Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Never ending story....

Fjalla um þessa endemis þvælu í grein minni

Og fullt af fólki heldur að allar þessar þvinganir snúist um hættu af veirunni. Hér er opinbera skýringin á Covid 19 á síðu WHO. Ætla mætti að lýsingin á þessum sjúkdómi væri aðeins önnur.

https://www.who.int/health-topics/coronavirus#tab=tab_1

Coronavirus disease (COVID-19) is an infectious disease caused by a newly discovered coronavirus.

Most people infected with the COVID-19 virus will experience mild to moderate respiratory illness and recover without requiring special treatment.  Older people, and those with underlying medical problems like cardiovascular disease, diabetes, chronic respiratory disease, and cancer are more likely to develop serious illness.


mbl.is Losnum ekki endilega við aðgerðir með bólusetningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýja normið...

Hugtakið, "nýja normið" heyrðist fyrst í tengslum við faraldur á heimsfaraldursæfingu í okt. 2019.

Meira hér:

https://thordisb.blog.is/admin/blog/?entry_id=2258351


mbl.is Aldrei fleiri en 100 saman miðað við nýtt kerfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðin án lækningaleyfis?

,,Rögn­vald­ur sagði enn frem­ur ágætt að halda því til haga að viðkom­andi sé ekki með lækn­inga­leyfi."

Réði Landspítalinn til starfa manneskju án lækningaleyfis?


mbl.is Elísabet ekki með lækningaleyfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýja normið - Event 201 - heimsfaraldursæfing

Í október 2019 var haldin æfing fyrir kórónaveiruheimsfaraldur í New York, Event 201. Þeir sem stóðu að æfingunni voru John Hopkins Center for Health Security, World Economic Forum og Bill and Melinda Gates Foundation.

Æfingin var tekin upp og eru myndböndin alls fjögur.  Í fyrsta myndbandinu kemur meðal annarra fram talsmaður WHO (Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar) og minnist á "nýja normið" sem Almannavarnir nota nú í litakortum sínum, "asymptomatic people" (einkennalausa) og ýmislegt fleira sem hljómar í dag mjög kunnuglega. Í myndbandi númer fjögur er fjallað um hvernig þurfi að hafa stjórn á upplýsingaóreiðu í sambandi við hinn komandi kórónaveirufaraldur í fjölmiðlum og  samskiptamiðlum, þar á meðal röngum upplýsingum frá ríkisstjórnum. Veiran heitir CAPS í þessari æfingu og er ný kórónuveira/novel coronavirus. 

Mæli með áhorfi fyrir alla fjölmiðlamenn og fleiri. Æfingin og það sem þar kemur fram kann að virka eins og sakleysisleg heimsfaraldursæfing í augum sumra, æfing sem haldin er á réttum tíma eða stuttu áður en Covid faraldurinn hófst í Wuhan. Í augum annarra gæti þetta virkað meira eins og hrollvekja og allt þar á milli.


mbl.is Þetta kom fram á fundi dagsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kona úti í bæ afsannar kenningar læknis

,,Hún seg­ir að þegar fólk sem er í stöðu til að benda á vill­urn­ar geri það ekki fái sam­særis­kenn­ing­arn­ar að grass­era"

Kona úti í bæ fer á netið og afsannar það sem læknir segir og segir það samsæriskenningar. 

,,Nú hefur svo komið í ljós að konan er á kafi í vef samsæriskenninga. Nýkomin frá Danmörku þar sem hún fundaði með slíkum hópum og mætti til landsins staðráðin í að “berjast fyrir Íslendinga”.

Hvaða hópar voru þetta? Veit hún það? Í þessum hópi voru tveir til þrír lögfræðingar. Hér er málþingið sem læknirinn fór á í Kaupmannahöfn.

Fann þessa skýringu á hugtakinu samsæriskenning eða conspiracy theory hjá bandarískjum sagnfræðingi. Sel ekki dýrara...Kannski getur einhver staðfest eða ekki staðfest? Og kannski er þetta samsæriskenning hjá honum:

 
"The term itself was coined by the CIA to silence everyone."

 

 


mbl.is Segir samsæriskenningar ekki mega grassera
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vertu fyrstur!

,,Hann (Vilhjálmur Árnason prófessor) sagði mjög mik­il­vægt fyr­ir fólk að hafa ástæðu til að ætla að menn hafi ekki verið að stytta sér leið við þróun bólu­efn­is við veirunni, í þeim skiln­ingi að farið hafi verið á svig við ákveðnar kröf­ur." 

Já að því að heimspekiprófessor á Íslandi veit allt um öryggi erfðabreytts bóluefnis sem ekki hefur verið notað á mönnum áður.

Þið sem komið fram og haldið þessu fram, brettið upp ermarnar og verið fyrst, þ.e.a.s á undan gamla fólkinu og öðrum áhættuhópum. Í beinni útsendingu að vitnum viðstöddum.

Og skyldubólusetning við sjúkdómi eins og Covid19 er auðvitað út í hött. Hér kemur skilgreining WHO:

,,Coronavirus disease (COVID-19) is an infectious disease caused by a newly discovered coronavirus.

Most people infected with the COVID-19 virus will experience mild to moderate respiratory illness and recover without requiring special treatment.  Older people, and those with underlying medical problems like cardiovascular disease, diabetes, chronic respiratory disease, and cancer are more likely to develop serious illness."


mbl.is Mjög tvíbent að skylda fólk í bólusetningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýsi er lækning á covid...

Samkvæmt þessari rannsókn bendir allt til þess að við þurfum bara okkar eigið lýsi, ekki erfðabreytt tilraunabóluefni.

,,Fyrstu niðurstöður íslenskra vísindamanna undir forystu Einars Stefánssonar, prófessor í læknisfræði við Háskóla Íslands, virðast benda til þess að fríar fitusýrur, sem er að finna í lýsi, eyðileggja kórónuveiruna á skömmum tíma. Ef þetta reynist rétt þá má segja að Íslendingar hafi haft lækninguna við COVID auðfáanlega í næstu verslun frá upphafi faraldsins.

Fiskifréttir greina frá þessu en Einar benti fyrst í mars á að lýsi gæti nýst í baráttunni við Covid-19. Rannsóknin nú var gerð af bandarískum samstarfsaðilum og sýndi hún að lýsi með bæði 1 prósent og 2 prósent hlutfalli af fríum fitusýrum hafi eyðilagt 99,9 prósent kórónuveirunar á um tíu mínútum.

Einar og samstarfsmenn hans hafa fengið samþykki vísindasiðanefndar fyrir rannsókn á áhrifum þessa efnis á menn. Innan skamms hefst rannsókn á Landspítalanum þar sem sýktum landsmönnum verður gefið lýsi með hærra hlutfalli frírra fitusýra.

„Við munum mæla hvort lýsið dragi úr veirumagni í munnholi og hálsi. Úrtakið er ekki stórt en nægir þó til þess að gefa vísindalegt svar,“ segir Einar í samtali við Fiskifréttir."

 


mbl.is „Stórkostlegar fréttir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verslunarmiðstöðvar opnar...

,,Er ekki hægt að vera með litla hópa sem geta komið sam­an í risa­stór íþrótta­hús og gert eitt­hvað?"

Auðvitað er það hægt, vantar bara viljann. Mikill fjöldi fólks í Smáralind og Kringlunni alla daga, án þess að það sé nokkur undanþága á fjöldamörkum þar.

Skammarlegt að verslunarmiðstöðvar séu opnar en skólar lokaðir og íþróttastarf liggi niðri.

Sýnir hvað er efst í huga ráðamanna. Verslun og viðskipti.

 


mbl.is „Verðum að fara að gera eitthvað“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólareglurnar að detta inn...

Yfirvöld hér heima fylgja fyrirmælum og handriti WHO (Alþjóðaheilbrigðisstofunarinnar). Fyrir stuttu setti ég hér inn á bloggið Covid reglur fyrir jólin sem voru í takt við tilmæli Kaliforníufylkis fyrir Þakkargjörðarhátíðina.

Nú er Rögnvaldur sem ekki hlýddi Víði nægilega vel (ekki frekar en Víðir sjálfur og hans eiginkona) að leggja drögin að drepleiðinlegum jólum. Nóg að skoða fréttir í dag og gær og svo þessa:
"...núna þarf að taka aðvent­una með sama hætti,“ seg­ir hann og nefn­ir sem dæmi að fólk eigi að sleppa sam­eig­in­legri laufa­brauðsgerð og að hitt­ast sam­an og baka smá­kök­ur.„

Kanada er komið lengra í WHO handritinu og þar mega engar tvær fjölskyldur (households) koma saman. Það nýjasta hjá Kanadamönnum eru leiðbeiningar frá Toronto Public Health um kynlíf fólks. Vera með grímur, sjálfsfróun er öruggari en samfarir o.fl. Sem sagt, undirbúið ykkur fyrir fámenn og ströng jól. Munum að það átti að loka landinu til að lífið gæti orðið eðlilegt og framhaldsskólar gætu opnað. Þeir hafa ekki enn opnað. Og síðustu vikur áttu allir að hlýða Víði til að jólin gætu orðið eðlileg. En nei, það verða þau ekki. Reglurnar frá WHO eru komnar inn á borð til Ölmu. Og verða eitthvað í takt við þær sem ég setti inn hér ofarkanada

 


mbl.is „Jákvæðar fréttir hafi verið að blinda okkur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brot á fjöldatakmörkunum í verslunarmiðstöðvum dag eftir dag

Verslunarkjarnar, þar á meðal Smáralind og Kringlan, eru ekki með neinar undanþágur á fjöldatakmörkunum sbr. reglugerð heilbrigðisráðherra. Þar eiga sér stað brot á samkomutakmörkunum dag eftir dag. Það dugar ekki að setja mörk í verslanirnar, alrýmið er lokað rými, eitt rými og ekki með undanþágu. Þar eru mörg hundruð manns alla daga vikunnar sem er brot á reglunum. Þarna klikkaði ráðherra eða kaus að láta undan pressu verslunareigenda eða bara ekki með á nótunum. Á sama tíma eru margir skólar lokaðir. Skv. upplýsingum frá Almannavörnum er litið á verslunarmiðstöðvar (alrýmið) sem "opið rými". Það er auðvitað þvæla, það dugar ekki að "líta á lokað rými sem opið" og málið leyst! 

Fékk þetta svar líka frá heilbrigðisráðuneytinu:

,,Fjöldatakmarkanir eiga m.a. við um tónleikasali og íþróttasali, en slík húsnæði eru lokuð þar sem þær byggingar eru ekki hluti af ómissandi innviðum. Aftur á móti er litið svo á að verslunarmiðstöðvar séu hluti ómissandi innviða enda eru þar seldar nauðsynjar. Það er þannig að ekki geta allir gert innkaup sín á netinu og því er opið. Hver verslunareigandi ber ábyrgð á sóttvörnum innan verslunar og viðskiptavinir bera ábyrgð á eigin athöfnum á leiðinni til og frá versluninni. "

Það er sem sagt litið á verlsunarmiðstöðvar sem ómissandi innviði. Ath. að allt sem er þar inni er hægt að sækja annars staðar; apótek, matvöruverslanir o.fl. Fatnaðurinn eru ekki nauðsynjar, þ.e.a.s fatnaðurinn sem þarna fæst. Hægt að kaupa föt annars staðar, líka á netinu. Mikill fjöldi að nýta sömu salerni, rúllustiga, lyftur o.fl.

Undanþágur eru þessar og þar með´ná þær ekki til verslunarmiðstöðva:
,,Reglugerðin tekur hvorki til alþjóðaflugvalla og -hafna, né til loftfara og skipa í millilandaferðum og skipa sem stunda fiskveiðar. Einnig tekur reglugerðin ekki til heilbrigðisstofnana, hjúkrunarheimila og annarra sambærilegra stofnana, en þær skulu setja sérreglur um sóttvarnir."


mbl.is Misskilningur um smit í Kringlunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband