15.7.2021 | 22:24
Fárveikur eftir Janssen bólusetningu og fékk Covid mánuði síðar
Þórólfur Júlían var bólusettur með Janssen 28. apríl sl. Hann var fárveikur í þrjá daga á eftir og því mætti ætla að hann hafi þróað með sér sterkt og gott mótefni. Var því ekki annars haldið fram? Meiri veikindi, meira mótefni. Nafni hans Guðnason vonaðist a.m.k. eftir að fá aukaverkanir, því ef hann fengi engar væri hann viss um að bóluefnið virkaði ekki."
En svona segir Þórólfur Júlían sína sögu:
Mánuði eftir að ég var bólusettur veiktist kærastan mín af Covid og ég settur í sóttkví. Ég ákvað að vera hjá henni og hugsa um hana þar sem ég var fullbólusettur, en viku síðar var ég sjálfur kominn með Covid. Ég þurfti að fara einu sinni upp á spítala til að fá vökva í æð og samkvæmt samtali við lækni þá var ég einn af þeim sem veiktist hvað mest í bylgjunni sem þá reið yfir, þrátt fyrir að vera fullbólusettur. Það voru mikil vonbrigði að bóluefnið hafi ekki haldið betur en þetta."
Það sem kom á óvart var þegar ég spurði lækninn hvort ég væri sá eini fullbólusetti sem hefði veikst af Covid. Svarið var nei. Mér finnst eins og það sé verið að fela fyrir fólki að bólusettir hafi líka smitast og veikst. Þessa dagana er þetta sett fram eins og um nýjar fréttir sé að ræða en þetta var samkvæmt lækninum að gerast líka fyrir tveimur til þremur mánuðum, jafnvel fyrr. Mér finnst mikilvægt að almenningur fái svona upplýsingar svo hann geti hagað sér eftir því."
Maður heyrir það að lyfjafyrirtækin halda því nú fram að bóluefnin séu í raun ekki full vörn heldur eigi að slá á veikindin sem það gerði nú varla í mínu tilfelli. Þarna er verið að fara með staðhæfingar sem ekki hafa verið almennilega rannsakaðar eða staðfestar. Allavega hef ég ekki séð neitt sem staðfestir þetta."
Þannig var sú saga og hér er önnur frá því fyrr í dag um 24 ára konu sem var lögð inn á spítala í vikunni með Covid. Hún hafði líka verið bólusett með Janssen.
Þannig var sú saga og hér er önnur frá því fyrr í dag um 24 ára konu sem var lögð inn á spítala í vikunni með Covid. Hún hafði líka verið bólusett með Janssen.
Ef fleiri vilja koma frásögnum sem þessum á framfæri, þá er velkomið að birta þær hér, því fjölmiðlar hafa engan áhuga nema þú sért óbólusettur og með Covid.
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
- aslaugas
- agny
- annaeinars
- danna
- agustkara
- bookiceland
- contact
- einarborgari
- rlingr
- sagamli
- helga-eldsto-art-cafe
- bofs
- sade
- gusg
- noldrarinn
- hafthorb
- hhbe
- hlf
- diva73
- snjolfur
- ingaghall
- ingolfursigurdsson
- kreppan
- jaj
- islandsfengur
- nonniblogg
- nyja-testamentid
- thjodarskutan
- kristinnp
- loncexter
- marinogn
- sighar
- sigurduringi
- sushanta
- viggojorgens
- vilhjalmurarnason
- thorsteinnhelgi
- valli57
- tbs
Athugasemdir
Er þetta ástæða til að hætta við allar bólusetningar?
Halldór Jónsson, 16.7.2021 kl. 01:56
Eru ekki flestir búnir að fá - eða áttu við þriðja skammtinn sem á að koma í haust? Þórólfur sagði að ekkert væri að óttast, þannig halda bara áfram að fylgja bóluefnaleiðtoganum:
https://www.visir.is/g/20212101750d
https://www.visir.is/g/20212133722d/segir-virkni-boluefna-ekki-eins-goda-og-vonast-var-til
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 16.7.2021 kl. 10:16
Halldór,
Nú má telja næsta víst að allir sem vilja og þurfa bóluefni hafi fengið það. Það má því loka sjoppunni, láta börnin eiga sig og treysta því að íslenskir læknar kunni sitt fag.
Geir Ágústsson, 16.7.2021 kl. 11:11
"Hætta við allar bólusetningar"?
Það á ekki bara að stöðva bólusetningar, heldur BANNA þær samstundis með LÖGUM.
Eins og sýnt var rækilega fram á í bókinni Saga Bólusetninga (Heimshorn 2017), þá eru bólusetningar ekk bara gagnslausar og óþarfar, heldur miklu fremur stórhættulegar og hafa í för með sér mun hærri dánartíðni en ella ef faraldur ber að höndum.
Nú er þetta staðfest í Bandaríkjunum (sjá grein í DV í dag:
https://www.dv.is/frettir/2021/7/16/johannes-meiri-skada-af-sottvarnaradgerdum-em-covid-26-umframandlat-bara-fra-junilokum-fram-september/
og yrði örugglega staðfest á Íslandi líka ef samsvarandi tölur héðan fengjust afhentar frá Landlækni.
Björn Jónsson (IP-tala skráð) 16.7.2021 kl. 12:07
„Greinilega er maður ekki alveg hólpinn með bólusetningunni“ - Vísir
Eyjólfur Ásberg Halldórsson, sem hafði verið bólusettur gegn Covid-19, segist hafa fagnað of snemma en hann greindist með veiruna eftir að hann kom heim frá Spáni fyrr í mánuðinum. Hann hvetur fólk til að fara varlega áfram.
Eyjólfur smitaði móður sína sem einnig er bólusett og litlu systur sína.
„Hún er með tvær sprautur af Pfizer en hún fann meira fyrir þessu en ég. Missti bragðskynið og var smá slöpp."
Eyjólfur hvetur fólk til að fara áfram varlega.
„Greinilega er maður ekki alveg hólpinn með bólusetningunni," segir Eyjólfur.
Guðmundur Ásgeirsson, 16.7.2021 kl. 18:56
Idjótaskrif hjá Birni. Hvað með holdsveiokina, berklana,og allt það?
Halldór Jónsson, 17.7.2021 kl. 11:16
Öll stríð krefjast fórna, óréttlátra sem annarra
Halldór Jónsson, 17.7.2021 kl. 11:17
Hey hvað ef þú hafðir ekki verið bólusetur mundiru hafa verið verri af covid.
Þorsteinn Kristjánsson (IP-tala skráð) 20.7.2021 kl. 13:38
Sæll Þórdís,
Það á EKKI að koma í veg fyrir að heilbrigðisstarfsmenn séu sóttir til saka, heldur ætti lögsækja allt þetta lið fyrir að ljúga til um öryggi allra þessara bóluefna, svo og varðandi öll þessi innihaldsefni, áhættur, alvarlegar aukaverkanir o.s.frv., þar sem að þetta heilbrigðisstarfsfólk er EKKI að veita upplýsingar. Nú og auk þess þar sem að þetta heilbrigðis-starfsfólk er EKKI að leita eftir upplýstu samþykki frá fólki.
KV.
Dr. Robert Young Finds Graphene Oxide in All Four Vaccines and Other Disturbing Ingredients
American Scientists Confirm Toxic Graphene Oxide, and More, in Covid Injections
VACCINE INGREDIENTS REVEALED
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 31.8.2021 kl. 12:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.