Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Farið þið að hætta þessu rugli!

Það er verið að rústa efnahag landsins og svipta fólk frelsinu vegna veiru sem er hættuleg í 1% tilfella. Látið heilbrigt fólk í friði. Og hlustið á þennan í fréttum frá Ástralíu, kominn með meira en nóg!!

https://www.facebook.com/tinashe.e.matambanadzo/videos/3339011659488478


mbl.is Fleiri en 30 í sóttkví vegna smits í Hinu húsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skólaskylda barna

Hér er grunnskólum lokað umsvifalaust ef eitt smit greinist. Er það nægileg ástæða til að börn missi úr skóla? Þau eiga lögum samkvæmt rétt á námi og eru skólaskyld frá 6-16 ára.

Og framhaldsskólanemar eru að stórum hluta einir heima hjá sér fyrir framan tölvuskjá að læra  í stað þess að vera í skólanum meðal félaga sinna. Hvort skyldi skaða þá meira? Veiran eða sama sem ekkert félagslíf?

Þegar þetta er skrifað er einn á spítala vegna covid, enginn á gjörgæslu!

 


mbl.is Segir verra að missa úr skóla en fá veiruna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

og einn á spítala!

"En þegar hálft ár sé liðið komi á óvart að það hafi aldrei komið til umræðu." Já og EINN á spítala. Sjúklingur á níræðisaldri sem var lagður inn í síðustu viku virðist vera kominn heim. 
Hversu alvarleg er þessi pest svona í sambanburði við inflúensu sem getur einnig dregið fólk til dauða? 

Þýskir læknar vilja rannsókn;

https://www.youtube.com/watch?time_continue=2&v=E1wbgrhr2Bw&feature=emb_title&fbclid=IwAR3jD57wGZxU_I3kg5LIJ_IsPWMYNKlYZ2TLDTr8WEQRRB1kIL6rI5wZEdQ


mbl.is Telur of hart gengið fram án rökstuðnings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einn á sjúkrahúsi og loka landinu?

Það er einn á sjúkrahúsi vegna covid en nokkur hundruð eða þúsund smit í gangi  Á þá að loka landinu og það jafnvel í mörg ár eða þar til bóluefni finnst sem eflaust margir munu ekki vilja láta sprauta í sig.


mbl.is Kári myndi vilja loka landamærunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað munu margir hrökklast frá námi?

Hættið þessu rugli og verið með hefðbundna kennslu fyrir ungt og heilbrigt fólk sem veikist lítið sem ekket af þesari veiru. Þeir sem vilja vera heima, geri það. Öðrum ætti að vera frjálst að mæta. Þessi veira verður hér næstu árin. Ætlið þið að vera með þetta fyrirkomulag i mörg ár? Og hvað munu margir hverfa frá námi og hvað kostar það samfélagið?

Þetta er móðursýki. Hættið að hræða fólk. Það er enginn á spítala út af þessari veiru hér á landi, sem sagt enginn alvarlega veikur.

p.s. það eru ekki tveir metrar á milli fólks í flugvélum, flugvöllum, strætisvögnun o.fl. Menntastofnanir eiga að fá undanþágu frá þessari tveggja metra reglu. Á hvaða vísindum er reglan annars byggð?

https://www.cebm.net/covid-19/what-is-the-evidence-to-support-the-2-metre-social-distancing-rule-to-reduce-covid-19-transmission/

Og hér: búin að tapa rökhugsuninni?
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2020/03/07/segir_yfirvold_ala_a_otharfa_otta/


mbl.is Útlit fyrir skólahald með óhefðbundnu sniði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skólar eiga að fá að ráða fyrirkomulaginu sjálfir!

Stjórnendur framhaldsskóla eiga að fá að ráða sínu fyrirkomulagi sjálfir. Og nemendur eiga að fá að ráða því sjálfir hvort þeir mæti í skólann eða læri heima. Þegar þetta er skrifað er ekki einn sjúklingur með covid á sjúkrahúsi. Það er því algjör hysteria að fara að takmarka skólaveru hjá ungu og heilbrigðu fólki sem hefur þar að auki greitt sín skólagjöld. Þið sem viljið vera heima, verið heima. Leyfið hinum að fara í skólann og gera það sem þeir vilja!


mbl.is Versló vonast til að fá undanþágu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband