Leita í fréttum mbl.is

Blóðtappar óhjákvæmilegir og óafturkræfur hjartaskaði!

myocarditisNiðurstaða sér­fræðinga­nefnd­ar Lyfja­stofn­un­ar Evr­ópu er sú að skrá eigi hjarta­vöðva­bólgu og goll­urs­hús­bólgu sem nýj­ar auka­verk­an­ir í lyfja­textum bólu­efna Pfizer og Moderna gegn Covid-19. Um er að ræða afar sjald­gæf­ar auka­verk­an­ir sem þó er mik­il­vægt að heil­brigðis­starfs­fólk sé vak­andi fyr­ir." 

Yfirvöld hér heima vissu að þetta væri í skoðun og að FDA hefði setti viðvörun á lyfin, en það var ekki staldrað við, heldur drifið í að boða unga fólkið í sprautur. Svei þessu fólki og öllum læknunum sem þögðu, líka hjartalækninum Torfa Fjalari Jónassyni (giftur landlækni) sem á móður á Sóltúni sem var sú eina sem ekki fékk bóluefnið. Innherjasvik?

Hver var neyðin hjá unga fólkinu vegna Covid? Engin. Covid faraldurinn er liðinn hjá, komið töluvert náttúrulegt ónæmi í samfélagið, sérstaklega meðal unga fólksins sem var allan tímann í skólanum og/eða meðal jafnaldra. Því er óhjákvæmilegt að ónæmi hafi myndast.

Hlustið á þetta átta mínútna viðtal við kanadíska lækninn Charles Hoffe. Það er öruggt að þeir sem fengu og munu halda áfram að fá mRNA (Pfizer og Moderna) fái blóðtappa. Og fái menn myocarditis (hjartavöðvabólgu) ná þeir sér aldrei, þolið verður alltaf minna en áður. Hjartavöðvinn er varanlega skaddaður.

Hér er viðtal við bandaríska lækninn, Jane Ruby, sem segir ástandið í Ísrael vegna hjartameina meðal unga fólksins mun verra en opinberar tölur segja. Yfirvöld og lyfjastofnanir ljúga til um alvarleika málsins. 

Hér er svo þýski lögmaðurinn Reiner Fuellmich; þetta er skipulögð glæpastarfsemi! Engin ný veira og einkaleyfin löngu komin. 

Fyrir hvað er yfirmaður Lyfjastofnunar að fá álagsgreiðslur vegna Covid? Fyrir að halda kjafti og reisa þöggunarmúr í kringum veikindin af sprautunum? Hvaða álag er á henni vegna Covid og það í fyrra, 2020? Stimpla pappíra frá Lyfjastofnun Evrópu? Hefur stofnunin haft eitthvað eftirlit með bóluefnunum, tekið til dæmis stikk prufur? Hefur einhver fengið saltvatn hér heima? Fréttir sem þessar eru víða, saltvatn óvart gefið í stað bóluefnis. Sjá líka hérhér, hér og hér.

Fékk þessar bónusgreiðsluupplýsingar frá upplýsingafulltrúa heilbrigðisráðuneytisins, þarf að kalla eftir sambærilegum upplýsingum frá öðrum ráðuneytum. Ráðuneytin sjá um að greiða sínum stofnunum bónusa vegna Covid.

lyfjarúna


mbl.is Telja hjartavöðvabólgu afar sjaldgæfa aukaverkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Geir Ágústsson

CDC orðar hina varanlegu skemmd á hjartavöðvanum mjög varfærnislega (feitletrun mín):

"Patients can usually return to their normal daily activities after their symptoms improve. They should speak with their doctor about return to exercise or sports."

Ekki bara þarf læknir að gefa grænt leyfi á íþróttaiðkun heldur líka "exercise" - hvers konar hreyfingu aðra en "daily activities"!

Leitt að heyra um allar þessar saltvatnssprautur sem eru merktar með merkimiðum bóluefnisins (geri ég ráð fyrir, úr því menn eru að ruglast svona) og eru að rata í almúgann. Almúginn veit ekki að þær eru fráteknar fyrir aðalsfólkið.

Geir Ágústsson, 12.7.2021 kl. 11:24

2 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Og ég taldi bara upp nokkur dæmi um saltvatnsmistökin.

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 12.7.2021 kl. 12:15

3 Smámynd: Ágúst Kárason

Sæl Þórdís, hlekkurin með Reiner Fuellmich er ekki réttur og fer á viðtal með Dr. Charles Hoffe sem er annars mjög gott.

Varanlegur skaði sem svo eykst með hverri sprautu segir hann og hann er hræddur um að þetta sé rétt að byrja. Fólk með vefjaskemmdir í lungum deyr venjulega innan 3 ára af hjartaáfalli vegna álagsins á hjartað. Vonum bara að þetta sé ekki eins algengt og hann segir en hann segir að 62% af þeim mRNA bólusettu sem að hann hefur rannsakað hafa mælst með blóðtappa. Þetta á aðeins við um mRNA genameðferðina.

Ágúst Kárason, 12.7.2021 kl. 12:56

4 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Takk Ágúst, búinn að laga.

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 12.7.2021 kl. 13:30

5 Smámynd: Geir Ágústsson

Hvar er svarti markaðurinn með notaðan snýtipappír frá COVID-sjúklingum sem er hægt að blanda í Red Bull, krækja sér í veiru, ná sér af henni og krækja í lífstíðarónæmi?

Geir Ágústsson, 12.7.2021 kl. 18:55

6 identicon

Geir águstsson, auðvitað verður sagt að ný og ný afbrigði koma og yrðu allir að fara í sprautuna aftur og aftur og sumir segja að þeir sem eru ósprautaðir verði kennt um nýju afbrigðin. Er ekki þegar verið að segja sá óbólusetti sé "Veiru-verksmiðja" fyrir ný afbrigði.Semsagt: Endurtekning á norna og galdrafári miðalda. 

Bragi Sigurdsson (IP-tala skráð) 12.7.2021 kl. 20:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband