7.4.2021 | 16:20
Svar frá Lyfjastofnun um aukaverkanir - andlát vegna AstraZeneca
,,Fyrst ber að nefna að þær tölur sem birtast á vefnum snúa að tilkynningum um grun um aukaverkun og ekki er víst að tilkynningarnar endurspegli raunverulegar aukaverkanir af bóluefnunum en það er metið í hverju tilfelli fyrir sig. Nánar í þeim fyrirvörum sem fram koma á vefnum um notkun tölulegu upplýsinganna sem þar birtast.
Comirnaty (BioNTech/Pfizer):
26 alvarlegar tilkynningar hafa borist.
- 14 þeirra varða andlát. 13 andlát vörðuðu aldraða einstaklinga, 12 þeirra með staðfesta undirliggjandi sjúkdóma. Eitt andlátið varðaði einstakling sem ekki var aldraður en með marga undirliggjandi sjúkdóma.
- Af hinum 10 þá varða 8 sjúkrahúsvist (þar af 2 lífshættulegt ástand).
- Fjórar tilkynningar teljast klínískt mikilvægar og þar með flokkaðar sem alvarlegar*.
COVID-19 Vaccine Moderna:
5 alvarlegar tilkynningar hafa borist.
- 4 tilkynningar varða sjúkrahúsvist.
- Ein tilkynning telst klínískt mikilvæg og þar með flokkuð sem alvarleg*.
Vaxzevria (AstraZeneca):
12 alvarlegar tilkynningar hafa borist.
- Ein tilkynning varðar andlát eldri einstaklings.
- 9 tilkynningar varða sjúkrahúsvist (þar af 1 lífshættulegt ástand).
- Tvær tilkynningar teljast klínískt mikilvægar og þar með flokkaðar sem alvarlegar*.
*Tilkynningar sem metnar eru sem klínískt mikilvægar geta varðað ýmis einkenni, t.d. blóðtappa þar sem ekki kom til innlagnar á sjúkrahús.
Í allri umfjöllun um tilkynningar vegna gruns um aukaverkun er mjög mikilvægt að fram komi að þegar tilkynningar berast Lyfjastofnun er ekki vitað hvort um orsakasamhengi milli bólusetningar og tilkynntra tilvika sé að ræða. Slíkt er metið í hverju tilfelli fyrir sig.
Kveðja,
Samskiptadeild / Communications Department
Lyfjastofnun / Icelandic Medicines Agency"
Fyrst var AstraZeneca gefið yngra fólki (yngra en 65 ára) þar sem það þótti ekki öruggt eldra fólki, hafði ekki verið prófað á eldri hópum (reyndar hafði Pfizer ekki prófað sitt á eldri hópum heldur).
Tilkynningar um alvarlegar aukaverkanir fóru síðan að berast vegna blóðtappa í yngra fólki. Stuttu síðar var hætt að nota efnið á yngra fólki og í gang fór eldsnögg rannsókn sem sýndi fljótlega að efnið væri skothelt fyrir eldra fólk.
25. mars var síðan hafist handa á ný með að bólusetja eldri hópa með Astra og þetta var í tilkynningu frá Landlækni:
Ekki hefur borið á alvarlegum aukaverkunum hjá öldruðum einstaklingum í Bretlandi þar sem mikill fjöldi hefur verið bólusettur og áhrif bólusetningar hjá þessum aldurshópi á smittíðni, innlagnir og dauðsföll vegna COVID-19 hafa verið góð í Englandi og Skotlandi . Því hefur verið ákveðið að nota þetta bóluefni fyrir einstaklinga eldri en 70 ára í samræmi við þessar niðurstöður. Þegar kemur að bólusetningu 60-69 ára er einnig líklegt að þetta bóluefni verði í boði fyrir a.m.k. hluta þess aldurshóps.
Það næsta sem gerist er að eldri einstaklingur hér heima deyr vegna efnisins.
Þetta er sannkölluð tilraun sem þjóðin tekur þátt í. Hvað skyldu margir hafa rokið í bólusetningu ef ekki hefði verið búið að hræða úr þeim líftóruna? Meðalaldur látinna hér heima vegna Covid er 88 ár.
![]() |
Bretar undir þrítugu fá ekki AstraZeneca |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.4.2021 | 14:16
Óskilijanleg frétt
Fimm af sex kórónuveirusmitum sem komu upp utan sóttkvíar í gær greindust á Suðurlandi. Hópsmitið er talið mega rekja til ferðalangs, sem búsettur er á Íslandi. Viðkomandi er með mótefni fyrir veirunni og þarf því ekki að sæta sóttkví."
Hefur eitthvað skolast til hér?
Er sá sem rekja má hópsmitið til með mótefni við veirunni? Er ferðalangurinn viðkomand?i"
![]() |
Hópsmit talið tengjast ferðamanni með mótefni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Læknafélag Íslands kallar eftir því að lagastoð fyrir ýtrustu sóttvörnum verði tryggð."
Samkvæmt tölum Amnesty International hafa yfir 17.000 heilbrigðisstarfsmenn látið lífið við störf sín í faraldrinum. Slíkt er óþekkt nema helst í stríði eða styrjöldum, segir formaður læknafélagsins.
En hér á landi? Ekki hefur maður heyrt eitt einasta dæmi þess að heilbrigðisstarfsmaður hafi látist vegna Covid. Hér er meðalaldur látinna 88 ár. Ein ung manneskja lést vegna veikinnar og það var Ástrali sem við vitum lítið um en nefnt hefur verið að viðkomandi hafi verið með alvarlegan sjúkdóm.
Hver getur skýringin verið? Miðað við þennan fjölda látinna starfsmanna í heilbrigðisgeiranum, mætti ætla að að minnsta kosti einn heilbrigðisstarfsmaður hefði dáið úr sjúkdómnum hér heima. Eða veikst alvarlega. Gerðist það?
Hvers vegna er reynslan frá öðrum löndum allt önnur en hér heima?
Og þetta er lýsing WHO á veikinni:
Most people infected with the COVID-19 virus will experience mild to moderate respiratory illness and recover without requiring special treatment. Older people, and those with underlying medical problems like cardiovascular disease, diabetes, chronic respiratory disease, and cancer are more likely to develop serious illness.
Og svona skilgreindi landlæknir Bretlands veikina:
Er þetta lýsing á alvarlegum heimsfaraldri? Og fæstir starfsmenn smitsjúkdómadeildar LSH höfðu verið bólusettir í byrjun mars skv. þessari frétt. Hvers vegna ekki? Var nauðsynlegra að bólusetja alla 100 ára og eldri og 18 ára starfsstúlkur á elliheimilum?
Miðað við þessar skelfilegu tölur um dauðsföll heilbrigðisstarfsmanna í útlöndum, þá er þetta mjög undarlegt. Enginn heilbrigðisstarfsmaður hefur látist hér heima og síðan voru þeir margir hverjir aftar í bólusetningaröðinni en 100 ára og eldri, og það heilbrigðisstarfsmenn á smitsjúkdómadeild LSH!! Fá þeir Ivermectin sem talin er vera góð meðferð við Covid?
p.s. man ekki heldur eftir að hafa heyrt fréttir um dauðsföll heilbrigðisstarfsmanna á Norðurlöndunum.
![]() |
Alvarleg aðför að sóttvörnum landsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 7.4.2021 kl. 22:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
5.4.2021 | 16:36
Landlæknir Breta ítrekar að börnum stafi ekki hætta af faraldrinum
Bloggar | Breytt 6.4.2021 kl. 00:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.4.2021 | 17:30
Peter McCullough læknir - meðferð gegn Covid var þögguð niður!
Var að hlusta á þennan bandaríska lækni, Peter McCullogh, sem heldur því fram að það séu og hafi verið til margskonar lyf og meðferðir fyrir Covid sjúklinga, en þeir alltaf sendir heim eftir jákvætt PCR próf, með engar leiðbeiningar eða ráð fyrir meðferð sjúkdómsins. Hann segir þetta skandal og að allar upplýsingar um meðferðir og lækningu hafi verið þaggaðar niður.
McCullough told the committee about a typical patient journeystories they had already heard from family members and friends. High risk patients, over age 50 and with medical problems go to testing centers or urgent care clinics acutely ill, are handed a positive COVID-19 test result and are told to go home and wait in fear until they cannot breath any longer and then succumb to panicked hospitalization and isolation from family members, some of whom never see their loved ones again.
Aðrir áhugaverðir punktar komu fram hjá honum, t.d. að hjarðónæmi í Texas væri í kringum 80%, einkennalausir smiti ekki, náttúruleg sýking af Covid veiti varanlegt og fullkomið ónæmi (og því út í hött að bólusetja þá sem hafa veikst), að bólusetja heilbrigt fólk undir fimmtugu væri algjörlega á skjön við læknavísindin, og ýmislegt fleira.
Mér varð hugsað til þessarar íslensku konu sem var látin liggja heima fárveik í 44 daga. Fékk hún enga meðferð, engin lyf?
McCullough segir líka að upplýsingar sem hann setti á vefinn um lækningu og meðferðir gegn Covid, hafi verið hent út.
Í raun frábært dæmi um "fakt-tékk" internetsins í dag. Auðvitað er ekki verið að stöðva bara falsvísindi heldur virðist markmiðið líka vera að loka á upplýsingar um (snemm)meðferðir eða aðra lækningu sem virka gegn Covid. Eina sem internetið leyfir afskiptalausa umfjöllun á, er ný tegund bóluefnis sem ekki hefur verið notað á mönnum fyrr og er enn á rannsóknarstigi. (Follow the money!)
Skilst að Ivermectin sé eitt þessara lyfja sem gagnast mjög vel við sjúkdómnum, nokkuð sem íslenskur læknir í Svíþjóð hefur skoðað vel. Honum var gert að eyða út færslum um lyfið.
Og ekki mátti Lýsi hf. auglýsa vöru sína sem vörn gegn veiru, þó að við vitum öll að Lýsi er það meðal sem hefur varið okkur gegn veikindum í áraraðir. En Lýsi hf. mátti ekki fullyrða það, en í lagi þykir að fullyrða að lítt prófað tilraunabóluefni sé fullkomlega öruggt, þrátt fyrir ýmsar aukaverkanir sem hafa verið mun fleiri en reiknað var með. Lyfjastofnun heldur upplýsingum um tegund aukaverkana þétt að sér, þær eru ekki tilgreindar á síðu þeirra. Það tíðkast aftur á móti í öðrum ríkjum, þ.e.a.s. að gera grein fyrir tegund aukaverkana, ekki bara birta súlur í bláu og fjólubláu!
p.s. twitter leyfir mér t.d. ekki að setja inn þetta myndband með Cullough. Why not? Er hann falsvísindamaður? Hámenntaður læknir!
Bloggar | Breytt 15.4.2021 kl. 19:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.4.2021 | 12:13
Landlæknir Breta skýrir veiruhættuna svona....

![]() |
Þórólfur hefur skilað inn kröfugerð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
3.4.2021 | 23:47
,,Út með ykkur nasistarnir ykkar!"
Pólverjar þekkja söguna. Hér ætlar lögreglan í Kanada að stoppa páskamessu (passover - páskahátíð Gyðinga) í pólskri kirkju. Löggurnar eru reknar út eins og hundar: Komið ekki aftur án heimildar...nasistar eru ekki velkomnir hér... mér kemur ekkert við hvað þið hafið að segja...út, út, út með ykkur!"
Munið Landakotskirkjumálið um jólin. Þar hunsaði pólskur prestur samkomutakmarkanir, eini presturinn sem gerði það. Íslensku prestarnir hlýddu ólögunum eins og ekkert væri sjálfsagðara, á meðan Smáralind og Kringlan voru troðfullar af fólki.
Hér er annað myndband af lögreglunni leysa upp messu á Englandi.
Pólverjar vita eflaust að það getur verið hættulegt að hlýða Víði."
![]() |
Seinagangur sóttvarnalæknis óásættanlegur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 4.4.2021 kl. 00:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég sá þessa færslu á facebook, þekkti konuna og benti á lögmann sem nú hefur sent málið til dómstóla. Bað hana líka um að senda mér söguna sem má lesa hér:
Þann 26. mars fór ég til Serbíu með dóttur minni til að jarða móður mína. Ég þurfti að fara, burt séð frá Covid. Ég er eina barnið hennar. Þegar við fórum utan höfðu núverandi reglur ekki tekið gildi.
Allt sem þurfti til að komast til Serbíu var neikvætt PCR próf, engar takmarkanir, sóttkví eða einangrun. Auðvitað eru einhverjar reglur þar líka og útförin fór fram með nánustu fjölskyldu okkar.
Eftir fimm erfiða daga í Serbíu komum við heim til Íslands, eða það héldum við. Við gátum varla beðið eftir að hvíla okkur, bæði andlega og líkamlega. Ég bjóst við sóttkví heima og var tilbúin í það.
Heimferðin frá Serbíu var í gegnum Pólland. Til að koma til baka þurftum við að fara í annað PCR próf, sem var neikvætt. Þegar við lentum á Keflavíkurflugvelli var fyrirkomulagið allt annað en vanalegt. Við fórum í annað PCR próf og síðan í vegabréfaeftirlitið, þar sem verðirnir settu rauðan pappír í vegabréfið okkar eftir stutta yfirheyrslu og sögðu okkur að sýna lögreglunni. Ég var svolítið hissa á því að blanda þyrfti lögreglunni í málið. Við fórum að útganginum og það var sjokk; örvar, rými girt með af með böndum, lögregla og starfsmenn klæddir Covid - búnaði. Þeir vísuðu okkur hvert við ættum að fara, leiðin lá beint að rútunni. Þegar við fórum út hélt ég að þetta væri rúta sem færi á BSÍ en það var ekki þannig. Alla leiðina keyrðu tveir lögreglumenn á mótorhjólum á undan okkur. Þeir keyrðu okkur að Foss hótelinu. Mér leið ekki vel þegar ég sá það. Fyrir framan hótelið voru held ég hvorki meira né minna en tíu lögreglumenn og margir starfsmenn sem fylgdu okkur inn á hótelið. Bæði dóttir mín og ég vorum í áfalli. Hvað er að gerast? Eins og í bíómynd, eins og við værum stórglæpamenn. Í lyftunni máttum við ekki ýta sjálfar á hnappinn fyrir 9. hæðina. Þeir gerðu það fyrir okkur. Ég var skjálfandi og trúði þessu ekki. Og dyrunum að herberginu okkar var lokað klukkan tvö um nóttina.
Við stóðum þarna og litum á hvor aðra, lögðum ekki töskurnar niður strax. ,,Þetta hljóta að vera einhver mistök hugsaði ég. Við trúðum þessu ekki. Og svo streymdu niður tár, tár og tár allt til morguns. Við fórum á fætur um átta leytið. Okkur var kalt. Við vorum ekki með hlý föt, við fórum til Serbíu með léttan fatnað. Við vorum ekki einu sinni svangar. Við vorum meðvitaðar um að vera lokaðar inni.
Við fengum tilkynningu um neikvæða niðurstöðu úr PCR prófunum sem tekin voru í Keflavík.
Ég fann númerið hjá Rauða Krossinum á netinu. Ég hringdi í þá og bað um leyfi til að fara heim. Við búum bara tvær saman heima, ég og dóttir mín og erum þar af leiðandi ekki að setja aðra í hættu. Starfsmaður Rauða Krossins segir mér að hringja í hótelstarfsmennina. Ég hringdi en svarið var, nei! Eftir smá tíma hringi ég aftur til að spyrja hvort við mættum fara aðeins út til að fá ferskt loft og aftur er svarið, nei!. Okkur líður hræðilega. Lokaðar inni, enginn réttur til að fá að fara heim og enginn réttur til að anda að sér fersku lofti. Tilfinningarnar hrannast upp, þær tilfinningar sem við komum með okkur eftir jarðarför móður okkar og þær sem við erum að upplifa núna.
Dóttir mín vill ekki borða, ég reyni að vera sterk og reyni að sýna henni þann styrk sem hún þarf, en ég er máttlaus."
![]() |
Telja sóttvarnalög og stjórnarskrá brotna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
2.4.2021 | 14:46
Undirgefinn löglærður formaður?
Maður hefur ekki alltaf verið sammála, hefur stundum viljað meira, en svona heilt yfir höfum við fengið skilning á okkar sjónarmiðum. En í þessu máli má segja að þá finnst manni að það verði auðvitað að gæta meðalhófs í setningu reglna og þessar reglur eru auðvitað mjög íþyngjandi eins og fram hefur komið, segir Guðni Bergsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands."
,,Segir Guðni að KSÍ hafi ekki hugsað sér að láta reyna á lögmæti þess að liðinu hafi verið gert að dvelja á hótelinu."
Það er einmitt svona hugsun sem er varasöm og við erum meðal annars komin svona langt í frelsissviptingu vegna hugsanahátts sem þessa. Og Guðni er lærður lögfræðingur! Þjóðverjarnir sögðu bara nei og ríkisstjórnin bakkaði. Hér er líka íþróttamaður sem lætur ekki bjóða sér hvað sem er.
Voruð þið búin að sjá þessa frétt?
![]() |
Munu ekki reyna á lögmæti sóttkvíarhótels |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.4.2021 | 13:30
Gaddavírsgirðing á Leifsstöð!
Já um að gera að girða unglingana af með gaddavírsgirðingu. Það er heimsfaraldur í gangi þar sem EINN (skipverji frá Brasílíu) liggur inni á spítala. "Für ihre sicherheit"... að sjálfsögðu. Heil Hitler!
,,Sóttvarnarfangelsi? A-landslið Íslands og U21 liðið komin til Íslands eftir verkefni úti í heimi síðustu daga. Á meðan A-liðið fær að taka sóttkví heima þarf U21 að fara á sóttvarnarhótel þar sem þau koma af eldrauðu svæði. Því fylgir frelsissvipting sem er meiri en fangelsi því útivistartími er bannaður. Til að undirstrika þetta er gaddavírsgirðing komin í Leifsstöð milli þeirra sem fara heim í sóttkví og þeirra sem fara á sóttvarnarhótel. Má þá kannski kalla þetta Sóttvarnarfangelsi? Á myndinni er Davíð Snorri þjálfari U21 hinum megin við gaddavírinn."
Til samanburðar er kindahlið við Kvíabryggju. Og ekki er nú mikið mikið pönk í þessum löglærða formanni KSÍ sem hefur ekki hugsað sér að láta reyna á lögmæti fangelsisvistar ungmennanna. Of undirgefinn fyrir minn smekk.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
-
aslaugas
-
agny
-
annaeinars
-
danna
-
agustkara
-
bookiceland
-
contact
-
einarborgari
-
rlingr
-
sagamli
-
helga-eldsto-art-cafe
-
bofs
-
sade
-
gusg
-
noldrarinn
-
hafthorb
-
hhbe
-
hlf
-
diva73
-
snjolfur
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
kreppan
-
jaj
-
islandsfengur
-
nonniblogg
-
nyja-testamentid
-
thjodarskutan
-
kristinnp
-
loncexter
-
marinogn
-
sighar
-
sigurduringi
-
sushanta
-
viggojorgens
-
vilhjalmurarnason
-
thorsteinnhelgi
-
valli57
-
tbs
Af mbl.is
Fólk
- Tjá sig hver með sínu nefi
- Tími til kominn að gera þetta almennilega og hætta að laumupokast
- Þakkaði trans einstaklingum í ræðu sinni
- Drake opnar sig um spilafíkn
- Í kapphlaupi við tímann
- Topp 5 hlutir sem þú vilt alls ekki segja við konuna
- Stjörnukokkur fannst látinn á heimili sínu
- Sá draug á Siglufirði