Leita í fréttum mbl.is

Enginn grunur um Guillain-Barré taugasjúkdóminn hér á landi?

Eugilance„Auk­in hætta er á sjald­gæf­um tauga­sjúk­dómi hjá þeim sem fengið hafa Jans­sen-bólu­efnið. Frá þessu grein­ir Mat­væla- og lyfja­eft­ir­lit Banda­ríkj­anna, sem hef­ur fundið fylgni milli Jans­sen-bólu­efn­is­ins og sjald­gæfs tauga­sjúk­dóms sem nefn­ist Guillain-Bar­ré-heil­kennið."

Upplýsingar Lyfjastofnunar um tilkynntar aukaverkanir eru þannig uppsettar að ekki er hægt að sjá hvers konar aukaverkanir / veikindi fólk er að tilkynna.

Stofnunin hefur þó nýlega bætt við upplýsingum á ensku (fúsk) um tegund tilkynninga og þar kemur fram að 765 tilfelli hafi verið kynnt um "nervous system disorders", sem sagt einhverskonar truflanir í taugakerfinu. Það tekur auðvitað tíma að greina sjúkdóma eins og Guillain Barré, en var enginn grunur um það með öll þessi tilkynntu tilfelli? Og með öðrum orðum, einstaklingar sem tilkynna grun um aukaverkun til Lyfjastofnunar, tilkynna varla að þeir séu með Guillain Barré eða myocarditis. 

Það sama á við um hjartavöðvabólgu. Stofnunin segir að engar tilkynningar um þann kvilla hafi borist eftir bólusetningar. En það tekur líka tíma að greina þann sjúkdóm, ekki satt? Geta læknar staðfest að ekkert tilfelli um hjartavöðvabólgu hafi komið upp hér á landi eftir bólusetningu? Ekki næstum allir tilkynna aukaverkanir. Lyfjastofnun hefur samkvæmt myndinni hér ofar borist 64 tilkynningar tengdar hjartanu (cardiac disorders). Ekki er hægt að sjá á þessum upplýsingum hvaða bóluefni aukaverkunin tengist. Það þarf kannski að borga forstjóra stofnunarinnar hærri bónusgreiðslur (fékk 560,000 kall árið 2020, ekki komið fyrir 2021) til að þýða heiti kvillana yfir á íslensku og flokka þær niður eftir tegund bóluefnis, sem sagt hafa upplýsingarnar eins og þær eiga að vera og eru í öðrum ríkjum, t.d. Bandaríkjunum. Dæmi um doða eftir Pfizer, sjá hér.
ekkitilkynntmyoclyfjarúnajansenstingbringu


mbl.is Aukin hætta á taugasjúkdómi vegna Janssen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úrelt bóluefni - ný útgáfa á leiðinni - og lögbannsbeiðni í skoðun

kids„Það verður nátt­úru­lega farið í bólu­setn­ingu 12 til 15 ára barna í haust þannig að þetta bólu­efni verður lík­lega notað í það. Svo eru ein­hver 10% þjóðar­inn­ar sem eiga eft­ir að fá bólu­setn­ingu þannig að kannski kem­ur eitt­hvað af þeim í bólu­setn­ingu.“

Framkvæmdastjóri Distica með það á hreinu að krakkarnir verði bólusettir og þá með gamla efninu. Það er nýtt á leiðinni, uppfært fyrir Delta (plús). Eiga krakkarnir að fá gömlu tegundina sem ekki er víst að virki á Delta? Skuldum við ekki Dönum eitthvað og því hægt að lána þeim eða endurgreiða? Þeir voru að fá afgangsefni frá Sígaunum í Rúmeníu,  sem eru tregir við að nota efnið sjálfir, það er annað en Íslendingar, alveg til í að láta nota sig í rannsóknir, bara ef Þórólfur segir að það sé frábært og að það stuðli að hjarðónæmi þó svo að lyfin hindri hvorki smit né veikindi.

sigauna


En annars er það helst að frétta, að verið er að skoða það á fá lögbann á tilraunageldingastarfsemi
12-15 ára ungmenna. Það eru lögmenn og læknar víða í heiminum að gera hið sama

Myndin er af Rúmenum sem vilja ekki bóluefnið og áframsenda til danskra krakka.


mbl.is Tugþúsundir skammta í geymslu í sumarfríinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blóðtappar óhjákvæmilegir og óafturkræfur hjartaskaði!

myocarditisNiðurstaða sér­fræðinga­nefnd­ar Lyfja­stofn­un­ar Evr­ópu er sú að skrá eigi hjarta­vöðva­bólgu og goll­urs­hús­bólgu sem nýj­ar auka­verk­an­ir í lyfja­textum bólu­efna Pfizer og Moderna gegn Covid-19. Um er að ræða afar sjald­gæf­ar auka­verk­an­ir sem þó er mik­il­vægt að heil­brigðis­starfs­fólk sé vak­andi fyr­ir." 

Yfirvöld hér heima vissu að þetta væri í skoðun og að FDA hefði setti viðvörun á lyfin, en það var ekki staldrað við, heldur drifið í að boða unga fólkið í sprautur. Svei þessu fólki og öllum læknunum sem þögðu, líka hjartalækninum Torfa Fjalari Jónassyni (giftur landlækni) sem á móður á Sóltúni sem var sú eina sem ekki fékk bóluefnið. Innherjasvik?

Hver var neyðin hjá unga fólkinu vegna Covid? Engin. Covid faraldurinn er liðinn hjá, komið töluvert náttúrulegt ónæmi í samfélagið, sérstaklega meðal unga fólksins sem var allan tímann í skólanum og/eða meðal jafnaldra. Því er óhjákvæmilegt að ónæmi hafi myndast.

Hlustið á þetta átta mínútna viðtal við kanadíska lækninn Charles Hoffe. Það er öruggt að þeir sem fengu og munu halda áfram að fá mRNA (Pfizer og Moderna) fái blóðtappa. Og fái menn myocarditis (hjartavöðvabólgu) ná þeir sér aldrei, þolið verður alltaf minna en áður. Hjartavöðvinn er varanlega skaddaður.

Hér er viðtal við bandaríska lækninn, Jane Ruby, sem segir ástandið í Ísrael vegna hjartameina meðal unga fólksins mun verra en opinberar tölur segja. Yfirvöld og lyfjastofnanir ljúga til um alvarleika málsins. 

Hér er svo þýski lögmaðurinn Reiner Fuellmich; þetta er skipulögð glæpastarfsemi! Engin ný veira og einkaleyfin löngu komin. 

Fyrir hvað er yfirmaður Lyfjastofnunar að fá álagsgreiðslur vegna Covid? Fyrir að halda kjafti og reisa þöggunarmúr í kringum veikindin af sprautunum? Hvaða álag er á henni vegna Covid og það í fyrra, 2020? Stimpla pappíra frá Lyfjastofnun Evrópu? Hefur stofnunin haft eitthvað eftirlit með bóluefnunum, tekið til dæmis stikk prufur? Hefur einhver fengið saltvatn hér heima? Fréttir sem þessar eru víða, saltvatn óvart gefið í stað bóluefnis. Sjá líka hérhér, hér og hér.

Fékk þessar bónusgreiðsluupplýsingar frá upplýsingafulltrúa heilbrigðisráðuneytisins, þarf að kalla eftir sambærilegum upplýsingum frá öðrum ráðuneytum. Ráðuneytin sjá um að greiða sínum stofnunum bónusa vegna Covid.

lyfjarúna


mbl.is Telja hjartavöðvabólgu afar sjaldgæfa aukaverkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bretar á taugum yfir Delta afbrigðinu eða þannig...

wimbleyDaglegar fréttir eru af hinu bráðsmitandi Delta afbrigði sem hundrað og eitthvað þúsund Bretar hafa greinst með og byrjað er að hræða Íslendinga með.  Allir á nálum í Bretlandi?
Þetta myndband er tekið í dag nálægt Wembley vellinum. Ekki beint!

Meira í DV. Og hér neðar er breski læknirinn Hillary Jones á Wimbledon, grímulaus. Hann er nánast daglega í breska sjónvarpinu að ráðleggja Bretum að vera með grímur, fara í bólusetningu og eins vill hann framlengja sóttvarnarreglum sem stendur til að létta af 19. júlí nk.

Meira svona, fleiri hræsnara sem fleta ofan af svikamyllunni!

hillarywimble

 

 

drhillaryjonse


En þetta er ekki búið enn - Delta (plús) og þriðja sprautan á leiðinni!

yeadonvariantsNú er svo komið að Ísland er í fremstu röð í heimi hvað varðar bólu­setn­ingu við Covid-19. Af Íslend­ing­um 16 ára og eldri eru nú 81,2% full­bólu­sett, en því til viðbót­ar eru 8,4% búin að fá fyrri bólu­efn­is­skammt.

Þar af leiðandi eru 89,6% búin að fá bólu­efni, en tals­verð vörn hlýst af fyrri skammti og eng­ar taf­ir hafa verið á fullnaðar­bólu­setn­ingu."

Hvað þýðir það að vera "fullbólusettur?" Það þýðir að þú sért búinn að fá tvær sprautur af þremur á þessu ári og tvær af ca. 10 á næstu tveimur árum. Það þýðir líka að þú sért miklu líklegri en þeir óbólusettu til að smitast og dreifa veirunni sbr. samgöngumálaráðherra Bretlands. Markmiðið er að bólusetja alla heimsbúa, en á heimsvísu er sú tala núna ca. 10%. Það tekur því varla fyrir þig að fara úr stuttermabolnum. 
Að vera "fullbólusettur" þýðir líka að þú getir fengið slæmt Covid og lagst inn á sjúkrahús
Nei, þetta er ekki búið sko." segir sóttvarnarlæknir. 

Ný skýrsla frá Bretlandi sýnir hvernig ríkisstjórnin þar notaði sálfræði til að hræða fólk til hlýðni.

Úr skýrslunni: Lorraine said: “This has important implications for how we deal with other risks, like climate change – the public will be more likely to believe it’s a serious problem if governments implement bold policies to tackle it.”

Og önnur skýrsla sem sýnir að útgöngubann á Bretlandi snérist ekki um Covid heldur "Zero Carbon Target". Munið eftir þessari auglýsingu - hvað kom skoðun þríeykisins á loftslagsmálum Covid við?
loftslagsmál
Sá sem er á myndinni ofar er Mike Yeadon, fyrrum yfirmaður hjá Pfizer. Og hér neðar er ágætis dæmi úr hinu virta tímariti National Geographic um hvað menn leggjast lágt í að hræða mannskapinn. Þeir virðast ekki einu sinni fatta hversu hlægileg þessi mynd er sem á að vera tekin í Indónesíu; uppgefnir verkamenn með tuskufótleggi að hvíla sig ofan á grafreitum.


deltaplus


 

 


mbl.is Ísland í fremstu röð í heimi í bólusetningum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fullbólusettir miklu líklegri til að bera veiruna segir samgöngumálaráðherra Breta!

transportsecrÍ veirufréttum er þetta helst:

Samgöngumálaráðherra Breta, Grant Shapps, segir hér í sjónvarpsviðtali varðandi ferðalög Breta, að fullbólusettir séu líklegri til að fá/bera kórónuveiruna á milli. Hann virðist hika aðeins, segir: "We know that double vaccinated, fully vaccinated people are much more likely to get...to carry the coronavirus..."

Þetta hlýtur að vera saga til næsta bæjar. Og sóttvarnalæknir Íslands að mæla með því að þeir óbólusettu haldi sig heima. Bólusetta fólkið með nýju vottorðin sín að ferðast til útlanda þar sem mikið er af óbólusettu fólki, berandi smitin á milli landa. An effective but imperfect vaccine!

BidendoorNæsta áhugaverða veirufrétt er frá Bandaríkjunum þar sem forsetinn segir að nú þurfi að herða bólusetningarherferðina og fara að banka upp á hjá fólki með sprauturnar. Svona eins og trúboðar eða pólitíkusar í atkvæðasmölun. Og í Bandaríkjunum af öllum stöðum sem áttu að hafa farið hvað verst út úr faraldrinum. Ætla mætti að fólk kæmi sjálfviljugt, hlaupandi í sprauturnar. (Viðskiptahugmynd; senda Íslendinga út til að hjálpa, þeir kunna að smala.)

newzelandÞar næsta veirufrétt er frá Nýja Sjálandi og ekki ólík þeirri frá Bandaríkjunum. Viðbragðsráðherrann (Response minister), Chris Hipkins, segir að mannleg hegðun sé bara þannig að það gæti þurft að leita að fólki til að fá það í sprautu.

Ef við tengjum þessar þrjár fréttir saman, þá er sem sagt planið að leita að fólki, banka upp á hjá því og fá það til að taka bóluefni sem er á rannsóknarstigi til a.m.k. ársins 2023, og gerir það að verkum að viðkomandi er miklu líklegri til að fá/bera drápsveiruna á milli. Í bónus er möguleiki á hálf-ömurlegum aukaverkunum."

Fullbólusettir á Íslandi eru líka að leggjast inn á sjúkrahús og með versta Covid tilfellið í síðustu bylgju. Lesa hér.

 

 


mbl.is Covid-19 hættuminni börnum en talið var
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

,,Ef ég sé eftir einhverju í þessu lífi er það að hafa látið sprauta í mig þessum viðbjóði!"

Í hópnum Kórónuveiran Covid-19 er fjallað um ýmislegt tengt Covid og undanfarið töluvert mikið um hin ýmsu veikindi eftir sprauturnar. Ég fékk leyfi til að skrifa um þessar frásagnir, nokkuð sem fjölmiðlar hafa ekki nokkurn áhuga á, eins æstir og þeir voru í að fjalla um Covid veikindin.  

Í hópnum skrifar til dæmis Hrafnhildur Birgisdóttir:

„Ég upplifði kulda af fyrstu Pfizer sprautunni en af seinni fann ég mikið fyrir máttleysi og mikilli þreyttu u.þ.b þremur vikum síðar. Ef ég hef séð eftir einhverju í þessu lífi þá er það að hafa látið sprauta þessum viðbjóði í líkama minn. Ég er að bíða eftir mínum lækni sem kemur úr sumarfríi um miðjan júlí. Ég er betri í dag en þetta kemur allt yfir mig á kvöldin sem fer minnkandi sem betur fer. Ef þú ert með góðan lækni, láttu hann athuga."

Sú sem hóf umræðuna heitir Helga Kristín Einarsdóttir:

Mig langar að forvitnast aðeins varðandi aukaverkanir af Pfizer bóluefninu. Er einhver sem upplifði skrítna tilfinningu í nefkoki, sár verkur frá stungu með leiðni uppi í eyra út í kjálka og upp í höfuð og doða tilfinningu út í fingurgóma fyrst á eftir fyrri bólusetningu. Allt gekk svo sem fljótt til baka nema sár verkur í kjálkanum. Núna á 5. degi eftir bólusetningu er ég viðþolslaus af verkjum í bakinu með máttleysi og doða í útlimum, svima og einbeitingarskort og miklar kvalir í maga. Nú spyr ég: Kannast einhver við svona einkenni eftir bólusetningu við COVID eða ætli þetta sé einhver umgangapest?" Hún bætti við:
„Ég er ekki kvartsár kona og held alltaf að nú sé þetta yfirstaðið svona um miðjan dag en svo hellist þetta yfir mig af miklu afli aftur seinnipartinn þar til um miðjan næsta dag. Mjög sérstakt og virkilega óþægilegt. Ég er ekki vön svona magakvölum eða höfuðverk og slappleika alls ekki. En núna."

hrafnhildurmynd
Ég spurði Hrafnhildi (sem er á myndinni) hvers vegna hún hefði farið í sprautuna. Hún sagðist hafa upplifað mikla pressu í þjóðfélaginu, hlustað á umfjöllun lækna og sóttvarnarlæknis, og hafi trúað því að hún myndi ekki fá neinar aukaverkanir. Hún bætti því við að hún hefði alltaf verið hraust, æft mikið í World Class en ekki farið í tvær vikur vegna þróttleysis.
 
Ég spurði hana líka hvort hún væri búin að tilkynna aukaverkanirnar til Lyfjastofnunar:

„Nei, hver hlustar á okkur? Treysti ekki þessu batteríi. Því miður."

Hér má lesa fleiri frásagnir Íslendinga eftir sprauturnar og hér eru lýsingar kvenna sem eru að glíma við vandamál tengd tíðarhringnum. Þetta er allt tekið úr fjölmennum opnum hópum og því ætti að vera í lagi að endurbirta efnið. Enda varðar þetta almenning þó að læknar, yfirvöld og Lyfjastofnun þegi.
 
Þöggunin í kringum veikindin eftir sprauturnar er mikil og alvarleg. Hér heima hafa borist yfir 2000 tilkynningar og þar af um 130 alvarlegar sem teljast samkvæmt skilgreiningu Lyfjastofnunar vera lífshættuleg tilvik eða dauði. Og það sama á við um allan heim. Sjáið þetta myndband sem fer nú eins og eldur um sinu þar sem Bandaríkjamenn kalla á hjálp. "We want to be heard."
 
wanttobeheard

 

Er endaröðin betri en aðrar raðir - röð valdamanna?

Víðir Reyn­is­son var kampa­kát­ur og ný­kom­inn af há­lend­inu þegar mbl.is náði tali af hon­um í Jans­sen-röðinni fyr­ir utan Laug­ar­dals­höll í dag."

Víðir var sem sagt að taka þátt í nýjustu gervilæknavísindatilrauninni, að fá bóluefni við sjúkdómi sem hann hefur nýlega sigrast á. Hann vonast m.a.s. til þess að með sprautunni fái hann bragð-og lyktarskynið til baka (ca. sex og hálfum mánuðum síðar, flestir endurheimta skynið nokkrum vikum síðar, 21,6 dagur er meðaltalið). Þannig að næst þegar þið fáið inflúensu, þá er sniðugt að fara í flensusprautu á eftir. Eða þegar börnin fá hlaupabólu, bóka þá hlaupabólusprautu skömmu síðar.

Það var verið að ræða það í heita pottinum í gærmorgun hvort endaröðin væri fyrir valdafólkið og hvort það sé ekki örugglega líka bóluefnaröð. Ekki eitt þeirra hefur setið annars staðar. Hér koma myndirnar, tvær af Þórólfi, fyrri og síðari skammtur, Víðir, Svanhildur, Katrín, Guðni forseti. 

Hvað með alla hina ráðherrana, alþingismenn og fyrrum forseta?

víðirþórólfurfyrriþórólfurseinniAlmaguðnikatrinsvandisbolus


mbl.is Víðir fékk Janssen og þríeykið fullbólusett
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fullbólusettur á sjúkrahúsi - bóluefnið að slá í gegn eða þannig!

Sá sem ligg­ur á Land­spít­ala vegna Covid-19 er með virkt kór­ónu­veiru­smit. Hann er ekki á gjör­gæslu held­ur á al­mennri legu­deild. Þetta kem­ur fram í svari við fyr­ir­spurn mbl.is. Ann­ar ein­stak­ling­ur, sem nú er út­skrifaður, var lagður inn á Land­spít­ala vegna Covid-19 í síðustu viku." 

Nú þegar um 90% Íslendinga yfir 16 ára aldri hafa fengið a.m.k. einn skammt af lekandi bóluefni mætti gjarnan fylgja öllum svona fréttum hvort viðkomandi hafi fengið bóluefnið eða ekki. Það ættu a.m.k. að vera ca. 90% líkur á að umræddir sjúklingar hafi fengið einn skammt. Við fáum nánast daglegar fréttir af því að þessi efni komi ekki í veg fyrir smit. Nú þurfum við líka að vita hvort þau komi kannski ekki í veg fyrir veikindi heldur (fjölmörg dæmi þess erlendis).
covideftirjanssen

Sendi snöggvast póst á smitsjúkdómadeildina til að spyrjast fyrir hvort veita megi þessar upplýsingar. Það gera alvöru fréttamenn á farsóttatímum! Svarið frá farsóttadeildinni er komið; annar þeirra var óbólusettur, hinn fullbólusettur. Báðir útskrifaðir, gott að heyra. 
„Sæl
Annar sjúklingurinn var ekki bólusettur- sá útskrifaðist um helgina. Hinn var fullbólusettur og útskrifaðist í gær.
Fh Farsóttanefndar Landspítala."

Mælið þið enn með þessu bóluefni? Og sjá þetta dæmi á myndinni (smella til að sjá betur). Sem sagt einn fullbólusettur lagður inn á sjúkrahús með Covid og svo versta Covid tilfellið í síðustu bylgju eftir Janssen efnið. Eina samsærið sem virðist vera  gangi er samsæri gegn fólkinu, það er blekkt og haft af fíflum. Bólusettir með þessum nýju líftæknilyfjunum geta bæði smitast og veikst. Og þessi fullbólusetta íslensk/bandaríska hjúkrunarkona var sett í einangrun og komst ekki aftur heim til sín og bólusettir ættingjar hennar sendir í sóttkví.

Hafnarfjarðarbrandari: Hafið þið heyrt um Hafnfirðinginn sem fór í Laugardalshöllina og fékk sér bóluefni (tvo skammta) sem virkar hvorki gegn smiti né veikindum með tilheyrandi aukaverkunum?

 

Bólusettu þig fyrir lífstíð!

Ef þið viljið bólusetja ykkur 100% við Covid fyrir lífstíð,  hlustið þá á Mike Yeadon vísindamenn með meiru sem starfaði hjá Pfizer í yfir 20 ár og gegndi þar yfirmannsstöðu. Hann fjallar um lygina með Covid bóluefnin, PCR-prófin, rotnu stjórnmálamennina sem ætti að handtaka, ljúgandi BBC, tekur alveg fyrir að einkennalausir geti smitað. "It´s utter non-sense...rubbish"! Ekki er ástæða til að óttast sjúkdóminn sem er mjög læknanlegur, það eina sem er að óttast eru ríkisstjórnir heims og hlýðni fólksins!

Yeadon segir sem sagt Covid vera mjög læknanlegan sjúkdóm en lækningu og upplýsingum þar um sé haldið frá fólkinu, læknar ljúga og "antibody dependent enhancement" (ofurmögnun ónæmissvars) er raunverulegt áhyggjuefni meðal þeirra bólusettu. Hendið grímunum í ruslið segir vísindamaðurinn og látið ekki þessa idiota segja ykkur að það þurfi að bólusetja börnin til að þau smiti ekki ömmu, amma er komin með bóluefnið (nema tengdó á Sóltúni, passa að hleypa ekki krökkunum nærri henni). Yeadon segir bóluefnin vera skaðleg og að markmiðið með heilsuvegabréfunum séu stafræn skilríki. Og þetta með öll afbrigðin, þau eru svo til nákvæmlega eins! Hér er myndbandið.
yeadonvariants

Gula stjarnan - óbólusettir lokaðir inni og metfjöldi sjúkraflutninga

gulastjarnarHeil­brigðisráðherra Þýska­lands lofaði því í dag að fólk sem er bólu­sett gegn Covid-19 muni ekki þurfa að sæta út­göngu­banni eða ströng­um sótt­varn­a­regl­um aft­ur."

Þeir kunna þetta Þjóðverjarnir, en mér skilst að hinn almenni Þjóðverji sé ekki mjög heitur fyrir bólusetningunum. Fullbólusettir eru aðeins 37% eða nánast helmingi færri en viljugu Íslendingarnir. Ef ég þekki Þjóðverjana rétt, þá munu þeir ekki láta bjóða sér þetta.

Það er ekkert sem skýrir aðgerðir ríkisstjórna heims betur en þessi mynd. Skoðið hana vel og lengi.
labratx

Það glittir líka í gulu stjörnuna hjá íslenskum yfirvöldum. Í nýrri reglugerð segir að þeir sem ekki eru bólusettir þurfi að fara í sóttkví við komuna til landsins, ekki hinir. Að loka heilbrigt fólk inni í sóttkví stenst ekki stjórnarskrá og því best að hunsa reglurnar og láta reyna á málið fyrir dómstólum eins og með sóttkvíarfangelsið Foss. Það versta sem fólk getur gert er að hlýða þessum ólögum.

Fullbólusetta hjúkrunarkonan í einangrun

Fyrir nokkrum dögum skrifaði ég um fullbólusetta íslensk/bandaríska hjúkrunarkonu sem komst ekki aftur heim til Bandaríkjanna þar sem hún greindist með veiruna áður og dúsir nú í einangrun, einkennalaus en missti lyktarskynið. Nokkrir bólusettir ættingjar konunnar sem hittu hana voru sendir í sóttkví. Það var ekki einu sinni Delta afbrigðið sem hún var með heldur gamla Alpha (nýja nafnið yfir Wuhan afbrigðið). Frábært bóluefni eða þannig. Það fær mest eina (gula) stjörnu af tíu!

Metfjöldi sjúkraflutninga á sumarkvöldi í miðri viku

Það voru 147 útköll sjúkraflutningabíla síðasta sólarhring, þetta er bara rugl" sagði stjórinn. Hvers vegna spurði fréttamaðurinn ekki hver ástæðan gæti verið á sumarkvöldi í miðri viku? Er það blóðtappafaraldurinn mikli sem má ekki tala um? Fór órannsakaða tilraunablandan í Laugardalshöllinni í gær nokkuð illa í mannskapinn? Svona eitthvað?


mbl.is Ekkert útgöngubann fyrir bólusetta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband