Leita í fréttum mbl.is

Gott hjá prestinum!

,,Lög­regl­an á höfuðborg­ar­svæðinu hafði af­skipti af fjöl­menni í kirkju í miðborg­inni á ell­efta tím­an­um í gær­kvöldi. Til­kynnt hafði verið um hugs­an­legt brot á sótt­varn­ar­lög­um og þegar lög­reglu­menn komu á vett­vang töldu þeir um 50 manns sem voru að ganga frá kirkju og um 70-80 manns inni í kirkj­unni. Sam­tals höfðu því verið á annað hundrað manns í kirkj­unni. Tekið er fram að bæði hafi verið um börn og full­orðna að ræða." 

Kínverska löggan bara mætt til að telja..

Ég er ánægð með þennan prest. Lét hann það nokkuð á sig fá þó að kínverska lögreglan væri í messunni?

Kemur fram í dagbókinni hvort söngur eða hátt tala hafi heyrst?



mbl.is Lögreglan taldi 120-130 manns í kirkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Örn Gunnlaugsson

Þeirri skoðun vex greinilega fiskur um hrygg að lög og reglur séu til að brjóta enda fara ráðamenn þjóðarinnar fremstir í flokki við slíkt, sama hvar þeir standa í pólitík  og trúa því sjálfir að tilhlýðileg refsing sé einungis að biðjast innilega afsökunar. Þá vitum við það, það má keyra yfir settum hámarkshraða, jafnvel fullur yfir annað fólk, það má stela og svíkja undan skatti og fremja alvarlegri glæpi. Já það má bara hver gera það sem honum sýnist jafnvel þó það geti valdið öðrum samfélagsþegnum skaða. Frumskógarlögmálið er sem sagt það sem skal ráða.

Örn Gunnlaugsson, 25.12.2020 kl. 11:46

2 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Nei það má ekki keyra undir áhrifum en það má fara í kirkju. Þetta er ekki Kína.

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 25.12.2020 kl. 11:54

3 Smámynd: Örn Gunnlaugsson

Samkvæmt núgildandi reglum eru fjöldatakmarkanir, líka í kirkjum. Þú mátt keyra þó þú sért búin að fá þér smá, þarft bara að vera innan marka alveg eins og með takmarkanir á fjölda þar sem fólk kemur saman. Hvorugar reglurnar eru óæðri hinum meðan þær eru í gildi. Hefur þú komið til Kína ? Þekkir þú vel til þar af öðru en úr fréttamiðlum? Þekkir þú margt fólk í Kína ? Fólk kann þar þó almennt að fylgja þeim reglum sem eru í gildi hverju sinni.

Örn Gunnlaugsson, 25.12.2020 kl. 14:50

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

"Kínverska löggan bara mætt til að telja.." er ekki hluti af hinum tilvitnaða texta og á því ekki að vera innan gæsalappanna.

Guðmundur Ásgeirsson, 25.12.2020 kl. 16:41

5 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

takk, búin að laga ;)

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 25.12.2020 kl. 17:29

6 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Fyndið hvernig presturinn tók Bjössa í World class á þetta og benti á að engin smit væru rakin til kirkjustarfsemi. Ekki síst í ljósi þess að almennt hafa þær verið lokaðar að undanförnu. Þvílíkt gáfnaljós.

Guðmundur Ásgeirsson, 25.12.2020 kl. 17:43

7 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Ég hefði tekið Smáralind og Kringluna á þetta?

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 25.12.2020 kl. 18:26

8 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Þegar reglurnar eru heimskulegar, og ekki málefnalegar, á í sjálfu sér ekki að koma á óvart þótt þeim sé ekki fylgt. Markmiðið er að tryggja að nægilegt bil sé milli fólks. Geti 130 manns verið inni í kirkjunni þannig að nægilegt bil sé á milli dugar það. Regla um að einungis megi vera 10 manns í rýminu er bersýnilega ekki málefnaleg, haldur handahófskennd, og því ósköp eðlilegt að henni sé ekki fylgt.

Þorsteinn Siglaugsson, 26.12.2020 kl. 12:40

9 Smámynd: Haukur Árnason

Þetta er mjög skrýtið hvað má og hvað ekki. Verslun Nettó á Selfossi er ekki stór búð, en þar meiga vera 50 inni í einu. En ekki nema 10 í margfalt særra rými.

Haukur Árnason, 27.12.2020 kl. 00:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband