Leita í fréttum mbl.is

66 fleiri andlát fyrstu sjö mánuðina en að meðaltali síðustu ár

Hagstofa Íslands birti nýlega dánartölur fyrir fyrstu 32 vikur ársins 2021.
 
Fyrstu 32 vikur ársins dóu að meðaltali 45,6 í hverri viku. Síðustu fjögur ár, 2017-2020, dóu að meðaltali 43,6 í hverri viku. Að jafnaði dóu flestir í aldursflokknum 85 ára og eldri yfir tímabilið 2017-2021. Tíðasti aldur látinna fyrstu 32 vikur þessa árs var 89 og 90 en 86 ára fyrir sömu vikur áranna 2017-2020. Í aldursflokknum 70 ára og eldri gætir leitni hækkunar á fjölda látinna árið 2021 fyrir vikur 26 til 32, en fyrir sömu vikur árin 2017-2020 gætti lækkunar.
 

Heildarfjöldi látinna 2021 fyrstu 32 vikurnar er 1460 manns. Sama tala fyrir árið 2020 var 1381, 1365 fyrir árið 2019, 1425 fyrir 2018 og 1405 fyrir árið 2017. Meðaltal áranna 2017-2020 var því 1394 manns. Á þessu ári er fjöldinn 1460 manns. (1460 - 1394 = 66.)

Því smá sjá að 66 fleiri hafi dáið á fyrstu 32 vikum ársins en fyrir meðaltal áranna 2017-2020. 

Í fyrra, á árinu sem kórónuveirufaraldurinn hófst, lækkaði dánartíðni í 628 per 100,000 íbúa frá 629 per 100,000 á árinu 2019. 

Athygli vekur að 66 fleiri skuli hafa látist á fyrstu 32 vikum þessa árs 
en að meðalatali undafarin ár. Í fyrra létust þó 28 einstaklingar með lögheimili á Íslandi af Covid, þar af 14 á Landakoti. Á fyrri helmingi þessa árs hefur aðeins einn einstaklingur með lögheimili hér á landi látist af Covid.

Samkvæmt svari frá Landlæknisembættinu hefur enginn Íslendingur látist af völdum inflúensu frá því í apríl 2020, eða um það bil frá þeim tíma er Covid faraldurinn hófst. Að jafnaði látast um 10 - 20 manns af völdum inflúensu ár hvert.

Hvað veldur þessum umfram" dauðsföllum og þá aðallega meðal eldri hópa sem finna má í tölum Hagstofunnar á þessu ári? Ekki er það inflúensan og ekki er það Covid. Ætla mætti að dauðsföll meðal eldri borgara hefðu átt að lækka eftir að bólusetning við Covid hófst og eins fyrst að inflúensan hefur ekki látið sjá sig í um það bil eitt og hálft ár. 

Engar hugsanlegar skýringar á þessum auknu dauðsföllum er að finna í gögnum Hagstofunnar, en gæti skýringu verið að finna í þeim andlátum sem tilkynnt hafa verið til Lyfjastofnunnar á þessu ári í kjölfar Covid bólusetninga? Í upplýsingum frá Lyfjastofnun er tekið fram að ekki sé grunur um orsakatengsl milli andláta og bólusetninga. En þar er að minnsta kosti hugsanlega að finna 31 „umfram" andlát. Reikna má með að andlát sé frekar tilkynnt til stofnunarinnar ef sterkur grunur leikur á um tengsl andláts og lyfs heldur en að heilbrigðisyfirvöld og/eða aðstandendur sendi tilkynningu til Lyfjastofnunar ef sá látni var við það að gefa upp öndina þegar lyfjagjöfin fór fram.  Þetta þarfnast að minnsta kosti skýringar heilbrigðisyfirvalda. 

Fram kemur í skýrslu Hagstofunnar að rétt sé að benda á að talningar á dánum fyrir árið 2021 eru bráðabirgðatölur og eru líklegar til að vera vanmat á fjölda dáinna, aðallega vegna síðbúinna dánartilkynninga.

 


Bresk stjórnvöld hunsa vísindin - fara þvert á ráðleggingar um bólusetningar ungmenna

BretlandvörnÞessi frétt á BBC segir að JCVI vísindanefndin  mæli gegn bólusetningum ungmenna, meðal annars vegna hættunnar á hjartavöðvabólgu

Viðvörun var einmitt sett á lyfin fyrir nokkrum vikum vegna hættunnar, þó að íslensk yfirvöld hafi þagað um hættuna þar til bólusetningaátaki 16 ára og eldri var lokið. Faglegt, ekki satt? Gott að landlæknir, sóttvarnarlæknir o.fl. hafi fengið álagsgreiðslur. Það er örugglega ekki auðvelt fyrir lækna að þegja yfir því að ungmennum stafi hætta af lyfjum sem þau mæla heilshugar með. En gott að tengdó, og móður hjartalæknis hafi verið kippt út úr bóluefnaveislunni.

Yfirvöld víðsvegar í heiminum segja hættuna af hjartavöðvabólgu litla en það er alls ekki víst. Erfitt getur verið fyrir almenning að greina sjúkdóminn en sérfræðingar þekkja þó einkennin. Fékk barn hjartasérfræðings hér á landi hjartavöðvabólgu eftir bólusetningu? Sjá hér. Helstu einkennin eru mæði, brjóstverkur og sterkur hjartsláttur.

JCVI er sem sagt ráðgjafanefnd breskra stjórnvalda í bólusetningum og eins áður segir mælir hún gegn C-19 bólusetningu ungmenna. Breska ríkisstjórnin ætlar samt sem áður að bólusetja krakkana. Hingað til hefur ríkisstjórnin farið eftir ráðleggingum JCVI. Hér sjáum við gott dæmi um að vísindin og læknisfræðin ráði ekki för, ekki frekar en hér á landi. Það er einfaldlega búið að ákveða að sprauta hvert einasta mannsbarn niður í 6 mánaða aldur og það oftar en einu sinni og oftar en tvisvar, burt séð frá allri skynsemi og skaða. Hvort þeim sem í raun stjórna þessu átaki muni takast þetta er svo annað mál. 

Síðan er áhugavert að skoða hversu litla vörn bóluefnin veita, en Bretar hafa verið að nota Astra Zeneca að mestu. Samkvæmt þessari samantekt er smitvörn meðal fólks yfir fimmtugu aðeins 15% og 27% meðal fólks undir fimmtugu á Bretlandi. 

Þótt vörn gegn dauðsföllum sé viðunandi meðal fólks yfir fimmtugu, eða 74%, er hún aðeins 22% meðal fólks undir fimmtugu. Þetta sýnir hversu vafasamt það er að vera yfirleitt að bólusetja yngra fólk - þar fer áhættan vegna aukaverkananna að skipta verulegu máli. Hér sjáum við einfaldan útreikning byggðan á opinberum gögnum. Sjá líka mynd ofar.
 
Læt hér fylgja með eina af „uppáhalds" spurningum mínum til Kára vísindamanns, tekin af facebook síðu hans. Vísindamaðurinn og bóluefnasalinn nennti ekki einu sinni að svara manninum sem mældist með ekkert mótefni eftir Astra Zeneca. Lausnin verður líklega: Fáðu þér örvunarskammt" af annarri tegund. Smellið á myndina hér neðar til að sjá betur. Þetta misheppnaða bóluefni sem inniheldur kvefveiru úr simpönsum verndaði ekki heldur apana sem tóku þátt í rannsókn hjá framleiðendum lyfjanna. Sjá hér.

p.s. annað dæmi um lygina með Delta afbrigðið og börnin. Er sóttvarnarlæknirinn okkar að vinna fyrir þjóðina og fylgja vísindum eða?

hemmi

 

 
 

 

 


mbl.is Delta veldur ekki alvarlegri veikindum hjá börnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fárveik eftir Moderna og enn veikari af Covid nokkrum vikum síðar

betaoskBeta Ósk er 37 ára förðunarfræðingur og þriggja barna móðir. Hún fór í Moderna bólusetningu í maí og júní með þriggja vikna millibili. Eftir síðari sprautuna varð hún fárveik, fékk 40 stiga hita, mikla beinverki og höfuðverk. Hún var rænulaus í um tvo sólarhringa.

Ætla mætti því að Beta hefði myndað sterkt og gott mótefni gegn Covid. Skilaboðin frá heilbrigðisyfirvöldum voru þau að veikindi eftir bólusetningu þýddi að líkaminn væri að mynda ónæmi, þeim mun meiri einkenni þeim mun sterkara átti ónæmið að vera. En viti menn, nokkrum vikum síðar greindist Beta með Covid og lá á spítala í 13 daga.

Ég greindist 2. ágúst með Covid eftir að hafa verið í sóttkví frá 31. júlí. Mig grunar að ég hafi smitast í Smáralindinni. Fékk tiltölulega væg einkenni en var alltaf eins og ég væri með smá flensu. Ég smitaði fimm ára gamla dóttur mína og systurson 14 ára. Tíu ára sonur minni smitaðiast ekki. Hin tvö fengu bæði væg einkenni og jöfnuðu sig fljótt en ég eins og áður segir, var ég alltaf dálítið slöpp, eins og með væga flensu. U.þ.b. 14 dögum eftir að ég greindist með Covid hneig ég niður og endaði í andnauð og var flutt á spítala þar sem ég lá í 13 daga, þar af þrjá daga í einangrun. Fékk svæsna lungnabólgu, sveppasýkingu í hálsinn, var mæðin og svimaði þegar ég stóð upp. Fljótlega eftir að ég kom á spítalann fékk ég mikið verkjakast, verkjaði fyrir brjóstið og gat ekki hreyft fótleggina. Ég svaf mest fyrstu sólarhringana.  Ristill og þarmar hættu að starfa og það var einhvern veginn allt að mér. Ég mun ekki þiggja fleiri Covid bólusetningar og mun ekki senda börnin mín í þessar sprautur enda hefur eitt þeirra þegar fengið Covid og því komin með náttúrulegt ónæmi."

Fékkstu einhverjar aðrar aukaverkanir eftir sprauturnar, eitthvað tengt tíðarhringnum eins og svo margar konur eru að glíma við þessa dagana eftir bólusetningar?

Ég fékk tvisvar blæðingar sem ég hefði ekki átt að fá þar sem ég fæ getnaðarvarnarsprautu og því á ég ekki að fá blæðingar."

Hér koma hlekkir á fleiri frásagnir kvenna og eins karlmanns eftir þessar lyfjagjafir. Allar birtar með leyfi.

Engar blæðingar fjórum mánuðum eftir Pfizer"

„Læknar vilja ekki gefa mér seinni sprautuna."


„Er eins og níræð kona eftir AstraZeneca."


„Fárveikur eftir Janssen og fékk Covid."

Stanslaust taugastríð eftir AstraZeneca."

Ef ég sé eftir einhveru í þessu lífi..."

„Var sjaldan veik en nú fæ ég allar pestir"

„Magga Stína: „bóluefnið er árás á hormónakerfið"

 

 

 

 

 

 

 


Montana ríður á vaðið og bannar skyldubólusetningu - Go Montana!

montanaNú þegar ýmis stórfyrirtæki í Bandaríkjunum krefjast þess að starfsfólk sé bólusett við C-19, þá er eitt ríki, Montana, sem sker sig úr og bannar einfaldlega skyldubólusetningar. Þar voru nýlega sett lög sem segja að skyldubólusetning fyrir atvinnu sé mismunun (discrimination) og brot á mannréttindum ríkisins. 

Íbúar Montana eru um ein milljón og þar hefur um helmingur fullorðinna verið bólusettur gegn C-19.

Þarna er líka komið annað dæmi sem sýnir að þessar bólusetningar með hinum skaðlegu og að því er virðist gagnlitlu lyfjum séu pólitískt fyrirbæri. Montana er stjórnað af repúblikönum og hafa hægri ríkin verið með mun lakari reglur en hin sem stjórnað er af demókrötum. Mér sýnist í fljótu bragði að öll þau ríki sem ekki eru með grímuskyldu séu hægri ríki.

maksstates

Texas aflétti t.d. öllum höftum í mars sl. Þetta er rannsóknarverkefni út af fyrir sig. Hvernig getur það staðist að veirufaraldur, og viðbrögð við honum, séu að einhverju leyti pólitísk?

Við sjáum þetta reyndar hér heima líka, vinstri flokkar (VG, Samfylking, Sósíalistar) eru ólmir í að fá í sig gervibóluefni og sprauta því í börnin sem eru ekki í hættu vegna pestarinnar. Er þetta fólk almennt hræddara um líf sitt eða fílar það bara að hlýða og láta aðra hlýða, sama hversu vitlaust málefnið er. Samfélagsleg ábyrgð? Nei, ekki með þetta efni sem búið er að sýna fram á að ekki komi í veg fyrir smit, veikindi, eða dauða. En samt rígheldur það í málefnið. 

Vitað er til þess að a.m.k. einn skólastjóri framhaldsskóla, Fjölbraut í Garðabæ, hafi sent út hvatningarbréf til nemenda skólans um að fara í C-19 bólusetningu. Hann var bara að hlýða Víði (skilst að hann sé tengdur samfó".)  Síðan er það samfylkingarborgin Reykjavík sem er að skoða hvort ekki eigi að skylda í einhverjum tilfellum starfsfólk til að fara í C-19 lyfjagjöf, aðallega þá sem vinna með gamla fólkinu sem núna er þríbólusett með bóluefninu." Hér er graf sem vinstri menn geta skoðað. Línan hægra megin er hjarðónæmið sem þjóðinni var lofað eða þannig. 

p.s. kannski ekki spurning um hægri/vinstri eins og við þekkjum það, heldur þetta með að ráðskast með fólk og skikka það til gera eitthvað sem það hefur ekki áhuga á. 

iceland






 


Ekki heimild til að upplýsa um bólusetningarstatus þess látna?

deathsUm er að ræða sjúk­ling á sjö­tugs­aldri en að sögn Önnu Sigrún­ar Bald­urs­dótt­ur, starf­andi for­stjóra Land­spít­al­ans, hef­ur stofn­un­in ekki heim­ild til að veita frek­ari upp­lýs­ing­ar um and­látið að svo stöddu."

Hvaða frekari upplýsingar ætti fólk svo sem að vilja fá fyrir utan það hvort viðkomandi hafi fengið bólusetningu við sjúkdómnum sem hann lést úr eða ekki. Það er búið að sprauta meiripart þjóðarinnar með þessum efnum, það hlýtur að varða almenning hvort lyfin komi ekki heldur í veg fyrir dauða af Covid.

Hafi hann verið bólusettur, er svikamyllan endanlega hrunin. Fyrst átti þetta bóluefni" að mynda ónæmi hjá sprautuþegum, síðan átti að það að koma í veg fyrir mikil veikindi. Þá kom í ljós að svo var ekki. Sjá t.d. hér. Fjórir af fimm í öndunarvél voru bólusettir. Og síðan deyr einn sem er töluvert yngri en meðalaldur látinna  af covid (84 ára) áður en bólusetningarnar hófust. Gefum okkur að hann hafi verið bólusettur því annars væri eflaust búið að upplýsa um að hann væri óbólusettur, svona til að reyna að ná nokkrum hræðum í viðbót í sprauturnar.


En það sem ekki má koma í ljós er að langtum fleiri eru að deyja af völdum C19-lyfjanna en um er rætt og fleiri en tilkynningar til Lyfjastofnunar. Takið eftir hversu margir hafa verið bráðkvaddir síðustu mánuði. Og engin uppfærsla af dánartölum Hagstofunnar frá 15. apríl. Nýjar tölur hefðu átt að koma í júlí. Engar flensutölur, engar dánartölur. 

Fyrir víst veit ég að tveir læknar hafa spurst fyrir (og þá líklega hjá landlækni) hvernig standi á þessari auknu dánartíðni þessa mánuðina. En ekki einu sinni þeir fá svör. Þetta er alls staðar eins í heiminum, dauðsföll hafa hækkað mikið síðan að sprautugjafirnar hófust sem áttu að verja fólk fyrir faraldri sem leysti inflúensuna af hólmi. Alls staðar er reynt að þagga niður, en gæti verið erfiðara á litla Íslandi þegar uppi er staðið. 2000 konur búnar að hópa sér saman sem eiga það sameiginlegt að glíma við hormónatruflanir eftir sprauturnar, fósturlát, ofsablæðingar, engar blæðingar o.fl.
rebekkaegglos
Er kannski í lagi að spyrja bara beint? Er verið að reyna gelda þjóðina og fækka gamalmennum og sjúklingum. Hvers vegna þurfti að gefa gamla fólkinu þriðju sprautuna á 8 mánuðum og það með eldri útgáfunni af Pfizer sem talið er verja lítið gegna Delta. Fær það fjórða skammtinn þegar sú uppfærsla kemur. Einhver þarf a.m.k. að taka við þessu efni öllu.


mbl.is Andlát vegna Covid-19
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Almenningur veit meira en Rúna hjá Lyfjastofnun!

sunnaRúna seg­ist ekki meðvituð um nein til­felli á Íslandi þar sem ein­stak­ling­ur hafi lam­ast vegna bólu­setn­ing­ar Moderna. Hún tek­ur þó fram að ekki hafi marg­ir á Íslandi verið bólu­sett­ir með því bólu­efni."

