Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Covid 19 sjúkraflutningar?

Sem þýðir:

,,Vert er að taka fram að Covid-sjúkraflutningar eru ekki ávísun á kórónuveirusmit eða innlögn á Covid-deild Landspítalans. Þegar fólk er með óútskýrð öndunarfæraeinkenni eða með önnur einkenni sem læknir eða viðbragðsaðili telur að geti stafað af Covid-19 flokkast sjúkraflutningar á viðkomandi sem Covid-flutningar, líkt og Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómalækninga" útskýrði í viðtali við Vísi í sumar.
 
https://www.visir.is/g/20202023114d
 
 

mbl.is 81 sjúkraflutningur: 15 tengdir Covid-19
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar faraldur er í beinni útsendingu!

Þegar faraldur er í beinni útsendingu frá morgni til kvölds, þá kann ástandið að virka allt öðruvísi heldur en þegar um aðrar pestir er að ræða sem lítið er fjallað um. Líka þegar ekki er boðið upp á samanburð. Því virkar þessi farsótt sem nú gengur á marga eins og sú fyrsta og síðasta á þessari jörðu. Sjá nokkrar fréttir um fyrri pestir og álag vegna þeirra:

https://www.ruv.is/frett/mikid-alag-a-landspitalanum

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/02/23/aukid_alag_vegna_flensu_og_noro/

https://www.visir.is/g/2016160229250/influensa-herjar-a-landann-mikid-alag-a-landspitala-og-fjoldi-starfsmanna-rumliggjandi

https://www.ruv.is/frett/daudsfoll-vegna-svinaflensu-vanaaetlud

https://www.visir.is/g/2009270623367

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/02/25/enn_mikid_alag_a_lsh/

Þegar ekki er talað um eftirköst af öðrum veirupestum þá kann það að virka svo að eftirköst fylgi aðeins covid.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2010/03/16/eftirkost_flensunnar_mikil/

https://www.medicalnewstoday.com/articles/326619

Og aldrei áður hefur verið leitað að "sjúklingum". Því kann dæmið að líta mun verr út heldur en önnur ár, þegar fjölmiðlar hafa ekki verið undirlagðir af nýjustu veirufréttum.


mbl.is Einhver getur dáið og þá lokum við heiminum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samanburður við svínainflúensu - 60,000 veiktust.

Það mætti kannski hafa í huga, í þessum vangaveltum, að ekki var farið í neinar sérstakar sóttvarnaraðgerðir vegna svínainflúensunnar haustið 2009. Hvers vegna þessi mikli munur?

Talið er að um 60,000 manns hafi veikst af flensunni sem lagðist þyngra á börn heldur en fullorðna (en allir skólar opnir). 170 innlagnir um haustið og 22 á gjörgæslu, margir í öndunarvélum vikum saman. Ekki var byrjað að bólusetja að ráði fyrr en undir lok árs 2009.

https://www.althingi.is/altext/139/s/0867.html

Ekki mælt með lokunum:
https://www.visir.is/g/2009753261145/sottvarnalaeknir-maelir-ekki-med-lokunum-vegna-svinaflensunnar


mbl.is Erfitt að skilgreina meðalhóf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var ekki grímuskylda?

Var ekki búið að fyrirskipa hina ólöglegu grímuskyldu í skólanum og eiga grímurnar ekki að koma í veg fyrir að smit berist manna á mílli? Eða til hvers eru þær og til hvers eru fjarlægðartakmarkanir?

Ótrúlegt að skólayfirvöld skuli taka þátt í þessu rugli; að hrella skólakrakka, skerða menntun þeirra og frelsi. Samþykkja yfirgang stjórnvalda vegna veiru sem er ekki hættuleg nema í undantekningartilfellum og ekki ungu fólki.

Svínaflensuheimsfaraldurinn skall hér á í ágúst 2009. Pestin lagðist þyngra á yngra fólk en eldra, ólíkt covid. Ekki var byrjað að bólusetja að neinu ráði fyrr en undir lok árs 2009. 

Allir skólar voru opnir, engar grímur, engar takmarkanir. Um 170 manns voru lagðir inn á spítala, 22 á gjörgæslu og margir í öndunarvélum vikum saman. Og skólakrakkar bara í skólanum eins og ekkert væri eðlilegra. Og enginn að ganga af göflunum!

 

Nánar um svínapestina.

https://www.althingi.is/altext/139/s/0867.html 


mbl.is Allir nemendur í MR í fjarkennslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sýnatökufaraldur?

,,Hann seg­ir einnig að sýna­taka hafi verið um­fangs­mik­il und­an­farna daga og með því mesta sem sést hafi frá upp­hafi far­ald­urs­ins...Það er búið að vera að taka mikið af sýn­um und­an­farið og eig­in­lega aldrei verið tek­in fleiri sýni." (Þórólfur)

Var ekki hlegið að forseta Bandaríkjanna fyrir svipuð ummæli? Kannki eitthvað til í þessum pistli Geirs Ágústssonar sem óskar jafnframt eftir athugasemdum.

https://geiragustsson.blog.is/blog/geiragustsson/entry/2255011/

 

p.s. skv. starfsfólki  hjá rannsóknarstofunni Sameind í Domus Medica sem tekur að sér mótefnamælingar var veiran komin hingað a.m.k í janúar. 

Og annað: eru ekki frekar margir með aðrar veirupestir í dag miðað við allar sóttvarnarrelgurnar? 
,,Það seg­ir okk­ur það að fólk sé mikið með ein­kenni ein­hvers ann­ars en kór­ónu­veiru.“

Og skoðið þetta:

https://www.youtube.com/watch?v=Ch7wze46md0&feature=youtu.be&fbclid=IwAR09rYbth1XuszwIrUb31-SOxbPP_X7BYi1oUoscB1JJanelyZYI6iU7syw


mbl.is Ekki ástæða til að herða aðgerðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú - átti ekki að opna skólana þegar landinu var lokað?

Það átti að vera einn kosturinn við að loka landinu, að hér yrði eðlilegt skólahald meðal annars. Það sagði þess maður sem virðist vera orðinn menntamálaráðherra líka. Það kemur alltaf flensubylgja á haustinn, takið bara inn D vítamín og hættið að hlustað á þessa þvælu. Hann veit ekkert um hvað hann er að tala sbr. það sem hann sagði um skólana og lokun landsins. Nú erum við bæði með lokað land og hálflokaða skóla. Það sem hann sagði hefur ekki ræst. Hvað kostar það að hafa skólakrakka í skertu námi? Hvað kostar það að láta þennan mann með endalausar dómsdagsspár stjórna landinu?

Dánartíðni af þessari flensu er á niðurleið um allan heim. 


mbl.is Ættum að búa okkur undir nýja bylgju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heilbrigð börn sett í stofufangelsi...

og er þetta planið næsta árið eða næstu árin, þar til bóluefni kemur? Loka börn inni út af af veiru sem flestir veikjast lítið af, sérstaklega börn.

Vanalega er það sá sem er veikur sem er heima hjá sér, ekki þeir sem eru frískir. Þetta er bilun!


mbl.is Smit í grunnskóla á Selfossi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og janúar og febrúar!

Fór í mælingu hjá Sameind. Spurði hvort það myndi enn mælast mótefni ef viðkomandi var veikur af veirunni í febr. Svarið var: já líklega en ekki öruggt, við erum að finna mótefni hjá fólki sem var veikt í janúar. 

Sem sagt, fólk var með komið með veiruna fyrr.


mbl.is Fullt út úr dyrum í mótefnamælingu hjá Sameind
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skaðinn fyrir námsfólk!

Framhalds- og háskólanemar eiga fullt í fangi með fjarnámið. Það kemur engan veginn í staðinn fyrir nám í kennslustofu. Það fylgja þessu alls kyns vandamál, tæknileg og önnur, bæði hjá kennurum og nemendum. Nemendur fá færri kennslustundir en þurfa að fara yfir jafn mikið efni, á eiginn vegum, til viðbótar við heimanám.

Þetta gengur ekki, það verður að hafa skólahald eðlilegt. Þetta fyrirkomulag er í engu samræmi við hættuna af veirunni. Skaðinn sem hlýst af þessum takmörkunum fyrir nemendur er þúsundfalt meiri en hugsanlegur skaði af veirunni.


mbl.is Standa frammi fyrir flóknum valkostum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband