26.3.2021 | 13:22
Innlögnum fækkar úr einni í núll vegna covid!
Sóttvarnalæknir hefur áhyggjur af því að kórónuveirusmitið sem greindist utan sóttkvíar í gær tengist gosstöðvunum í Geldingadölum."
Þá er komin ástæða til að loka gossvæðinu, enda ómögulegt að hafa einhverja skemmtun til staðar þegar árið er 1984. Für ihre Sicherheit, að sjálfsögðu!
Öllu var skellt í lás fyrir páskana, rétt eins og var gert fyrir jólin. Þá þurfti að loka gamla fólkið inni, mátti ekki vera með í jólakúlunni enda gæti það veikst. Nú er búið að bólusetja allt gamla fólkið (nema eina, nefni engin nöfn!).
Rögnvaldur lögga hjá Almannavörnum sagði í gær að nú ættum við að vera í páskakúlum (páskaegg hefði verið meira smart, minna kjánalegt!). Ný bylgja er skollin á, skólabörn landsins í lífshættu út af breska afbrigðinu sem íslenskur vísindamaður segir ekki meira hættulegt, heldur minna. Erlendar rannsóknir hefðu nú sýnt að sú breska væri hættulegri"... en ekki var vísað í eina einustu rannsókn. Þórólfur var spurður af fréttamanni hvort þessir með breska afbrigðið væru veikari en af hinu kínverska: "uhh, ehhh, ja, tja sko..., við erum að kynnast veirunni! Þórólfur segir: ,,börnin munu veikjast", og allir í kór: börnin munu veikjast..." En enginn á spítala með covid. Núll!
En viti menn, svo kom bara viðtal við íslenskan barnasmitsjúkdómalækni sem sagði að börnum stafi ekki meiri hætta af þessu breska! Og búið að loka öllu. Og samkvæmt fólki sem þekkir til í Laugarnes-og Laugalækjaskóla er ekkert barnanna veikt.
Þvílík steypa, þvílík blekking!! Ekki undarlegt að Þórólfur hafi stamað, hikstað og hikað á fundinum í gær.
![]() |
Smitið utan sóttkvíar tengist gosstöðvunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.3.2021 | 23:00
WHO hefur ekki breytt skilgreiningu sinni - hvað með börnin?
,,Breska afbrigiðið smitar frekar börn og gerir þau veikari,, segja þeir nú og þá eru öll lokað. Sóttvarnarlæknir sagði að einhverjar norskar rannsóknir sýndu þetta. En ekki vísað í eina einustu rannsókn. Þvílík fagmennska! Já sko, ,,erlendar rannsóknir sýna..."
Og svo kemur Kári og segir:
Þess vegna er ég svolítið ósáttur við það að við skulum halda leikskólum opnum. Vegna þess að þó svo að börn smitist síður en fullorðnir, þá smitast þau samt. Þó þau verði minna lasin, þá verða þau samt lasin.
Já og hvað? Börn eru með sterkt ónæmiskerfi. Er markmiðið að útrýma sjúkdómum, að veikjast aldrei eða að bólusetja krakkana með tilraunabóluefni fyrir sjúkdómum sem þeim stafar almennt ekki hætta af? Eða hefja skimun í skólum eins og Danir og Bretar gera. Tvisvar í viku er pinnum troðið upp í nef og ofan í kok á skólakrökkunum. Þetta eru ofbeldismenn og þarf að stoppa. Líka Kára hjá Amgen.
WHO eða Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur ekki breytt skilgreiningu sinni á Covid, hún er enn sú sama og fyrir ári. Hvar er þetta með börnin? Já einmitt, það er hvergi og ekki minnst á neitt breskt afbrgiði. Þvílík steypa!
Most people infected with the COVID-19 virus will experience mild to moderate respiratory illness and recover without requiring special treatment. Older people, and those with underlying medical problems like cardiovascular disease, diabetes, chronic respiratory disease, and cancer are more likely to develop serious illness.
https://www.who.int/health-topics/coronavirus#tab=tab_1
p.s. Þjóðverjar segja bara nei, enda þekkja þeir eflaust betur fasistatkrumlurnar og Für ihre sicherheit!
Vísindavefurinn; meira smitandi en ekki meira hættuleg.
https://www.visindavefur.is/svar.php?id=80879
![]() |
Kári: Annað í þessu sem má ekki ræða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 25.3.2021 kl. 12:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.3.2021 | 16:44
Hvaða rannsóknir sýna þetta?
,,Rannsóknir erlendis hafa sýnt að breska afbrigði kórónuveirunnar er mun meira smitandi en flest önnur afbrigði og norskar rannsóknir sýna að spítalainnlagnir eru meira en tvöfalt algengari hjá öllum aldurshópum, einnig hjá börnum eldri en sex ára."
Hvernig væri að vísa í eins og eina rannsókn þegar loka á landinu?
Og Bretar sem nýlega hafa opnað skólana.
Hvað hafa margir smitast af breska afbrigðinu hér heima og hversu veikir eru þeir?
![]() |
Innlagnir á spítala tvöfalt algengari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.3.2021 | 12:12
Indland toppar allt - komið með tvöfalt afbrigði
Nýjustu veirufréttir eru þær að á Indlandi hefur fundist nýtt tvöfalt afbrigði. Við það hlýtur hið brasilíska, breska og öll hin að fölna.
Skyldi það vera indverskt / nepalískt eða indverskt / sri-lanka-iskt eða norður-indverskt / suður-indverskt? (afbrigðin oftast kennd við ríki).
Norður-og suður-Indland eru nefnilega mjög ólík. Hef heimsótt bæði svæðin fyrir ekki svo löngu. En burt séð frá þessu nýja tvöfalda afbrigði, held ég að Indverjar hafi við meiri og stærri vandamál að glíma en veirupest þar sem 80 ára og eldri eru í mestri hættu. Í febrúar var talið að faraldurinn væri þar á undanhaldi, jafnvel komið á hjarðónæmi. Talið er að faraldurinn hafi þrýst 75 milljónum Indverja til viðbótar inn í fátækt. Dagvinnufólk var í upphafi faraldurs sent heim."
En kannski mætti spyrja, eru Indverjar eitthvað að óhlýðnast WHO / Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni? Vilja þeir ekki kaupa bóluefni frá Vesturlöndum eins og t.d. fyrrum forseti Tanzaníu vildi ekki gera? Indverjar hafa framleitt sitt eigið. Forseti Brasilíu hefur verið ósamvinnuþýður (brasilískt afbrigði), England fór úr ESB (breskt afbrigði), suður-Afríka hefur ekki viljað vera mikið með (s-Afríska afbrigðið). En auðvitað er þetta samsæriskenning, en samt áhugaverð. Eða hafið þið heyrt um bandaríska afbrigðið?
p.s. en í upphafslandinu Kína, er þetta helst að frétta af heimsfaraldrinum mikla.
https://www.worldometers.info/coronavirus/country/china/
Bloggar | Breytt 25.3.2021 kl. 15:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.3.2021 | 10:34
Er fólkið veikt?
Ég held að við séum komin á þann stað að við verðum að loka öllu núna, einfaldlega öllu, segir Kári.
Eru þeir smituðu veikir og þá hversu veikir? Eru einhverjir einkennalausir? Skiptir það kannski engu máli, bara að það finnist smit.
og p.s. er flensan enn ekki komin? Það er að koma ár frá því að síðustu flensusmit voru skráð.
![]() |
Að minnsta kosti 15 smit greindust |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.3.2021 | 20:53
Einkennilega fáar tilkynningar vegna Pfizer
,,Mjög misjafnt er eftir bóluefnum hversu mikið hefur borist af því til landsins. Samkvæmt upplýsingum á covid.is frá því í morgun er búið að fullbólusetja 14.493 með bóluefni Pfizer og 11.536 hafa fengið fyrri bólusetninguna með því bóluefni.Aftur á móti eru 2.413 fullbólusettir með bóluefni Moderna og 247 hafa fengið fyrri bólusetningu með því bóluefni.Alls hafa 9.273 fengið fyrri bólusetningu með AstraZeneca bóluefninu en það hefur ekki verið gefið frá 11. mars hér á landi." (mbl 23.3.2021.)
Hlutfallslega eru flestar tilkynningar vegna Moderna. Og það lyf fékk tiltölulega ungt fólk.
Hlutfallslega fæstar tilkynningar eru vegna Pfizer. Langflestir hafa fengið það lyf og aðallega eldra fólk. Það er kannski sá hópur sem ekki er að senda inn tilkynningar? (sendi einmitt erindi til Lyfjastofnunar í morgun og spurði hvernig þeir myndu helst útskýra hlutfallsega fáar tilkynningar vegna Pfizer).
AstraZeneca fengu þeir sem eru yngri en 65 ára og starfa við heimahjúkrun, á elliheimilum, sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum. Líklega er það sá hópur sem myndi helst sinna því að senda inn tilkynningar.
Hér eru tilkynningar um aukaverkanir og allar tölur um bóluefni og bólusetningar sem reyndar koma fram í fréttinni.
Uppfært. Hér er vísað í gögn sem segir blóðtappa ekkert sjaldgæfari vegna Pfizer, heldur algengari:
But whilst the authorities have managed to get you worried about the adverse reactions to the AstraZeneca vaccine they have distracted you from the worrying number of serious adverse reactions to the Pfizer vaccine, which actually fairs worse in the central nervous system haemorrhage and cerebrovascular accident department.
![]() |
Fjórar tilkynningar um blóðtappa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 24.3.2021 kl. 10:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.3.2021 | 14:36
Ráðherrar, alþingismenn og þríeykið - verið næst!
,,Heilbrigðisráðherra telur að Ísland geti byrjað að bólusetja á ný með bóluefni AstraZeneca mjög bráðlega. Líklega kemur það betur í ljós síðar í þessari viku til hvaða aðgerða verður gripið."
Ráðherrar, alþingismenn og þríeykið geta reynt að vekja traust almennings á ný með því að taka efnið sjálf. Enda eru þau öll óbólusett en jafnframt ómissandi fólk! Það gera ráðherrar í öðrum ríkjum, t.d. Bretlandi og Ástralíu. Einnig fyrrum forsetar Bandaríkjanna (reyndar ekki með AstraZeneca en hin efnin). Þetta fólk er flest í meiri áhættu en 18 ára stelpur á hjúkrunarheimilum!
Annars væri áhugavert að sjá hvað stendur í leynilegu bóluefnasamningunum. Kannski er búið að skuldbinda x margar bólusetningar með þessu simpansabóluefni, enda er um að ræða tilraun/rannsókn sem lýkur 2023.
![]() |
Bólusetningar hefjist aftur mjög bráðlega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.3.2021 | 13:24
Enda er þetta ekki bóluefni - stuðlar ekki að ónæmi!
,,Fyrir nokkrum dögum greindist bólusettur farþegi sem kom hingað til lands með SARS-CoV-2 veiruna í nefkoki."
Its not a vaccine. A vaccine by definition provides immunity to a disease. This does not provide immunity to anything. In a best-case scenario, it merely reduces the chance of getting a severe case of a virus if one catches it. Hence, it is a medical treatment, not a vaccine. I do not want to take a medical treatment for an illness I do not have.
Og hér er samskonar frétt. Og hér.
Rannsókn hér á landi hefði mögulega getað svarað því hvort bóluefnin komi í veg fyrir smit.
![]() |
Bólusettur farþegi með veiruna í nefkoki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.3.2021 | 12:51
Rabbíni í Ísrael - 31 ástæða fyrir að taka ekki "bóluefnið"
Þessi rabbíni, Chananya Weissman, nefnir 31 ástæðu fyrir því að hann muni aldrei taka bóluefni gegn Covid-19.
Ein þeirra er: This is the greatest medical experiment in the history of the human race.
p.s. fréttir hér heima hafa ekki sagt frá mótmælum í Ísrael svo ég muni en þessi mótmæli áttu sér stað í Ísrael um helgina.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.3.2021 | 11:40
Röng forgangsröðun bólusetninga?
,,Aðstoðarmaður forstjóra Landspítala segir að skortur sé á bóluefni gegn Covid-19 og enn eigi eftir að bólusetja einhverja starfsmenn sem eru mjög framarlega í þjónustu spítalans. Um helmingur starfsfólks Landspítala hefur fengið bólusetningu gegn Covid-19. Enn á eftir að bólusetja um 2.500 starfsmenn spítalans sem starfa í klínískri þjónustu."
Það var sem sagt nauðsynlegra að nýta bóluefnið fyrir til dæmis alla lögreglumenn og fyrir 90 ára og eldri og 100 ára og eldri. Með fullri virðingu fyrir gamla fólkinu! En gamla fólkið virðist einnig vera viðkvæmast fyrir bólusetningu miðað við þessar dánartölur frá Bretlandi.
Síðan er búið að bólusetja allt starfsfólk hjúkrunarheimila, allt niður í 18 ára. Eru 18 ára í meiri áhættu en miðaldra læknar og hjúkrunarstarsfólk spítala? Og fæstir bólusettir á smitsjúkdómadeild! (Það eru tiltölulega fáir starfsmenn á þessari deild búnir að fá bólusetningu, segir Már.)
Á Bretlandi (og sama er að segja um Bandaríkin) þar sem okkur er sagt að faraldurinn hafi verið hvað verstur virðist almenningur þó vera tregari en t.d. Íslendingar við að taka bóluefnið. Samkvæmt þessari frétt er til skoðunar að skylda með lögum bólusetningu á starfsfólki hjukrunarheimila á Bretlandi.
En hvað Ísland snertir er þetta áhugaverð frétt um skoðanir Kára og Þórólfs á bólusetningu heilbrigðisstarfsmanna. Þeir voru ósammála um forgangsröðun.
Og það er eitthvað sem ekki stemmir hér, langflestir og mest eldra fólk hefur fengið Pfizer, en tilkynningar um aukaverkanir eru fæstar með Pfizer. Hér má sjá fjölda bólusettra, aldursskiptingu og tegund lyfs.
![]() |
Við höfum ekki fengið nóg bóluefni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
-
aslaugas
-
agny
-
annaeinars
-
danna
-
agustkara
-
bookiceland
-
contact
-
einarborgari
-
rlingr
-
sagamli
-
helga-eldsto-art-cafe
-
bofs
-
sade
-
gusg
-
noldrarinn
-
hafthorb
-
hhbe
-
hlf
-
diva73
-
snjolfur
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
kreppan
-
jaj
-
islandsfengur
-
nonniblogg
-
nyja-testamentid
-
thjodarskutan
-
kristinnp
-
loncexter
-
marinogn
-
sighar
-
sigurduringi
-
sushanta
-
viggojorgens
-
vilhjalmurarnason
-
thorsteinnhelgi
-
valli57
-
tbs
Af mbl.is
Íþróttir
- Pamela Ósk efst eftir höggleikinn
- Þór/KA 2025 - Víkingur R., staðan er 1:1
- Þá eigum við að vera í fínum málum
- Skipuleggjendur HM 2026 hafa miklar áhyggjur
- Frekar sárt að vera fara
- Svona er fótboltinn
- Napoli ákveðið í að fá Nunez
- Það vantaði einhvern neista
- Kláruðum tankinn algjörlega
- Fyrsti sigur Vals í tvo mánuði