Hvað með önnur Covid - bóluefni? Þetta svar hér til vinstri fékk Sunna Baxter á Instagammi sínu frá vinkonu sem er í endurhæfingu eftir heilablóðfall (ekki eftir bólusetningu) og þar eru tveir aðrir sem eru lamaðir eftir bólusetningu."

(smella á mynd til að sjá betur).

Það sem menn kalla örvunarskammt" er tilraun með svokallaða mix&match aðferð, blöndun tveggja ólíkra efna, nokkuð sem aldrei var rannsakað en íslenskir læknar og vísindamenn hika ekki við að prófa á ungu fólki. Já, þetta var mikið af yngra fólki sem fór í Janssen því að logið var að því að einn skammtur myndi duga (einmitt þrátt fyrir 60% vörn!). Það átti alltaf að prófa þessa aðferð og það var gert og á að halda áfram með þrátt fyrir að WHO vari meira að segja við því.

Þess má geta að Moderna sem þegar hefur skipt um nafn og kennitölu" hefur aldrei áður framleitt nokkuð bóluefni. 

Og það er ekki búið að tilkynna atvikið með 19 ára stúlkuna til Lyfjastofnunar, segir Rúna, en hlýtur að vera gert enda er þetta nýskeð. Sjá mynd.

Uppfært hjá Mogga: Í skrif­legu svari Land­spít­al­ans kem­ur einnig fram að stofn­un­in geti ekki sagt af eða á um þetta til­tekna mál." Ef ekkert væri til í fréttinni, þá myndi LSH einfaldlega segja: „Nei ekkert er til í þessum sögusögnum."
tinna3
Þetta eru nýlegar upplýsingar frá Lyfjastofnun. Fimm tilfelli af hjartavöðvabólgu, fimm af gollurhússbólgu og 600 tengdar tíðarbreytingum:

Sæl Þórdís,

Vegna persónuverndar-
sjónarmiða er okkur ekki heimilt að veita upplýsingar um einkamálefni einstaklinga sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari. Nákvæmari aldursskiptingu en neðangreint getum við því ekki gefið.

Hjartavöðvabólgur: Samtals hafa 5 tilkynningar borist vegna hjartavöðvabólgu:

  • 2 einstaklingar á aldrinum 12-17 ára, 
  • 2 fullorðnir einstaklingar 18-65 ára
  • 1 eldri einstaklingur á aldursbilinu 65 ára til 74 ára 
  • 1 eldri einstaklingur 65+. 

Gollurshússbólgur: Samtals hafa 5 tilkynningar borist vegna gollurshúsbólgu. Öll tilfellin áttu sér stað hjá fullorðnum einstaklingum (18-65 ára). 

Lyfjastofnun getur ekki gefið upp nákvæman fjölda tilkynninga sem varðar röskun á tíðahring vegna þess að enn er verið að yfirfara þær tilkynningar sem hafa borist síðastliðna daga. Þetta eru í kringum 600 tilkynningar í heildina sem varða röskun á tíðahring en það er óstaðfestur fjöldi þangað til þær hafa verið yfirfarnar af sérfræðingum okkar og skráðar í samevrópskan gagnagrunn um aukaverkanir (Eudravigilance).

p.s. Lyfjastofnun gat sem sagt ekki veitt nánari upplýsingar um aldur á gollurshússbólgu en 18-65 ára. Enda kemur fólki það ekki við hvort viðkomandi sé 18 ára og eigi lífið framundan eða 65 og á leið af vinnumarkaði!

Ath. smella þarf á myndirnar til að sjá betur.

tinnatinna2

 

 


mbl.is Engin tilkynning borist um lömun fyrir neðan mitti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta hjarðónæmið Þórólfur og Kári?

iceland11. júní 2021. „Við erum komin með gott hjarðónæmi, það er alveg klárt en við erum kannski ekki komin með alveg fullt hjarðónæmi í þessa yngstu aldurshópa, ég myndi gjarnan vilja sjá svona 60-70% þátttöku þar og við erum bara að ná því núna á næstu tveimur vikum eða svo," sagði Þórólfur.

Þetta sagði sóttvarnarlæknir sem sagt 11. júní. Eftir þann tíma voru unglingar niður í 16 ára boðaðir og þar var um 80% þátttaka.

Þessi „bóluefni" hljóta að fá öll þau verðlaun og viðurkenningar sem mögulega er hægt að fá. Þetta er línurit yfir fjölda smita. Línan sem fer beint upp eftir 90% þátttöku 16 ára og eldri í lyfjatilrauninni er sem sagt HJARÐÓNÆMIÐ sem vísindamennirnir voru að tala um.

Kári bóluefnasali

27. mái 2021. „Ég átta mig ekki al­menni­lega á því hvað maðurinn er að fara vegna þess að reynslan núna, til þessa dags, er sú að þessi bólu­efni verja okkur við öllum þeim af­brigðum sem við þekkjum,“ segir Kári...Það eru alls­konar skrýtnir hlutir sem geta geta gerst en eins og stendur þá bendir reynslan til þess að þessi bólu­efni komi til með að nægja til að veita okkur hjarðó­næmi," bætir Kári við."

Já, ég kem til með að elta þessi lítilmenni uppi og minna þá á lygina sem þeir tóku þátt í gagnvart þjóð sinni. Þeir höfðu akkúrat ekki neitt i höndunum til að lofa þjóðinni hjarðónæmi.

 

Samningur ESB og Pfizer

Samningurinn sem ESB og Pfizer gerðu í nóv. 2020 segir einmitt:

Samningsaðilar skilja að þróun öruggra og virkra bóluefna er afar flókin framkvæmd og líkurnar á að hún misheppnist eru mjög miklar. Þess vegna verða gerðir fyrirframgreiddir kaupsamningar við nokkra leiðandi bóluefnaframleiðendur, til að hámarka líkurnar á að fá a.m.k eitt öruggt bóluefni."

En þeir lofuðu hjarðónæmi og náðu að lokka um 90% 16 ára og eldri til að taka þátt í ólöglegri lyfjatilraun með lyfjum sem hafa valdi meiri skaða en nokkuð annað bóluefni. Meira um það síðar.

Næsta lygi: „þetta kemur í veg fyrir alvarleg veikindi." Já er það? „Alls eru nú 32 inniliggjandi á Landspítalanum. Fimm eru í öndunarvél af þeim eru fjórir bólusettir." Þessi lyf koma nefnilega til með að valda sjálfsónæmi hafa margir læknar sagt sem taka ekki þátt í lygi Big Pharma, t.d. þessi hollenska kona.


mbl.is Ný afbrigði gætu hægt á baráttunni um heilt ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bæjarstjóri í Frakklandi neitar að hlýða reglum Macrons - ,,lögreglan hefur annað að gera“

franskurpresturÞegar forseti Frakklands kynnti áform um að setja ný lög þar sem veitingahús, strætisvagnar, matvöruverslanir, kvikmyndahús o.fl. verði að krefja mannskapinn um heilsupassa," leið ekki langur tími þar til Frakkar voru mættir út á götu, þar á meðal prestur sem hvatti fólk til að sýna kjark og berjast á móti.

Gangi þér vel með þetta Macron" skrifaði ég enda eru Frakkar komnir út á götu þegar bensínlítrinn hækkar um tíkall eða svo.

Eins ætlar forsetinn sér að setja skyldubólusetningu á heilbrigðisstarfsfólk. Ef það hlýðir ekki, fær það ekki greidd launin sín. Og hvað gerði heilbrigðisstarfsfólk í Marseille? Það gekk út! Dagleg mótmæli hafa verið í Frakklandi síðan forsetinn kynnti þessi áform, meðal annars í dag

Bæjarstjóri óhlýðnast reglunum

Bæjarstóri í litlum bæ á Frönsku Ríveríunni, Frejus, ætlar að hunsa þessar fáránlegu (grotesque) reglur og segir að það sé bæjarstjórans að stjórna lögreglunni í bænum. Hann segir lögregluna hafa annað og betra að gera en að fylgja eftir heilsupassakoðunum." Starf lögreglunnar sé fyrst og fremst að gæta öryggis borgaranna.

Markmiðið með yfirvofandi lagasetningu er að fá fleiri til að bólusetja sig gegn Covid en þátttaka Frakka í lyfjatilrauninni er rétt um 50%

Bæjarstjórinn í Frejus segir að hann vilji sjá Macron slaka á í þessu fallega umhverfi, anda aðeins og róa sig


Er Kári Stefánsson fullbólusettur eða verður hann úti í Grímsey?

kariítrekunÞað var viðtal við Kára Stefánsson í þættinum Pallborðið í fyrradag.

Á mínútu 12 segir Birgir fréttamaður við Kára: „Þú ert fullbólusettur, hvað heldurðu að þurfi að bólusetja þig oft við þessari veiru?"

Er Kári fullbólusettur? Ég sendi auðvitað línu á Birgi og spurði hvar hann hefði þær upplýsingar. Birgir svaraði: Hann sagði við mig, nú þegar ég er bólusettur þá fer ég aftur í ræktina. Ég hef hans orð fyrir því."

Já en Kári sagði aldrei að hann væri fullbólusetur, að hann væri bólusettur segir Kári síðar í þættinum, sem sagt eftir að Birgir segir: „nú ert þú fullbólusettur...".   

Það hefur eitthvað lítið farið fyrir síðari sprautunni hjá Kára. Þegar hann fékk sinn fyrsta skammt fór það ekki framhjá nokkrum manni. Myndir í öllum fjölmiðlum og viðtöl og alveg sér facebook færsla frá honum þar sem hann hvatti landsmenn til að þiggja björgina." Hann lýsti því hvernig hann slapp við að fara út með ruslið um kvöldið o.s.frv.

Síðan hefur ekkert heyrst af bólusetningum forstjóra Íslenskrar Erfðagreiningar. Fjölmiðlar hafa verið duglegir að birta fréttir af ráðamönnum fá sinn síðari skammt, t.d. sóttvarnarlækni, forseta, landlækniheilbrigðisráðherra. En ekkert af sjálfum bóluefnasalanum Kára sem sagði í nóv. 2020 að þessi nýju lyf væru algjört nammi og að þau kæmu í veg fyrir smit í 90% tilfella.

Á svipuðum tíma og bóluefnasalinn sagði þetta í Mogganum var undirritaður samningur milli Pfizer og ESB þar sem fram kom á bls. 54 að líkurnar á því að framleiðsla á virku bóluefni misheppnaðist væru mjög miklar. Sjá mynd neðar. Þrátt fyrir að í ljós hafi komið að bóluefnasalinn hafi farið með tóma þvælu í fjölmiðlum, þá eru fréttamenn enn að spyrja hann ráða. Svona svipað og að leita ráða hjá bílasala sem nýlega seldi manni ónýtan bíl.

Næsta lygi er að fólk verði ekki eins veikt. Jú jú, fullt af bólusettu fólki á spítala, einmitt vegna þess að það er veikt! Enda spretta nýju afbrigðin upp eftir að bólusetningar hefjast, sama sagan alls staðar í heiminum. Munið breska afbrigðið sem varð til um leið og Bretar fóru að sprauta? Meira um það síðar.

Og hér segir sjálfur sóttvarnarlæknir Bandaríkjanna að gagnvart Delta afbrigðinu sé enginn munur á óbólusettum og bólusettum. "Let that sink in" og látið lærisvein hans, Björn Rúnar Lúðvíksson, endilega vita.

 

Heitar umræður á facebook síðu Kára

Kári skrifaði færslu á facebook á föstudaginn sl. Þar spunnust heitar umræður eftir að hann lagði til að skerða ætti réttindi þeirra óbólusettu en síðan sá hann eftir því og dró það til baka (kannski munað að hann ætti jafnvel sjálfur eftir að fá seinni skammtinn enda kominn á áttræðisaldur). Mér sýndist að það hefðu verið komnar líflátshótanir og fleira á vegginn hjá honum, sem hann hreinsaði út ásamt öðrum ummælum einhverju síðar. En Kári svaraði þó nokkrum spurningum með upplýsingum sem hann átti ekki að vera með undir höndum en ekki minni einföldu spurningu sem snéri að honum og er hér ofar á myndinni (smella til að sjá betur): Ertu fullbólusettur Kári...?  No comment.

Er ekki sjálfsagt að maður sem vill senda konur og menn út í Grímsey sýni sjálfur sinn heilsupassa?" Nú má vel vera að hann hafi fengið sinn síðari skammt en við sem fylgjumst með WHO leikritinu viljum bara fá það staðfest, sérstaklega núna þegar yfirvöld ætla að reyna að sannfæra óbólusetta" um að taka þátt í ólöglegri lyfjatilraun. Við viljum heldur ekki sitja uppi með Kára úti í Grímsey eða annars staðar. Nóg verður að gera hjá okkur með vaktaskiptin hjá tengdó á Sóltúni." 

Þegar maður skoðar þennan viðauka sem var heilbrigðisyfirvöldum og innherjum aðgengilegur frá upphafi þá er skiljanlegt að hjartalæknir hafi passað að mamma gamla fengi ekki svoleiðis sprautu. En barnabörnin hans, verða þau með í tilrauninni?


samingur1


mbl.is Janssen verst, AstraZeneca litlu skárra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útlendingurinn á mótmælunum við ráðuneytið - hver er konan?

atvinnmotælandiSíðastliðinn fimmtudag voru mótmæli við heilbrigðisráðuneytið þar sem C19 bólusetningum barna og unglinga var mótmælt enda hefur það nú þegar komið fram skv. tölum Lyfjastofnunar að áhættan af lyfjunum er meiri en ávinningurinn.

Þessi útlenda kona var mætt áður en skipuleggjendur sjálfir mættu. Hver er hún? Hún var með tvær til þrjár grímur, ullarhúfu (15 stiga hiti úti), sólgleraugu og skilti sem á stóð á fullkominni íslensku: Hópur af háværum fávitum. Hún virtist alveg áhugalaus um málefnið og stóð þarna eins og stytta í hæfilegri fjarlægð.

Það eina sem hún sagði þegar hún var spurð í út í skiltið (kannski ekki vitað hvað stóð á því); mig langar bara að mótmæla í friði eins og þú, mig langar bara að mómæla í friði eins og þú....ég á rétt að mótmæla í friði. Sjá myndband hér og hér.

Með fullri virðingu fyrir útlendingum en er þetta það besta sem sprautufíklarnir gátu sent frá sér?  Nánast mállausan og grímuklæaddan einstakling. Er verið að nota hana? Hver gerði skiltið? Hún virtist alveg meinlaus svo það sé tekið fram. Framburðurinn líkist því sem maður heyrir frá fólki sem er frá Úkraínu eða Austur-Evrópu. Hún hljóp svo í burtu þegar ræðurnar voru búnar, upp útitröppur ráðuneytisins og þaðan til vinstri út á bílaplanið ólíkt öllum hinum sem mættu, þeir komu hvergi nærri dyrum ráðuneytisins. Á bakhlið biðu fjórar mótorhjólalöggur og fyrir framan ráðuneytið stóð öryggisvörður.

 
hopurfavitaMótmælin voru annars frábær og hér neðar er mynd af skipuleggjendunum - engar grímur enda höfum við ekkert að fela, nöfn okkar birtust í auglýsingu Moggans. Frá vinstri: Hrólfur Hreiðarsson, Valgerður Snæland, Martha Ernsdóttir, Þórdís Sigurþórsdóttir og Erna Böðvarsdóttir.

Fjölmiðlar sýndu viðburðinum mismikinn áhuga. RÚV sagði ekki múkk, enda voru engar óspekktir eða handtökur sem þeir gátu nýtt sér, bara flottar ræður og upplýsingar sem ríkisfjölmiðilinn hefði ekki vogað sér að segja frá eins og t.d. úr ræðu Helga Arnar Viggóssonar sem fjallaði um rannsókn sem sýndi sláandi tölur fósturláta meðal kvenna eftir sprauturnar.

Stundin hringdi og vildi vita hvað auglýsingin í Mogganum hefði kostað. Kona frá RÚV hringdi sem ég man ekki hvað heitir eða hvort hún hafi kynnt sig og spurði hvort ég væri sama Þórdís og væri tengd Iceland Resources sem væri að fara að grafa eftir gulli. Nei, ekki ég. En aldrei að vita. Verðið á gulli hækkar og hækkar. Fjölmiðlar voru sem sagt álíka forvitnir um okkur og við um dularfullu konuna með skiltið. Hver er konan?

skipuleggjendur  

mótmælinraðuneyti


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband