25.6.2021 | 13:16
Hvað skyldi umboðsmaður Alþingis segja um þetta fyrirkomulag?
Með þeim breytingum verða flestallar takmarkanir á ferðum bólusettra og barna til landsins afnumdar og því geta um 90% landsmanna komið óhindrað til landsins, sagði Svandís."
Þetta er auðvitað óbein þvingun til að fá fólk í bólusetningu með lyfi sem ekki hefur fengið markaðsleyfi og lyf sem FDA hefur sett viðvörun á, n.t.t. Pfizer og Moderna? Þvingun til að taka inn lyf á neyðarleyfi er brot á Nurnberg lögunum. Sjá þennan nýja hæstaréttardóm frá Indlandi.
Ákveði ég að fara til útlanda, óbólusett af þessu varasama líftæknilyfi á neyðarleyfi sem er að slá öll met í aukaverkunum, m.a. varðandi tíðarhring kvenna og verkjum tengdum móðurlífi, mun ég hiklaust neita sýnatöku og sóttkví. Sjáum hvernig það mál myndi fara. Lyfjunum fylgja ekki bara vandamál tengd móðurlífinu heldur einnig töluvert um einkennileg veikindi sem ekki var varað við í upphafi, sjá t.d. hér. 1870 aukaverkanir hafa verið tilkynntar og þar af 124 alvarlegar (lífshættulega tilvik eða dauði).
Erindi verður sent umboðsmanni í dag.
p.s. hvernig er með þá Rögnvald og Víði löggur, eru þeir búnir að fara í bólusetningu? Það átti að bjóða þeim líka sem eru með mótefni. Eflaust hafa þeir ekki farið enda hefði það komið í sjónvarpinu. Allir að klappa fyrir Víði sem lenti í hópsmiti því hann fór ekki eftir reglunum, bara kærulaus.
![]() |
90% landsmanna geta komið óhindrað til landsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Bólusetning barna á aldrinum 12-15 ára með undirliggjandi sjúkdóma er hafin, þótt Þórólfur geti ekki sagt til um nákvæmlega hversu vel á veg hún er komin. Hann segir enn ekki búið að ákveða hvort öll börn á þessum aldri verði bólusett. Bóluefni Pfizer hefur verið samþykkt fyrir þennan aldurshóp."
Það sem sóttvarnarlæknir á við með að lyfin séu samþykkt er að þau hafa fengið neyðarleyfi. Á Íslandi kalla þeir þetta skilyrt leyfi sem er annað heiti yfir neyðarleyfi/undanþágu.
FDA (Fæðu- og lyfjastofnun Bandaríkjanna) mun setja viðvörun á Pfizer og Moderna sprauturnar þar sem varað er við hættu á sjaldgæfum hjartabólgum í ungu fólki. Þetta kemur fram í erlendum fjölmiðlum í dag.
Það merkilega við þetta allt saman er að yfirvöld hér heima hafa vitað í nokkurn tíma að verið væri að rannsaka þessi hjartamein í ungu fólki tengd bóluefnunum, meðal annars í Ísrael, Bandaríkjunum og Noregi. Það virtist engu breyta, yngri árgangar voru boðaðir eftir það. Það sem FDA kallar sjaldgæft virðist reyndar ekki vera mjög sjaldgæft. Forstjóri Lyfjastofnunar var spurð í maí sl. hvort borist hefði tilkynning um hjartavöðvabólgu. Hún sagðist ekki muna til þess. Gat hún ekki athugað málið - já eða nei? 46 tilkynningar um hjartavandamál (cardiac disorders) hafa skv. þessum nýju upplýsingum borist stofnuninni.
Ef fólk ákveður að sækja um bætur vegna þessara meina sem væntanlega koma upp hér eins og annars staðar, hlýtur það að styrkja málið ef hægt er að sýna fram á að yfirvöld hafi vitað af þessari mögulegu aukaverkun en ekkert aðhafst og ekki varað við, sértaklega unga fólkið.
Hér er meira um þessar aukaverkanir sem eru til rannsóknar og hér segir frá því að spítalar í Bandaríkjunum séu ekki að tilkynna tilfellin til VAERS. Líkurnar virðast stóraukast eftir sprautu númer tvö af Pfizer.
Stofnunin er farin að minna á Fjáramáleftirlitið (FME) fyrir bankahrunið, til dæmis varðandi ólöglegu gengistryggðu lánin. FME vissi að lánin væru ólögleg en spilaði með og fékk svo á baukinn í átta binda rannsóknarskýrslu.
.
![]() |
Vonar að aldrei þurfi að herða aðgerðir aftur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.6.2021 | 11:24
Jason Daði - tengsl við bólusetningu 10 dögum áður?
Þeir sem fylgjast með því sem verið er að rannsaka í tengslum við nýju bóluefnin/líftæknilyfin sem aldrei hafa fengist samþykkt til notkunar á mannfólki fyrr, skoða atburðina að sjálfsögðu í ákveðnu ljósi.
Það er staðreynd að verið er að rannsaka möguleg tengsl milli hjartavöðvabólgu (myocarditis) og þessara nýju bóluefna sem eru öll á skilyrtu leyfi (neyðarleyfi). Einkenni á hjartavöðvabólgu eru meðal annars brjóstverkur, höfuðverkur og andþyngsli. Hætta á blóðtappa hefur líka verið tengd við lyfin og einhverjar rannsóknir hafa verið gerðar á því. Blóðtappahættan er ástæða þess að yfirvöld hér heima og víðar hafa verið að hringla með aldurshópana og Astra Zeneca.
Danmörk hefur þegar greitt sínar fyrstu skaðabætur til þrítugrar konu vegna blóðtappa eftir Astra Zeneca bólusetningu. Astra Zeneca og Janssen eru sambærileg bóluefni, byggð á samskonar tækni. Danir ákváðu að nota ekki Janssen, en hér heima þótti sjálfsagt að nota það, þar á meðal á yngri hópa sem ekki máttu fá hið sambærilega Astra Zeneca.
EMA (European Medical Association) og CDC (Center for Disease Control) í Bandaríkjunum rannsaka nú möguleg tengsl milli hjartavöðvabólgu og þessara nýju lyfja. Fleiri tilkynningar þessu tengdu hafa borist en gert var ráð fyrir og því fór af stað rannsókn. Grunur um tengsl hefur styrkst segir meðal annars í þessari frétt. Hér eru nánari upplýsingar um málið sem ég tók saman fyrir ca. 10 dögum. (Reyndar er verið að skoða Pfizer sérstaklega en öll þessi lyf hafa verið tengd samskonar hættu). Og já, yfirvöld vissu af þessum rannsóknum fyrir þó nokkru.
Hér spyr einn sem nýlega hafði fengið Janssen hvort aðrir hefðu fundið fyrir verk í bringu á eftir. Sjá mynd:
10.júní var sagt frá því að leikmenn Breiðabliks hefðu fengið Janssen efnið þar á meðal Jason Daði.
20. júní er síðan sagt frá því að Jason hafi lagst niður í miðjum leik og haldið fyrir brjóstkassann og verið fluttur af velli.
Ég átti bara erfitt með andardrátt og var illt í hausnum. Sjúkraþjálfarinn kom til mín, hjálpaði mér í gegnum þetta og það er allt í góðu núna."
Samkvæmt fréttinni fer hann í frekari rannsóknir.
Miðað við fréttina á fótbolti.net virðist mönnum hafa brugðið og því varla um að ræða vanalegan atburð.
Lyfjastofnun hafa borist 1740 tilkynningar um grun á aukaverkunum af Covid bóluefnum sem eru öll á neyðarleyfi (skilyrtu markaðsleyfi eins og þeir kalla það hér). Þar af eru 120 tilkynningar um alvarlegar aukaverkanir en alvarleg aukaverkun er skilgreind sem lífshættulegt atvik eða dauði.
Þrjár alvarlegar tilkynningar hafa borist stofnuninni vegna Janssen. Ómögulegt er að sjá hverjar þær eru þrátt fyrir að Lyfjastofnun beri að hafa allar þessar upplýsingar skiljanlegar og aðgengilegar. En þess í stað kýs hún að reisa fjórar súlur í tvennskonar litum (sjá neðar) og vegna mikillar gagnrýni undanfarið hefur hún bætt við smá upplýsingum á ensku sem er virkilega faglegt hjá stofnunni eða þannig! En sá fjöldi þöggunarsérfræðinga sem þar starfa kunna kannski ekki að þýða yfir á íslensku.
p.s. ég minni á þessa ræðu finnska þingmannsins um hættuna á bóluefnum.
Og hversu vel virkar annars Janssen gegn Covid? Sjá mynd neðar.
![]() |
Jason kominn heim og líður vel sjúkrabíll 11 mínútur á leiðinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 16:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.6.2021 | 11:52
Læknavísindum snúið á hvolf - bólusetja þá sem þegar hafa sýkst!
Hvað fær svona sérfræðinga eins og Magnús Gottfreðsson til skrifa grein þar sem ónæmisfræðum er snúið á hvolf?
Þarf að bólusetja þá sem þegar hafa veikst af sjúkdómi! Really? Eða eru menn að gera tilraun með það líka, svona eins og með barnshafandi konur?
Hvers vegna breytti landlæknisembættið nýlega ráðleggingum sínum varðandi óléttar konur? Kom eitthvað fyrir sem varð til þess að embættið mælti allt í einu gegn bólusetningum þungaðra kvenna? Bóluefnið eða líftæknilyfið (mRNA) virðist a.m.k. hafa áhrif á hormónastarfsemi kvenna ef marka má umræðu íslenskra kvenna. Og nýjar fréttir frá Bretlandi varðandi þessar einkennilegu aukaverkanir af bólusetningum.
Á síðu Lyfjastofnunar sem neyddist vegna mikillar gagnrýni að birta heiti aukaverkana koma nú fram upplýsingar (á ensku) um þrjár tilkynntar aukaverkanir tengda meðgöngu.
Pregnancy, puerperium and perinatal conditions.
Magnús segir þó að mótefnasvarið gegn broddprótíninu virðist vera kröftugra hjá þeim sem eru bólusettir heldur en hjá þeim sem hafi fengið náttúrulega sýkingu. Það er ástæðan fyrir því að menn eru að mæla með svona örvunarskammti af bóluefninu eftir að fólk hefur fengið Covid," segir Magnús og bendir á að í raun og veru sé það kannski ekki fyllilega ljóst hver mótefnavörnin verði eftir lengri tíma."
Var ekki sóttvarnarlæknir einmitt að mæla gegn því að bólusettir létu mæla mótefnasvar, því ekki væri alltaf að marka þannig mælingar? Við hvernig mælingar styðjast þessar rannsóknir sem Magnús vísar í? Kári Stefánsson mælti gegn því apríl sl. að bólusetja þá sem væru með mótefni.
Þetta segir bandaríski læknirinn Peter McCullough: Náttúruleg sýking af Covid veitir varanlegt og fullkomið ónæmi og því út í hött að bólusetja þá sem hafa þegar veikst."
Fyrir ekki löngu fór fram umræða í þinginu í Texas þar sem læknar segja frá því að aukaverkanir af bóluefninu hjá þeim sem þegar hafi sýkst af Covid geti orðið mun alvarlegri en hjá hinum og beinlínis hættulegt að gefa þeim efnið.
En ástæðan fyrir þessum snúningi í ónæmisfræðum gæti verið sú að WHO eða Alþjóðaheilbrigðisstofnunin breytti í miðjum faraldri skilgreiningu sinni á hjarðónæmi. Áður var hægt að ná hjarðónæmi bæði með náttúrulegum sýkingum og bólusetningum en núna er aðeins hægt að ná hjarðónæminu með bóluefni! Sjá mynd ofar. Markmiðið er auðvitað að sprauta þessum lyfjum í sem flesta gegn síbreytilegum kórónuveirum sem aldrei hefur tekist að búa til bóluefni fyrir og ekki einu sinni núna.
Sjáið þessa lýsing á Covid eftir Janssen:Það kom fram um daginn að landlæknir og sóttarvarnarlæknir hafi fengið álagsgreiðslur. Hvar er hægt að fá upplýsingar um það hvort fleiri ríkisstarfsmenn séu að fá greitt álag?
Læt þessi orð vísindamannsins Mike Yeadon´s fylgja með en hann starfaði hjá Pfizer í 23 ár. Þetta er allt eintóm lygi segir hann. Lygaþvæla fra a-ö. Smellið á myndina til að sjá skýrar.
![]() |
Bólusettir með meira mótefnasvar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 22.6.2021 kl. 10:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.6.2021 | 16:09
Virkar Janssen á Delta afbrigðið og er þetta eðlileg aukaverkun?
Bólusett verður með Janssen á þriðjudag og Pfizer á miðvikudag, að sögn Sigríðar Dóru Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra lækninga hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu."
Virkar Janssen á Delta? Eða er það orðið úrelt og gagnslaust en áhættan á aukaverkunum töluverð miðað við umræðuna á samskiptamiðlum. Er eðlilegt að fá sting fyrir bringuna/brjóstið af Janssen? (Lýsingin tekin af Kórónuveiran Covid-19 hópnum sem telur um 20 þús. manns). Er fólki sagt að verið sé að rannsaka óvenju mörg tilfelli af hjartavöðvabólgu í ungu fólki eftir bólusetningar?
Hér má lesa meira um aukaverkanir hjá bólusettum Íslendingum. Og hér hjá bólusettum konum. Hafið þið séð þetta? Fleiri dauðsföll má rekja til Covid bóluefnanna en allra bóluefna samtals í gengum tiðina? Verður bankahrunið smotterí í samanburði við þetta augljósa lyfjaslys?
![]() |
Þetta er bara óvissa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tim Spector, sem leitt hefur rannsókn á einkennum Covid-19 í Bretlandi, segir að Delta-afbrigðið geti verið meira eins og slæmt kvef" fyrir yngra fólk. Jafnvel þó að einstaklingar verði ekki mikið veikir geti þeir smitað aðra."
Þannig að unga fólkið er í stórhættu út af kvefpest sem búast má við hér bráðlega miðað við hræðsluáróður Ingileifar hjá hinu erlenda fyrirtæki Íslenskri Erfðagreiningu. Hún er ein af þeim sem vill sprauta unga fólkið. (Er ÍE og/eða HÍ nokkuð að gera rannsókn á hjarðónæmi eða öðru tengdu lyfjunum?)
Um að gera að sprauta í krakkana mRNA líftæknilyfi á neyðarleyfi með tilheyrandi aukakverkunum og veikindum, til að þau fái ekki kvef og smiti ekki þá sem þegar hafa látið blekkjast og tekið lyf við síbreytilegri kórónuveiru (sem aldrei hefur tekist hingað til að gera og ekki heldur núna eins og heyra má og sjá.)
En hafið þið eitthvað heyrt af gömlu góðu flensunni? Það hefur enn ekki verið skráð eitt einasta tilvik af flensu frá því vorið 2020 og athugið að inflúensa er skráningarskyldur sjúkdómur.
Munið hvað breska afbrigðið átti að vera hættulegt krökkunum? Já einmitt, ekki eitt barn eða ungmenni veiktist alvarlega og Jón Ívar Einarsson læknir og Harvard prófessor var ekki lengi að fakt-tékka upplýsingaóreiðu yfirvalda sem reyndu að hræða foreldra og börn.
Trump vill skaðabætur frá Kína
Annars er Trump farinn að tjá sig á ný og mælir meðal annars gegn bólusetningu unga fólksins. Efnin eru hættuleg unga fólkinu." Trump segir líka að krefjast eigi 10 trilljóna USD í bætur frá Kína og að hann sé viss um að veiran hafi sloppið út af rannsóknarstofu í Wuhan. Kína hefur hagnast gífurlega á Covid fárinu segir fyrrum forsetinn í þessu viðtali við Fox. Margt annað kemur fram í vitaðlinu. Og sjáið partinn með Biden. Er þetta virkilega foresti Bandaríkjanna?
p.s. myndin efst er af heilbrigðisráðherra Breta, Matt Hancock, sem einhverjir Bretar vilja meina að sé nýja veiruafbrigðið. Fyrir utan að vera ráðherra heilbrigðismála, á hann hlutabréf í lyfjafyrirtæki. Sjá einnig hér.
![]() |
Einkenni Delta-afbrigðisins kunni að vera óhefðbundin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.6.2021 | 22:14
Finnskur þingmaður lætur þingið heyra það - hættið að blekkja fólkið!
Finnski þingmaðurinn Ano Turtiainen hélt þessa ræðu í finnska þinginu þann 9. júní síðastliðinn. Í henni varaði hann finnska þingmenn og fjölmiðla við því að ef þau héldu áfram að blekkja íbúa landsins með því að ljúga að þeim að bóluefnin væru örugg, væru þau af ásettu ráði flækt í hina ýmsu glæpi og sá alvarlegasti af þeim væri þjóðarmorð. Ræðan er á finnsku með enskum texta.
Guðrún Bergmann rithöfundur tók að sér að þýða alla ræðuna á íslensku.
Gefum þingmanninum orðið:
Virðulegi forseti, skýrsla nefndarinnar fjallar um ýmsar áskoranir er varða öryggi Finnlands. Hún fjallar hins vegar ekki um mjög alvarlega áskorun sem snýr að öryggi Finnlands og finnsku þjóðarinnar einmitt núna. Hér vísa ég til hinna svokölluðu COVID bóluefna, sem hafa einnig aðgreint þjóðina í tvo hópa; þá sem eru meðvitaðir og þá sem eru afvegaleiddir.
Kæru þingmenn, ég mun nú veita ykkur eftirfarandi upplýsingar, svo að þið getið aldrei héðan í frá borið fyrir ykkur vanþekkingu eftir að hafa heyrt þessar upplýsingar um þá hættu sem finnskir ríkisborgarar eru berskjaldaðir fyrir. Hér í Finnlandi er nú verið að sprauta íbúa landsins með eitri sem dulbúið er sem COVID bóluefni.
Hlustið vel! Ekkert af þessu sprautaða eitri sem dulbúið er sem COVID bóluefni hefur markaðsleyfi í Finnlandi, einungis skilyrt markaðsleyfi frá Lyfjastofnun Evrópu (EMA). Í skilmálum skilyrta leyfisins kemur skýrt fram að heimildin sé skilyrt og ég vísa hér í þá: Fyrirliggjandi upplýsingar verða að sýna fram á að ávinningur lækningalyfsins sé meiri en hættan sem af því stafar." (Innsk: það sama á við hér heima þó að Landlæknir, Lyfjastofnun, yfirvöld og fjölmiðlar ljúgi því að efnnin séu með markaðsleyfi.)
Í öðru lagi, kæru samstarfsmenn, hafa þrátt fyrir endurteknar frásagnir fjölmiðla, ekki opinberlega komið fram neinar tölur um andlát af völdum COVID í Finnlandi. Samkvæmt THL (sambærilegt við CDC í Bandaríkjunum og Lyfjastofnun hér á landi) verða ekki birtar upplýsingar um dánarorsakir árið 2020 fyrr en árið 2022. (Innsk. það hefur ekki verið gert hér á landi heldur).
Samkvæmt Fimea (sambærilegt við VAERS í Bandaríkjunum og Lyfjastofnun hér á landi) hafa 78 einstaklingar látist af völdum COVID bóluefnanna í Finnlandi, auk þess sem skráðar hafa verið 1.306 alvarlegar aukaverkanir og enn á eftir að vinna úr 3.630 tilkynningum. Um 57% prósent af þeim eru taldar vera vegna alvarlegra aukaverkana, en þær upplýsingar koma frá Fimea (www.fimea.fi).
Í þriðja lagi, kemur líka fram í þessu skilyrta markaðsleyfi fyrir þessi eiturefni sem eru dulbúin sem COVID bóluefni að: Sá sem beitir lyfinu verður að geta veitt yfirgripsmiklar klínískar upplýsingar í framtíðinni." Kæru samstarfsmenn, þessi tilvitnun kemur beint af vefsíðu Evrópsku lyfjastofnunarinnar (European Medicines Agency -EMA). Ég hef endurtekið það oft hér að um er að ræða tilraun á mannfólki.
Það er brot á Nuremberg siðareglunum að hafa ekki sagt Finnum að þetta sé tilraun á mannfólki. Með þessari ræðu hef ég gert ykkur öllum, svo og fjölmiðlunum, grein fyrir að þetta sé tilraun á mannfólki og að afleiðingar hennar séu hræðilegar. Til samanburðar má geta þess að bóluefnatilraunin með Pandemrix (svínaflenskubóluefnið) var stöðvuð eftir 32 sinnum færri aukaverkanir en komnar eru fram nú. Ég spyr ykkur því öll: Hversu margir þurfa að deyja eða skaðast alvarlega áður en við hættum þessu drápi á fólki?
Kæru samstarfsmenn, þið vitið nú af þessari gífurlegu öryggisógn sem þjóð okkar stendur frammi fyrir og að ókosturinn við sprauturnar er mun meiri en ávinningur af þeim. Þið hafið því ekki lengur afsökun fyrir því að stíga ekki fram til að bjarga þjóð okkar.
Að lokum vil ég segja að ef þið haldið áfram að blekkja íbúa landsins með því að ljúga að þeim að bóluefnin séu örugg og hafi markaðsleyfi, eruð þið af ásettu ráði flækt í marga glæpi, en sá alvarlegasti af þeim er þjóðarmorð. Enn á ný minni ég alla sem hér eru á, að glæpur er talinn vísvitandi þegar hann er framinn af ráðnum hug. Nú vitið þið það öll. Takk fyrir!"
Þannig lauk Ano Turtiainen harðorðri ræðu sinni. Þetta er nú annað en þingmennirnir hér heima, allir meðvirkir og aumkunarverðir. Reyndar voru Brynjar Níelsson og Sigríður Anderson þau einu sem mótmæltu ofbeldinu og voru hálfrekin úr flokknum fyrir vikið. Búið er að reka Turtiainen úr stjórnmálaflokknum sem hann var í. Það var gert nokkrum dögum áður en hann flutti ræðuna á þinginu vegna umræðu hans um svipuð mál á samfélagsmiðlum. Í framhaldi stofnaði hann sinn eigin eins manns stjórnmálaflokk og situr áfram á þingi.
Áfram Ano!! Hann er líka kraflyftingamaður, sá besti frá Finnalndi skilst mér, varið ykkur því á honum!
Bloggar | Breytt 20.6.2021 kl. 17:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.6.2021 | 12:15
Fjórir flugmenn British Airways deyja á einni viku - fólk ræðir orsakatengsl við bóluefnin
Flugfélagið British Airways hefur tilkynnt um nýleg andlát fjögurra flugmanna sinna. Þeir dóu allir á einni viku.
Flugmennirnir höfðu að öllum líkindum fengið Covid bóluefni og nú eru menn að ræða á samfélagsmiðlum hvort þetta tengist mögulega efnunum, sem eins og við höfum heyrt, hafa verið tengd við blóðtappa og bólgur í hjartavöðvum (myocarditis). Þessi tengsl bóluefnanna við hjartamein eru bæði í rannsókn hjá CDC (Sóttvarnarstofnun Bandaríkjanna) og EMA (European Medical Agency) vegna óvenju margra tilkynninga í Ísrael, aðallega meðal yngri karlmanna. Er blóðtappahættan meiri í flugi?
Flugfélagið segir að engin tengsl séu á milli dauðsfallanna en tekur ekki fram hvernig flugmennirnir dóu. Sjá mynd ofar og hér er hlekkur á tilkynningu félagsins á twitter þar sem umræða fer einnig fram. Athygli vekur að Julie hjá British Airways segir: "that the four deaths are linked..." Linked to what? Á íslensku myndi þetta vera: það er ekkert til í því sem haldið er fram á samfélagsmiðlum, að þessi fjögur dauðsföll tengist." Tengist hverju? Umræðan á samfélagsmiðlum er sú að þeir hafi hugsanlega dáið vegna nýlegrar bólusetningar og að það standi yfir neyðarfundur hjá félaginu. Flugfélagið segir sem sagt EKKI að dauði þeirra tengist ekki bólusetingum eins og rætt er um á samfélagsmiðlum (enginn að ræða hvort dauðsföllin sjálf tengist og hvað er eiginlega átt við með því?). Reuters "fact-check" hefur þetta um málið að segja. Hér er fjallað nánar um málið en ekki hefur verið sagt frá þessu í helstu fjölmiðlum svo ég hafi tekið eftir.
Did they die from the jab? og aðeins meira. Hér er líka tilkynning 33 ára flugmanns til VAERS (Vaccine Adverse Event Reporting System) um alvarleg einkenni eftir Pfizer.
Uppfært. Hér er annar pistill um málið og upptaka.
Þessu tengt:
Bloggar | Breytt 20.6.2021 kl. 15:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.6.2021 | 12:46
Bresk vísindanefnd mælir gegn bólusetningu yngri en 18 ára
Bresk vísindanefnd, Joint Committee on Vaccination and Immunisation (JCVI), sem fer með bólusetningaráætlun Bretlands, mælir gegn því að 18 ára og yngri verði bólusett gegn Covid skv. þessari frétt í The Times.
JCVI mælti einnig með því um daginn að þeir sem eru yngri en 40 ára verði bólusettir með öðru en AstraZeneca.
Nefndin ályktar nú að áhættan með bólusetningu unglinga sé ekki þess virði þar sem Covid valdi afar sjaldan vandamálum meðal þess hóps:
(JCVI) will not recommend mass jabs for all teenagers, having concluded the risks are not worth the gains from preventing a disease that very rarely causes serious problems in the young.
Þetta er nokkuð merkilegt því það stóð a.m.k til að bólusetja unga Breta.
Hér á landi heyrist ekki múkk frá læknum eða sérfæðingum fyrir utan Ingileifu hjá Íslenskri Erfðagreiningu sem hvetur til bólusetninga á börnum og ungmennum þó að enginn hafi kosið hana til að fara með heilbrigðismál í landinu. Hún hvetur til þess jafnvel þótt hún og yfirmaður hennar, Kári Stefánsson, hafi áður sagt að börn væru ekki í hættu.
Á hvaða skoðun skyldi til dæmis eiginmaður landlæknis vera, hjartalæknirinn sem virðist hafa látið hlífa móður sinni á Sóltúni við bólusetningu? Hvernig gengur annars lögreglurannsóknin um lekann mikla? Hvers vegna var gamla konan sú eina á Sóltúni sem ekki fékk vörn gegn heimsfaraldrinum?
Skyldi hjartalæknirinn mæla með eða gegn bólusetningu ungmenna með líftæknilyfi sem er á rannsóknarstigi næstu tvö árin? Sérstaklega nú þegar verið er að rannsaka hjartavöðvabólgu (myocarditis) meðal unga fólksins. Best ég sendi honum línu og spyrji!
Fyrr í þessari viku voru ungmenni hér heima fædd 2003 og 2004 boðuð í Laugardalshöllina. Þetta gera yfirvöld þrátt fyrir að þau hafi vitað að EMA (European Medical Association) og CPC (Center for Disease Control) í Bandaríkjunum séu að rannsaka hjartavöðvabólgu meðal ungra karlmanna.
Neyðarfundur var boðaður hjá CDC út af málinu og grunur um orsakasamband styrkist segir í þessari frétt.
![]() |
Byrjað að bólusetja ungmenni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 18.6.2021 kl. 00:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
15.6.2021 | 22:32
Er Covid-passinn svona?
Hægt verður að nálgast vottorð fyrir bólusetningu gegn Covid-19, neikvætt PCR-próf og vegna fyrri sýkingar af Covid-19 á QR-kóðaformi á Heilsuveru í kvöld. QR-kóðakerfið hefur fengið vinnuheitið Covid-passinn."
Er passinn ekki svona?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Júní 2025
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
-
aslaugas
-
agny
-
annaeinars
-
danna
-
agustkara
-
bookiceland
-
contact
-
einarborgari
-
rlingr
-
sagamli
-
helga-eldsto-art-cafe
-
bofs
-
sade
-
gusg
-
noldrarinn
-
hafthorb
-
hhbe
-
hlf
-
diva73
-
snjolfur
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
kreppan
-
jaj
-
islandsfengur
-
nonniblogg
-
nyja-testamentid
-
thjodarskutan
-
kristinnp
-
loncexter
-
marinogn
-
sighar
-
sigurduringi
-
sushanta
-
viggojorgens
-
vilhjalmurarnason
-
thorsteinnhelgi
-
valli57
-
tbs