Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Samfélagið á hliðinni í tvö ár sagði Kári

,,Í þokka­bót virðist ESB hafa hafnað mörg hundruð millj­ón­um skammta af bólu­efni sem nú vanti."

Getur verið að menn séu að draga Íslendinga og aðra Evrópubúa á asnaeyrunum?

„Ég held að samfélagið okkar verði alveg á hliðinni í tvö ár" (Kári 28. mars).

Hvers vegna í tvö ár? Búið var að tryggja bóluefnið ekki satt?

Áhugavert væri að heyra nú hvers vegna Kári taldi að samfélagið ætti að vera á hliðinni í tvö ár.

Bill Gates, dregst vonandi ekki lengur en til 2022.


mbl.is ESB missti af bóluefnislestinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Embættismenn fyrirskipa öldruðum í sóttkví og sýnatöku!

gömulSam­ráðshóp­ur um starf­semi hjúkr­un­ar­heim­ila mæl­ir alfarið gegn því að íbú­ar fari í boð til ætt­ingja og vina á aðventu, jól­um eða ára­mót­um. Tekið er fram í leiðbein­ing­um til hjúkr­un­ar­heim­ila að eft­ir slíkt boð þurfi íbúi að fara í sótt­kví með ætt­ingja á hans heim­ili og sýna­töku að sótt­kví lok­inni, áður en heim­ild verður veitt til þess að hann fái að koma aft­ur inn á hjúkr­un­ar­heim­ilið. Undir bréfið skrifar Neyðarstjórn Hrafnistu. Á heimasíðu Hrafnistu segir að tilmælin séu komin frá Landlækni og sóttvarnaryfirvöldum. Á bréfinu sjálfu segir aftur á móti að tilmælin séu frá Almannavörnum og sóttvarnaryfirvöldum. Þríeykinu sem sagt.  

Ekki nóg með að núverandi reglugerð heilbrigðisráðherra um sóttvarnarreglur sé líklega brot á stjórnarskránni heldur eru embættismenn farnir að semja sín eigin tilmæli um sóttkví og sýnatökur og senda út eins og ekkert væri sjálfsagðara.

Hér er þríeykið að fyrirskipa útgöngubann á hjúkrunarheimilum yfir jól og áramót. Ef íbúar ætla sér að skreppa til ættingja verða þeir að vera í burtu í fimm daga a.m.k. og ekki snúa aftur nema þeir geti sýnt fram á neikvætt PCR próf! Þetta kemur auðvitað í veg fyrir að fólk sem ekki getur verið lengi frá hjúkrunarheimilinu af ýmsum ástæðum, geti skroppið í jóla- eða áramótaboð til ættingja sama hversu margir eru á því heimili, jafnvel bara maki þess. 

Skv.reglugerð heilbrigðisráðuneytissins eru þeir skyldaðir að fara í sóttkví sem hafa umgengist einstaklinga með Covid-19 og eins þeir sem koma til landsins (val á milli sóttkvíar eða sýnatöku og smitgáttar). 

En í þríeykislögregluríkinu Íslandi eru sett fram tilmæli um að fólk sem ekki hefur verið sýnt fram á að hafi komist í snertingu við smit, sé sett í sóttkví bara sí svona og sýnatöku. Annars megi það ekki koma aftur heim til sín! Eins kemur fram í bréfi Hrafnistu að ekki verði hægt að bjóða maka eða öðrum ættingjum að borða með íbúum yfir hátíðirnar.

Og já, í gær fundust sem sagt fimm ný smit og enn ríkir neyðarástand á landinu samkvæmt nýja-norms litakorti Almannvarna (Smáralind og Kringlan reyndar pakkfull). Og þá er nauðsynlegt að loka gamla fólkið inni yfir jól og áramót!

Það ber auðvitað engum að fara eftir þessu rugli. Fólkið má skreppa í jólaboð og fara aftur heim til sín þegar það vill án þess að láta skipa sér í sóttkví eða sýnatöku samkvæmt einhverjum tilmælum embættismanna.


mbl.is Fá ekki að fara í heimsóknir um jól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn meiri aðför gegn okkar íslensku hefðum og hátíðarhaldi

Áramótabrennum aflýst. Annað dæmi um aðför gegn okkar íslensku hefðum og hátíðarhaldi í skjóli heimsfaraldurs (þrjú ný smit hér heima í gær). Reglugerð ráðherra segir tíu manns í RÝMI. Svæði í kringum brennu getur ekki talist rými nema hún sé höfð innandyra eða girt af með einhverjum hætti. Ef yfirvöldum væri alvara með reglugerðinni og fjöldatakmörkum væri búið að loka Smáralind og Kringlunni þar sem fjöldamörk í alrými eru vissulega brotin alla daga (engin undanþága er veitt fyrir verslunarmiðstöðvar í reglugerð) en menn kjósa að líta undan enda miklir fjármunir í húfi. Yfirvöld einbeita sér aftur á móti að því að loka kirkjum (10 manna hámark jafngildir lokun), hætta við áramótabrennur, skipa fólki að vera mest 10 saman í jólaboðum þar sem gestir eru minntir á nálægðarmörk. Eins þykir yfirvöldum rétt að svívirða jólasveina okkar Íslendinga og nota þá til að hrella krakka sem trúa á þá. Eru ekki enn allir með í að hlýða nýju íslensku kommúnistastjórninni?

Og í þessari frétt sýnist mér að verið sé að hugsa um banna flugelda, láta sveitarfélögin um það. (vegna baráttu við farsótt!!).


mbl.is Áramótabrennum á höfuðborgarsvæðinu aflýst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólasveinahandritið sem þríeykið var með!

Þarna sjáum við nokkurn veginn handritið sem þríeykið og RÚV var að nota í fréttatímanum sl. föstudagksvöld og voru eins og kjánar. Fjallaði um það hér í bloggi.

En úr fréttinni sem ég tengi þessa bloggfærslu við segir veirufræðingurinn Maria Van Kerk­ho­ve hjá WHO:,,Það sé hins veg­ar ekk­ert að ótt­ast þar sem hann (jólasveinninn) er með mót­efni. Hann þarf þó ennþá að spritta sig vel og þvo sér oft um hend­urn­ar þar sem hann get­ur borið veiruna með sér á hönd­un­um."

Þið hafði heyrt þetta áður, ekki satt?

,,Fólk getur verið með veiruna á höndunum og borið hana á milli þó það sjálft sé ónæmt. Svo við hvetjum einnig þá sem eru búnir að fá Covid að fara varlega hvað varðar sóttvarnir.“ segir Alma."

En jólasveinarnir notaðir óspart til að hræða og heilaþvo börnin. Og svo þessi "skítugi" jólasveinn sem smitaði allt gamla fólkið í Belgíu.

Einhverjir hagsmunir hljóta að vera í húfi fyrst veirufræðingar og læknar (Alma og Þórólfur) eru tilbúin að nota helstu jólaímynd barna til að hræða þau og hrella. 

 


 

 


mbl.is Jólasveinninn er með mótefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svertingi fyrstur til að fá bóluefnið

,,Sandra Lindsay, hjúkr­un­ar­fræðing­ur í New York, varð sú fyrsta til að fá bólu­setn­ingu við kór­ónu­veirunni í Banda­ríkj­un­um í dag."

Þessi mynd með fréttinni er ekki af Söndru Lindsay. Hún er svört hjúkrunarkona frá New York.

Hún er nefnilega í áhættuhóp sbr. Melindu og Bill Gates sem vildu að svertingjar væru fyrstir (ekki svertingjar í áhættuhópi, heldur bara svertingjar per se.)

Sjá nánar.


mbl.is Hjúkrunarfræðingur fékk fyrstu bólusetninguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólasveinarnir misnotaðir og kirkjum lokað!

santaJólasveinarnir eru ein sterkasta ímynd jólanna í hugum barna og eins sú gamla hefð að setja skóinn út í glugga. 

Vonandi sáu sem fæst börn fréttatímann sl. föstudagskvöld þar sem þríeykið og fréttastofa RÚV settu einhvers konar met í fíflaskap.

Landlæknir sagði að börnin ættu að spritta skóinn áður en hann færi út í glugga og líka á eftir, jafnvel þó í hann færi eitthvað matarkyns, eins og smákökur. Því sprittið dræpi jú veiruna! (skítt með smákökuna sem krakkinn átti að borða).

Jólasveinarnir þurftu ekki að fara í sóttkví en fengu þó PCR pinna í nefið sagði Þórólfur, til að ganga úr skugga um að þeir væru ekki sýktir. Og Rögnvaldur lögregluþjónn er tilbúinn með 13 fangaklefa ef jólasveinarnir skyldu brjóta sóttavarnarreglur.

Þarna voru menn auðvitað að misnota valdið sem þeim hefur verið fært. Eru með áróður til að fá krakka til hlýða og nota tækifærið til að heilaþvo þá. Íslenskir foreldrar sem margir myndu ganga í sjóinn fyrir þríeykið, munu eflaust predika þessa þvælu fyrir börnum sínum.

Og meira um fíflaskap má finna á vef Almannavarna þar sem verið er að kynna "sóttvarnarsveina" sem heita Félagsfælir, Grímugaur o.fl. (fleiri hugmyndir: Veiruhrellir, Krakkaskelfir, Sprittsleikir, Lygagámur, Gluggagægir nr. 0122...). 

Á Englandi er í gangi auglýsingaáróðursherferð þar sem jólasveinn er lagður inn á spítala með Covid, þannig að þið sjáið að þjóðir þurfa að ganga í takt og taka þátt í að svívirða og niðurlægja menningu sína (því það er heimsfaraldur!). 

Og enn meiri fíflaskap mátti lesa í auglýsingu fyrir Jólaþorpið í Hafnarfirði þar sem tekið var fram að Grýla yrði á staðnum til að fylgjast með því hvort allir væru ekki að spritta, annars kæmi kartafla í skóinn!

Í grunnskólum í Hafnarfirði (Hraunvallaskóla a.m.k.) var með skömmum fyrirvara sett á bann við jólagjöfum, þ.e.a.s. sú hefð að krakkarnir komi með litlar jólagjafir fyrir hvert annað á litlu jólunum var slegin af. Rökin: sýkingarhætta, veira á pökkunum!

Og svo eru það kirkjurnar. Þeim hefur óbeint verið lokað yfir jólin. 10 manna hámark í kirkjum, forðast ber söng og hátt tal sem þýðir dauflegt eða ekkert messuhald í kirkjum yfir jólin. Og ekkert heyrist frá biskup eða öðru kirkjufólki!? Á sama tíma eru verslunarmiðstöðvar fullar af fólki og sóttvarnarrelgur brotnar þar daglega (engin undanþága er á fjölda í alrýmum verslunarmiðstöðva skv. reglugerð). En menn líta undan, enda miklir peningar í húfi.

Ef þið sjáið ekki að þessar takmarkanir, boð og bönn eru aðför gegn jólunum, helgihaldi og okkar gömlu siðum, skoðið nánar og lesið til dæmis reglugerð ráðherra um samkomutakmarknir þar sem "gleymdist" að setja á fjöldatakmarkanir í verslunarmiðstöðvum og þar sem horft er framhjá daglegum brotum á sóttvarnarreglum.
Ef yfirvöldum væri alvara með reglurnar væri auðvitað búið að loka verslunarmiðstöðvum.

Og ef enn betur er skoðað og fólk leggst í smávegis rannsóknarvinnu, þá er aldrei að vita nema það sjái fingraför kínverska kommúnistaflokksins, félaga þeirra í WHO, ofl., á þessu handriti sem þríeykið þarf að lesa upp í skömmtum. Þið munið að þetta byrjaði allt með leðurblöku á blautmarkaði í Wuhan! Kínverjar lögðu svo línurnar fyrir restina af heimsbyggðinni. Þeir hafa nú boðað bleyjunoktun meðal flugþjóna. 


Fólk með litla sjálfsvirðingu...

Aðeins fólk með enga eða mjög litla sjálfsvirðingu lætur segja sér hvernig það á að haga sér fyrir jólin og eins hversu marga það á að umgangast um jól og áramót, hvort það megi syngja eða ekki, hversu margir megi koma inn á einkaheimili þess, hvort það eigi að faðma fólkið sitt, vera með grímu (og jafnvel bleyju) í jólaboði og fleira.

Og þessar teikningar hér í fréttinni, "jólakúlan" og fleiri eru hlægilegar. 


mbl.is Einmanaleg jól smitist fólk um helgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og lokaspretturinn er nákvæmlega hver?

,,Við höf­um verið að ná smitstuðlin­um niður, en nú snýst þetta um að klára loka­sprett­inn." segir Thor Asperlund. Hvert er markmiðið?

Og menn komast upp með að segja eitt annan daginn og svo eitthvað annað þann næsta. Í byrjun snérist þetta um að fletja út kúrfuna og verja heilbrigðiskerfið, síðan var það fjöldi smita minnir mig, síðan smitstuðullinn sem nú er í lagi skv. Asperlund (sem virðist vera kominn í e.k. valdastöðu  þrátt fyrir að engar af hans spám hafi gengið eftir). En nú skiptir stuðullinn ekki lengur máli. Um daginn var það bóluefnið sem átti að bjarga öllu, en nú hefur Alma gefið út að það muni ekki endilega þýða að aðgerðirnar hætti (eins og Fauci hefur sagt - grímuskylda heldur áfram eftir bóluefnið). Í byrjun var ekki mælt með grímum, Þórólfur sagði þær ekki gagnast almenningi. Svo komu nýjar rannsóknir og Þórólfur, læknir til margra ára, breytti um skoðun. Og annar læknir hefur nú verið fordæmdur fyrir að halda því meðal annars fram sem Þórólfur sagði í byrjun um grímur.

Og nú hefur Kína (þar sem leðurblökusmitið byrjaði) mælt með því að flugfreyjur og flugþjónar noti bleyjur til að þurfa ekki að fara á klósettið (forðast smithættu). Hvenær kemur bleyjuskyldan hér heima?  Í gær sagði Rögnvaldur Ólafsson á fundinum að "covid-batnaðir" teldust ekki með í jólaboðum, sem sagt þá mega vera 10 plús einn "covid-batnaður". En um daginn var varað við því að þeir sem komnir væru með mótefni gætu samt borið smit á milli. Sem sagt, Rögnvaldur sem væntanlega er kominn með mótefni gæti borið smit á milli, "jólavina" í "jólakúlunni", frá Siggu frænku og yfir til Gulla frænda sem sat þó í tveggja metra fjarlægð frá Siggu. 

Skil vel að ríkisstjórnin hafi ráðið annað fólk í þessi hlutverk, og sé sjálf mest í felum hvað þetta snertir. Það er auðvitað aumkunarvert að þurfa að hlýða kínverska kommúnistaflokknum og bandamönnum þeirra í WHO, lyfjamafíunni og fl. 

P.S. Er flensan enn ekki komin? Skv. svari frá Landllæknisembættinu hefur ekkert skráð flensusmit verið frá því apríl sl.
 


mbl.is „Þetta er á viðkvæmum stað“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"New World Order" í skjóli Covid?

0122

Trúlegt plan eða út í hött - hvað finnst þér? (Sjá pistil neðar).  Í ljósi þess sem við höfum séð hingað til. Bannað að syngja um jólin, hámark 10 manns í kirkju og jólaboðum, tala lágt, halda fjarlægð frá fólki, ekki faðmast, aflýsa helst jólunum, tilkynningarhnappur hjá Lögreglunni til að klaga náungann, litakóðakort frá Almannavörnum með mismunandi hættustigum, loka ýmsum fyrirtækjum, skiðalyftur lokaðar,framhaldsskólakrakkar heima fyrir framan skjá, ekkert félagslíf, grímuskylda nánast alls staðar og niður í 10 ára í skólum (breytt frá og með deginum í dag, gleðilegar fréttir), lögreglan á gluggagægjum, nefnd um lagabreytingu gegn upplýsingaróreiðu (nýtt nafn yfir ritskoðun), frumvarp til laga þar sem kveðið er á um útgöngubann og InngripGötun eða skurð í húð eða ísetningu áhalds eða framandi efnis í líkamann eða rannsókn á líkamsholi.

Og meðalaldur látinna af Covid er 88,5 ára (í síðustu þremur dánartilkynningum er reyndar ekki greint frá aldri hins látna).

"They plan to use covid-19 lock downs and public health orders to strip people of their individual rights, to forfeit private property ownership, and to submit sovereign countries to a one world economy that is complete with heightened data collection and surveillance of human beings with vaccine passports and a wealth redistribution system that quashes the American dream and submits everyone to an “equitable” future replete with controlled markets, a digital currency, and central bank economic controls."
"The next phase of thought control will include overt manipulation, a coordinated attempt to convince people in influential positions to promote a new “sustainable” world economy, where people have no privacy or consent in what is mandated regarding their body."

Öll greinin.

p.s. og þetta mætti skoða í samhengi við heimsfaraldursæfingu sem haldin var í New York í okt. 2019, stuttu áður en faraldurinn hófst í Wuhan.


mbl.is Þetta kom fram á fundinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

10 manns í kirkju

,,Miðað verður við 50 manns í jarðaför­um, en ann­ars mun gilda 10 manna há­mark í kirkj­um."

Hérna, eru Kínverjar nokkuð búnir að hernema landið?


mbl.is Tilslakanir en áfram 10 manna fjöldatakmörk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband