Leita í fréttum mbl.is

Þöggun fjölmiðla og Lyfjastofnunar um andlát og aukaverkanir!

72áraFjöl­skylda konu sem lést sól­ar­hring eft­ir að hafa verið bólu­sett með AstraZenca vill láta rann­saka hvort bólu­efn­inu sé um að kenna.Þetta kom fram í kvöld­frétt­um RÚV. And­látið var strax til­kynnt til Lyfja­stofn­un­ar og láta stofn­un­in, land­lækn­ir og sótt­varna­lækn­ir gera rann­sókn á fimm and­lát­um í kjöl­far bólu­setn­inga."

Það kom fram í kvöldfréttunum að fjölskylda konunnar hafi reynt að ná athygli fjölmiðla. Hvers vegna fékk málið ekki athygli? Fyrir hverja eru fjölmiðlar að vinna? Eru þeir með í að sópa andlátum vegna bóluefnanna undir teppið? Þessir sömu aðilar eru líka samtaka um að segja bóluefnin vera með markaðsleyfi. Þau eru það ekki, aðeins skilyrt markaðsleyfi sem er annað hugtak yfir neyðarleyfi/undanþágu.

deaths

Andlát tengd bóluefnunum eru mun algengari en Lyfjastofnun og yfirvöld vilja gefa upp. Það er hægt að fylgjast með þróuninni í öðrum löndum, hún er alls staðar sú sama.

Lyfjastofnun svarar nánast aldrei þegar hún er spurð um hverjar tilkynntar aukaverkanir eru. Þetta varðar almenning og stofnunin á að starfa skv. stjórnsýslulögum, þar á meðal upplýsingaskyldu. En hún þegir og þess má geta að upplýsingafulltrúi stofnunarinnar sem á að veita þessar upplýsingar en gerir nánast aldrei, er í frítímum sínum að viðra skoðanir sínar á facebook, t.d. hópnum Covid19 opin umræða. Kemur Lyfjastofnun, sérfræðingum Íslenskrar erfðagreiningar og háskólans til varnar, birtir glæstar" ferilskrár þessara einstaklinga o.fl. 

En upplýsingafulltrúinn sinnir ekki störfum sínum fyrir Lyfjastofnun á daginn, n.t.t. að upplýsa almenning um hverjar þessar 97 alvarlegu aukaverkanir eru, en alvarleg aukaverkun telst skv. skilgreiningu Lyfjastofnunar vera lífshættulegt tilvik, sjúkrahúsvist eða andlát.

Ég var búin að heyra af andláti 72 ára konunnar. Spurði um það hjá Lyfjastofnun. Þegar þau loks svöruðu sögðu þau að andlát tengt AstraZeneca tengdist eldri einstaklingi, svona eins og einn á níræðisaldri hefði verið að deyja. 72 ára telst ekki beint eldri einstaklingur og því er aldurinn ekki skýringin á andláti eins og ýjað er að hjá Lyfjastofnun! (sjá samskipti neðar). Lyfjastofnun tekur líka alltaf fram að þeir sem hafi tilkynnt um alvarlegar aukaverkanir hafi verið með undirliggjandi sjúkdóma.

Vonandi fara aðstandendur í skaðabótamál. Það þarf varla að rannsaka hvort manneskja sem veikist sama dag og hún fær bóluefni, sem nú er þekkt fyrir blóðtappa og hefur verið stöðvað í mörgum ríkjum, sé orsök andlátsins. Danmörk hefur þegar greitt sínar fyrstu bætur til ungrar konu sem fékk blóðtappa eftir AstraZeneca. Hér má lesa um  fleiri veikindi Íslendinga eftir bóluefnin.

andsvar72eldrieinstaklyfjastofnuneldriundriliggjandisjúkd


mbl.is Vill rannsókn á andláti í kjölfar bólusetningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Rannsókn lokið: ekkert orsakasamband

Björn Jónsson (IP-tala skráð) 6.6.2021 kl. 21:10

2 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

var það komið fram?

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 6.6.2021 kl. 21:30

3 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Ætli sé ekki ráð að fara að ryksuga klefana fyrir Þórólf og Ölmu á Hrauninu?

Þorsteinn Siglaugsson, 6.6.2021 kl. 21:33

4 identicon

Komið FYRIRFRAM.

Snjallt hjá þeim erlendis: líkum allra þeirra sem farast af þessum orsökum er samstundis eytt í líkbrennsluofni einmitt til þess að það sé ekkert til að rannsaka. Skothelt.

Björn Jónsson (IP-tala skráð) 6.6.2021 kl. 21:41

5 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

Enn þá málfrelsi hér ? 

Sigfús Ómar Höskuldsson, 7.6.2021 kl. 09:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband