Leita í fréttum mbl.is

Finnskur þingmaður lætur þingið heyra það - hættið að blekkja fólkið!

anoFinnski þingmaðurinn Ano Turtiainen hélt þessa ræðu í finnska þinginu þann 9. júní síðastliðinn. Í henni varaði hann finnska þingmenn og fjölmiðla við því að ef þau héldu áfram að blekkja íbúa landsins með því að ljúga að þeim að bóluefnin væru örugg, væru þau af ásettu ráði flækt í hina ýmsu glæpi og sá alvarlegasti af þeim væri þjóðarmorð. Ræðan er á finnsku með enskum texta

Guðrún Bergmann rithöfundur tók að sér að þýða alla ræðuna á íslensku. 

Gefum þingmanninum orðið:

„Virðulegi forseti, skýrsla nefndarinnar fjallar um ýmsar áskoranir er varða öryggi Finnlands. Hún fjallar hins vegar ekki um mjög alvarlega áskorun sem snýr að öryggi Finnlands og finnsku þjóðarinnar einmitt núna. Hér vísa ég til hinna svokölluðu COVID bóluefna, sem hafa einnig aðgreint þjóðina í tvo hópa; þá sem eru meðvitaðir og þá sem eru afvegaleiddir.

Kæru þingmenn, ég mun nú veita ykkur eftirfarandi upplýsingar, svo að þið getið aldrei héðan í frá borið fyrir ykkur vanþekkingu eftir að hafa heyrt þessar upplýsingar um þá hættu sem finnskir ríkisborgarar eru berskjaldaðir fyrir. Hér í Finnlandi er nú verið að sprauta íbúa landsins með eitri sem dulbúið er sem COVID bóluefni.

Hlustið vel! Ekkert af þessu sprautaða eitri sem dulbúið er sem COVID bóluefni hefur markaðsleyfi í Finnlandi, einungis skilyrt markaðsleyfi frá Lyfjastofnun Evrópu (EMA). Í skilmálum skilyrta leyfisins kemur skýrt fram að heimildin sé skilyrt og ég vísa hér í þá: „Fyrirliggjandi upplýsingar verða að sýna fram á að ávinningur lækningalyfsins sé meiri en hættan sem af því stafar." (Innsk: það sama á við hér heima þó að Landlæknir, Lyfjastofnun, yfirvöld og fjölmiðlar ljúgi því að efnnin séu með markaðsleyfi.)

Í öðru lagi, kæru samstarfsmenn, hafa þrátt fyrir endurteknar frásagnir fjölmiðla, ekki opinberlega komið fram neinar tölur um andlát af völdum COVID í Finnlandi. Samkvæmt THL (sambærilegt við CDC í Bandaríkjunum og Lyfjastofnun hér á landi) verða ekki birtar upplýsingar um dánarorsakir árið 2020 fyrr en árið 2022. (Innsk. það hefur ekki verið gert hér á landi heldur).

Samkvæmt Fimea (sambærilegt við VAERS í Bandaríkjunum og Lyfjastofnun hér á landi) hafa 78 einstaklingar látist af völdum COVID bóluefnanna í Finnlandi, auk þess sem skráðar hafa verið 1.306 alvarlegar aukaverkanir og enn á eftir að vinna úr 3.630 tilkynningum. Um 57% prósent af þeim eru taldar vera vegna alvarlegra aukaverkana, en þær upplýsingar koma frá Fimea (www.fimea.fi).

Í þriðja lagi, kemur líka fram í þessu skilyrta markaðsleyfi fyrir þessi eiturefni sem eru dulbúin sem COVID bóluefni að: „Sá sem beitir lyfinu verður að geta veitt yfirgripsmiklar klínískar upplýsingar í framtíðinni." Kæru samstarfsmenn, þessi tilvitnun kemur beint af vefsíðu Evrópsku lyfjastofnunarinnar (European Medicines Agency -EMA). Ég hef endurtekið það oft hér að um er að ræða tilraun á mannfólki.

Það er brot á Nuremberg siðareglunum að hafa ekki sagt Finnum að þetta sé tilraun á mannfólki. Með þessari ræðu hef ég gert ykkur öllum, svo og fjölmiðlunum, grein fyrir að þetta sé tilraun á mannfólki og að afleiðingar hennar séu hræðilegar. Til samanburðar má geta þess að bóluefnatilraunin með Pandemrix (svínaflenskubóluefnið) var stöðvuð eftir 32 sinnum færri aukaverkanir en komnar eru fram nú. Ég spyr ykkur því öll: Hversu margir þurfa að deyja eða skaðast alvarlega áður en við hættum þessu drápi á fólki?

Kæru samstarfsmenn, þið vitið nú af þessari gífurlegu öryggisógn sem þjóð okkar stendur frammi fyrir og að ókosturinn við sprauturnar er mun meiri en ávinningur af þeim. Þið hafið því ekki lengur afsökun fyrir því að stíga ekki fram til að bjarga þjóð okkar.

Að lokum vil ég segja að ef þið haldið áfram að blekkja íbúa landsins með því að ljúga að þeim að bóluefnin séu örugg og hafi markaðsleyfi, eruð þið af ásettu ráði flækt í marga glæpi, en sá alvarlegasti af þeim er þjóðarmorð. Enn á ný minni ég alla sem hér eru á, að glæpur er talinn vísvitandi þegar hann er framinn af ráðnum hug. Nú vitið þið það öll. Takk fyrir!"

Þannig lauk Ano Turtiainen harðorðri ræðu sinni. Þetta er nú annað en þingmennirnir hér heima, allir meðvirkir og aumkunarverðir. Reyndar voru Brynjar Níelsson og Sigríður Anderson þau einu sem mótmæltu ofbeldinu og voru hálfrekin úr flokknum fyrir vikið. Búið er að reka Turtiainen úr stjórnmálaflokknum sem hann var í. Það var gert nokkrum dögum áður en hann flutti ræðuna á þinginu vegna umræðu hans um svipuð mál á samfélagsmiðlum. Í framhaldi stofnaði hann sinn eigin eins manns stjórnmálaflokk og situr áfram á þingi.

Áfram Ano!! Hann er líka kraflyftingamaður, sá besti frá Finnalndi skilst mér, varið ykkur því á honum!

anolifter


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Þvílíkur snillingur sem þessi maður er! Nú getur finnska þingið ekki lengur látið sem það viti ekki neitt um það sem raunverulega er í gangi, og mun vonandi hljóta sinn réttláta dóm í fyllingu tímans.

Og að sjálfsögðu mun enginn íslenskur þingmaður stíga fram með svona þrumuræðu þrátt fyrir að búið sé margsinnis að senda þeim ótal sannanir fyrir því sem verið er að gera mannkyninu núna.

Enda eru kosningar í haust, og enginn virðist þora að rugga neinum bátum, enda hver vill missa vel launaða starfið sitt?

Kristín Inga Þormar, 19.6.2021 kl. 23:12

2 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Nei enginn sem segir neitt en vita margt. Síðan verður eflaust gerði einhver 8 bindna rannsóknarskýrsla eftir einhver ár til að finna út hvað fór úrskeiðis. Æi, aftur, klikkaði allt eftirlitskerfið eins og í hruninu. Allir að spila með. Og eitthvað lið á fullum launum hjá Lyfjastofnun og jafnvel með álagsgreiðslur að vinna við að þagga niður veikindin. Og hjá landlæknisembættinu eitthvað lið sem getur ekki uppfært flensutölur því það er búið að segja þeim að hinkra aðeins því að flensutölurnar þurfa að renna inn í covi tölurnar....

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 19.6.2021 kl. 23:35

3 identicon

þetta er magnað að lesa. Vonandi fær þessi grein að berast sem víðast. Mér alveg ofbýður þessi hraði á að koma eitrinu í fólk á öllum aldri. Vonandi fá fleiri þingmenn kjarkinn til að hafa hátt sem gæti orðið til þess að stöðva þetta strax. 

Sigríður Svavarsdóttir (IP-tala skráð) 21.6.2021 kl. 12:15

4 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Þú mátt deila henni.

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 21.6.2021 kl. 13:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband