Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Gagnrýni á Svíana!!

Var það ekki þetta sem Svíar voru helst gagnrýndir fyrir, að hafa ekki varið gamalt og veikburða fólk? Hvernig eru reglurnar á Landakoti og Reykjalundi? Heimsóknarbann, starfsfólk í sóttvarnarbúningum?

Áhersla á vernd á að vera hjá gamla fólkinu og því veikburða, ekki hjá hraustum börnum og unglingum með lokum framhaldsskóla og stöðvun íþróttastarfs!


mbl.is Mjög miklar áhyggjur af stöðunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nei ekki veiran sjálf!

„Veir­an eins og boðflenna, hún er búin að brjóta allt og bramla hjá okk­ur og hún neit­ar að fara."

Nei þessi veira er með dánartíðni á við inflúensu og leggst vægt á börn og ungmenni eins og staðfest hefur verið af læknum í fréttum síðustu daga. Það eru aftur á móti aðgerðinar sem hafa brotið hér allt og bramlað. Sagan mun dæma!

Hér má til dæmis lesa ummæli foreldra og framhaldsskólanema vegna lokunar skóla:

 


mbl.is Ekki hægt að kasta veirunni á dyr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Opnið framhaldsskólana - ummæli foreldra og nemenda

Í fyrradag var sett af stað undirskriftarsöfnun: Opnið framhaldsskólana og hefjið íþróttastarf barna og ungmenna. Bæði foreldrar og nemendur hafa skrifað undir og margir skrifa sérstök ummæli við sitt nafn. Þau er öll hægt að lesa með því að smella á Athugasemdir. Hér eru nokkur ummæli og við skulum vona að þegar upp er staðið að það hafi verið þess virði að hafa framhaldsskólanemendur (og jafnvel háskólanema) heima hjá sér svo mánauðum skiptir. Athugið að Ísland er eina Norðurlandið sem sendir framhaldsskólanema í fjarnám, að hluta eða öllu leyti.

En hér eru nokkur ummæli:
,,Ég á tvo unglinga í framhaldsskóla og þetta er algjörlega að fara með andlega líðan þeirra. Það mikið hjá öðrum þeirra að ég er farin að hafa miklar áhyggjur."
,,Ég á son í framhaldsskóla sem gafst upp á náminu og hefur átt mjög erfitt frá því skólinn lokaði."
,,Ég skrifa undir vegna þess að ég er að dragast aftur úr námi því ég fæ ekki þá hjálp sem ég gæti fengið með kennarann viðstaddann."
,,Ég skrifa hér undir vegna þess að núverandi ástand er algjörlega óviðunandi. Það er verið að hafa menntunina af ungmennum okkar."
,,Ég vil fá að mæta í skólann!"
,,Unglingar í dag eru ekki nema að mjög litlu leiti að ná að sinna skólanum að einhverju marki."
,,Sonur minn er að byrja í framhaldsskóla og hann er að gefast upp á því að komast ekki í skólann og fá þá aðstoð sem hann þarf."
,,Ég sé í gegnum vinnuna mína að þetta er að valda mikilli andlegri vanlíðan, óvissu og kvíða. Meiri áhættuhegðun, neysla á áfengi og vímuefnum."
,,Einnig á ég tvö börn sem eru núna í fjarnámi vegna Covid og þetta er að fara mjög illa í þau þrátt fyrir góðan stuðning heima."
,,Ég er framhaldskólanemi og geðheilsu minni hefur hrakað töluvert sökum lokana a framhaldsskólum."
,,Þetta fjarnám er að fara verulega illa í flest alla námsmenn og þetta er að hafa veruleg áhrif á metnað og einkunnir hjá flest öllum."
,,Ég á þrjú ungmenni sem öll hófu nám í haust í framhaldsskóla og háskóla. Öll voru þau að byrja aftur í skóla eftir hlé og voru búin að peppa sig upp í verkið. Í dag, vegna covid19 lokanna eru þau öll hætt í skóla. Sem mér þykir ótrúlega glatað. þau geta ekki annað þessu og skilja ekkert hvað þau eiga að gera. Verkefnin dúndrast inn og engin kennsla þannig í gangi. Ég sé ósköp lítinn mun á að hafa alla skóla opna eins og grunnskólana, það hljóta allir að geta passað sóttvarnir.Undirrituð er starfandi kennari í grunnskóla."
,,Ég tel að það séu stærri fórnir færðar að meina menntaskólanemum um að mæta í skólann og fá hefðbundna kennslu. Núverandi ástand með fjarkennslu veldur einangrun, vanlíðan og skapar mikla streitu hjá unglinugum og ekki verður séð fyrir endann á þessu ástandi og því skora ég á stjórnvöld að standa með ungmennum og krefjast þess af mennaskólum að veita almennilega staðarkennslu."
,,Ég hata fjarnám og einkunirnar mínar eru að detta niður."
,,Aðgerðirnar eru illa rökstuddar með tilliti til þeirra gagna sem fyrir liggja um smitleiðni og áhrif Covid á ungt fólk. Verið er að valda ungu fólki verulegu tjóni að óþörfu."


Er það rétt sem maður heyrir?

Að læknar hér á landi sem eru á öðrum meiði hvað snertir covid flensuna séu að fá tiltal. Að það sem þeir segja í útvarpi og á netinu geti komið sér illa fyrir þá í starfi sem læknir.

Hverjar eru reglur lækna í þessu sambandi? Hvað má segja í fjölmiðlum og hvað má ekki segja?

 


mbl.is Bjóst við fleiri innlögnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fáránleg tilmæli!

Það kemur ekki einu sinni fram hvers vegna fólk ætti að vera heima. Bara af því það var þannig um páskana!

Spítalar eru ekki yfirfullir og ekki komnir að þolmörkum skv. áreiðanlegum heimildum, ef þið ætlið að nefna þá ástæðu.

Hvað varð um átakið Ferðumst innanlands með ferðagjöfinni frá ríkisstjórninni?

Og allt tóm lygi segja þessi læknar í Bandaríkjunum. Þeir komu saman fyrir utan Hæstarétt í gær og létu í sér heyra. Sögðu m.a. að grímur virkuðu ekki gegn vírusum, annars hefðu forfeður okkar sett pappír fyrir framan munninn til að veikjast ekki ;)

 

 


mbl.is Fólk haldi sig innan höfuðborgarsvæðisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grimur eru ekki vörn gegn veirusýkingum

Þessi læknir, Elísabet Guðmundsdóttir, til margra ára segir grímur ekki vera vörn gegn veirusýkingu. Kom fram í viðtali við hana á Útvarpi Sögu í dag.

https://www.utvarpsaga.is/thaettir/?mgi_365=41190%2Fsidegisutvarpi-fjori-hluti-15oktober&fbclid=IwAR1KPBvDMx13qMNOlCSchVMexPll864AeHS6ZWVE_xOA7GWTP9vkDzZw2nA
elísabet

 


mbl.is Allir nemendur Réttó í úrvinnslusóttkví
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rétti tíminn til rifja upp hneyksli innan WHO?

Er þetta ekki rétti tíminn til að rifja upp hneykslismál innan WHO (okkar helsta ráðgjafa) því að svona mál koma alltaf upp eftir á? 

Frétt frá 2010:

,,Sérfræðingar hjá Alþjóða heilbrigðisstofnuninni, WHO, sem hvöttu til þess að birgðum af flensulyfjum yrði safnað til varnar faraldri, höfðu sjálfir þegið fé frá framleiðendum lyfjanna. Þetta kemur fram í skýrslu sem tímaritið British Medical Journal hefur birt. Í skýrslunni kemur fram að þrír vísindamenn sem unnu að gerð viðbragðsáætlunar gegn flensufaraldri, höfðu áður þegið greiðslur frá lyfjafyrirtækjunum Roche sem framleiðir flensulyfið Tamiflu og Glaxo Smith Kline sem framleiðir Relenza."

https://www.ruv.is/frett/hagnast-a-svinaflensunni

 

,,National governments, WHO, and EU agencies had all been guilty of actions that led to a “waste of large sums of public money, and unjustified scares and fears about the health risks faced by the European public,” 

https://www.worldpharmanews.com/research/1255-british-medical-journal-who-must-act-now-to-restore-its-credibility-and-europe-should-legislate

Mr. Flu var hann kallaður þessi:
https://rense.com/general88/megawho.htm?fbclid=IwAR3sTYpo423ruMKRzXTtRpoOXFU3SHTEpNgT0jDC_UofGFcJzfdGvqooyYY


mbl.is 88 smit innanlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fólk býðst til að smitast af veirunni

,,Tens of thousands of people have signed up to a campaign by a group called 1 Day Sooner to take an experimental vaccine candidate and then face coronavirus in a controlled setting."

https://edition.cnn.com/2020/10/12/health/coronavirus-human-challenge-trials-gbr-intl/index.html


mbl.is „Sem unglingur myndi ég skilja þessa hugmynd“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var hún ekki laus í janúar?

„Það er því nokkuð ljóst að veiran hefur komið hérna aðeins fyrr en við töldum,“ segir Sturla Orri. Hann var í viðtali í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.

https://www.visir.is/g/20202022387d/telur-allar-likur-a-ad-fyrsta-smitid-a-islandi-hafi-verid-i-januar


mbl.is Alvarlegar afleiðingar ef veiran væri laus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband