Leita í fréttum mbl.is

Einkennilega fáar tilkynningar vegna Pfizer


gröf,,Mjög mis­jafnt er eft­ir bólu­efn­um hversu mikið hef­ur borist af því til lands­ins. Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um á covid.is frá því í morg­un er búið að full­bólu­setja 14.493 með bólu­efni Pfizer og 11.536 hafa fengið fyrri bólu­setn­ing­una með því bólu­efni.Aft­ur á móti eru 2.413 full­bólu­sett­ir með bólu­efni Moderna og 247 hafa fengið fyrri bólu­setn­ingu með því bólu­efni.Alls hafa 9.273 fengið fyrri bólu­setn­ingu með AstraZeneca bólu­efn­inu en það hef­ur ekki verið gefið frá 11. mars hér á landi." (mbl 23.3.2021.)

 

Hlutfallslega eru flestar tilkynningar vegna Moderna. Og það lyf fékk tiltölulega ungt fólk. 

Hlutfallslega fæstar tilkynningar eru vegna Pfizer. Langflestir hafa fengið það lyf og aðallega eldra fólk. Það er kannski sá hópur sem ekki er að senda inn tilkynningar? (sendi einmitt erindi til Lyfjastofnunar í morgun og spurði hvernig þeir myndu helst útskýra hlutfallsega fáar tilkynningar vegna Pfizer). 

AstraZeneca fengu þeir sem eru yngri en 65 ára og starfa við heimahjúkrun, á elliheimilum, sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum. Líklega er það sá hópur sem myndi helst sinna því að senda inn tilkynningar.

Hér eru tilkynningar um aukaverkanir og 
 allar tölur um bóluefni og bólusetningar sem reyndar koma fram í fréttinni.

Uppfært. Hér er vísað í gögn sem segir blóðtappa ekkert sjaldgæfari vegna Pfizer, heldur algengari:

But whilst the authorities have managed to get you worried about the adverse reactions to the AstraZeneca vaccine they have distracted you from the worrying number of serious adverse reactions to the Pfizer vaccine, which actually fairs worse in the central nervous system haemorrhage and cerebrovascular accident department.

 


mbl.is Fjórar tilkynningar um blóðtappa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott að sjá að þú ert núna sanngjörn í dómum þínum um hin þrenn mismunandi bóluefni.

Og algjörlega ljóst að galdrafárið að undanförnu gegn AstraZeneca, einu bóluefnanna, var algjörlega úr hömlu.  Má svo minna á að AZ bóluefnið er nær 10 sinnum ódýrara en mRNA bóluefnin frá Pfizer og Moderna.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 23.3.2021 kl. 23:13

2 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Ég er hlutlaus þannig lagað séð en hef vissulega tekið eftir pólitíkinni. Líka sbr. breska og brasilíska afbrigðið. Og nú er USA að gagnrýna gögn frá AZ. 

En vil ekkert þeirra og er algjörlega á móti því að bólusetja ungt og hraust fólk vegna sjúkdóms sem þeim stafar engin sérstök hætta af.

Hef áhuga á Ivermectin lyfinu.

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 23.3.2021 kl. 23:54

3 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Símon, sjá hér:
https://dailyexpose.co.uk/2021/03/23/investigation-what-does-official-government-data-on-adverse-reactions-to-covid-vaccines-tell-us-about-blood-clots/

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 24.3.2021 kl. 10:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband