15.6.2021 | 12:22
,,Er verið að reyna að gelda okkur?"
Í facebook hópnum mæðra tips er verið að ræða möguleg áhrif bóluefnanna á blæðingar kvenna. Hópurinn telur um 22 þúsund konur og því ætti að vera í lagi að birta lýsingarnar. Fjölmiðlar hafa unnið þannig síðustu árin, þ.e.a.s. birt blogg, færslur einstaklinga á samskiptamiðlum og umræður í ýmsum hópum.
Umræðan á þar að auki erindi við almenning, sérstaklega í ljósi þess að Lyfjastofnun, yfirvöld og fjölmiðlar reyna svo augljóslega að þagga niður aukaverkanir bóluefnanna. Lyfjastofnun hefur nýlega brugðist við gagnrýni og birt upplýsingar á ensku sem hún segist senda til Evrópu. Væri kannski í lagi að hafa heitin á íslensku? Eru þau ekki með neinn þýðanda?
En hvað skyldu margar konur hafa hlaupið til og farið í bólusetningu ef upplýsingar um mögulega fylgikvilla, meðal annars miklir tíðarverkir (með eða án blæðinga) og breytingar á blæðingum hefðu verið skráðar á síðu Lyfjastofnunar, en ekki bara fjórar súlur?
Einnig bendi ég á staðhæfingu Jóns Magnúsar Jóhannessonar læknis sem brást illa við auglýsingu um aukaverkanir í Morgunblaðinu og sagði meðal annars að áhrif á blæðingar kvenna væru ekki ein af aukaverkunum bóluefnanna. Sjá fyrstu mynd.
Þá hafði nýlega birst frétt á BBC um að konur væru að kvarta undan þessum fylgikvillum. DV kom líka með frétt þess efnis.
Er verið að reyna að gelda okkur?"
Þannig spyr ein í hópnum og önnur tekur undir spurninguna? Sjá mynd nr. 2. Upphaflega spurningin á þræðinum er: Eru fleiri með stingandi túrverki eftir Janssen?" Sjá neðstu mynd.
Micheal Yeadon sem er vísindamaður með meiru og var aðstoðarforstjóri hjá Pfizer í mörg ár hefur meðal annars varað við því að lyfin geti valdið ófrjósemi. Og hann er ekki sá eini. Því er áhugavert að fylgjast með þöggun Lyfjastofnunar, Jóns Magnúsar læknis (sem er kannski bara ungur og óreyndur og veit lítið um hvað hann er að tala sbr. leðurblökukenninguna sem hefur ekki elst mjög vel) og fleirum.
Hér neðar eru lýsingar kvenna í hópnum sem vonandi verða til þess að málið fái frekari athygli. Mun senda Lyfjastofnun pistilinn líka.
Og þessu máli tengt. Lyfin voru aldrei rannsökuð á barnshafandi konum en samt eru þau gefin á meðgöngu. Í upphafi ráðlagði landlæknisembættið konum að taka bóluefnið eftir 12. viku en nýlega breytti landlæknir um skoðun. Aðeins ætti að gefa það þunguðum konum sem eru í áhættuhópum. Hugsið ykkur ábyrgðarleysi landlæknis sem er kona þar að auki. Hún er ráðeggja eitthvað út í loftið sem hún hefur ekki hundsvit á. Öll bóluefnin eru á rannsóknarstigi til ársins 2023. ATH! smellið á myndirnar til að sjá skýrar.
p.s. hér má líka lesa lýsingar á annars konar veikindum Íslendinga eftir sprauturnar.
![]() |
25 þúsund skammtar gefnir í vikunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 2.7.2021 kl. 13:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.6.2021 | 10:14
Ragnheiður segir yfirlið ekki algeng eftir bólusetningu!
Björn Rúnar Lúðvíksson læknir bendir á að yfirlið séu tiltölulega algeng viðbrögð við alls konar inngripum læknisfræðinnar, og þá sérstaklega eru yfirlið algeng ef um er að ræða inngrip sem kosta sársauka. Með inngripum meinar Björn til dæmis nálarstungur eða ef einhverju er stungið upp í eða inn í nefið á fólki. Í hvert skipti sem við erum með einhver inngrip þá eru yfirlið fylgikvilli," segir hann."
Hef heyrt fáa kvarta yfir því að bólusetningar valdi sársauka. En það er að líða yfir töluvert marga í Höllinni þessa dagana. Þekki einn sem fékk Janssen fyrir nokkrum vikum og bara á meðan hann sat þarna, hnigu sex manns niður. Miðaldra karlmenn þar á meðal.
Stinga upp í nefið segir læknirinn? Hvað með Covid sýnatökurnar? Pinnarnir fara ansi langt upp í nef eða enni og ofan í kok. Líður yfir marga í sýnatökum?
Eitt sinn leið yfir mig á flugvelli í Bandaríkjunum, eftir langa bið í röð. Var svo heppin að þýskur læknir var rétt fyrir aftan mig. Hann var með þrúgusykur og gaf mér og sagði að blóðþrýstingurinn hefði fallið. Geta þessi yfirlið tengst blóðþrýstings- og/eða blóðsykursfalli? Hér er skjáskot af lýsingu á yfirliði einnar sem fór í bólusetningu (smella á myndina til að sjá betur):
Að sögn Ragnheiðar Óskar Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, gerist það alltaf annað slagið fólk falli í yfirlið í bólusetningu.
Þetta gerist alltaf annað slagið en það er ekki algengt. Mér skilst samt að það hafi verið nokkur tilvik í dag en þetta er alls ekki algengt, segir Ragnheiður."
Björn segir að almennt í öllum bólusetningum sé talið að um 3% verði fyrir yfirliði. Hann segir þá að yngra fólk, 11 til 18 ára, sé gjarnara á að verða fyrir yfirliði en hann hefur ekki skýringar á af hverju það er en um sé að ræða einhvers konar lífeðlisfræðilegar ástæður."
Athugasemd
Það er ekki búið að bólusetja marga í aldurshópnum 11-18 ára. 12-15 ára er alls ekki byrjað og þegar þetta er skrifað hafa ekki margir 16-18 ára fengið sprauturnar. En skilst að einhverjir þeirra séu boðaðir í dag. Þannig að þarna eru flestir yfir 18 ára sem er að líða yfir. Að staðhæfa að þetta hafi ekki með sjálft bóluefnið að gera, getur einfaldlega verið rangt hjá lækninum. Enda eru þetta bóluefni/líftæknilyf sem ekki er vitað mikið um. Ragnheiður og Björn ættu að ræða málin og kannski komast að samskonar niðurstöðu. Algengt eða ekki algengt? Þau eru bæði reynslurík. Það væri áhugavert að fá að vita hversu margir hafa fallið í yfirlið af öllum þeim sem hafa fengið Covid bólusetningu. Einhver skráning hlýtur að vera á því.
Ég spurði Helgu Birgisdóttur hjúkrunarfræðing hvort þetta væri algengt, hér er svarið:
![]() |
Hefur ekkert með bóluefnin að gera |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 17.6.2021 kl. 00:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
11.6.2021 | 15:35
Hvað með hjartamein hjá unga fólkinu?
Var hann búinn að sjá þetta með hjartavöðvabólguna sem fjölmiðlar fjalla ekki um nema Útvarp Saga? Grunur um orsakasamband styrkist.
![]() |
Niðurstöðurnar styrkja trú á bóluefnunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.6.2021 | 10:14
Neyðarfundur hjá CDC vegna hjartavöðabólgu í ungum mönnum
Erlendir fjölmiðlar segja frá því að sóttvarnaryfirvöld (CDC) Bandaríkjanna hafi boðað til neyðarfundar vegna hjartavöðvabólgu (myocarditis og pericarditis) hjá ungu fólki, sérstaklega ungum karlmönnum vegna nýju bóluefnanna / líftæknilyfjanna.
Tilkynningarnar eru fleiri en reiknað var með eftir síðari skammta af Moderna og Pfizer, eða 226 talsins. 15 tilfelli varða gjörgæslu, 15 sjúkrahúsvist, 41 viðvarandi einkenni og 167 hafa náð sér.
Rannsókn fór af stað fyrir nokkrum vikum í Ísrael en þar rannsakar EMA (European Medical Association) sömu aukaverkanir. Sérstaklega hefur borið á veikindum meðal 16 - 19 ára karlmanna / unglinga. Ísraelar sem gerðu samning við Pfizer voru fyrstir til að bólusetja ungt fólk og því er komin ákveðin reynsla þar.
Tekið er fram að yfirvöld hafi ekki áhyggjur og að þetta sé ekki mjög algengt en hvers vegna boða þau þá neyðarfund? Og merkilegt að áfram skuli vera haldið að nota efnin sem bæði eru á neyðarleyfi, á yngri kynslóðum sem eru í afar lítilli hættu vegna Covid. Hvers vegna er ekki staldrað við meðan á rannsókn stendur?
Grunur um orsakatengsl styrkist segir þessi miðill.
Hér er viðtal við bandaríska lækninn, Jane Ruby, sem segir ástandið í Ísrael vegna hjartameina meðal unga fólksins mun verra en opinberar tölur segja.
p.s. auðvitað eru helstu fjölmiðlar hér heima búnir að sjá þessar fréttir. Sjáum hvort þeir segi eitthvað, sértaklega núna þegar verið er að boða unga fólkið í bólusetningu með Pfizer.
Bloggar | Breytt 22.6.2021 kl. 10:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.6.2021 | 23:19
48 tilfelli í rannsókn?
,,Landlæknir, sóttvarnalæknir og Lyfjastofnun hafa móttekið mat óháðra rannsóknaraðila, sem tóku til sérstakrar rannsóknar fimm andlátstilfelli í kjölfar bólusetninga hér á landi. Sem fyrr bendir ekkert til þess að orsakasamhengi sé á milli andláta og bólusetninga."
Á síðu Lyfjastofnunar eru komnar nýjar upplýsingar um aukaverkanir á útlensku. Þannig að þeir sem skilja pínulitla útlensku eru mjög lucky. Þar stendur 48 investigations. Sérstök uppsetning! Alls konar aukaverkanir taldar þarna upp og svo "investigations" inn á milli. Sjá mynd og svo neðar á þessari síðu. Og engin andlát - hvað varð um andlátin sem hafa verið tilkynnt?
En auðvitað eigum við rétt á að fá upplýsingar um það hverjir óháðu rannsóknaraðilarnir eru. Bara óska eftir þeim upplýsingum. Síðan þarf að senda fyrirspurn um allt þetta fólk sem er að fá álagsgreiðslur vegna Covid. Og hvernig áfallateymið virkar sem fer heim til fólks.
En hvernig skýrir landlæknir þessa hækkun dauðsfalla?
Hér eru tilkynningar sem EudraVigilence hefur fengið frá Evrópu, en þangað sendir Lyfjastofnun sínar skv. myndinni ofar. En Lyfjastofnun sundurliðar ekki eftir tegund lyfs, bara allt í einum graut. Varla sendir hún þetta þannig?
p.s. Eins og Ísrael eru menn að sjá fleiri tilkynningar vegna hjartavöðvabólgu í Bandaríkrjunum en búist var við hjá unga fólkinu.
![]() |
Sérstök rannsókn kynnt bráðlega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.6.2021 | 13:44
Moderna aukaverkanir - fáið þið þetta til að stemma?
Fáið þið þetta til að ganga upp með Moderna?
Sýnist vanta eina í Moderna bókhaldið og jafnvel tvær!
Og hefur Lyfjastofnun með allt sitt starfsfólk engan þýðanda á sínum snærum? Er boðlegt að bjóða Íslendingum upp á útlensk heiti á aukaverkunum? Sjá meðfylgjandi mynd og hér neðar á síðunni.
Bókari/endurskoðandi myndi a.m.k gera athugasemd við þetta bókhald.
![]() |
Fleiri árgangar boðaðir vegna dræmrar mætingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.6.2021 | 12:06
Tegund aukaverkana birtar á síðu Lyfjastofnunar
Lyfjastofnun hefur nýlega bætt við upplýsingar sínar um grunaðar aukaverkanir vegna Covid bólusetninga, upplýsingar sem hún sendir frá sér til EudraVigilance sem er sameiginlegur gagnagrunnur lyfjastofnana Evrópu (EES). Ekki er sundurliðað eftir tegund bóluefnis. Stofnunin hlýtur samt að senda frá sér sundurliðun?
Fyrri taflan inniheldur flokkun tilkynninga um grun um aukaverkun eftir líffærakerfi. Aðeins er boðið upp á ensk heiti. Er of mikið mál fyrir þau að birta hugtökin á íslensku? Þetta eru tilkynningar sendar EudraVigilance.
Síðari taflan er flokkun tilkynninga um grun um aukaverkun eftir MedDRA kjörheitum, 20 algengustu. Í efri töflunni kemur fram "Investigations" 48 talsins. Er sem sagt verið að rannsaka 48 tilfelli? Hér er síða Lyfjastofnunar og eins og má sjá eru tilkynningar um grun á alvarlegum aukaverkunum orðnar 100 talsins og alls rúmlega 1500 tilkynningar um aukaverkanir almennt vegna Covid bóluefna.
![]() |
Byrjað að bólusetja af handahófi fyrir norðan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Birti hér ítarlega grein sem meðal annars er unnin er úr gögnum Hagstofu Íslands, eftir Guðmund Karl lækni, Helga Örn Viggósson forritara og Jóhannes Loftsson verkfræðing.
Getur verið að landlæknir hafi vísvitandi beitt blekkingum?
Samantekt á greinargerð:
Ath. linkarnir virka bara í greininni sjálfri.
Miðað við nýja ísraelska tölfræðirannsókn eru mögulega fleiri látnir hér á landi vegna bóluefna en vegna Covid 19. Framkvæma þarf sambærilega rannsókn hér strax. (sjá hér)
Bólusetning hraustra einstaklinga og yngra fólks með bóluefni á tilraunastigi setur þá í meiri hættu en ef því væri sleppt. Skilyrt markaðsleyfi Lyfjastofnunar Evrópu sem gaf undanþágu á prófunum getur varla staðist fyrir þennan hóp, því forsenda leyfisins var að sjúkdómurinn væri mjög hættulegur. Greiningar á skaðsemi Covid 19 sýna að þessi hópur er í lítilli sem engri hættu af Covid 19. (sjá hér)
Bóluefnaleiðin er að mistakast því nýjar upplýsingar benda til að öll bóluefnin við COVID-19 séu hættulegri en sjúkdómurinn. Ástæðan er að tengisprotinn (e. spike protein) í þeim öllum er skaðlegasti hluti sjúkdómsins og burðarefnin í bóluefnunum eru skaðleg tilraunaefni sem aldrei eða sjaldan áður hafa verið prófuð í mönnum. Margendurtaka þarf svo bólusetninguna til að viðhalda vörn gegn veiru sem sífellt er að breytast. (sjá hér)
Nýjar uppgötvanir sýna að tengisprotinn einn sér, skapar alvarleg storkuvandamál í blóði, skemmir lungnavefi og æðar í heila. (sjá hér)
Burðarefni Pfizer og Moderna, LNP, kemst í gegnum allar líffæraskiljur og hefur tilhneigingu til að leita í heila, æxlunarfæri og önnur viðkvæm líffæri. Burðarefni AstraZeneca, Jansen og Sputnik getur valdið blóðtappavandamálum. (sjá hér)
Vinnubrögð yfirvalda við bólusetningu auka hættuna sem þeim fylgir. Blöndun mismunandi bóluefnategunda eykur hættu skaða, val á bóluefnum sem aðrar þjóðir hafa hafnað eykur hættu á skaða og við boðun í bólusetningu er fólk í áhættuhópi gagnvart bólusetningu sem mælingar á skaðsemishættu vantar fyrir, ekki varað við að það er að taka þátt í tilraun. (sjá hér)
Heilbrigðisyfirvöld vanrækja upplýsingaskyldu sína þar sem upplýsingagjöf þeirra stenst ekki einu sinni þeirra eigin viðmið og uppgefin vernd bóluefnisins er jafnvel 1000 falt ofmetin vegna villandi upplýsinga. (sjá hér)
Heilbrigðisyfirvöld vanrækja rannsóknarskyldu sína þar sem upplýsingasöfnun vegna bólusetningarinnar skráir bara lítið brot aukaverkana. Skráningin er því til þess fallin að skapa falskt öryggi þar sem raunverulegt umfang skaðans er ekki metið. Brugðist var við auknu álagi í skráningu aukaverkana á heimasíðu Lyfjastofnunar með því að gera fólki erfiðara að skrá aukaverkanir. (sjá hér)
Heilbrigðisyfirvöld eru að vanrækja skyldu sína með því að beita ekki snemm meðferð og leyfa ekki mörg skaðlaus lyf sem hafa sýnt góða virkni gegn COVID-19, á sama tíma og þjóðinni er ýtt út í mikla óvissu bóluefnatilraunar. (sjá hér)
Líklegt er að tíðni skaðlegra og jafnvel lífshættulegra aukaverkana bólusetninga muni aukast með hverri endurbólusetningu, því ónæmisviðbrögð fólks gætu aukist í hvert sinn.
Öll greinin er hér.
Bloggar | Breytt 8.6.2021 kl. 10:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.6.2021 | 20:25
Janssen það sama og Astra Zeneca en samt boðið áhættuhópum
Bólusetningalottó: Fimmtudaginn 10. júní er Janssen bólusetning. Þá er haldið áfram með starfsmenn í skólum og árgangshópa. SMS boð hefur verið sent til þeirra sem býðst bólusetning þennan dag. Bólusett er 9:00-14.00.
Búið er að boða karla 1984, 1977, 1997, 1985, 1976 og konur 2000, 1981, 1980, 1988.
Jansen og AstraZeneca er nánast samskonar efni, byggist á sömu tækni. Þar sem landlæknisembættið hefur ráðlagt að konum yngri en 55 ára verði ekki gefið AstraZeneca er meira en lítið furðulegt að það standi til að gefa þessum hópi Janssen. Svolítið eins og að bjóða manneskju sem ekki má fá Paratabs, Panodil í staðinn. Danska ríkið hefur greitt sínar fyrstu skaðabætur til þrítugrar konu vegna blóðtappa eftir AstrZeneca.
Danir eru hættir að nota bæði efnin og Noregur skilst mér líka en hvergi hafa borist jafn margar tilkynningar um blóðtappa eftir bólusetningu með AstraZeneca og í Noregi miðað við hversu margir skammtar hafa verið gefnir.
Ruglið og hringlið í yfirvöldum með Covid bóluefnin er efni í heila bók. Nýjast breytingin er sú að ekki er lengur ráðlagt að bólusetja barnshafandi konur. En fyrir þremur vikum var það ráðlagt ef konan var gengin meira en 12 vikur. Janssen sem átti upphaflega að gefa í eitt skipti, á núna jafnvel að gefa tvisvar. Pfizer bóluefnið mátti fyrst aðeins geyma í 1-2 sólarhringa í kæli, eftir að það er tekið úr frysti, en nú er í lagi að geyma það í mánuð. Bíða átti í 12 vikur milli skammta með AstraZeneca en nú má hafa styttra á milli. Pfizer átti að gefa með tveggja vikna millibili en nú má bíða lengur með seinni skammtinn. Svo er í fínu lagi að blanda saman tveimur mismunandi bóluefnum, þó að það hafi aldrei verið rannsakað!
Hver skyldi vera að græða á þessum rannsóknum með lyf sem eru öll á neyðarleyfi/undanþágu? Kemur í ljós síðar, eins og alltaf. Kemur eflaust fram í leynilegu bóluefnasamningunum. Follow the money...lögmál sem treysta má á.
![]() |
Tíminn styttur milli skammta í bólusetningu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bandaríski veirufræðingurinn, Kristian G. Andersen, sem útskýrði fyrir Anthony Fauci í upphafi faraldurs að COVID-19 liti mögulega út fyrir að vera tilbúin veira (búið að eiga við hana) þar sem hún samræmdist ekki náttúrulögmáls kenningunni (expectations from evolutionary theory), breytti 8 vikum síðar um stefnu og birti þá grein um náttúrulegan uppruna veirunnar og hlaut milljónir USD í styrki frá NIH (Nationanl Institute of Health). Kristian hefur nú eytt twitter aðgangi sínum með yfir 5000 færslum, eftir að tölvupóstar Fauci´s voru gerðir opinberir.
Hér neðar er tölvupóstur sem Kristan sendi Fauci, sem er einn af þeim rúmlega 3000 póstum Fauci´s sem hafa nú verið birtir og benda til þess að faraldurinn sé byggður á lygum. Hér eru allir póstarnir.
Spurning hvort ætti ekki að uppfæra Vísindavefinn okkar þar sem Jón Magnús Jóhannesson læknir og Arnar Pálsson erfðafræðingur útiloka nánast að veiran hafi verið manngerð og mjög líklegt er að SARS-CoV-2 hafi einnig komið upprunalega úr leðurblökum..." A.m.k. mætti setja e.k. fyrirvara á rannsókn þeirra í ljósri nýrra upplýsinga.
Hverjir hér heima hafa fengið rannsóknarstyrki í tengslum við Covid faraldurinn, veiruna, bóluefni o.fl.?
Hér ræðir fólk um færslur Kristians. Hann segir líka að færslur hans hafi verið á auto-delete. Á fullu að eyða.
![]() |
27 þúsund bólusett í vikunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 8.6.2021 kl. 13:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Júní 2025
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
-
aslaugas
-
agny
-
annaeinars
-
danna
-
agustkara
-
bookiceland
-
contact
-
einarborgari
-
rlingr
-
sagamli
-
helga-eldsto-art-cafe
-
bofs
-
sade
-
gusg
-
noldrarinn
-
hafthorb
-
hhbe
-
hlf
-
diva73
-
snjolfur
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
kreppan
-
jaj
-
islandsfengur
-
nonniblogg
-
nyja-testamentid
-
thjodarskutan
-
kristinnp
-
loncexter
-
marinogn
-
sighar
-
sigurduringi
-
sushanta
-
viggojorgens
-
vilhjalmurarnason
-
thorsteinnhelgi
-
valli57
-
tbs