Leita í fréttum mbl.is

Þetta er ekki bóluefni segir Dr. Wakefield

vaccineDr. Wakefield er reyndar orðinn óvinur Big Pharma og "fakt tékkaður" af samfélagsmiðlum (sem er stundum næg ástæða til að sperra eyrun!). Big Pharma álítur hann samsæriskenningarmann (en ekki hvað!)

Þetta er ekki bóluefni segir hann og um er að ræða meiriháttar tilraun á manneskjunni. Hann spáir því að C19 lyfin verði farin af markaði eftir 6 - 12 mánuði. Hann segir þetta geta orsakað óafturkræfar DNA breytingar. Það væri nóg ástæða til að hlusta og kannski fá líka einhvern annan í Kastljós en starfsmann erlends fyrirtækis (Amgen) til að tala um öryggi bóluefnis sem aldrei hefur verið notað á mönnum fyrr.

Hvers vegna má t.d. ekki gefa ófrískum konum efnið og ekki þeim sem eru að hugsa um að verða ófrískar á næstunni og eins þeim sem eru með börn á brjósti? Þannig er það ekki með inflúensubóluefni. 

Það væri a.m.k. í lagi að þessi rödd fengi að heyrast hér heima!

Þegar talað er um samsæriskenningar rifja ég gjarnan upp tímann þegar Íslendingar voru dregnir í stríð með hinum viljugu þjóðum því það áttu að vera stórhættuleg gjöreyðigarvopn í Írak. Þeir sem ekki trúðu því voru kjánar og samsæriskenningarfólk. ;)

Hver var svo kjáninn þar?

Og hér svarar Bill Gates því hvort hann telji Moderna bóluefnið vera öruggt. Maður fyllist ekki beint trausti við svarið. Hann er eins og álfur út úr hól.

Og vissuð þið að það er talin vera samsæriskenning að CIA hafi byrjað að nota hugtakið samsæriskenningu til að þagga niður í fólki sem efaðist um upprunalegu útgáfu af morðinu á John F. Kennedy.


mbl.is Yrði „mikið verk“ að samþykkja bóluefni sjálf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það er ekki kenning ef samsærið er raunverulegt.

Reyndar er hver einasta ákæra sem saksóknari gefur út á hendur fleiri en einum fyrir samverknað við meint afbrot, ekkert annað en samsæriskenning, þar til hún hefur verið sönnuð fyrir dómstólum. Afkastamesti samsæriskenningasmiður nútímans er því ákæruvaldið.

Ágætt að hafa það í huga, verði maður "sakaður" um að setja fram samsærikenningar, að ríkisvaldið gerir slíkt hið sama reglulega.

Guðmundur Ásgeirsson, 3.1.2021 kl. 17:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband