Leita í fréttum mbl.is

Fjórir flugmenn British Airways deyja á einni viku - fólk ræðir orsakatengsl við bóluefnin

flugmenn

Flugfélagið British Airways hefur tilkynnt um nýleg andlát fjögurra flugmanna sinna. Þeir dóu allir á einni viku.

Flugmennirnir höfðu að öllum líkindum fengið Covid bóluefni og nú eru menn að ræða á samfélagsmiðlum hvort þetta tengist mögulega efnunum, sem eins og við höfum heyrt, hafa verið tengd við blóðtappa og bólgur í hjartavöðvum (myocarditis). Þessi tengsl bóluefnanna við hjartamein eru bæði í rannsókn hjá CDC (Sóttvarnarstofnun Bandaríkjanna) og EMA (European Medical Agency) vegna óvenju margra tilkynninga í Ísrael, aðallega meðal yngri karlmanna. Er blóðtappahættan meiri í flugi?

Flugfélagið segir að engin tengsl séu á milli dauðsfallanna en tekur ekki fram hvernig flugmennirnir dóu. Sjá mynd ofar og hér er hlekkur á tilkynningu félagsins á twitter þar sem umræða fer einnig fram. Athygli vekur að Julie hjá British Airways segir: "that the four deaths are linked..." Linked to what? Á íslensku myndi þetta vera: 
það er ekkert til í því sem haldið er fram á samfélagsmiðlum, að þessi fjögur dauðsföll tengist."  Tengist hverju? Umræðan á samfélagsmiðlum er sú að þeir hafi hugsanlega dáið vegna nýlegrar bólusetningar og að það standi yfir neyðarfundur hjá félaginu. Flugfélagið segir sem sagt EKKI að dauði þeirra tengist ekki bólusetingum eins og rætt er um á samfélagsmiðlum (enginn að ræða hvort dauðsföllin sjálf tengist og hvað er eiginlega átt við með því?). Reuters "fact-check" hefur þetta um málið að segja. Hér er fjallað nánar um málið en ekki hefur verið sagt frá þessu í helstu fjölmiðlum svo ég hafi tekið eftir. 

Did they die from the jab? og aðeins meira. Hér er líka tilkynning 33 ára flugmanns til VAERS (Vaccine Adverse Event Reporting System) um alvarleg einkenni eftir Pfizer.

Uppfært. Hér er annar pistill um málið og upptaka.

Þessu tengt:
united


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta heyrðist í flugi BA frá Austurlöndum nær til Lundúna í síðustu viku:

Góðir farþegar, þetta er yfirflugfreyjan sem talar:

Eins og ég tilkynnti ykkur um klukkustund síðan, þá andaðist fullbólusettur flugstjórinn okkar stuttu eftir flugtak, en að öllu væri óhætt því fullbólusettur aðstoðarflugmaðurinn gæti hæglega flogið vélinni til áfangastaðar okkar einn síns líðs.

En nú er hann því miður dáinn líka, þannig að ef það er einhver óbólusettur á meðal ykkar sem kann að fljúga og lenda Boeing 747 flugvél, jafnvel bara í Flight-Simulator í tölvunni heima hjá sér, þá er sá hinn sami vinsamlegast beðinn um að gefa sig fram við mig sem allra fyrst !

Björn Jónsson (IP-tala skráð) 18.6.2021 kl. 21:38

2 Smámynd: Loncexter

Ég held að ég bíði með tenerife ferðina í ár eða svo.

Loncexter, 19.6.2021 kl. 10:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband