Leita í fréttum mbl.is

Gleðilega jólahátíð - Betlehemstjarnan skæra!

jseusÉg er ekki í þjóðkirkjunni og hef aldrei verið nein sérstök jólamanneskja. Tók háskólgráðu í búddískum fræðum í Bandaríkjunum, í skóla sem stofnaður var af tíbetskum munki. En eins og margir vita hafa Tíbetar verið ofsóttir af Kínverjum og landi þeirra, trúarbrögðum og siðum verið stolið. Búddisminn lifir þó áfram í öðrum hlutum heimsins. 

Það fór um mig óhugur þegar hér fóru að sjást merki þess að verið væri að ráðast á jólin og okkar helstu þjóðsagnarpersónur, jólasveinana. Margir telja þetta vera tilfallandi og hafa eitthvað með leðurblökuveiruna í Kína að gera, en ekki ég. Tíu manna samkomubann í kirkju (en verslunamiðstöðvar fullar), jafnvel Hallgrímskirkju, jafngildir lokun. Reglur um jólahald sem WHO hefur sent út og farið er eftir hér á landi eru stórfurðulegar svo ekki sé meira sagt. Munum þegar landinu var lokað fyrir Falun Gong iðkendum árið 2002 þegar forseti Kína heimsótti landið. Tugir Falun Gong iðkenda voru lokaðir inni í Njarðvíkurskóla og snúið við, hundruðum var snúið við á leið til landsins víðsvegar í heiminum. Icelandair á að hafa stuðst við farþegalista frá kínverskum stjórnvöldum. Falun Gong iðkendur í augum kínverskra stjórnvalda eru hættulegir fyrir það eitt að vera friðsamir og andlega hugsandi. Iðkunin er bönnuð í Kína. Það er eitthvað í sambandi við þessar lokanir sem nú eiga sér stað víðsvegar um heiminn og hófust í Wuhan í Kína sem lagði línurnar fyrir restina af heimsbyggðinni, sem minnir á aðgerðirnar hér heima árið 2002.  

Núna kl.18.22 myndast Betlehmstjarnan á himni (Júpíter og Satúrnus verða sem ein í fyrsta sinn í mörg hundruð ár.)
Ég eyði þessum merkilega tímapunkti og aðventu í Kjósinni með nöfnu minni, Þórdísi H. Benediktsson stjörnuspekingi með meiru (langafabarni Einars Ben. heimspekings og ljóðskálds). Áður en ég lagði af stað til hennar sótti ég tösku til að taka með. Við mér blasti þessi mynd sem hér fylgir, en þess má geta að varla finnst nokkuð kristilegt á mínu heimili og hef ég ekki hugmynd um hvaðan þessi mynd kemur eða hvernig hún komst inn á mitt búddíska heimili. Dalai Lama, leiðtogi Tíbeta í útlegð, hefur alltaf talað fyrir því að virða beri trúarbrögð hvers annars. Ég lít á myndbirtinguna sem skilaboð og gef mér það að þetta sé Betlehemstjarnan sem þarna glittir í fyrir ofan engilinn.

Gleðilega jólahátíð öll sömul, stöndum vörð um okkar gildi og helgu dóma. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er kristin (and then some) en er með algjört æði fyrir Tíbet þessa dagana (sennilega af því að ég er að lesa svo frábæra bók sem heitir Tákn og töfrar í Tíbet - les hana alltaf reglulega því hún er svo geggjuð). Ég held að það sé mjög mikilvægt nú um stundir að fræðast af þeim sem kunna að standast svona álag (álög?) frá heimsvöldunum, það er mikið um það í Biblíunni en margt hægt að læra af öðrum líka. Og ef þetta endar nú með því að við þurfum að flýja uppá fjöll og hafast við í hellum (bara einsog jólasveinarnir) þá held ég að þessi vitneskja frá Tíbet muni koma sér vel. Það eru mörg sameiginleg gildi í búddismanum og kristninni og gott að eiga góðan vin í Dalai lama. Gleðileg jól og takk fyrir.

Anna Karen Símonardóttir (IP-tala skráð) 21.12.2020 kl. 18:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband