Leita í fréttum mbl.is

Jason Daði - tengsl við bólusetningu 10 dögum áður?

jasonÞeir sem fylgjast með því sem verið er að rannsaka í tengslum við nýju bóluefnin/líftæknilyfin sem aldrei hafa fengist samþykkt til notkunar á mannfólki fyrr, skoða atburðina að sjálfsögðu í ákveðnu ljósi. 

Það er staðreynd að verið er að rannsaka möguleg tengsl milli hjartavöðvabólgu (myocarditis) og þessara nýju bóluefna sem eru öll á skilyrtu leyfi (neyðarleyfi). Einkenni á hjartavöðvabólgu eru meðal annars brjóstverkur, höfuðverkur og andþyngsli. Hætta á blóðtappa hefur líka verið tengd við lyfin og einhverjar rannsóknir hafa verið gerðar á því. Blóðtappahættan er ástæða þess að yfirvöld hér heima og víðar hafa verið að hringla með aldurshópana og Astra Zeneca.

Danmörk hefur þegar greitt sínar fyrstu skaðabætur til þrítugrar konu vegna blóðtappa eftir Astra Zeneca bólusetningu. Astra Zeneca og Janssen eru sambærileg bóluefni, byggð á samskonar tækni. Danir ákváðu að nota ekki Janssen, en hér heima þótti sjálfsagt að nota það, þar á meðal á yngri hópa sem ekki máttu fá hið sambærilega Astra Zeneca.

EMA (European Medical Association) og CDC (Center for Disease Control) í Bandaríkjunum rannsaka nú möguleg tengsl milli hjartavöðvabólgu og þessara nýju lyfja. Fleiri tilkynningar þessu tengdu hafa borist en gert var ráð fyrir og því fór af stað rannsókn. Grunur um tengsl hefur styrkst segir meðal annars í þessari frétt. Hér eru nánari upplýsingar um málið sem ég tók saman fyrir ca. 10 dögum. (Reyndar er verið að skoða Pfizer sérstaklega en öll þessi lyf hafa verið tengd samskonar hættu). Og já, yfirvöld vissu af þessum rannsóknum fyrir þó nokkru.

Hér spyr einn sem nýlega hafði fengið Janssen hvort aðrir hefðu fundið fyrir verk í bringu á eftir. Sjá mynd:

jansenstingbringu10.júní var sagt frá því að leikmenn Breiðabliks hefðu fengið Janssen efnið þar á meðal Jason Daði. 
20. júní er síðan sagt frá því að Jason hafi lagst niður í miðjum leik og haldið fyrir brjóstkassann og verið fluttur af velli.

Ég átti bara erfitt með and­ar­drátt og var illt í hausn­um. Sjúkraþjálf­ar­inn kom til mín, hjálpaði mér í gegn­um þetta og það er allt í góðu núna."
Samkvæmt fréttinni fer hann í frekari rannsóknir.  

Miðað við fréttina á fótbolti.net virðist mönnum hafa brugðið og því varla um að ræða vanalegan atburð.

Lyfjastofnun hafa borist 1740 tilkynningar um grun á aukaverkunum af Covid bóluefnum sem eru öll á neyðarleyfi (skilyrtu markaðsleyfi eins og þeir kalla það hér). Þar af eru 120 tilkynningar um alvarlegar aukaverkanir en alvarleg aukaverkun er skilgreind sem lífshættulegt atvik eða dauði.

Þrjár alvarlegar tilkynningar hafa borist stofnuninni vegna Janssen. Ómögulegt er að sjá hverjar þær eru þrátt fyrir að Lyfjastofnun beri að hafa allar þessar upplýsingar skiljanlegar og aðgengilegar. En þess í stað kýs hún að reisa fjórar súlur í tvennskonar litum (sjá neðar) og vegna mikillar gagnrýni undanfarið hefur hún bætt við smá upplýsingum á ensku sem er virkilega faglegt hjá stofnunni eða þannig! En sá fjöldi þöggunarsérfræðinga sem þar starfa kunna kannski ekki að þýða yfir á íslensku.

lyfjastsúlur

p.s. ég minni á þessa ræðu finnska þingmannsins um hættuna á bóluefnum.

Og hversu vel virkar annars Janssen gegn Covid? Sjá mynd neðar.

covideftirjanssen

 


mbl.is Jason kominn heim og líður vel – sjúkrabíll 11 mínútur á leiðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Geir Ágústsson

Ungur og hraustur knattspyrnumaður hnígur niður á fótboltavelli og það afgreitt í þremur setningum í einni frétt RÚV og ekki minnst einu orði á í öðrum fjölmiðlum. Þögnin er orðin ærandi og augljóslega vakna upp spurningar þótt auðvitað sé heimurinn óvenjufullur af "tilviljunum" þessar vikurnar.

Geir Ágústsson, 22.6.2021 kl. 11:51

2 Smámynd: Agný

Og aukaverkanir/ afleiðingar af völdum bóluefnanna kallað " nýtt afbrigði" til að geta viðhaldið bólusetningum áfram og farsóttar faraldurs grýlunni.. Bíð bara eftir að fram muni koma Theta-Beta og Alpha afbrigði þar sem Delta á að vera komið.. En þetta eru einmitt 4 heilabylgjurnar sem ég tel upp hér og annað.. MRI ( segulómunar hólkurinn) keyrir á sömu bylgjum! ( fékk að vita þetta þegar ég fór í "hólkinn" fyrir x árum..

Agný, 22.6.2021 kl. 15:59

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Árný, gríska stafsófið í þessu tilviki hefur ekkert með bylgjur að gera. Þetta eru bara nöfn sem heilbrigðisyfirvöld gefa vírusafbrigðunum svo menn tengi þau ekki við upprunaland. Hugmyndin er að tengi menn vírusinn við upprunaland þá kalli það á einhverskonar rasisma í garð fólks frá því landi.

Ragnhildur Kolka, 22.6.2021 kl. 20:17

4 identicon

Sæl Þórdís, 

Þetta er allt saman eitthvað sem íþrótta-fréttaritarar þora alls ekki tala um núna, svona rétt eins og hinir ritstýrðu- og ríkisstyrktu- fjölmiðlar er þora alls að minnast einu orði á alvarlegar aukaverkanir eftir bólusetningar. Því heilbrigðisyfirvöld eru búin að auglýsa öll þessi bóluefni örugg, svo og þar sem að þetta lið hefur passað svona líka vel uppá að upplýsa ekkert um þessa leynilegu kaupssamninga, eða þar sem að heilbrigðisyfirvöld hafa svona líka samið af sér til að þóknast algjörlega bóluefna- framleiðendum. Í dag þá eru heilbrigðisyfirvöld á því, að það þurfi að reyna fela alla þessa kaupsamninga og annað, eða svo að almenningur komist ekki að því hversu ógeðslega léleg heilbrigðisyfirvöld hafa verið. Nú er aðalatrið að reyna fela og benda á eitthvað annað en alvarlegar aukaverkanir eftir bólusetningar á Bráðamóttökunni í Fossvogi, svo og passa  uppá að fjölmiðlar og aðrir fari ekki að nafngreina allar þessar 120 alvarlegu aukaverkanir og skoða þessi alvarlegu mál eitthvað. 
KV.
             
 

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 23.6.2021 kl. 17:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband