Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Óhugnanlegar tölur í nágrannalöndum?

,,Þetta lít­ur al­veg ótrú­lega vel út miðað við aðrar þjóðir í kring­um okk­ur." segir Thor Asperlund.

Getur ekki líka verið að við séum komin með meira ónæmi en okkur er sagt? Talið er að veiran hafi verið fyrr á ferðinni. Það vill t.d. Sameind meina. Mótefni (antibodies) skilst mér að segi ekki alla söguna, heldur s.k. T-frumu ónæmi.

Ef þið fáið allar ykkar tölur og fréttir frá main stream media, já þá lítur þetta illa út í öðrum löndum. En ef það eru rannsóknarblaðamenn enn að vinna á einhverjum fjölmiðlum opnast fyrir þeim nýr heimur.

En það er aragrúi af upplýsingum sem sýnir að þannig sé það ekki í raun. Hér er t.d. myndband sem kona á Englandi tók upp var svo handtekin fyrir vikið hvað þetta snertir. Rannsóknarblaðamennsku í þessu samhengi er aftur á móti að finna á Coviðspyrnunni á facebook!

Og á heimsfaraldursæfingu í New York í okt. 2019 er talað um hversu mikilvægt það er að fjölmiðlar segi allir sömu söguna af veirunni til að sporna gegn upplýsingaóreiðu, sem sagt ekki að sýna hálftóma spítala eins og á myndbandinu hér ofar. Annars er hætta á handtöku. Á þetta við um fjölmiðla hér heima? Mér sýnist það enda mest um copy/paste fréttir frá CNN, BBC o.fl.

Og annað, eru menn enn að hlusta á spár Thor Asperlund? Getið þið bent á eina spá sem er nokkurn veginn rétt hjá honum. Hér er ein t.d. frá í desember.


mbl.is „Þetta lítur alveg ótrúlega vel út“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Moderna bóluefnið öruggt - Bill Gates svarar því

,,For­stjóri Lyfja­stofn­un­ar, Rúna Hauks­dótt­ir Hvann­berg, seg­ir að ef allt gangi að ósk­um verði bólu­efni lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Moderna gegn kór­ónu­veirunni veitt markaðsleyfi hér á landi á þriðju­dag."

Fréttamaður spyr Bill Gates hvort Moderna bóluefnið sé öruggt þar sem 80% þáttakenda fékk aukaverkanir eftir síðari skammtinn.
Hér er svarið.


mbl.is Moderna fær vonandi leyfi á Íslandi á þriðjudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er ekki bóluefni segir Dr. Wakefield

vaccineDr. Wakefield er reyndar orðinn óvinur Big Pharma og "fakt tékkaður" af samfélagsmiðlum (sem er stundum næg ástæða til að sperra eyrun!). Big Pharma álítur hann samsæriskenningarmann (en ekki hvað!)

Þetta er ekki bóluefni segir hann og um er að ræða meiriháttar tilraun á manneskjunni. Hann spáir því að C19 lyfin verði farin af markaði eftir 6 - 12 mánuði. Hann segir þetta geta orsakað óafturkræfar DNA breytingar. Það væri nóg ástæða til að hlusta og kannski fá líka einhvern annan í Kastljós en starfsmann erlends fyrirtækis (Amgen) til að tala um öryggi bóluefnis sem aldrei hefur verið notað á mönnum fyrr.

Hvers vegna má t.d. ekki gefa ófrískum konum efnið og ekki þeim sem eru að hugsa um að verða ófrískar á næstunni og eins þeim sem eru með börn á brjósti? Þannig er það ekki með inflúensubóluefni. 

Það væri a.m.k. í lagi að þessi rödd fengi að heyrast hér heima!

Þegar talað er um samsæriskenningar rifja ég gjarnan upp tímann þegar Íslendingar voru dregnir í stríð með hinum viljugu þjóðum því það áttu að vera stórhættuleg gjöreyðigarvopn í Írak. Þeir sem ekki trúðu því voru kjánar og samsæriskenningarfólk. ;)

Hver var svo kjáninn þar?

Og hér svarar Bill Gates því hvort hann telji Moderna bóluefnið vera öruggt. Maður fyllist ekki beint trausti við svarið. Hann er eins og álfur út úr hól.

Og vissuð þið að það er talin vera samsæriskenning að CIA hafi byrjað að nota hugtakið samsæriskenningu til að þagga niður í fólki sem efaðist um upprunalegu útgáfu af morðinu á John F. Kennedy.


mbl.is Yrði „mikið verk“ að samþykkja bóluefni sjálf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hópamyndun utandyra er ekki brot á reglugerð!

,,Meðal til­kynn­inga til lög­reglu var hópa­mynd­un fólks á Skóla­vörðuholti fyr­ir utan Hall­gríms­kirkju eins og vana­legt er á ára­mót­um. Hópa­mynd­un­in brýt­ur þó í bága við sam­komutak­mark­an­ir stjórn­valda. Lög­regla mætti til eft­ir­lits á svæðið."

Nei, þetta er rangt. Það er ekkert í reglugerð sem hægt er að túlka þannig að þessi hópamyndun sé brota á relgugerð.

Samkomubann eiga við RÝMI. Veit ekki hversu oft ég hef verið að benda á þetta á moggablogginu. Eruð til í að kynna ykku reglugerðina, blaðamenn og lögreglan líka?

Hámarksfjöldi einstaklinga í sama rými eru tíu með ákveðnum takmörkunum, bæði í opinberu rými og í einkarými. Þessi fjöldatakmörkun á þó ekki við um heimilisfólk á heimili sínu.

 


mbl.is Hafði afskipti af hópamyndun við Hallgrímskirkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reglur samt brotnar!

Það er ekkert sem segir í reglugerðinni að það megi vera fleiri en tíu í hverju rými ef notaðar eru grímur. Væri kannski í lagi ef sóttvarnarlæknir myndi þekkja sjálfa reglugerðina og þarna er Svandís grímulaus standandi of nálægt fréttamanninum og allt of margir í rýmninu. Afsögn?

„Það eru marg­ir hérna inni, það er hár­rétt hjá þér,“ sagði Þórólf­ur Guðna­son sótt­varna­lækn­ir spurður út í fjöld­ann á vett­vangi. „Þess vegna er mjög mik­il­vægt að all­ir séu með grím­ur til dæm­is, og séu sem styst hér inni,“ bætti hann við en viðstadd­ir báru ein­mitt all­ir grímu nema mögu­lega rétt þegar þeir brugðu sér í viðtal."  

p.s. hvers vegna voru vopnaðir sérstveitarmenn á staðnum?


mbl.is „Klárlega of margir í fréttamannahólfinu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tíu í hverju rými segir reglugerðin

,,‍Reglu­gerð um tak­mörk­un á sam­kom­um vegna far­sótt­ar tók gildi 10. des­em­ber 2020 og gild­ir til og með 12. janú­ar 2021. Þangað til mega ein­ung­is 10 koma sam­an, tveggja metra regla er í gildi og grímu­skylda þar sem ekki er hægt að koma henni við."

Það er rangt að reglurnar segi að tíu megi koma saman, það mega vera 10 í hverju rými.  


mbl.is „Ættum að reyna að einbeita okkur að Pfizer núna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta bundið við tilraunaverkefnið?

Þetta eru fleiri skammtar en tilkynnt var um upphaflega?

Er þetta bundið við að Ísland verði tilraunaverkefni? Og ef svo, fá Íslendingar eitthvað fyrir að taka þátt? Kannski Pfizer stuttermabol?



mbl.is Bóluefni á leið til landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott hjá prestinum!

,,Lög­regl­an á höfuðborg­ar­svæðinu hafði af­skipti af fjöl­menni í kirkju í miðborg­inni á ell­efta tím­an­um í gær­kvöldi. Til­kynnt hafði verið um hugs­an­legt brot á sótt­varn­ar­lög­um og þegar lög­reglu­menn komu á vett­vang töldu þeir um 50 manns sem voru að ganga frá kirkju og um 70-80 manns inni í kirkj­unni. Sam­tals höfðu því verið á annað hundrað manns í kirkj­unni. Tekið er fram að bæði hafi verið um börn og full­orðna að ræða." 

Kínverska löggan bara mætt til að telja..

Ég er ánægð með þennan prest. Lét hann það nokkuð á sig fá þó að kínverska lögreglan væri í messunni?

Kemur fram í dagbókinni hvort söngur eða hátt tala hafi heyrst?



mbl.is Lögreglan taldi 120-130 manns í kirkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilega jólahátíð - Betlehemstjarnan skæra!

jseusÉg er ekki í þjóðkirkjunni og hef aldrei verið nein sérstök jólamanneskja. Tók háskólgráðu í búddískum fræðum í Bandaríkjunum, í skóla sem stofnaður var af tíbetskum munki. En eins og margir vita hafa Tíbetar verið ofsóttir af Kínverjum og landi þeirra, trúarbrögðum og siðum verið stolið. Búddisminn lifir þó áfram í öðrum hlutum heimsins. 

Það fór um mig óhugur þegar hér fóru að sjást merki þess að verið væri að ráðast á jólin og okkar helstu þjóðsagnarpersónur, jólasveinana. Margir telja þetta vera tilfallandi og hafa eitthvað með leðurblökuveiruna í Kína að gera, en ekki ég. Tíu manna samkomubann í kirkju (en verslunamiðstöðvar fullar), jafnvel Hallgrímskirkju, jafngildir lokun. Reglur um jólahald sem WHO hefur sent út og farið er eftir hér á landi eru stórfurðulegar svo ekki sé meira sagt. Munum þegar landinu var lokað fyrir Falun Gong iðkendum árið 2002 þegar forseti Kína heimsótti landið. Tugir Falun Gong iðkenda voru lokaðir inni í Njarðvíkurskóla og snúið við, hundruðum var snúið við á leið til landsins víðsvegar í heiminum. Icelandair á að hafa stuðst við farþegalista frá kínverskum stjórnvöldum. Falun Gong iðkendur í augum kínverskra stjórnvalda eru hættulegir fyrir það eitt að vera friðsamir og andlega hugsandi. Iðkunin er bönnuð í Kína. Það er eitthvað í sambandi við þessar lokanir sem nú eiga sér stað víðsvegar um heiminn og hófust í Wuhan í Kína sem lagði línurnar fyrir restina af heimsbyggðinni, sem minnir á aðgerðirnar hér heima árið 2002.  

Núna kl.18.22 myndast Betlehmstjarnan á himni (Júpíter og Satúrnus verða sem ein í fyrsta sinn í mörg hundruð ár.)
Ég eyði þessum merkilega tímapunkti og aðventu í Kjósinni með nöfnu minni, Þórdísi H. Benediktsson stjörnuspekingi með meiru (langafabarni Einars Ben. heimspekings og ljóðskálds). Áður en ég lagði af stað til hennar sótti ég tösku til að taka með. Við mér blasti þessi mynd sem hér fylgir, en þess má geta að varla finnst nokkuð kristilegt á mínu heimili og hef ég ekki hugmynd um hvaðan þessi mynd kemur eða hvernig hún komst inn á mitt búddíska heimili. Dalai Lama, leiðtogi Tíbeta í útlegð, hefur alltaf talað fyrir því að virða beri trúarbrögð hvers annars. Ég lít á myndbirtinguna sem skilaboð og gef mér það að þetta sé Betlehemstjarnan sem þarna glittir í fyrir ofan engilinn.

Gleðilega jólahátíð öll sömul, stöndum vörð um okkar gildi og helgu dóma. 


Virka skimunarpinnarnir á Brexit afbrigðið?

Pinnarnir sem notaðir eru í Leifsstöð, virka þeir á þetta nýja Brexit afbrigði og má líka rekja það til leðurblökunnar í Wuhan?

En erfðabreytta bóluefnið, virkar það á þetta nýja bráðsmitandi afbrigði? Því England var jú eina landið í Evrópu sem var byrjað að bólusetja.


mbl.is Einn greinst á Íslandi með nýja afbrigðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband