1.4.2021 | 21:51
Framhald - hvað varð um flensuna - er Covid flensa?
Ég setti inn þessa færslu fyrir stuttu til minningar um gömlu góðu" inflúensuna sem hvarf í apríl á síðasta ári. Inflúensan er auðvitað ekkert góð, því hún dregur fjölda manns til dauða á ári hverju. Það hafa aftur á móti ekki birst tilkynningar í fjölmiðlum með myndum af kertaljósum í hvert sinn sem einhver deyr af völdum flensunnar og hvað þá að forseti Íslands sendi aðstandendum hinna látnu samúðarkveðjur. Við höfum heldur ekki vanist því að fjölmiðlar færi okkur sögur af þeim sem veikjast illa af inflúensunni eða glími við eftirköst, ekki einu sinni í svínaflensunni þar sem fjöldi manns barðist við eftirköst.
Maður heyrði þó alltaf af því þegar hún mætti til leiks, það kom í fréttum. En svo ekki mikið meir. Engir vikulegir upplýsingafundir í sjónvarpinu með nýjustu smittölum, smitstuðlum eða annað. Maður vissi ekki einu sinn hvers lenskt afbrigðið var!
Hvað er inflúensa? Svarið er á vef Landlæknis:
Inflúensa er alvarlegur sjúkdómur, sérstaklega hjá þeim sem eru með undirliggjandi sjúkdóma. Hún getur auðveldlega borist á milli einstaklinga og smitað mjög marga á stuttum tíma eins og við sjáum á hverjum vetri. Sjúklingar sem eru með hjarta eða lungnasjúkdóma eða aðra alvarlega undirliggjandi sjúkdóma eru í meiri hættu á að fá alvarlegar sýkinga vegna inflúensunnar og bakteríulungnabólgu í kjölfarið. Almennt eykst dánartíðni töluvert meðan og fyrst á eftir að inflúensufaraldrar ganga yfir.
Lýsingin gæti átt við annan sjúkdóm, Covid-19.
Ég rakst á þessa spurningu frá einum á twitter sem heitir Anthony J. King, D.M.A. og kynnir sig sem prófessor og tónlistarmann. Hvað varð um flensuna spyr hann?
Bloggar | Breytt 8.4.2021 kl. 11:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.4.2021 | 13:52
Breska afbrigðið ekki hættulegt börnum - skoðið heimildir!
Ég er bara að benda á að við erum núna með afbrigði sem leggst af auknum þunga á börn og ungmenni og það getur áhrif á það hvenær hjarðónæmi telst náð, segir forsætisráðherra.
Jón Ívar Einarsson læknir segir þetta rangt og birtir þessi skrif á sinni facebook í dag:
Og hér er frétt af rúv af mjög veikum leikskólabörnum eða þannig. Einkenni varla merkjanleg! En ef pólitíkusar sem eru þjálfaðir í að ljúga segja eitthvað sem hræðir fólkið og það varðandi börnin þeirra (sem er virkilega illa gert, sérstaklega ef það á ekki við rök að styðjast), þá verða menn hræddir, a.m.k. þeir sem ekki nenna að skoða annað en rúv og Reuters. Það hefur ekkert barn eða ungmenni lagst á spítala hér heima vegna covid, ekki vegna kínverska afbrigðisins, ekki vegna breska og ekki vegna neins Covid afbrigðis! Það er einn inniliggjandi vegna Covid í dag og það er skipverji á brasilísku súrálsskipi.
Barnasmistjúkdómalæknir segir börn ekki í hættu, sjá hér.
![]() |
Nýi óvissuþátturinn í bólusetningunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2021 | 16:55
Býð mig fram í þessa tilraun!
,,Þeir sem eru skikkaðir í farsóttarhús eiga rétt á að bera sitt mál undir dómstóla og vænta úrskurðar líkt og gildir um gæsluvarðhald en allur kostnaður af slíkum málum fellur á ríkissjóð. Þetta segir Berglind Svavarsdóttir, formaður Lögmannafélags Íslands."
Ég er til í að prófa þetta og nú þarf ég bara að finna ferð til útlanda, til svæðis sem flokkast stórhættulegt veirusvæði þannig að manni verði stungið í fangelsi við heimkomu. Til dæmis Indland, en þar er tvöfaldur vírus, mjög banvænn. Með viðkomu í London á heimleið, hætta á að sýkjast af því breska þar. Flýg með Air Brazil og er þá útsett fyrir því brasilíska. Stoppa til að skoða eldgosið á leið heim frá Keflavík og nota kaðalinn til að komast upp.
Og eins myndi ég vilja láta reyna á hvort það megi pota pinna langt upp í nef/haus og ofan í kok á manni til að leita að flensuveiru við komuna til landsins.
En Grand hótel er annars fínt fangelsi. Svart og hvítt er litadýrð sem dugar hér, hávær þögn í myrkrinu...hátt til lofts og innantómt...hér má enginn trufla mig...tíminn frosinn stendur kyrr..."
Og hafið þið séð þetta frá Brussel, afnema þarf allar aðgerðir innan 30 daga. En verður væntanlega áfrýjað.
![]() |
Sama gildi um farsóttarhús og fangelsisvist |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.3.2021 | 13:06
Hvaða læknar mæla með tilraunalyfi fyrir ungt fólk sem ekki er í áhættu?
Bóluefni Pfizer-BioNTech við Covid-19 sýnir gríðarlega virkni meðal unglinga samkvæmt niðurstöðum klínískra rannsókna. Er vörnin jafnvel enn meiri þegar kemur að börnum á aldrinum 12-15 ára en hjá fullorðnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Pfizer og fjalla bæði New York Times og Washington Post um málið."
Samkvæmt WHO stafar ungu og heilbrigðu fólki engin hætta af Covid. Hvaða læknar hér heima (fyrir utan Þórólf og Ölmu sem virðast ekki með réttu ráði þessa dagana) myndu ráðleggja að ungt og hraust fólk sem ekki er í áhættu fyrir sjúkdómnum, fái nýja tegund bóluefnis sem aldrei hefur verið notað á mönnum fyrr (mRNA)? Er það ekki svipað og að gefa börnum nýjasta lyfið fyrir Alzheimer eða blóðþrýstings-og hjartalyf, og það á tilraunastigi!
Ég skal svara þessu fyrir alla lækna. Enginn læknir, sem ekki er búið að múta eða búið að kaupa til að mæla með þessari lækningu" myndi ráðleggja það. Fyrst - ekki skaða." Þeir hafa lært það, snýst allt um líkur og áhættu. Nema kannski kjánar sem skrifa upp á svefnlyf fyrir lítil börn, mánuð eftir mánuð.
Höfum í huga að þeir sem voru dæmdir í Nürnberg réttarhöldunum voru virtir og menntaðir læknar. Já vísindamenn með meiru!
Þeir sem hvöttu ríki heims til að kaupa alltof mikið af bóluefni gegn svínaflensunni voru líka vísindamenn! Hættan af svínaflensunni var stórlega ýkt, alveg eins og verið er að gera núna. Það er enginn á sjúkrahúsi vegna breska afbrigðisins. (Sá eini sem skráður er inniliggjandi vegna Covid er útlendur skipverji sem á víst að vera með brasilíska" afbrigðið).
Og það er ekki eins og þessir menn ætli að stoppa við 12 ára aldurinn. Nei, það á að taka ungabörnin líka. Enda eru fyrirtækin laus allri ábyrgð, undirgefnar ríkisstjórnir heims hafa tekið á sig alla ábyrgð.
Frétt þessu tengd, frá Ísrael.
(Myndin í vinstra horni er frá Nürnberg réttarhöldunum).
![]() |
Sýnir gríðarlega virkni hjá Pfizer meðal unglinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.3.2021 | 12:31
Flensan enn í Kína en Covid horfið þar!
Í gær setti ég inn þessa færslu sem sýnir að hin árlega inflúensa sem hefur fylgt manninum um langa hríð er horfin á Íslandi og víðsvegar um heiminn. Covid virðist hafa leyst flensuna af hólmi.
En í Kína, aftur á móti, þar sem Covid faraldurinn hófst, er ekkert Covid lengur. Þar var bara ein bylgja og búið. En þar er flensan þó enn í gangi. Sem sagt, öfugt við flest önnur ríki heims. Í pistli gærdagsins spurði ég hvort Covid væri kannski flensa. Og er flensan í Kína kannski Covid? Hef aðeins áhuga á vísindalegum svörum. Ekki samsæriskenningum.
Bloggar | Breytt 31.3.2021 kl. 21:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.3.2021 | 10:31
Sóttvarnaraðgerðir eru á kostnað barna, ekki til varnar þeim!
Börnum stafar ekki hætta af breska afbrigðinu, ekki frekar en hinu upprunalega frá Kína. Börn eru með nýtt og sterkt ónæmiskerfi. Það vita læknar. Ekkert barn eða ungmenni hefur þurft að fara á spítala vegna covid hér á landi. Enginn er inniliggjandi vegna hins svokallaða breska (brexit) afbrigðis. Einn liggur á spítala núna og sá er talinn vera með,,brasilíska" afbrigðið. Skipverji á súrálsskipi sem er frá Brasilíu.
Annars vil ég benda á þessa frábæru grein eftir Alexander Inga Olsen.
,,Það á að tala um hlutina eins og þeir eru. Sóttvarnaraðgerðirnar eru ekki til verndar börnum, þær eru á kostnað þeirra."
Hér er öll greinin.
![]() |
Stefna á að opna skólana eftir páska |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.3.2021 | 22:52
Bólusettir en samt að sýna neikvætt PCR próf!
,,Gert er ráð fyrir að tilraunaverkefnið í Phuket hefjist í júlí á þessu ári. Þá þurfa ferðamenn að sýna fram á að þeir hafi fengið tvo skammta af bóluefni gegn kórónuveirunni og framvísa neikvæðu kórónuveiruprófi. Þeir munu líka þurfa að sækja smitrakningarapp í símann sinn."
Hér er dæmi um þetta hlægilega tilraunabóluefni sem aldrei hefur verið notað á mönnum fyrr og telst ekki vera bóluefni í hefðbundnum skilningi. Ef þú ert bólusettur hvers vegna í ósköpunum þarftu þá líka að sýna fram á neikvætt próf? Einmitt, því að bóluefnin koma ekki í veg fyrir smit.
Þessi svikamylla hlýtur að fara að hrynja bráðum, minnir á myntkörfulánin á árunum fyrir hrun. Áttu að vera alvöru lán í erlendri mynt en voru síðan kolólögleg lán í íslenskum krónum bundin við hina ýmsu erlendu gjaldmiðla. Tilgangurinn var að falsa gjaldeyrisstöðu landsins og velta hruni krónunnar yfir á almenning.
![]() |
Opna landamærin fyrir bólusettum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 30.3.2021 kl. 10:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.3.2021 | 13:36
Hin árlega flensa er horfin - R.I.P inflúensa 800 BC - 2020
Á vetri hverjum gengur inflúensan yfir norðurhvel jarðar á tímabilinu október til mars og er hún 23 mánuði að ganga yfir. Inflúensan er skráningarskyldur sjúkdómur og birtir landlæknisembættið tölurnar reglulega. En engar tölur hafa verið birtar eftir 9. viku 2020, eða í heilt ár, enda hafa engin tilfelli greinst síðan í apríl 2020. Staðfest af landlæknisembættinu:
Sæl Þórdís
Nei, engin tilfelli inflúensu hafa greinst á Íslandi frá því í apríl á síðasta ári.
Kveðja
Maríanna
Tölurnar á myndinni hér ofar eru frá nokkrum löndum og sýna þróunina. Því hefur verið haldið fram af sérfræðingum að sóttvarnir hafi komið í veg fyrir flensusmit og það um allan heim, en ekki í veg fyrir Covid. Nú kom til dæmis ekki grímuskylda á hér heima fyrr en nokkrum mánum eftir að Covid byrjaði. Er prófað fyrir flensu á landamærunum hér heima? Nei og hefur aldrei verið gert. Samt kemur engin flensa til landsins eins og gerst hefur síðastliðin 1000 ár eða svo. Og þessar tölur eru frá Bandaríkjunum, töluverður munur milli ára, ekki satt?Síðan fann ég þessar færslur (myndir neðar) með þeirri skýringu að Covid væri ekkert annað en inflúensa: "Offically it´s a flu strain, nothing more....". Veit að þetta eru myndir af samfélagsmiðlum og hver sem er gæti hafa skrifað þetta (er að reyna finna viðkomandi) en er einhver vísindamaður til í að mótmæla þessum skrifum hjá aðila sem í það minnsta segist vera með doktorsgráðu í veiru-og ónæmisfræðum? Hvað nákvæmlega mæla þessi PCR próf og hvers vegna þykja þau ekki mjög nákvæm? Þau gera til dæmis ekki greinarmun á virku og óvirku smiti, þess vegna þarf oft að senda þá sem greinast smitaðir á landamærunum í mótefnamælingu.
Fyrst að flensan hvarf um allan heim á svipuðum tíma og um það leiti sem Covid-19 birtist, getur verið að Covid sé ekkert annað en slæm inflúensa og að það sé ástæðan fyrir því að þessi skráningarskyldi sjúkdómur sé með núll tilfelli frá því í apríl 2020 eða nánast í heilt ár?
En eftirköstin eru svo mikil og alvarleg vegna Covid" segja menn þá. Já, en á það ekki við um flensuna líka, sjá hér. Ég á til dæmis vin sem hefur aldrei jafnað sig eftir inflúensu sem hann fékk fyrir ca. 10 árum. Vírusinn fór í hjartað" eins og það kallast. Hvað vitum við um eftirköst slæmrar inflúensu? Hvað ef það hefðu birst viðtöl við fjölda manns í fjölmiðlum sem hafa veikst af slæmri inflúensu sem dregur marga til dauða á hverju ári? Hvaða mynd hefðum við þá í kollinum af alvarleika inflúensunnar?
Hér er frá WHO fyrir 2020 og 21, flensan kom aldrei aftur eftir viku 15.
p.s. fékk athugasemd um að tölurnar á FOX myndinni gæfu ekki rétta mynd. Það má vel vera og hana má hunsa. Það er nóg annað efni sem sýnir hvarf flensunnar. Það er engin þörf á ýkjum eða röngum tölum til að sýna þessa augljósu staðreynd.
Uppfært:
Flensan virðist þó enn vera til í Kína, en Covid horfið þar:
![]() |
Uppruni smitanna þriggja óþekktur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 1.4.2021 kl. 17:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (35)
28.3.2021 | 11:17
Ekkert að óttast - segja þessir læknar í Kananda!
Þessir læknar í Kanada eru með hin ýmsu skilaboð. Börn eru ekki í hættu vegna covid, yfirgnæfandi líkur á að lifa af veikindin, smittölur gefa ranga mynd, hjarðónæmi er meira en haldið er fram. Og fyrir alla muni, hugsið vel um heilsuna. Það er ekkert að óttast.
Enda vitum við að enginn læknir með réttu ráði myndi ráðleggja lokun skóla, fella niður leik og íþróttir, einangra fólk, hræða það og bulla út af pest sem langflestir jafna sig á, nema að þú sért orðinn mjög gamall og/eða veikburða. Annars hefði það sama verið gert í t.d. svínaflensunni sem lagðist harðar á börn en fullorðna. En nei, það var allt opið. Þeir sem voru lasnir voru heima, jöfnuðu sig og fóru aftur í skólann.
Hér er dæmi um bilun lyfjafyrirtækjanna, þau eru að prófa þessa nýju tegund bóluefna á börnum vegna sjúkdóms sem þeim stafar engin hætta af! Enda eru fyrirtækin komin með frítt spil, ríki heims hafa tekið á sig ábyrgð vegna skaða og munu eflaust gera áfram.
Rétt er að minna á skilgreingingu WHO eða Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar á Covid-19. Eru börn í hættu? Eða ungt og hraust fólk? Svarið er: Nei þau eru ekki í hættu!
Og líka gott að rifja upp svínaflensusvindlið sem á nú eftir að fölna í samanburði við þessar stórskaðlegu aðgerðir sem hafa verið í gangi í ár.
p.s. fór á veitingastað í gær þar sem nú á að skrá niður nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer og klukkan hvað maður var staddur á staðnum. Für ihre sicherheit, að sjálfsögðu. Það gerði ég ekki og mun aldrei gera. En var hugsað til Sjálfstæðisflokksins, hvernig ætli t.d. þingmönnum flokksins sem margir trúa enn á frelsi einstaklingsins og þola ekki njósnastarfsemi, líði með svona aðgerðir? Gefa upp nafn og kennitölu, símanúmer á veitingahúsum, kirkjum og víðar! Og já, svo kemur upp smit á veitingastaðnum og þá kemur Víðir lögga eða Rögnvaldur og má samkvæmt nýju "sóttvarnarlögunum" loka fólk inni í "sóttvarnarhúsi" vegna gruns um smit. Sjáið svo lífið í Moskvu, hjá kommúnistunum!
Í upphafi snérust aðgerðirnar um gamla fólkið. Og nú þegar það hefur verið bólusett, þá bara herða þeir tökin. Nú eru börnin í hættu eða þannig! Þeir ganga eins langt og þið leyfið þeim.
![]() |
Grípa til markvissra aðgerða eftir þörfum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
-
aslaugas
-
agny
-
annaeinars
-
danna
-
agustkara
-
bookiceland
-
contact
-
einarborgari
-
rlingr
-
sagamli
-
helga-eldsto-art-cafe
-
bofs
-
sade
-
gusg
-
noldrarinn
-
hafthorb
-
hhbe
-
hlf
-
diva73
-
snjolfur
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
kreppan
-
jaj
-
islandsfengur
-
nonniblogg
-
nyja-testamentid
-
thjodarskutan
-
kristinnp
-
loncexter
-
marinogn
-
sighar
-
sigurduringi
-
sushanta
-
viggojorgens
-
vilhjalmurarnason
-
thorsteinnhelgi
-
valli57
-
tbs