2.7.2021 | 14:16
Sláandi upplýsingar um tengsl fósturláta og mRNA bóluefna við Covid
Helgi Örn Viggósson tók þennan pistil saman. Í þessu sambandi mætti líka vekja athygli á fjölda tilkynninga sem hafa borist vegna breytinga á blæðingum kvenna. Einnig í Noregi og Bretlandi. Hvers vegna breytast þær eftir bólusetningu? Miklir verkir og engar blæðingar eða ofsalegar blæðingar hér og þar....? Hér er samantekt á lýsingum íslenskra kvenna um þessar sérstöku aukaverkanir. Er verið að reyna gelda okkur" er spurt? Hvers vegna ráðlagði landlæknir fyrst bólusetningu á meðgöngu en breytti svo um stefnu? Skv. upplýsingum neðarlega á þessari síðu Lyfjastofnunar hafa borist þrjár tilkynningar um aukaverkanir tengdar meðgöngu.
Í þessari grein er viðtal við bandaríska lækninn Peter McCullough sem segir að barnshafandi kona eigi ALDREI að taka þessi bóluefni. Hann tekur nákvæmlega sama dæmið og Helgi fann í rannsóknargögnunum, 82% kvenna sem tóku efnin á fyrri part meðgöngu misstu fóstrið. Byrjar ca. á mín 24.
Uppfært: Fólk hefur dregið í efa þessar niðurstöður því tölurnar sjást ekki við fyrstu sýn. Helgi Örn útskýrir það svona:
Hér er bréf frá kanadískum lækni til ritstjóra NEJM, þar sem bent er á þetta ásamt hvernig logið er til um bakgrunntilfellin í greininni.

Bloggar | Breytt 9.8.2021 kl. 09:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
2.7.2021 | 12:01
Heilaþvottur leikskólabarna í Ísrael - sprautuleikur!
Þetta myndband er tekið á leikskóla í Ísrael þar sem í gangi er leikur. Leikskólakennarar ganga um og klukka krakkana með sprautu og sá klukkaði tekur þá niður grímuna.
Magnað dæmi um heilaþvott barna sem stendur til að gera IV fasa rannsókn á með bóluefnið frá Pfizer. Ísraelar hafa örugglega fengið aðstoð frá Xi Jinping með svona skólaleiki.
Ísrael gerði samning við Pfizer um að vera fyrirmyndaland" lyfarisans og um leið rannsóknarsetur. Því eru Ísraelar komnir lengra en margar aðrar þjóðir með bólusetningar. En þó ekki mikið lengra en Ísland sem einmitt vonaðist til að fá samskonar samning sem átti að ganga út á að Ísland yrði rannsóknarsetur fyrir fasa IV rannsókn þar sem að stærsti hluti þjóðarinnar yrði bólusettur á stuttum tíma.
Var það ekki einmitt gert hér heima þó að fleiri bóluefni en Pfizer hafi verið notuð? Erum við rannsóknarsetur án þess að það sé formlega vitað? Hvers vegna vill Ingileif Jónsdóttir hjá Íslenskri Erfðgreiningu endilega bólusetja unglingana (12-15 ára), þó svo að verið sé að rannsaka betur tengsl lyfjanna við hjartavöðvabólgu í ungu fólki? FDA hefur meira að segja sett viðvörun á Pfizer og Moderna vegna tengsla við þann alvarlega kvilla. Hvað er hún að skipta sér af bólusetningum Íslendinga, starfandi hjá erlendu einkafyrirtæki (ÍE/Amgen er 100% í eigu erlendra aðila). Er hún einhver ráðgjafi íslenskra stjórnvalda? Og hvað var Kári Stefánsson að skipta sér af? Hvað vissi hann um að samfélagið yrði á hliðinni í tvö ár. Vissi hann að bólusetja ætti mannskapinn í a.m.k. tvö ár með 1,4 milljónum skömmtum?
En aftur að leikskólakrökkunum og sprautuleiknum í Ísrael. Stjórnvöld um allan heim virðast þurfa að taka þátt í heilaþvottinum að einhverju leyti. Hér heima var grunnskólabörnum nýlega sýnd áróðursmynd um bólusetningar. Og ástæðan er auðvitað sú að yfirvofandi er bólusetning krakkanna með Pfizer efninu. Þá er betra að koma réttum skilaboðum inn í hausinn á þeim þrátt fyrir að þeim stafi ekki hætta af þeim sjúkdómi.
Þessi mynd neðar útskýrir hugsunarhátt lyfjafyrirtækjanna og þjóna þeirra hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnunni sem segja yfirvöldum heims hvernig eigi að glíma við faraldur. Við sáum aðra útfærslu af henni hjá Sjálfstæðisflokknum, flokki frjálshyggjunnar þar sem þetta var kannski ekki sagt með berum orðum (líka neðar).
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.7.2021 | 17:35
Alsælar tilraunarottur - hvar er sjálfsvirðingin?
Þetta reddaðist bara mjög vel, segir Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, en skammtar af AstraZeneca bóluefninu kláruðust í dag áður en bólusetningu var lokið og því var fólki boðið upp á Pfizer bóluefnið í seinni skammt...Það voru svona 99,9% sem fannst þetta bara enn betra að fá Pfizer í seinni skammt."
Bara alsælt með að láta nota sig í tilraun lyfjafyrirtækjanna. Hvar er sjálfsvirðingin?
Mix&match aðferðin var aldrei rannsökuð en Íslendingar alsælir með að prófa þetta skv. yfirhjúkkunni.
Búið að hálfbólusetja mannskapinn með Astra en sorry allt búið en má ekki bjóða þér aðra tegund í staðinn, það hefur ekki verið rannsakað hvort og hvernig það virkar, en okkur vantar þátttakendur sem eru til í hvað sem er, bara til að klára rannsóknina okkar. (Næst á að bjóða Jansen þegum svona blöndu líka, strax komið fram að þetta með einn skammt var bara blöff).
Í Fréttablaðinu segir reyndar að það hafi orðið uppnám þegar ljóst var að Astra væri búið. Sem sagt, ekki allir alsælir! Þannig að fleiri voru boðaðir en skammtarnir sem voru til? Var það kannski plottið svo hægt væri að prófa blönduna. Eða birgðabókhaldið í ólagi?
Flestir halda að bólusetningu þurfi til að komast til útlanda en það komast allir til útlanda, líka óbólusettir, en þeir vita að verið er að ljúga því að þess þurfi. Partur af söluáróðrinum. Á Tenerife sem dæmi þarftu hvorki að sýna neikvætt próf eða bólusetningavottorð, bara labbar inn í landið. Þið fáið að fara til útlanda ef þið takið tilraunabóluefnið!":
Og þetta hefur fyrrum yfirmaður og vísindamaður með meiru hjá Pfizer að segja um nýju afbrigðin sem eiga að drepa fullt af fólki á næstunni og því þurfi að bólusetja unga fólkið og eldra fólkið þarf meira og meira.
![]() |
Enn betra að fá Pfizer í seinni skammt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 2.7.2021 kl. 00:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.7.2021 | 10:10
Börn betur sett með náttúrulega sýkingu heldur en bóluefnið segir ráðgjafi bresku ríkisstjórnarinnar
The Times og Telegraph segja frá því að öruggara væri fyrir börn og unglinga að sýkjast náttúrulega af Covid heldur en að fá bóluefnið.
Þetta er mat Dr. Robert Dingwall eins af ráðgjöfum bresku ríkisstjórnarinnar í bólusetningum sem ákveður nú hvort bjóða eigi unglingum, 12- 18 ára, bóluefnið.
Dingwall segir að í ljósi þess hve væg veikindin eru hjá unglingum yrði bóluefnið að vera einstaklega öruggt" til að valda ekki meiri skaða en gagni.
Hann heldur því fram að núverandi bylgja meðal unga fólksins gæti í raun bundið endi á faraldurinn og hvatti fólk til að örvænta ekki vegna fjölda smita. Jafnfram sagði hann sjúkdóminn ekki lengur vera verulega dánarorsök og að vísindin ættu ekki miða að ódauðleika.
Þetta er viðsnúningur og hér heima virðast menn ætla að minnsta kosti að hinkra með bólusetningu 12-15 ára (en búið að bjóða þeim sem eru með undirliggjandi sjúkdóma.) 16 - 18 ára hafa þegar flest fengið fyrsta skammtinn. Því miður var ætt áfram með þann hóp þrátt fyrir að rannsóknir um tengsl lyfjanna og hjartavöðvabólgu væru í gangi. Yfirvöld hér heima vissu vel af þeim rannsóknum en samt var bólusetningin keyrð áfram og nú hefur FDA (Lyfja-og matvælaeftirlit Bandaríkjanna) sett viðvörun á Pfizer og Moderna vegna tengsla við þann alvarlega kvilla.
Ingileif hjá Íslenskri Erfðagreiningu er á öndverðum meiði, hún hefur ráðlagt stjórnvöldum að bólusetja unga fólkið og hafði engan áhuga á að bíða eftir frekari gögnum, bara gera þetta hratt!
Er Íslensk Erfðagreining og/eða HÍ að gera rannsókn á Íslendingum í tengslum við bóluefnin? Hvað fær fólk til að hvetja til þess að ungt fólk sem ekki er í hættu vegna sjúkdóms fái ófullreynd lyf á neyðarleyfi? Glæpsamlegt að mínu mati!
![]() |
Pfizer ekki í boði fyrir óbólusetta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.6.2021 | 23:19
Börn og unglingar betur sett með náttúrulega sýkingu en bóluefni skv. ráðgjafa bresku ríkisstjórnarinnar
The Times og Telegraph segja frá því að öruggara væri fyrir börn og unglinga að sýkjast náttúrulega af Covid heldur en að fá bóluefnið.
Þetta er mat Dr. Robert Dingwall eins af ráðgjöfum bresku ríkisstjórnarinnar í bólusetningum sem ákveður nú hvort bjóða eigi unglingum, 12- 18 ára, bóluefnið.
Dingwall segir að í ljósi þess hve væg veikindin eru hjá unglingum yrði bóluefnið að vera einstaklega öruggt" til að valda ekki meiri skaða en gagni.
Hann heldur því fram að núverandi bylgja meðal unga fólksins gæti í raun bundið endi á faraldurinn og hvatti fólk til að örvænta ekki vegna fjölda smita. Jafnfram sagði hann sjúkdóminn ekki lengur vera verulega dánarorsök og að vísindin ættu ekki miða að ódauðleika.
Þetta er viðsnúningur og hér heima virðast menn ætla að minnsta kosti að hinkra með bólusetningu 12-15 ára (en búið að bjóða þeim sem eru með undirliggjandi sjúkdóma.) 16 - 18 ára hafa þegar flest fengið fyrsta skammtinn. Því miður var ætt áfram með þann hóp þrátt fyrir að rannsóknir um tengsl lyfjanna og hjartavöðvabólgu væru í gangi. Yfirvöld hér heima vissu vel af þeim rannsóknum en samt var bólusetningin keyrð áfram og nú hefur FDA (Lyfja-og matvælaeftirlit Bandaríkjanna) sett viðvörun á Pfizer og Moderna vegna tengsla við þann alvarlega kvilla.
Ingileif hjá Íslenskri Erfðagreiningu er á öndverðum meiði, hún hefur ráðlagt stjórnvöldum að bólusetja unga fólkið og hafði engan áhuga á að bíða eftir frekari gögnum, bara gera þetta hratt! (hún eyðir/felur líka umsagnir undir hvatningarfærslum sínum á facebook).
Er Íslensk Erfðagreining og/eða HÍ að gera rannsókn á Íslendingum í tengslum við bóluefnin? Hvað fær fólk til að hvetja til þess að ungt fólk sem ekki er í hættu vegna sjúkdóms fái ófullreynd lyf á neyðarleyfi? Glæpsamlegt að mínu mati!
Hér er viðtal við bandaríska lækninn, Jane Ruby, sem segir ástandið í Ísrael vegna hjartameina meðal unga fólksins mun verra en opinberar tölur segja.
![]() |
Fleiri mættu í bólusetningu en von var á |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 1.7.2021 kl. 16:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.6.2021 | 11:51
C19 bóluefnin - eins og götóttir smokkar!
Faraldsfræðingar eru margir hverjir að velta fyrir sér þörf á því að bólusetja þá, sem fengið hafa bóluefni Janssen gegn kórónuveirunni, með bóluefni Pfizer eða Moderna til viðbótar, svo verja megi fólk gegn Delta-afbrigði veirunnar."
Það var alltaf eitthvað einkennilegt við það hvers vegna bóluefnið frá bossapúðursframleiðandanum Johnson&Johnson ætti að vera sterkara en öll hin, og því þyrfti bara einn skammt.
Nú segja sérfræðingarnir að best væri að prófa mix&match aðferðina á þeim sem héldu að þeir væru svo heppnir að þurfa bara einn skammt. Janssen-þegum verður því líklega boðið að taka þátt í tilraun með blöndun bóluefna. Sóttvarnarlæknir segir aukaverkanirnar eitthvað meiri en hvað með það. Hver er ekki til í að láta lyfjafyrirtækin nota sig í rannsókn í þeirri von um að fá ekki sjúkdóm sem hefur fyrir þó nokkru verið á undanhaldi og sem er langflestum hættulaus skv. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunni. Auk þess eru til frábær lyf eins og Ivermectin til að draga úr veikindunum þó svo að Lyfjastofnun leyfi það ekki.
Reyndar mígleka öll þessi bóluefni/líftæknilyf sbr. þessa færslu frá mér í gær með bólusettu hjúkkuna sem situr í einangrun á Íslandi í stað þessa að vera komin heim til Bandaríkjanna. Þar er vísað í skýrslu frá Englandi sem segir að flestir þeirra sem nú deyja af völdum Covid (heitir víst enn covid þrátt fyrir önnur nöfn, Delta, Gamma, Sigma, Eta, Alma....). Skýrslan er hér og tafla sem sýnir þetta er hér neðar:Fréttamiðillinn Forbes segir líka frá því að skv. CDC (Center for Disease Control) hafi nú þegar 4115 fullbólusettir dáið eða þurft að leggjast inn á sjúkrahús vegna Covid. Forbes notar samlíkingu við smokk. Ég ætla að gera það líka.
Þessi bóluefni sem eru ekki bóluefni eru eins og götóttir smokkar. Sem sagt gölluð vara. Kannski átti hún líka að vera gölluð svo hægt sé að halda áfram að sprauta fólkið og verðlauna það með heilsupassa sem þarf að endurnýja reglulega, líklega með því að taka næstu og næstu og næstu sprautu.
Niðurlægingin hlýtur að vera þó nokkur, sérstaklega hjá þeim sem sitja bólusettir og einkennalausir í einangrun og sóttkví! Við hin erum bara hress og höfum boðið Kára Stefánssyni að nýta okkur í samanburðarrannsókn. Hverjir veikjast á næstunni og hverjir ekki?
Megum við sjá bóluefnavottorðið ykkar?
![]() |
Áhyggjur af virkni Janssen gegn Delta-afbrigðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.6.2021 | 21:10
Bólusett í einangrun og sóttkví!
Í dag var sagt frá því að fimm innanlandssmit hefðu greinst um helgina.
Þetta eru ferðamenn sem koma hér inn og eru að fá vottorð á leiðinni út úr landinu og greinast þá jákvæð."
Ein þessara fimm er hjúkrunarkona búsett í Bandaríkjunum, fullbólusett (aðeins bólusettir Bandaríkjamenn fá að koma til landsins). Hún var sem sagt á leið heim til sín eftir dvöl hér á landi og þurfti að framvísa neikvæðu PCR prófi til að fljúga aftur út, en fékk jákvæða niðurstöðu og var send í einangrun. Íslensk hjón sem eru ættingjar konunnar, voru meðal annarra sem send voru í sóttkví vegna konunnar. Bæði eru bólusett! A.m.k. þrír bólusettir einstaklingar sitja í sóttkví vegna konunnar.
Þessu fólki var lofað frelsi eftir bólusetningu. Þau sitja nú í einangrun og sóttkví og þurfa að fara í PCR próf eftir ca. viku. Yfirvöld gera sem sagt ráð fyrir því að þetta fólk geti smitað út frá sér, einkennalausir bólusettir einstaklingar! Hvernig ætli fullfrísku bólusettu fólki líði með með það að vera í einangrun og sóttkví í sumarfríinu sínu, eins og íslensku hjónin og það vegna aðila sem er bólusettur! Hvernig á að nást hjarðónæmi með svona lyfjum?
Það er verið að plata fólk, þetta eru ekki bóluefni og koma ekki í veg fyrir smit og ekki veikindi eða dauða. Í þessari frétt frá Bretlandi er skýrsla frá PHE (Public Health England) sem sýnir að meirihluti þeirra sem eru nú að deyja af Covid eru bólusettir, sjá líka töflu.
Hér neðar lýsir Íslendingur því að hann hafi veikst mánuði eftir bólusetningu, ekki bara það heldur var hann með versta Covidið í síðustu bylgju skv. lækninum.Þjóðverjar eru að fara af stað með málaferli útaf PCR prófum sem gefa 95% falskar niðurstöður ef prófið er framkvæmt á yfir 35 snúningum. Þess má geta að prófið er framkvæmt á 40 snúningum hér á landi sem segir okkur að yfir 95% greindra voru og eru ekki með Covid enda fundu flestir ekki fyrir neinum einkennum. Það er búið að loka fullt af heilbrigðu fólki inni mánuðum saman.
Umrædd hjúkrunarkona er eflaust ekki með neitt Covid enda er hún fullfrísk. Bara ómarktækt próf sem allur þessi svikafaraldur er byggður á. Á sama tíma er hin árlega flensa horfin og enginn fattar neitt. Nema í Kína, þar er ekkert Covid, bara flensa.
Singapore hefur ákveðið að hætta Covid ruglinu og fara að lifa með veirunni eins og flensu. Sem hún kannski er?
Og endilega hlýðið WHO, þið bólusetta fólk og verið með grímu. Toppurinn á tilverunni er að vera bólusettur í eingangrun með grímu og nýja rakningarappið!
Bloggar | Breytt 3.7.2021 kl. 09:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.6.2021 | 11:20
Mótmælin í London í gær! - og nýju skilaboðin frá WHO
Eflaust eru þetta fjölmennustu mótmælin gegn C19 aðgerðum í London hingað til. Sjáið myndband hér og hér.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur hvatt fullbólusetta til þess að halda áfram að nota grímur og halda fjarlægð frá öðrum ásamt hefðbundnum sóttvarnaráðstöfunum til þess að koma í veg fyrir útbreiðslu Delta-afbrigðis Covid-19.
Fólk má ekki byrja að upplifa sig öruggt bara um leið og það hefur fengið tvo skammta af bóluefni."
Eitt (enskt) orð yfir þetta. Pathetic! Og fullt af fólki heldur að það sé varið gegn hinni síbreytilegu kórónuveiru. Fólkinu sem lét bólusetja sig með þessum líftæknilyfjum er vorkunn. Og þríeykið sem tók þátt í að blekkja mannskapinn fékk fálkaorðu. Þau minna á útrásarvíkingana sem göbbuðu almenning til að taka ólögmæt lán, kaupa í ónýtum sjóðum o.s.frv. Og auðvitað vissu þau þetta allan tímann og ríkisstjórnin öll.
En Englendingar duglegir að mótmæla. Bara frábært. Það er góð tilfinning að vera partur af hópnum sem sá í gegnum blekkinguna og að hafa ekki tekið þátt í gagnslausri og skaðlegri lyfjameðferð, gangandi um eins og kjáni með gagnslausar og skaðlegar grímur. Sjáið þessa frétt með skýrslum frá PHE (Public Health England). Meirihlutinn sem er að deyja af Delta afbrigðinu eru fullbólusettir.
![]() |
Hvetja fullbólusetta til grímunotkunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.6.2021 | 15:04
17 ára íþróttamaður getur vart gengið eftir Pfizer - blóðtappar í heila
17 ára körfuboltamaður
Everest Romney frá Utah í Bandaríkjunum fékk mikinn höfuðverk og hita daginn eftir Pifzer sprautu, auk þess sem hálsinn á honum bólgnaði upp. Fimm dögum síðar var hann lagður inn á sjúkrahús þar sem læknar fundu hjá honum tvo blóðtappa í heila. Móðir hans, Cherie Romney, sagði að barnalæknir sonar síns hafi gert lítið úr einkennunum og greint hann með klemmda taug.
Everest var hraustur íþróttamaður, segir móðir hans, en í dag á hann erfitt með að ganga.
FDA setur viðvörun á Pfizer og Moderna
Í gær fjallaði ég um nokkuð merkilega frétt sem virðist hafa farið fram hjá fjölmiðlum hér heima, um að FDA (Food and Drug Administration) í Bandaríkjunum ætli að setja viðvörun á Pfizer og Moderna bóluefnin vegna tengsla við hjartavöðvabólgu. Hvað skyldu fjölmiðlar græða á því að segja Íslendingum ekki þessar fréttir sem varða heilsu þeirra og líf?
Hér segir frá öðrum 19 ára íþróttamanni, Greyson Follmer, frá Ohio í Bandaríkjunum sem var greindur með hjartavöðvabólgu eftir síðari skammtinn af Pfizer. Hann var bólusettur þrátt fyrir að hafa áður fengið Covid og glímir við allskyns vandamál í kjölfarið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.6.2021 | 13:16
Hvað skyldi umboðsmaður Alþingis segja um þetta fyrirkomulag?
Með þeim breytingum verða flestallar takmarkanir á ferðum bólusettra og barna til landsins afnumdar og því geta um 90% landsmanna komið óhindrað til landsins, sagði Svandís."
Þetta er auðvitað óbein þvingun til að fá fólk í bólusetningu með lyfi sem ekki hefur fengið markaðsleyfi og lyf sem FDA hefur sett viðvörun á, n.t.t. Pfizer og Moderna? Þvingun til að taka inn lyf á neyðarleyfi er brot á Nurnberg lögunum. Sjá þennan nýja hæstaréttardóm frá Indlandi.
Ákveði ég að fara til útlanda, óbólusett af þessu varasama líftæknilyfi á neyðarleyfi sem er að slá öll met í aukaverkunum, m.a. varðandi tíðarhring kvenna og verkjum tengdum móðurlífi, mun ég hiklaust neita sýnatöku og sóttkví. Sjáum hvernig það mál myndi fara. Lyfjunum fylgja ekki bara vandamál tengd móðurlífinu heldur einnig töluvert um einkennileg veikindi sem ekki var varað við í upphafi, sjá t.d. hér. 1870 aukaverkanir hafa verið tilkynntar og þar af 124 alvarlegar (lífshættulega tilvik eða dauði).
Erindi verður sent umboðsmanni í dag.
p.s. hvernig er með þá Rögnvald og Víði löggur, eru þeir búnir að fara í bólusetningu? Það átti að bjóða þeim líka sem eru með mótefni. Eflaust hafa þeir ekki farið enda hefði það komið í sjónvarpinu. Allir að klappa fyrir Víði sem lenti í hópsmiti því hann fór ekki eftir reglunum, bara kærulaus.
![]() |
90% landsmanna geta komið óhindrað til landsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
-
aslaugas
-
agny
-
annaeinars
-
danna
-
agustkara
-
bookiceland
-
contact
-
einarborgari
-
rlingr
-
sagamli
-
helga-eldsto-art-cafe
-
bofs
-
sade
-
gusg
-
noldrarinn
-
hafthorb
-
hhbe
-
hlf
-
diva73
-
snjolfur
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
kreppan
-
jaj
-
islandsfengur
-
nonniblogg
-
nyja-testamentid
-
thjodarskutan
-
kristinnp
-
loncexter
-
marinogn
-
sighar
-
sigurduringi
-
sushanta
-
viggojorgens
-
vilhjalmurarnason
-
thorsteinnhelgi
-
valli57
-
tbs