22.6.2021 | 11:24
Jason Daði - tengsl við bólusetningu 10 dögum áður?
Þeir sem fylgjast með því sem verið er að rannsaka í tengslum við nýju bóluefnin/líftæknilyfin sem aldrei hafa fengist samþykkt til notkunar á mannfólki fyrr, skoða atburðina að sjálfsögðu í ákveðnu ljósi.
Það er staðreynd að verið er að rannsaka möguleg tengsl milli hjartavöðvabólgu (myocarditis) og þessara nýju bóluefna sem eru öll á skilyrtu leyfi (neyðarleyfi). Einkenni á hjartavöðvabólgu eru meðal annars brjóstverkur, höfuðverkur og andþyngsli. Hætta á blóðtappa hefur líka verið tengd við lyfin og einhverjar rannsóknir hafa verið gerðar á því. Blóðtappahættan er ástæða þess að yfirvöld hér heima og víðar hafa verið að hringla með aldurshópana og Astra Zeneca.
Danmörk hefur þegar greitt sínar fyrstu skaðabætur til þrítugrar konu vegna blóðtappa eftir Astra Zeneca bólusetningu. Astra Zeneca og Janssen eru sambærileg bóluefni, byggð á samskonar tækni. Danir ákváðu að nota ekki Janssen, en hér heima þótti sjálfsagt að nota það, þar á meðal á yngri hópa sem ekki máttu fá hið sambærilega Astra Zeneca.
EMA (European Medical Association) og CDC (Center for Disease Control) í Bandaríkjunum rannsaka nú möguleg tengsl milli hjartavöðvabólgu og þessara nýju lyfja. Fleiri tilkynningar þessu tengdu hafa borist en gert var ráð fyrir og því fór af stað rannsókn. Grunur um tengsl hefur styrkst segir meðal annars í þessari frétt. Hér eru nánari upplýsingar um málið sem ég tók saman fyrir ca. 10 dögum. (Reyndar er verið að skoða Pfizer sérstaklega en öll þessi lyf hafa verið tengd samskonar hættu). Og já, yfirvöld vissu af þessum rannsóknum fyrir þó nokkru.
Hér spyr einn sem nýlega hafði fengið Janssen hvort aðrir hefðu fundið fyrir verk í bringu á eftir. Sjá mynd:
10.júní var sagt frá því að leikmenn Breiðabliks hefðu fengið Janssen efnið þar á meðal Jason Daði.
20. júní er síðan sagt frá því að Jason hafi lagst niður í miðjum leik og haldið fyrir brjóstkassann og verið fluttur af velli.
Ég átti bara erfitt með andardrátt og var illt í hausnum. Sjúkraþjálfarinn kom til mín, hjálpaði mér í gegnum þetta og það er allt í góðu núna."
Samkvæmt fréttinni fer hann í frekari rannsóknir.
Miðað við fréttina á fótbolti.net virðist mönnum hafa brugðið og því varla um að ræða vanalegan atburð.
Lyfjastofnun hafa borist 1740 tilkynningar um grun á aukaverkunum af Covid bóluefnum sem eru öll á neyðarleyfi (skilyrtu markaðsleyfi eins og þeir kalla það hér). Þar af eru 120 tilkynningar um alvarlegar aukaverkanir en alvarleg aukaverkun er skilgreind sem lífshættulegt atvik eða dauði.
Þrjár alvarlegar tilkynningar hafa borist stofnuninni vegna Janssen. Ómögulegt er að sjá hverjar þær eru þrátt fyrir að Lyfjastofnun beri að hafa allar þessar upplýsingar skiljanlegar og aðgengilegar. En þess í stað kýs hún að reisa fjórar súlur í tvennskonar litum (sjá neðar) og vegna mikillar gagnrýni undanfarið hefur hún bætt við smá upplýsingum á ensku sem er virkilega faglegt hjá stofnunni eða þannig! En sá fjöldi þöggunarsérfræðinga sem þar starfa kunna kannski ekki að þýða yfir á íslensku.
p.s. ég minni á þessa ræðu finnska þingmannsins um hættuna á bóluefnum.
Og hversu vel virkar annars Janssen gegn Covid? Sjá mynd neðar.
Jason kominn heim og líður vel sjúkrabíll 11 mínútur á leiðinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 16:23 | Facebook
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
- aslaugas
- agny
- annaeinars
- danna
- agustkara
- bookiceland
- contact
- einarborgari
- rlingr
- sagamli
- helga-eldsto-art-cafe
- bofs
- sade
- gusg
- noldrarinn
- hafthorb
- hhbe
- hlf
- diva73
- snjolfur
- ingaghall
- ingolfursigurdsson
- kreppan
- jaj
- islandsfengur
- nonniblogg
- nyja-testamentid
- thjodarskutan
- kristinnp
- loncexter
- marinogn
- sighar
- sigurduringi
- sushanta
- viggojorgens
- vilhjalmurarnason
- thorsteinnhelgi
- valli57
- tbs
Athugasemdir
Ungur og hraustur knattspyrnumaður hnígur niður á fótboltavelli og það afgreitt í þremur setningum í einni frétt RÚV og ekki minnst einu orði á í öðrum fjölmiðlum. Þögnin er orðin ærandi og augljóslega vakna upp spurningar þótt auðvitað sé heimurinn óvenjufullur af "tilviljunum" þessar vikurnar.
Geir Ágústsson, 22.6.2021 kl. 11:51
Og aukaverkanir/ afleiðingar af völdum bóluefnanna kallað " nýtt afbrigði" til að geta viðhaldið bólusetningum áfram og farsóttar faraldurs grýlunni.. Bíð bara eftir að fram muni koma Theta-Beta og Alpha afbrigði þar sem Delta á að vera komið.. En þetta eru einmitt 4 heilabylgjurnar sem ég tel upp hér og annað.. MRI ( segulómunar hólkurinn) keyrir á sömu bylgjum! ( fékk að vita þetta þegar ég fór í "hólkinn" fyrir x árum..
Agný, 22.6.2021 kl. 15:59
Árný, gríska stafsófið í þessu tilviki hefur ekkert með bylgjur að gera. Þetta eru bara nöfn sem heilbrigðisyfirvöld gefa vírusafbrigðunum svo menn tengi þau ekki við upprunaland. Hugmyndin er að tengi menn vírusinn við upprunaland þá kalli það á einhverskonar rasisma í garð fólks frá því landi.
Ragnhildur Kolka, 22.6.2021 kl. 20:17
Sæl Þórdís,
Þetta er allt saman eitthvað sem íþrótta-fréttaritarar þora alls ekki tala um núna, svona rétt eins og hinir ritstýrðu- og ríkisstyrktu- fjölmiðlar er þora alls að minnast einu orði á alvarlegar aukaverkanir eftir bólusetningar. Því heilbrigðisyfirvöld eru búin að auglýsa öll þessi bóluefni örugg, svo og þar sem að þetta lið hefur passað svona líka vel uppá að upplýsa ekkert um þessa leynilegu kaupssamninga, eða þar sem að heilbrigðisyfirvöld hafa svona líka samið af sér til að þóknast algjörlega bóluefna- framleiðendum. Í dag þá eru heilbrigðisyfirvöld á því, að það þurfi að reyna fela alla þessa kaupsamninga og annað, eða svo að almenningur komist ekki að því hversu ógeðslega léleg heilbrigðisyfirvöld hafa verið. Nú er aðalatrið að reyna fela og benda á eitthvað annað en alvarlegar aukaverkanir eftir bólusetningar á Bráðamóttökunni í Fossvogi, svo og passa uppá að fjölmiðlar og aðrir fari ekki að nafngreina allar þessar 120 alvarlegu aukaverkanir og skoða þessi alvarlegu mál eitthvað.
KV.
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 23.6.2021 kl. 17:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.