Leita í fréttum mbl.is

Börn betur sett með náttúrulega sýkingu heldur en bóluefnið segir ráðgjafi bresku ríkisstjórnarinnar

The Times og Telegraph segja frá því að öruggara væri fyrir börn og unglinga að sýkjast náttúrulega af Covid heldur en að fá bóluefnið.

Þetta er mat Dr. Robert Dingwall eins af ráðgjöfum bresku ríkisstjórnarinnar í bólusetningum sem ákveður nú hvort bjóða eigi unglingum, 12- 18 ára, bóluefnið.

Dingwall segir að í ljósi þess hve væg veikindin eru hjá unglingum yrði bóluefnið að vera „einstaklega öruggt" til að valda ekki meiri skaða en gagni. 

Hann heldur því fram að núverandi bylgja meðal unga fólksins gæti í raun bundið endi á faraldurinn og hvatti fólk til að örvænta ekki vegna fjölda smita. Jafnfram sagði hann sjúkdóminn ekki lengur vera verulega dánarorsök og að vísindin ættu ekki miða að ódauðleika. 

Þetta er viðsnúningur og hér heima virðast menn ætla að minnsta kosti að hinkra með bólusetningu 12-15 ára (en búið að bjóða þeim sem eru með undirliggjandi sjúkdóma.) 16 - 18 ára hafa þegar flest fengið fyrsta skammtinn. Því miður var ætt áfram með þann hóp þrátt fyrir að rannsóknir um tengsl lyfjanna og hjartavöðvabólgu væru í gangi. Yfirvöld hér heima vissu vel af þeim rannsóknum en samt var bólusetningin keyrð áfram og nú hefur FDA (Lyfja-og matvælaeftirlit Bandaríkjanna) sett viðvörun á Pfizer og Moderna vegna tengsla við þann alvarlega kvilla. 

Ingileif hjá Íslenskri Erfðagreiningu er á öndverðum meiði, hún hefur ráðlagt stjórnvöldum að bólusetja unga fólkið og hafði engan áhuga á að bíða eftir frekari gögnum, bara gera þetta hratt!

Er Íslensk Erfðagreining og/eða HÍ að gera rannsókn á Íslendingum í tengslum við bóluefnin? Hvað fær fólk til að hvetja til þess að ungt fólk sem ekki er í hættu vegna sjúkdóms fái ófullreynd lyf á neyðarleyfi? Glæpsamlegt að mínu mati! 

 


mbl.is Pfizer ekki í boði fyrir óbólusetta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband