar sem vann málið fyrir mæðgurnar sem ég vona að fái greiddar skaðabætur frá ríkinu fyrir ólögmætt varðhald. Að loka 13 ára ungling inni á herbergi í marga daga hefði einhverntímann verið kært til barnaverndayfirvalda!

  En fyrir tilviljun hafði ég skrifað þessa færslu nokkrum dögum áður þar sem ég sagðist vilja bjóða mig fram til að láta reyna á lögmæti varðhalds í svokölluðu sóttvarnarhúsi. Kannski var þetta því ómeðvitað og tilviljannakennt samsæri. Ég trúi reyndar ekki á tilviljanir; allt á sér örsök og afleiðingu. Nema að tilviljun sé leið Guðs, æðri máttar, örlaganna, stjarnanna eða annað til að sýna okkur að ekkert er í raun tilviljun. Eins og vísindamaðurinn Einstein virðist hafa talið.

 


mbl.is Líkir Brynjari Níels við Trump
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nefgrímur fyrir ósmitaða!

noseBrögð eru að því að ósmitaðir beri veiruna milli manna í nef­kok­inu." 

Þetta sagði Björn Ingi Jóns­son, verk­efna­stjóri al­manna­varna á Suður­landi, í sam­tali við mbl.is.

Viljið þið skila því til hans Björns að það eru komnar nýjar grímur á markaðinn fyrir ósmitaða. 

Síðan er hægt að kaupa fjórfaldar grímur sem ná yfir munn og nef ef þú ert t.d. með indverska afbrigðið sem er tvöföld veira!

fjórfald

 


mbl.is Hópsmitið á vinnustað í Mýrdal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband