Leita í fréttum mbl.is

Astra Zeneca - eitt í dag, annað á morgun og allt annað næsta dag!

astra60Fyrir rúmum mánuði sagði Kári að það væri heimskulegt og fáránlegt að láta 60 ára og eldri fá bóluefnið frá Astra Zeneca (AZ). Hann sagði að rannsóknir sýndu að efnið virkaði illa fyrir þennan aldurshóp.

26. apríl er síðan haft eftir Kára að fólk í áðurnefndum aldurshópi og bara allir eigi hiklaust að láta sprauta sig með AZ, því allt sé eins og blómstrið eina og sjálfur tók hann sprautuna og kenndi sér einskis meins en nennti þó ekki út með ruslið um kvöldið (fann til í handleggnum). Á þessum tíma var AZ ekki gefið yngri konum og því er athyglisvert að hann hvetji alla sem einn til að þiggja efnið þvert á þágildandi aldurstakmörk Landlæknisembættisins. 

Eftir sprautuna sagði Kári að EIN sprauta myndi veita 55% vernd.

27. mars 
segir sóttvarnarlæknir að TVEIR skammtar veiti 85% vernd hjá eldra fólki.

Í gær birtist frétt sem segir misræmis gæta hjá sjálfri Lyfjastofnun um virkni AZ, þar sem fram kemur að TVEIR skammtar veiti um 60% vörn og það stendur enn hjá Lyfjastofnun sbr. myndina ofar sem tekin er í dag.

Í dag kemur síðan frétt um rannsókn frá S-Kóreu sem segir að bara EIN sprauta af AZ veiti 86% vörn hjá eldra fólki en 60 ára (sjá efst frá Kára til samanburðar).

Í apríl, eftir hlé á notkun efnisins, var ákveðið að bjóða það körlum 55 - 60 ára. Þar áður mátti aðeins gefa það körlum eldri en 70 ára. Í lok apríl mátti gefa það körlum yngri en 60 ára ef þeir væru ekki með áhættuþætti. Í dag má gefa körlum á öllum aldri efnið.

Eins og flestir muna þá var AZ aðeins gefið fólki undir 60 ára í byrjun, 18 - 59 ára. Eftir stutta tilraun með efnið á yngri en 60 komust menn að því að blóðtappamyndun fylgdi efninu meðal yngri kvenna. Þá var ákveðið að gefa það aðeins konum eldri en 60 ára. Stuttu síðar var það lækkað niður í 55 ára.

Þrátt fyrri að enn sé miðað við 55 ára hjá konum skv. upplýsingum frá landlækni er nú verið að senda öllum aldursflokkum boð um AZ, þar á meðal konum 18 - 55 ára. Sem sagt þvert á þær reglur sem er að finna á síðu landlæknis. Í gær sagði Kamilla hjá Landlæknisembættinu að þeir sem ekki hefðu fengið aukaverkun af fyrri AZ skammti fengju boð um að koma í seinni skammtinn, en það eru meðal annars konur 18-55 ára. En 27. apríl sagði sóttvarnarlæknir að ekki eigi að nota efnið á konur 18-55 ára.

Nýjustu upplýsingar eru þær að stytta má tímann á milli AZ skammta.

Sá sem getur lært þennan texta orðrétt utan að, eins og ljóð í barnaskóla, fær vegleg verðlaun. Til dæmis sjóveikistöflur.

Hef velt því fyrir mér hvort yfirvöld heims séu að reyna að komast inn í einhvern lokaðan V.I.P. klúbb, en til að fá inngöngu þurfa þau að rugla, hringla og pönkast á þjóðum sínum sbr. opnun, lokun, enduropnun, endalausar breytingar á landamærum, fjölda sýnitaka, reglur í sóttkví, fjöldatakmörkunum, síbreytilegum markmiðum (hjárðónæmi, fletja kúrfuna, veirulaust samfélag, smitstuðul undir 1,5 o.s.frv.) Ef yfirvöld væru foreldrar og samfélögin börn þeirra, væru börnin eflaust orðin sjúk á sál og líkama.

Og hér er mynd úr Laugardalshöllinni en það er veirufrítt svæði. Veirur berast ekki manna á milli í íþróttahöllum heldur frekar í kirkjum, menntastofnunum, o.fl.
dv

 

 

 

 


mbl.is Einn skammtur veitir mikla vörn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst Kárason

Takk fyrir góða pistla Þórdís.

Ætli öllu aumingja fólkinu þarna á myndinni hafi verið gert ljóst að þau eru þáttakendur í tilraun. Varðandi AZ þá finnst mér sérstakt hvað fjölmiðlar tala mikið um aukaverkanir og lélega virkni á því á meðan ekkert slæmt heyrist um genatólin Pfiser/bio og Moderna. Fólki er augljóslega smalað að þessum genatólum og yngri konum sérstaklega sýnist mér en gamla fólkinu er haldið frá þeim. Smátt og smátt hefur þessum genatólum verið komið í forgang Og aldurshóparnir verða yngri og yngri.

Afhverju drulla stjórnvöld sér ekki til að kaupa hefðbundin bóluefni af Rússum sem hafa yfir 90% virkni og fara vel í gamalt fólk og bæði kyn? Það er jú fólkið sem þarf að vernda ekki satt?

Ágúst Kárason, 9.5.2021 kl. 00:23

2 Smámynd: Ágúst Kárason

Sæl aftur. Úr fréttinni.- "Upp komu 1.237 til­felli kór­ónu­veiru og smituðust ein­ung­is 29 bólu­sett­ir."

"Tilfelli" þarna eru augljóslega PCR prufur og það er sannað að PCR gefur 97% false positive, sem sagt 97% af öllum þeim sem greinast með smit eru ekki smitaðir og 3% greinast rétt og eru með smit.

29/1237= 2.3%  

Þetta minnir mig á grein í Lancet fyrir nokkrum árum þar sem flensu-bóluefnaframleiðendur dásömuðu 60% virkni af bóluefnunum en ef greinin er lesin til þaula kemur fram að samkvæmt statík smitast um 3% af almenningi af flensu í hverjum faraldri og ef 100% eru bólusettir lækkar sú tala um 1.5% eða svo.

Ágúst Kárason, 9.5.2021 kl. 01:03

3 Smámynd: Geir Ágústsson

Mögnuð blaðamennska Þórdís. Ég vona að þú sért að taka skjáskot því fréttir gætu jú "horfið".

Geir Ágústsson, 10.5.2021 kl. 20:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband