Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2021

Nýjustu covid fréttir frá Texas - faraldurinn yfirstaðinn!

rangersSjáið íþróttaleikvanginn í Texas. Pakkfullt og engar grímur enda hefur grímuskylda verið afnumin í ríkinu, einnig í fjölmenni sbr. hjá Texas Rangers.

Samkvæmt þessari frétt höfðu um 7 milljónir Texasbúa verið bólusettir og spurn eftir bóluefni minnkað mikið. Íbúafjöldi ríkisins er um 29 milljónir.

Bólusettir eru því um fjórðungur. Öllum höftum var aflétt fyrir 10 vikum, þar á meðal grímuskyldu. Hér má sjá þróun smita o.fl. Allt á niðurleið.
 

Ályktun: Covid-19 og reglur í kringum það er pólitískt mál! Aðalhræðsluáróðursmeistarinn Kári Stefánsson sagði líka (kannski óvart) að grímur væru táknrænar. 
 


mbl.is Tvö ný smit í gær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ræða frá Austurvelli - Freedom Rally Reykjavík, Iceland!

þraandurÍ gær fóru fram fjölmenn mótmæli í mörgum borgum heims (World Freedom Rally) gegn „sóttvarnaraðgerðum."

Þau stærstu voru í London eins og RÚV og Stöð 2 sögðu frá í gær. Nei, auðvitað gerðu þau það ekki. Stranglega bannað að sýna að fólk sé að fjölmenna gegn valdníðslunni.  

Í gærmorgun voru nokkrar ræður fluttar á Austurvelli í tilefni dagsins. Hér er ein þeirra og er eftir Þránd Arnþórsson (tók þessa mynd af facebookinni hans, hann var ekki að biðja mig um að sýna að hann hefði unnið bikara!): 

Ræðan:

Nürnberg 2.0 réttarhöld eru í undirbúningi með hópmálsókn þúsunda lögfræðinga og heilbrigðisstarfsmanna um allan heim, undir forystu þýska lögfræðingsins Reiner Fuellmich. Þar eru sóttir til saka þeir sem bera ábyrgð á Covid-19 hneykslinu sem Davos ráðstefnan stjórnaði.


Rétt er að rifja upp að Reiner Fuellmich er lögfræðingurinn sem tókst að fá Volkswagen dæmt fyrir svindl í mengunarmælingum, auk þess sem honum tókst að fá Deutsche Bank dæmdan glæpsamlegan.


Svik þessara þýsku fyrirtækja eru smávægileg miðað við það tjón sem Covid-19 kreppan hefur valdið og heldur áfram að valda.


Covid-19 kreppuna ætti að endurnefna „Covid-19 hneykslið“ og allir þeir sem eru ábyrgir ættu að vera sóttir til saka vegna skaðlegra aðgerða og falsaðra PCR prófana.


Á næstunni mun því alþjóðlegur hópur lögfræðinga leggja fram stærsta skaðabótamál allra tíma, Covid-19 svikahneykslið - sem er stærsti glæpur gegn mannkyni sem framinn hefur verið.


Rannsóknarnefnd Covid-19 var sett á laggirnar í júlí 2020 að frumkvæði hóps þýskra lögfræðinga með það að markmiði að höfða alþjóðlega hópmálsókn eftir engilsaxneskum lögum.


Hér er það sem Reiner Fuellmich hafði að segja um niðurstöður rannsóknarinnar og spurninganna sem svara ætti í væntanlegum réttarhöldum gegn WHO og leiðtogum heims fyrir glæpi gegn mannkyninu:


„Yfirheyrslur um 100 alþjóðlega þekktra vísindamanna, lækna, hagfræðinga og lögfræðinga, sem rannsóknarnefnd Berlínar hefur staðið fyrir vegna Covid-19 málsins frá 10. júlí 2020, hafa í millitíðinni sýnt með nærri fullri vissu að Covid- 19 hneykslið snerist aldrei nokkurn tíma um heilsu.


Þess í stað snerist það um að treysta ólögmætt vald spilltrar „Davos-klíku“ með því að færa auð almennings til meðlima Davos-klíkunnar og leggja meðal annars lítil og meðalstór fyrirtæki í rúst.


Stórfyrirtæki eins og Amazon, Google, Uber o.fl. gætu þannig aukið markaðshlutdeild sína og auð.


Þrjár stærstu spurningarnar sem svara þarf fyrir dómstólum vegna Corona hneykslisins eru:


1) Er til kórónafaraldur eða er aðeins PCR-prófa faraldur? 

Nánar tiltekið þýðir jákvæð niðurstaða úr PCR prófi að sá sem prófaður var sé smitaður af Covid-19, eða þýðir það nákvæmlega ekki neitt?


2) Þjóna aðgerðir stjórnvalda gegn pestinni, svo sem lokanir, grímuskylda, fjarlægðarmörk og sóttkvíar, tilgangi um að vernda íbúa heims?

Eða þjóna þessar aðgerðir eingöngu þeim tilgangi að fá fólk til að óttast og örvænta svo að það trúi, án vafa, að líf þeirra sé í hættu - þannig að lokum geti lyfja- og tækniiðnaður skilað miklum hagnaði með sölu PCR prófa og bóluefna ásamt söfnun erfðaupplýsinga okkar?


3) Er það svo að þýsk stjórnvöld voru, frekar en nokkurt annað land, beitt þrýstingi af helstu leikurum þessa svokallaða kórónafaraldurs 

(Drosten, veirufræðingur við Charité sjúkrahúsið í Berlín; Wieler, dýralæknir og yfirmaður RKI; og Tedros, yfirmaður WHO) vegna þess að Þýskaland er þekkt sem sérstaklega agað land og átti því að verða fyrirmynd fyrir umheiminn fyrir sína ströngu og auðvitað árangursríku beitingu sóttvarnaaðgerða?


Svör við þessum þremur spurningum eru brýn vegna þess að hin nýja og stórhættulega kórónaveira hefur ekki valdið neinum umframdauða neins staðar í heiminum og örugglega ekki hér á Íslandi.


En sóttvarnaaðgerðirnar, sem eru eingöngu byggðar á niðurstöðum PCR-prófana, hafa á þessum tíma orsakað mannfall og eyðilagt efnahagslegan grunn óteljandi fyrirtækja og einstaklinga um allan heim. 

Þetta voru niðurstöður nefndarinnar:

Kórónufaraldurinn verður að endurnefna Kórónuhneykslið


Þetta er:

• Stærsta skaðabótamál sögunnar

• Stærsti glæpur gegn mannkyni sem framinn hefur verið


Þeir sem bera ábyrgð verða að vera:

• Sóttir til saka fyrir glæpi gegn mannkyni

• Látnir greiða skaðabætur


Dauðsföll:

• Það er engin umfram dánartíðni í neinu landi

• Dánartíðni Corona-vírusins er sambærileg við árstíðabundna flensu

• 94% dauðsfalla í Bergamo í Ítalíu voru vegna þess að veikt fólk var flutt inn á hjúkrunarheimili þar sem það smitaði gamalt fólk með veikt ónæmiskerfi

• Læknar og sjúkrahús um allan heim fengu greitt fyrir að setja Covid-19 sem orsök á dánarvottorð

• Bandarísk ríki hvort sem voru með eða án sóttvarnaaðgerða hafa sambærilegar tölur um sjúkdóma og dánartíðni


Krufningar sýna:

• Dánarorsök var næstum öll af völdum annarra alvarlegra orsaka

• Nánast öll andlát voru mjög gamalt fólk

• Svíþjóð (engin lokun) og Bretland (ströng lokun) eru með sambærilegar tölur um veikindi og dánartíðni


Heilsa:

• Sjúkrahús standa auð og sum verða gjaldþrota

• Íbúar landa mynda T-frumu ónæmi fyrir fyrri inflúensubylgjum

• Hjarðónæmi þarf aðeins 15-25% sýkingu og er þegar náð

• Aðeins þegar einstaklingur hefur einkenni getur sýking smitast


PCR prófanir:

• Margir vísindamenn kalla þetta heimsfaraldur PCR-prófa en ekki kórónafaraldur

• Fullkomlega heilbrigt og ekki smitandi fólk getur samt mælst jákvætt

• Líkur á fölskum jákvæðum mælingum eru 89-94% eða nærri öruggt

• Prófessor Drosten þróaði PCR próf sitt úr gömlum SARS vírus án þess að hafa nokkurn tíma séð hinn raunverulega Wuhan vírus frá Kína

• PCR prófið er ekki byggt á vísindalegum staðreyndum varðandi sýkingar

• PCR próf eru gagnslaus til að greina smit

• Jákvætt PCR próf þýðir hvorki að sýking sé til staðar né að raunverulegur vírus hafi fundist

• Mögnun sýna með fleiri en 35 ítrunum er óáreiðanleg en WHO mælti með 45 ítrunum


Lögbrotin:

• Stjórnvöld hafa lokað starfsemi, sett á fjarlægðarmörk, sóttkvíar og grímuskyldu á grundvelli einnar skoðunar

• Lokanirnar voru settar á þegar vírusinn var þegar á undanhaldi

• Lokanirnar voru byggðar á sýkingum sem voru ekki til

• Málsmetandi lögmenn hafa lýst efasemdum um stjórnskipun sóttvarnaaðgerða

• Fyrrum hæstaréttardómari í Bretlandi, Lord Sumption, komst að þeirri niðurstöðu að enginn raunverulegur grundvöllur væri fyrir örvæntingu og enginn lagagrundvöllur fyrir sóttvarnaaðgerðum

• RKI í Þýskalandi mælti með að engar krufningar yrðu gerðar 

• Sóttvarnaaðgerðir hafa ekki nægjanlega stoð í staðreyndum eða lögum, þær standast ekki stjórnarskrá og verður að fella úr gildi strax!

• Enginn alvöru vísindamaður samþykkir fölsk tölvulíkön Neil Ferguson sem spáði fyrir um milljónir dauðsfalla

• Meginstraums fjölmiðlar brugðust gersamlega skyldu sinni að upplýsa um raunverulegar staðreyndir svonefnds heimsfaraldurs

• Lýðræði er í hættu á að vera skipt út fyrir fasískt alræði

• Drosten (vegna PCR prófanna), Tedros frá WHO og fleiri hafa framið glæpi gegn mannkyninu eins og það er skilgreint í alþjóðlegum hegningarlögum

• Stjórnmálamenn geta forðast að falla með þessum svikurum og glæpamönnum með því að opna fyrir löngu tímabæra opinbera vísindalega umræðu


Samsæri:

• Stjórnmálamenn og meginstraums fjölmiðlar ollu vísvitandi skelfingu hjá almenningi

• Börn voru markvisst látin telja sig ábyrg „fyrir kvalarfullum dauðdaga foreldra þeirra og ömmu ef þau færu ekki eftir sóttvarnarreglum“

• Hið óáreiðanlega PCR próf er notað til að skapa ótta en ekki til að greina


Aðgerðir gegn pestinni hafa:

• Valdið risavöxnu tjóni á heilsu og efnahag almennings

• Dregið ótalmarga til bana

• Lítil og meðalstór fyrirtæki lögð í rúst og gerð gjaldþrota


Málshöfðun:

• Hópmálsókn í Bandaríkjunum eða Kanada og hér á landi

• Skaðabætur þarf að greiða fyrirtækjum og einstaklingum


Verður þetta stóri dómurinn yfir Bill Gates, Fauci, Þórólfi, Kára og vinum þeirra? Við sjáum hvað gerist en málin hafa verið lögð fyrir og afrekaskrá Reiner Fuellmich bendir sannarlega til þess að þeir eigi ekki möguleika.

 

-Þrándur Arnþórsson

 


16 - 18 ára næstir - ,,keyptir" gegn afnámi grímuskyldu?

kidsUnglingar 16-18 ára eru ekki næstir í röðinni skv. bólusetningadagatalinu síbreytilega en þessi boð hér neðar voru að berast mér. (Næst eru það 12 -15 ára og stefnan hjá lyfjafyrirtækjunum og mörgum yfirvöldum heims er að bólusetja allt niður í ungabörn.)

Skilaboðin:

„Þarf að skjóta á þig smá. Heyrði frá íslenskum unglingapabba um daginn. Það er verið að boða 16-18 ára í bólusetningar þessar vikurnar og svo síðari sprauta seinna í sumar gegn loforði um grímulaust haust. Stráksi er í Borgarholtsskóla. Sé ekki að unglingar séu á dagatali yfirvalda nema þá sem hópur 10, "Allir aðrir sem óska bólusetningar."

Nokkrar staðreyndir:

1. Börn, unglingar og hraust fólk er ekki í hættu vegna C19 skv. WHO eða Alþjóðaheilbrigðisstofnunni. Flest ungt fólk fær væg eða jafnvel engin einkenni. Meðalaldur látinna af C19 er ca. 85 ára. 

2. Ónæmi í samfélögum er töluvert meira heldur en mótefnamælingar segja til um. Sjá til dæmis umræðu lækna í þinginu í Texas.

3. Þetta eru EKKI bóluefni eins og landlæknir, Lyfjastofnum og fleiri kalla það. Þetta eru líftæknilyf (mRNA), þ.e.a.s Moderna og Pfizer sem ekki hafa verið notuð á mannfólki fyrr og eru enn í tilraunafasa. Tilraunum lýkur 2023.

4. Bóluefnin" eru EKKI með markaðsleyfi, heldur skilyrt markaðsleyfi sem jafngildir undanþágu eða neyðarleyfi. Enda eru þau á rannsóknarstigi. Íslendingar og fleiri þjóðir eru tilraunadýrin (sjá svar frá Lyfjastofnun neðar).

5.  Ekkert er vitað um langtímaáhrif líftæknilyfjanna. Ekki neitt! Þeir sem segja þau örugg hafa ekki hugmynd um hvað þau eru að tala, þar á meðal læknar! Yfirvöld vissu heldur ekkert um skammtímaaukaverkanir sem voru miklu algengari og verri en þau sögðu.

6. Landlæknisembættið kallar þetta ranglega heilbrigðisþjónustu og heldur því fram að ekki þurfi samþykki foreldra fyrir 16 og 17 ára unglinga sem ekki hafa náð sjálfræði. Þetta er ekki heilbrigðisþjónusta heldur boð/kvaðning um að mæta í bólusetningu. Passið unglingana! Þau eru ekki tilraunarottur margdæmdra lyfjafyrirtækja. Þau eru ekki veik og eru ekki að sækja sér læknaþjónstu eins og segir í lögum um heilbrgiðisþjónustu! 

7. Skoðið dæmi um veikindi meðal Íslendinga eftir sprauturnar. Eru þetta flensueinkenni eða skuggalegar lýsingar á einhverju meira? Sjá hér, (skjáskot undir texta). 

8. Bóluefnasamningar ríkisins við lyfjafyrirtækin eru undanskildir upplýsingaskyldu. Almenningur og þingmenn mega ekki sjá þá. Hvers vegna ekki?

p.s. efri myndin er tekin í fjöldamótmælum í London í gær sem helstu fjölmiðlar heims sögðu ekki frá frekar en fyrri daginn. Og þessi neðri er tekin í Ísrael fyrir tveimur vikum.

israelholocost 


Svar frá Lyfjastofnun:

Sæl Þórdís

Öllum fjórum bóluefnunum sem notuð eru hérlendis hefur verið veitt skilyrt markaðsleyfi.

Kveðja, 

Samskiptadeild / Communications Department

Lyfjastofnun / Icelandic Medicines Agency

 




Fjölmenn mótmæli í dag - "World Freedom Rally" - partý við BBC!


rallyFjölmenn mótmæli voru í London í dag þar sem grímuskyldu var mótmælt, höftum og lokunum, "human vaccine trials" (tilraun bóluefna á mönnum), lygum bresku ríkisstjórnarinnar  bóluefnavegabréfum, o.fl. Hér má sjá útsendinguna og hér. Einnig var mótmælt i Manchester.

Fjöldinn í London arkaði að BBC fréttastöðinni sem endaði með partýi.
Þetta hafði einn mótmælandinn að segja:

Incredible scenes in London again. Well done everyone!
We won t stop. A huge passionate cry from the enlightened. Well done for targeting the despicable BBC for their crime of mass mind manipulation and fear inflicted on the British population.
And how glorious to see people singing this outside the BBC? "Shame on You!"
bbcfake news
 
 

Mike Yeadon hélt einnig ræðu en hann er fyrrum yfirmaður Pfizer, vísindamaður með meiru.

Mótmæli voru í mörgum örðum borgum heims. Hér er til dæmis frá AmsterdamSvissToronto, Leef, Vancouver og Reykjavík (mynd neðar).

 

Og tengd frétt. Hafnarboltaliðið Texas Rangers hefur fellt niður grímuskyldu hjá öllum áhorfendum, óháð bólusetningu. Ekki er krafist bóluefnapassa. Ánægjuleg frétt og sýnir vonandi að dagar grímuskyldunnar eru taldir. 

Frá London. Látið krakkana vera! Og ein frá Austurvelli, hófst kl. 11.30.

 

austurvöllur

kids

bbclondon


Þáttastjórnandinn Bill Maher smitaður þrátt fyrir fulla bólusetningu

contraHér kemur fram að þáttastjórnandinn Bill Maher hafi greinst með kórónuveiruna þrátt fyrir að vera fullbólusettur.

Eins og komið hefur fram eru bóluefnin ekki hefðbundin og koma ekki í veg fyrir smit. Rannsóknir lyfjafyrirtækjanna gengu heldur ekki út á að rannsaka hvort fólk smitaði heldur hvort lyfin hefðu áhrif á veikindi þess smitaða.

Í Daily Mail í gær segir að heilbrigðisráðherra Bretlands hafi áhyggjur af því að þeir bólusettu muni veikjast illa af nýju afbrigði og því þyrfti mögulega að hætta við fyrirhugaðar afléttingar.

Ragnar Freyr læknir var spurður að því hvort rétt væri að þetta væru ekki bóluefni (heldur líftæknilyf), en hrokafulla lækninum fannst það ekki svaravert. Spurning hvort hann gæti útskýrt þetta. Er þetta kannski það sem kallast indverska afbrigðið? 

Meira af þekktu fólki. Eric Clapton veiktist mikið eftir bólusetningu og dauðsér eftir að hafa farið. Hann hefði átti að tala við mig áður! En lærði af reynslunni og varar umheiminn nú við bóluefninu.

The reactions were disastrous. My hands & feet were frozen, numb or burning for 2 weeks. I feared I would never play again. But the propaganda said the vaccine was safe...

Viðbrögðin voru skelfileg. Hendur mínar og fætur voru frosnar, dofnar eða logandi heitar í tvær vikur. Ég var hræddur um að ég gæti aldrei framar spilað. En áróðurinn var; bóluefnin eru örugg...
 

Bólusettur Íslendingur smitaðist innanlands.

Takið eftir myndinni að ofan. Fín samlíking - ekki satt?

maher


mbl.is Norðmenn hætta alfarið með AstraZeneca
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

16 ríki hafa fyrir löngu fellt niður grímuskyldu!

ríki,,Sótt­varna­stofn­un Banda­ríkj­anna (CDC) til­kynnti í dag að full­bólu­sett­ir Banda­ríkja­menn geti hætt að nota grím­ur og gæta að fjar­lægðarmörk­um við flest til­efni."

Grímuskylda var afnumin í 16 ríkjum USA fyrir þó nokkru.

Grímuskylda(og allt covid) er augljóslega pólitískt mál. Sjá hér.

Og sjá samanburð milli Californiu (mjög harðar reglur) og Florida (mjög frjálst).
samanburðurCAFL

 


mbl.is Bólusettir sleppi við grímuskyldu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breytingar á blæðingum kvenna eftir bólusetningu!

moggiaukaverkanir,,Aug­lýs­ing sem birt­ist í Morg­un­blaði dags­ins þar sem fólk er hvatt til þess að til­kynna auka­verk­an­ir vegna bólu­setn­inga gegn kór­ónu­veirunni er ekki á veg­um Lyfja­stofn­un­ar. Þetta seg­ir Rúna Hauks­dótt­ir Hvann­berg, for­stjóri Lyfja­stofn­un­ar, við mbl.is."

Á BBC er sagt frá því í dag að breytingar á blæðingum kvenna teljist vera aukaverkun. Sjá frétt.

Síðan er hér smá samantekt á aukaverkunum / veikindum Íslendinga eftir sprauturnar.

Lyfjastofnun ætti síðan að svara spurningum sem hún fær vegna aukaverkana. Þær eiga að birtast á síðu þeirra og vera öllum aðgengilegar. Endilega kíkið á skjáskot af veikindum eftir bólusetningar hér heima.


mbl.is Lyfjastofnun ekki á bak við auglýsinguna í Mogganum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Munið að tilkynna aukaverkanir - við erum öll almannavarnir!

moggiaukaverkanirÍ dag höfðu alls 1680 tilkynningar um mögulegar aukaverkanir eftir Covid sprautur borist Lyfjastofnun, þar af 115 alvarlegar en alvarleg aukaverkun telst vera lífshættulegt atvik. Ég sendi Lyfjastofnun reglulega póst og spyr af hvaða toga alvarlegu aukaverkanirnar eru. En undanfarið hef ég ekki fengið nein svör. Þessi auglýsing birtist í Mogganum um daginn.

Við höfum safnað upplýsingum um aukaverkanir af samfélagsmiðlum þar sem fólk ræðir veikindi eftir sprautur. Geri ráð fyrir að í lagi sé að endurbirta, þar sem þetta var allt í opnum hópum. Hér eru nokkur skjáskot (SMELLA á myndir til að sjá betur, eða nota hvítu örina hægra megin á fyrstyu mynd til að fletta). Og frétt hérhef aldrei séð manninn minn jafn veikan."

Okkur hefur verið sagt að eðlilegt sé að fá flensueinkenni eftir sprautuna. En myndi þetta allt flokkast sem flensueinkenni?gigt Og hér kvarta konur undan verkjum og einkennum tengdum móðurlífinu.

Hvað er verið að gera fólkinu spyrja kannski einhverjir?modernafárveikur jansenstingbringumodernælaaukasorgauka12 vikurmodernabráðammodernameðvitundarlausmodernabráðam modernameðvitundarlausmodernæla
aukamodernaaukaógleðimodernaaukanytt2aukanýtt
aukamissasjón

konablæðaukanýttaukameirabellsauka12 vikuraukavstressauaverkdoðiandlitaukaastraaukaverkjanfvægi 
aukahraedsla2nyttuaukahrafnhildurjansen4jansen1auakvhræðsla
modernaukav.auka2vikurrunaraukabráðamóttakaaukaverkgigt3gigt2

gigt2hausverkgigtjansen30gigt2mjólkandijansen4jansen3jansen1aukaverkblóðnasir


Bretland - afbrigði sem gerir þá bólusettu mikið veika!?

bodyattackÍ dag er frétt á Daily Mail sem segir: The Health Secretary said the only thing that would prevent England from scrapping more restrictions on June 21 would be the emergence of a mutant strain that makes vaccinated people severely ill.

Heilbrigðisráðherra (Bretlands) sagði að það eina sem gæti komið i veg fyrir að létt yrði á sóttvarnarhöftum 21. júní nk. væri ef upp kæmi nýtt veiruafbrigði sem myndi gera þá bólusettu alvarlega veika. Hér segir landlæknir Breta að þeir búist við því að indverska afbrigið muni taka yfir. 

Athyglisvert að tekið sé fram að það myndi mögulega gera þá bólusettu mikið veika. Hvað með hina óbólusettu? En ca. helmingur Breta hefur ekki fengið lyfin.

Þetta er nákvæmlega það sem gagnrýnendur C19 bóluefna hafa  bent á. Þau veikja ónæmiskerfið gagnvart nýjum afbrigðum. En verður víst að koma í ljós fyrst að svo margir treysta þríeykinu, þar á meðal tveimur læknum sem þessa dagana tala eins og lobbýistar og þvert á læknavísindin (Dæmi: bólusetja þá sem þegar hafa fengið Covid og eru þannig með sterkt og gott ónæmi til lengri tíma, bólusetja ófrískar konur og mjólkandi mæður og ungt fólk sem ekki telst vera í áhættu fyrir sjúkdómnum).

Ég sendi þetta blogg mitt til Kára Stefánssonar og benti honum á að hægt væri að nýta þá óbólusettu í einhvers konar samanburðarrannsókn. Hverjir verða það sem veikjast á næstunni, þeir bólusettu eða óbólusettu? Ísland er lítið samfélag og því verður frekar auðvelt að fylgjast með.

Þessi hollenski læknir Louise Lagendijk útskýrir hvers vegna þeir bólusettu eru frekar í hættu. „Líkaminn
 mun ráðast á sig sjálfan," segir hún. Það sama segir ónæmissérfræðingurinn Sukharit Bakti. Og hér lýsa fleiri vísindamenn áhyggjum sínum.

Hér er frétt um Seychelles eyjarnar þar sem hlutfallslega flestir hafa verið bólusettir en búið að skella öllu í lás eftir stökk í smitum.

Þetta eru áhugaverðir tímar. Bill Gates hjónin skilin og Melinda bendir á að að kallinn hafi verið í samskiptum við barnaníðinginn Epstein. Í kringum forsetakosningarnar í Bandaríkjunum voru einhverjir sem vildu meina að Epstein hafi búið yfir upplýsingum tengdum barnaníð meðal fræga fólksins, háttsettra pólitíkusa, dómara o.fl. Einn þeirra var lögfræðingurinn Lin Wood sem búið er að henda út af samfélagsmiðlum, a.m.k. twitter.

En ég verð að segja, að meintar falsfréttir" og samsæriskenningar" eru óðum að verða sannar og eftir sitja hinir ábyrgu" fjölmiðlar með alvöru falsfréttir. Hvar er til dæmis þessi merkilega frétt? Ef tölurnar voru rangar, hvað fleira er rangt? Og hvað er þetta? Breytingar á blæðingum kvenna getur verið ein af aukaverkunum segir BBC í dag. Stórfurðulegt bóluefni!

p.s. hér syngja Bretarnir á síðustu fjöldamótmælum í London...stingið eitrinu þangað sem sólin skín ekki.

 

moggiaukaverkanir

truthmedia


Umræða í þinginu í Texas um skyldubólusetningu og aukaverkanir

texasHér er umræða í þinginu í Texas um mögulegar skyldubólusetningar gegn Covid, alvarlegar aukaverkanir af bóluefnunum sem öll eru á neyðarleyfi, hjarðónæmi sem þegar hefur myndast, ónæmiskerfið og fleira.

Læknar segja frá því að aukaverkanir hjá þeim sem þegar hafi sýkst af Covid geti verið mun alvarlegri en hjá hinum. Það stendur til hér á landi að bólusetja einnig þá sem þegar hafa sýkst náttúrulega. Þetta kom fram á Almanavarnarfundi í síðustu viku hjá Kamillu hjá landlæknisembættinu.

Náttúrulegt ónæmi endist í mörg ár, jafnvel til æviloka kemur fram í þinginu. Síðan hvenær er fólk bólusett við sjúkdómi sem það hefur fengið og það nýlega? Þegar maður heyrir lækna fara með svona þvælu, hljóta einhverjir að spyrja sig. Út á hvað ganga þessar bólusetningar?

Við höfum heyrt að margir fái engar aukaverkanir eftir sprautuna en aðrir verði jafnvel fárveikir. Spurning hvort þeir sem verða veikari hafi þegar verið komnir með ónæmi án þess að vita að því sbr. væg eða engin einkenni. 

Hér er einnig svíinn Lern Bern, doktor í "chemical reaction engineering" (efnahvarfsverkfræði?) og fjallar um alvarlegar aukaverkanir.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband